Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 55* + Kristján R. Þor- varðarson var fæddur 30. janúar 1922. Hann lést 26. október síðastlið- inn. Foreldrar Kri- stjáns voru hjónin Sigríður Kristjáns- dóttir og Þorvarður Magnússon, Systir Kristjáns er M. Katrín Þorvarðar- dóttir, f. 10.10. 1923. 7. febrúar 1942 kvæntist Kristján Sigríði H. Guðjóns- dóttur, f.18.7. 1921, d. 7.4. 1987. Þau eignuðust þrjár dætur: 1) Þórhildi, f. 26.4. 1942, gift Egg- ert Bogasyni. Þau eiga þijú börn og sex barnabörn. 2) Sig- ríði, f. 11.1. 1952, gift Viðari Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur nu'n veri vöm í nótt Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Elsku afí minn, nú er komið að leiðarlokum. Hugurinn reikar til æskuáranna. A heimili ykkar ömmu átti ég margar ljúfar og góð- ar stundir. Þar var öryggi og hlýja. Alltaf var nægur tími til að hugsa um barnabömin. Stundum komstu þreyttur og pirraður heim úr vinn- unni. Þá sagði amma okkur að vera inni í stofu á meðan þú skiptir um föt. Ekki leið langur tími þar til þú birtist í stofunni endumærður. Núna skil ég betur hvers vegna þetta var svona. Starf brunavarðar var og er erfitt, sérstaklega and- lega. í þá daga þekktist ekki „áfallahjálp". Það varð að taka því sem að höndum bar. Þrátt fyrir allt vom gleðistundimar margar. Eg man sérstaklega eftir ánægju þinni og stolti yfir stráknum sem þú tókst á móti í sjúkrabíl á Miklu- brautinni. Þér fannst þú eiga í hon- um hvert bein. Flestir fullorðnir hafa orðið fyrir áfóllum í lífinu. Þú varst engin und- antekning. Missir ykkar ömmu á Gauju litlu var þungur kross að Vilhjálmssyni. Þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. 3) Guðjónu, f. 5.4. 1955, dó fárra vikna gömul. Kristján var fæddur og uppalinn í Reykjavik, vann ýmsa verkamanna- vinnu þar til hann byijaði í Slökkviliði Reykjavíkur 1958. Þar starfaði hann til 1988 er hann hætti vegna van- heilsu. Kristján dvaldi síðustu æviár srn á hjúkr- unardeild Sjúkrahúss Skagfirð- inga, Sauðárkróki. Utför Kristjáns verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. bera. Hún fæddist með ólæknandi hjartagalla, henni var ekki hugað langt líf. Þið þurftuð að vaka yfir henni til skiptis. Nóttina sem hún dó áttir þú að vaka. Alla tíð kennd- ir þú þér um að hafa sofnað þrátt fyrir að enginn vissi hve lengi hún myndi lifa. En hvaða huggun var það syrgjandi foður. Helsta áhugamál þitt og ömmu var fjölskyldan. Þegar þið voruð ung og heilsugóð þótti ykkur gam- an að fara á mannamót. Skemmti- túrar voru farnir suður í Hafnar- fjörð til að heimsækja ættingja og vini. Þetta þóttu miklar reisur. Síð- an þá hafa samgöngumálin breyst. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að fara frá Reykjavík til Hafnar- fjarðar. Þið amma voruð afar tón- elsk. Þú gast spilað á munnhörpu sem kom sér vel á góðri stundu. Síðar eignaðist þú skemmtarann. Ánægjan við að spila á hann af fingrum fram var mikil. Það er ekki hægt að skrifa minn- ingargrein um þig, afi minn, án þess að minnast allra ferðanna heim til mín, jafnvel eftir langan vinnudag til þess að gera við hjólið mitt. Hjólið sem amma hafði fengið í fermingargjöf, hjólið sem þær systur vora búnar að nota á undan mér. Já, hlutirnir voru nýttir, það var ekkert til sem hét einnota í þá daga. Eftir að þú misstir heilsuna komst þú hingað á Sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Hér leið þér vel. Þú vildir ekki fara suður aftur þegar þér bauðst vistunarrými þar. Heilsan var ekki upp á það besta. Sjúkdómurinn hafði þau áhrif að