Morgunblaðið - 05.11.1998, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LflSTIR
Frásagnir í lit
MYJVDLIST
Norræna húsið
MÁLVERK
\
MARGRÉTREYKDAL
Opið frá 14-18 alla daga nema mánu-
daga. Til 8. nóv.
„BJARTIR skuggar", eftir Margréti Reykdal.
SÝNING Margrétar Reykdal í
kjallara Norræna hússins mun vera
hennar tíunda einkasýning, en hún
mun vera búsett í Noregi og hefur
starfað þar sem myndlistarmaður
síðan á námsárum sínum á áttunda
áratugnum. Hún hefur þó haldið
„Öll mál eru fjölskyldumál“
m ■■
SALÓME ÞORKELSDÓTTIR
fyrrv. forseti Alþingis
„Það er Sjálfstaeðisflokknum nauðsynlegt
að auka hlut kvenna í forystusveit,
því styð ég Þorgerði hiklaust í 3. saeti.“
ELLERT EIRÍKSSON
bæjarstjóri í Reykjanesbæ
„Það er mikill fengur fyrir Sjálfstæðisflokkinn
á Reykjanesi að hafa unga, hæfileikaríka og
vel menntaða konu, sem Þorgerði í forystusveit-"
IVJU3U I I I
Þorgeröi
' 3. sæti!
1
ÓLI BJÖRN KÁRASON
ritstjóri Viðskiptablaðsins
„Góður stjómmálamaður þarf að
búa yfir hugmyndum og keppnisanda
til að berjast fyrir framgangi þeirra.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir býr yfir báðum
hæfileikum."
ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR
formaður SUS
„Þorgerður er hæfileikarík forystukona
og ég styð hana eindregið í 3. sæti
eftir að hafa fylgst með frábærum
störfum hennar meðal ungra
sjálfstæðismanna."
Kosningaskrifstofa að Bæjarhrauni 10,
Hafnarfirði. Síminn er 565 4699.
Opið á milli kl. 16 og 21 virka daga
og kl. 12 og 17 um helgar.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi, 14. nóvember 1998
einkasýningar hér á landi, síðast í
Gallerí Umbru 95 og Hafnarborg
93. A sýningunni í Norræna húsinu
eru þrjátíu og eitt málverk sem
unnin eru á tímabilinu frá 1993.
„Frásagnir“ er yfirskrift sýning-
arinnar og hafa myndh-nar allar til-
vísanir í eigin reynslu Margrétar.
Það eru helst seinni myndirnar sem
hafa í sér einhvern frásagnarþátt,
með skírskotunum í umhverfi
Margrétar, sem gætu falið í sér frá-
sagnarlegt samhengi. Það er
gi-einilegt að á þeim fimm árum
sem verkin spanna þá hafa myndir
Margrétar tekið nokkrum breyt-
ingum. Fyrstu myndirnar á sýning-
unni eru yfirleitt landslagsmyndir
byggðar upp á afmörkuðum litaflöt-
um og eru í föstum skorðum mynd-
byggingar. En þegar líður fram á
þetta ár má sjá hvernig Margrét
hefur gjörbreytt uppbyggingu
myndanna, til hins betra, held ég
megi segja. Þar skiptast á hreinir
litafletir og línuteikningar, gegnsæ-
ir fletir og ógegnsæir, sterkir mass-
ar og fljótandi litur. Imyndirnar og
fletimir eru lagskiptir, án fyrir-
framgefins samhengis, með sam-
spili óhlutbundinna forma og
teiknaðra fígúra. Það er líka mun
frjálslegri stíll yfir seinni myndun-
um og þær virðast byggjast á
ósjálfráðari vinnubrögðum byggð-
um á innsæi og tilfinningu, þar sem
hugsanir og minningar leiða pensil-
inn áfram fremur en viðleitni til að
halda lit og formi í skefjum á fletin-
um.
Meðal þeirra málverka sem
koma sterkust út á sýningunni eru
nr. 8 „Milli landa“, nr. 10 „Skógur,
og nr. 12 „Bjartir skuggar“. Það er
óvænt og frjálslegt samhengi lita
og hlutkenndra forma í þessum
myndum, sem gefur þeim líf og
býður upp á frásagnarlegan lestur.
Það er greinilegt að Margrét er að
færa listsköpun sína inn á nýjar
brautir þar sem litagleði hennar og
foi-mskyn njóta sín betur.
Gunnar J. Árnason
Tímarit
• GUÐFRÆÐI, kirkja og sam-
féíag nefnist 12. hefti ritraðar
Guðfræðistofnunar Háskóla ís-
lands og er efni þess tengt því
að á sl. ári voru 150 ár liðin frá
stofnun Prestaskólans í Reykja-
vík.
Flestar greinarnar eru erindi
sem flutt voru á málþingi er
haldið var í Háskólabíói sl.
haust í tilefni af 150 ára afmæli
Prestaskólans. Þeir sem rita
greinar í tímaritið að þessu
sinni eru: Dr. Páll Skúlason, sr.
Olafur Skúlason biskup, dr.
Einar Sigurbjörnsson, dr. Pétur
Pétursson, dr. Hjalti Hugason,
Aðalgeir Kristjánsson, sr. Sig-
urður Sigurðarson vígslubiskup,
dr. Arnfríður Guðmundsdóttir,
dr. Sigurður Árni Þórðarson,
sr. Kristján Búason, Jón Svein-
bjömsson, dr. Gunnlaugur A.
Jónsson, Jón G. Friðjónsson,
dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson,
dr. Leif Grane prófessor við
Kaupmannahafnarháskóla og
dr. Duncan B. Forrester pró-
fessor við Edinborgarháskóla,
en þeir tveir síðartöldu voru
sæmdir heiðursdoktorsnafnbót í
guðíræði af guðfræðideild
Háskóla Islands í tilefni afmæl-
isins.
Útgefandi er Guðfræðistofn-
un og Skálholtsútgáfan, útgáfu-
félag þjóðkirkjunnar. Dr. Gunn-
laugurA. Jónsson erritstjóri
Ritraðar Guðfræðistofnunar og
í ritnefnd með honum sitja dr.
Einar Sigurbjörnsson og dr.
Pétur Pétursson. Ritröðin er
224 bls. og kostar 2.500 kr. Rit-
röð Guðfræðistofnunar fæst í
Kirkjuhúsinu við Laugaveg 31,
Bóksölu stúdenta og í Bókabúð
Máls og menningar, Laugavegi.