Morgunblaðið - 05.11.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 05.11.1998, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Saka Anwar um misbeit- ingu valds VITNI saksóknara í réttar- höldunum yfir Anwar Ibrahim, fyrrverandi fjármálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Malasíu, bar í gær að Anwar hefði reynt að koma í veg fyrir uppljóstranir um kynferðismál sín með því að misnota emb- ættisvald sitt. Kjarnorku- verum lokað ÞÝSKI umhverfísmálaráðherr- ann, Jiirgen Trittin, segir að nokkrum kjamorkuverum verði lokað í Þýskalandi á næstu árum. Siiddeutsche Zeit- ung hefur eftir ráðherranum að sem stendur sé engin þörf á því að útvega orku í stað þeirrar sem umrædd kjarnorkuver framleiði nú, þar sem nóg sé af umframorku í Þýskalandi. Breskur ráðherra minnti i gær hina nýju stjóm á skuldbind- ingar hennar samkvæmt samn- ingi þýskra og breskra stjóm- valda um endurvinnslu á kjam- orkuúrgangi þýskra kjamorku- vera í Bretlandi, en fyrir þessa þjónustu eiga Þjóðverjar að greiða um 120 milljarða kr. Segjast ekki hallir undir Serba FRANSKIR fjölmiðlar fuil- yrtu í gær að franska majórn- um sem er í gæsluvarðhaldi, ákærður um njósnir fyrir Serba, hafí tekist að koma mun meiri upplýsingum til þeirra en yfirvöld hafí viljað vera láta. Hafí majórinn látið Serba hafa 25 síðna skjal þar sem fyrir- hugaðar árásir Atlantshafs- bandalagsins á skotmörk í Ser- bíu eru til umfjöllunar. Hafi Frakkinn borið við mannúðar- ástæðum. Þá vísuðu frönsk stjómvöld því á bug í gær að þau væru höll undir Serba, en mál majórsins er annað málið sem upp kemur á þessu ári þar sem Frakkar em sakaðir um að hafa veitt Serbum leynileg- ar upplýsingar. Fagna ETA- viðræðum SPÆNSKIR stjómmálamenn, hvar í flokki sem þeir standa, fögnuðu í gær þeirri ákvörðun Jose Maria Aznar, forsætisráð- herra, að hefja viðræður við Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA. Sögðu þeir ákvörðun Aznars stórt skref í friðarátt. ferm GARÐURINN -klæðirþigvel POLLINI Tjón af völdum fellibylsins Mitch metið á marga milijarða Bandaríkjadala Verstu náttúruhamfarir í Mið-Ameríku á þessari öld London, Mexíkóborg, Taipei, Tegucigalpa. Reuters. JÓHANNES Páll páfí lýsti í gær yf- ir harmi sínum vegna mannskaðans sem fellibylurinn Mitch olli í ríkjum Mið-Ameríku. Hvatti hann gervalla heimsbyggðina til að leggja sitt af mörkum til hjálparstarfs. I gær var talið að ekki færri en 9 þúsund manns hefðu farist af völdum felli- byljarins, og um 13 þúsunda var saknað. Sendiherrar Hondúras, Níkarag- va, E1 Salvador, Gvatemala og Kosta Ríka hjá Sameinuðu þjóðunum fóra á þriðjudag fram á hjálp írá alþjóða- samfélaginu til að fæða og klæða eft- irlifendur og grafa þá látnu. Þeir sögðu að fellibylurinn hefði valdið verstu náttúrahamfóram í Mið-Am- eríku á þessari öld, og að endurapp- bygging í Hondúras og Níkaragva, sem urðu verst úti, myndi taka mörg ár og kosta milljarða dollara. í Hondúras létu ekki færri en 7 þúsund manns lífið. Sendiherra landsins hjá Sameinuðu þjóðunum, Hugo Neo-Pino, sagði að um hálf milljón manna hefði misst heimili sitt af völdum fellibyljarins, miklar skemmdir hefðu orðið á samgöngu- mannvirkjum og 70% vergrar landsframleiðslu hefðu eyðilagst. Hann sagði að mikil þörf væri fyrir matvæli, lyf, fatnað og aðrar Kfs- nauðsynjar og ríkisstjórnin væri ekki í stakk búin að mæta vandan- um. 700 milljónir í neyðaraðstoð Rauði krossinn telur að Hondúras þurfi um 10 milljónir dollara, eða um 700 milljónir króna, í neyðaraðstoð. Bráðabirgðamat samtakanna á tjóninu í landinu hljóðar upp á minnst tvo milljarða dollara, eða um 140 milljarða króna. Svipaða sögu er að segja í Ník- aragva, en þar hefur eldgos, sem hófst í fjallinu Cerro Negro á þriðjudag, enn aukið á neyðina. Eldfjallið er í um 32 km fjarlægð frá fjallinu Casita, þar sem aurskriður urðu um tvö þúsund manns að bana á laugardag. Matvælastofnun Sameinuðu þjóð- anna hefur sent yfír 100 þúsund tonn af matvælum til Níkaragva, og hefur einnig dreift mat í Hondúras. Barnahjálparsjóður Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, hefur heitið að leggja til drykkjarvatn, matvæli, lyf og ábreiður. Hjálp frá Tævan Tilkynningar um neyðaraðstoð til Mið-Ameríkuríkja hafa borist víða að. í gær tilkynntu stjómvöld á Tævan að þau hyggðust gefa jafn- virði um 175 milljóna króna, en Mið- Ameríkuríkin era meðal þeirra 26 ríkja sem eyjan hefur diplómatísk samskipti við. Innflytjendur frá Mið-Ameríku- ríkjum í New York hafa hafíð söfnun til styrktar fórnarlömbum fellibylj- arins, og opnað móttökustöðvar fyr- ir matvæli, fatnað og lyf. Leiðtogar samtaka innflytjenda hafa þó lýst áhyggjum af því að erfítt geti reynst að koma hjálpargögnum á þau svæði þar sem þeirra er mest þörf, því þar hafi flestir vegir og brýr eyðilagst. f sjónum í sex daga Breskt herskip, sem var við leit- arstörf undan ströndum Mið-Amer- íku, fann konu frá Hondúras um 50 mílur frá landi. Hún hafði þá hafst við á braki í sjónum í sex daga, eftir að fellibylurinn feykti henni á haf út, ásamt eiginmanni og þremur bömum. Ekki er vitað um afdrif þeirra. Reuters Jarðarför í Gautaborg UM 2.000 manns fylgdu í gær til grafar níu af var fyrsta jarðarförin eftir harmleikinn. Sex ungmennunum 63, sem létu Iífið í brunanum í þeirra voru frá Sómalíu, tveir voru Tyrkir diskóteki í Gautaborg í síðustu viku. Þetta og einn Líbani. EMU-aðild Bretlands ákveðin „eftir nokkur ár“ Lundúnum. Reuters, Tlie Daily Telegrapli. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, og viðskiptaráðherrann Peter Mandelson reyndu í gær að slá á orðróm þess efnis, að ríkis- stjórn Verkamannaflokksins hefði þegar ákveðið þátttöku Bretlands í Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu, EMU. Blair sagði í þingræðu að það yrði að liggja fyrir að Bret- land ætti efnahagslega hagsmuni sína undir því að ganga í mynt- bandalagið áður en brezka stjórnin sækti um inngöngu, og Mandelson sagði að ákvörðun um þetta yrði ekki tekin íyrr en „eftir nokkur ár“. Mandelsons tjáði þingnefnd, sem spurði ráðherrann hvenær hann teldi það samræmast efnahagsleg- um hagsmunum Bretlands að ger- ast aðili að Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu (EMU) og hvert gengi pundsins gagnvart evrunni ætti að vera þegar pundið rynni inn í Evrópugjaldmiðilinn, að of snemmt væri að ræða heppilegasta gengið að svo stöddu. „Þetta era spurningar sem við án efa getum og munum velta fyrir okkur þegar nær dregur mögulegri inngöngu okkar í myntbandalagið. Það verður ekki fyrr en eftir nokkur ár,“ sagði Mandelson. Þingmennirnir höfðu einkar mik- inn áhuga á því að fá Mandelson til að skýra betur það sem hann sagði í ræðu sem hann flutti iðnjöfram á mánudaginn, þar sem hann sagði að það væri frekar spurning um hvenær en ekki hvort Bretland gengi í EMU. Lafontaine gagnrýndur Fjölmiðlar, bankamenn, embætt- ismenn og fleiri gagnrýndu Oskar Lafontaine, hinn nýja fjármálaráð- herra Þýzkalands, fyrir að þrýsta opinberlega á um að seðlabanka- stjórar Evrópu lækki vexti í því skyni að ýta undir hagvöxt og at- vinnusköpun í álfunni, í stað þess að láta stjórnast eingöngu af því markmiði að halda verðlagi stöð- ugu. Bankamenn í Frankfurt sögðu Lafontaine ekki gera annað með þessu en að grafa undan trausti á hina væntanlegu Evrópumynt. „Ef til vill hugsar Lafontaine sér á laun að geta hjálpað þýzkum efnahag með því að fá fram gengislækkun [marksinsj gagnvart dollaranum,“ sagði Ulrich Ramm hjá Commerz- bank, en ef áform ráðherrans gegnu út á þetta væru þau dæmd til að mistakast. Wim Duisenberg, aðalbankastjóri Seðlabanka Evrópu, sem ber ábyi-gð á peningamálastefnunni að baki evrannar, sagði í fyrradag að sér dytti ekki í hug að láta pólitísk- an þrýsting hafa nokkur áhrif á sig. Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands og leiðtogi franskra sósíalista, varaði í gær við pólitísk- um afskiptum af stjórn evrópska seðlabankans. Lávarðar taka mál Pinochets fyrir London, París. Reuters. FIMM dómarar í lávarðadeild breska þingsins, sem er æðsta dóm- stig Bretlands, hófu í gær tveggja daga réttarhald í máli Augustos Pin- ochets, íyrrverandi einræðisherra í Chile, til að skera úr um hvort hann verði framseldur til Spánar og sóttur til saka fyrir morð og pyntingar. Bú- ist er við að dómaramir tilkynni nið- urstöðu sína síðar í vikunni. Dómstófl í London hafði úrskurðað að handtaka Pinochets 16. október væri ólögmæt og að hann nyti frið- helgi þar sem hann var þjóðhöfðingi þegar meintir glæpir hans vora framdir, en úrskui-ðinum var áfrýjað. Lögfræðingur Amnesty talar fyrir hönd fórnarlambanna Um 300 manns, margir þeúra út- lagar frá Chile og ættingjar fólks sem „hvarf1 á 17 ára valdatíma Pin- ochets, komu saman í þinghúsinu í London þegar fimm lagalávarðar hófu réttai'haldið. Fórnarlömb mann- réttindabrotanna fá ekki að bera vitni en lögfræðingi mannréttinda- samtakanna Amnesty Intemational hefur verið leyft að tala fyrir hönd þeirra. Lögfræðingur Amnesty International heldur því fram að mannréttindabrotin í Chile á valda- tíma Pinochets jafngildi „glæp gegn mannkyninu“ og séu því í alþjóðlegri lögsögu samkvæmt þjóðarétti frá Numberg-réttarhöldunum eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Lögfræðingar á vegum spænska dómarans Baltasars Garzons, sem óskaði eftir því að Pinochet yrði handtekinn, taka einnig þátt í réttar- haldinu. Verði niðurstaða lávarðanna Pin- ochet í hag kann hann að verða leyst- ur úr haldi strax og líklegt er að til- raunir til að fá hann framseldan til Frakklands, Svíþjóðar, Ítalíu, Þýska- lands, Sviss, Belgíu og Lúxemborgar fari þá einnig út um þúfur. Chílesk flugvél bíður nú þegar á flugvelli ná- lægt London og á að flytja hann til Chile verði framsalinu hafnað. Franskur dómari hefur gefið út al- þjóðlega beiðni um handtöku Pin- ochets vegna þriggja Frakka, sem hurfu í Chile, og dómsmálaráðhema Frakklands kvaðst í gær ætla að senda Bretum beiðni um framsal hans um leið og dómarinn óskaði eft- ir því formlega.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.