erfitt var að koma hugsunum í orð. Þessir erfiðleikar urðu stundum til þess að geðvonskan náði yfirtökunum. Þrátt fyrir þennan brest þótti þér vænt um þá sem sinntu þér, starfsfólk og ættingja. Kveðjustundin nálgast. I dag verður þú borinn til grafar frá Bú- staðarkirkju. Kirkjunni ykkar ömmu. Þið fylgdust með uppbygg- ingu þessarar fyrrverandi sóknar- kirkju ykkar allt frá fyrstu skóflustungu af miklum áhuga. Trúin var ykkar styrlcur. Með þessum fátæklegu orðum bið ég Guð að geyma minningamar um ykkur ömmu. Einnig bið ég hann að styrkja þá sem eftir lifa, vini, vandamenn og alla þá sem komu að umönnun þinni með einum eða öðr- um hætti. Kristín G. Friðbjörnsdóttir. Hann Kristján er látinn, hann andaðist á sjúkrahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki 26. október síðast- liðinn. Kristján var búinn að vera fjög- ur ár á sjúkrahúsinu fyrir norðan, en áður var hann bæði búinn að vera á Vífilsstöðum og sjúkrahúsi í Reykjavík. Kristján var búinn að missa konu sína fyrir 11 árum eða 1987 og ári seinna fékk hann slag og lamaðist nokkuð öðram megin. Eg sem skrifa þessar línur kynntist Kristjáni er ég kom á heimili hans að Hólmgarði 27 sem heimilishjálp árið 1991-1994 og var ég þrisvar í viku hjá honum, og það kunni hann vel að meta, en það hefði bara þurft að vera alla daga vikunnar. Kristján náði sér aldrei að fullu eftir áfallið, en samt gat hann gengið um og verið á rölti, en handleggurinn var aldrei góður. Það er margs að minnast er maður fer að hugsa til baka og all- ar þær stundir sem við röbbuðum saman í Hólmgarðinum. Eg sendi dætram hans og þeirra fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Kristjáns. Guðrún. KRISTJÁN R. ÞORVARÐARSON GUÐLAUG BENEDIKTSDÓTTIR + Guðlaug Bene- diktsdóttir fæddist á Vatns- leysu í Glæsibæjar- hreppi við Eyjaíjörð 19. apríl 1937. Hún lést 9. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Garðakirkju 15. september. I dag verður haldin minningarathöfn um Guðlaugu Benediktsdóttur hjúkranarfræðing á Starfsmannaheilsugæslu Sameinuðu Þjóðanna í New York. Hún fæddist 19. aprfl 1937 og lést á íslandi þann 9. september 1998. Hér í Sameinuðu Þjóðunum var hún alltaf kölluð Guja Jonsson. Hún var þekkt fyrir ljúfmennsku og vel unnin störf sem hún gegndi hér i 14 ár. Hún var íslandi til mikils sóma og íslenskri hjúkranarstétt ekki síður. Hún reyndist mér fyrirmynd i starfi og mikil stoð og stytta hér i New York. Ég verð henni ævinlega þakklát fyrir þá vinsemd og stuðning sem hún sýndi mér hér í störfum okkar saman á heilsugæslunni. Það var gaman að fylgjast með Guju í störfum hennar hér, með fólki frá öllum þjóðernum og mismunandi stéttum. Hún var eins við alla, háa sem lága, og hafði næma tilfinningu fyrir fólki. Hún hafði lag á að láta öllum h'ða vel í kringum sig og mikill var mátturinn í hennar dillandi hlátri sem hljómaði á deildinni þegar Guju var skemmt. Hún var fræg hér í byggingunni fyrir frískleika og kraft. Það muna allir eftir íslenska hjúkranarfræðingnum sem sentist út á götu í hverju hádegi, sama hvernig viðraði, til að hlaupa nokkra kflómetra og fannst það ekki neitt til að stæra sig af. Hennar var sárt saknað eftir að hún hætti að vinna hér í byrjun ársins 1997. Sjúklingar og starfsfólk komu reglulega til að spyrja um hana og biðja fyrir kveðju til hennar. Við glöddumst öll með Guju að fá nú tækifæri til þess að vera með börnum og barnabörnum og endurnýja gamla vináttu á íslandi. Nú kemur fólk með tárin i augunum og finnur svo til með Guju að hafa þurft að takast á við mikil veikindi og svo ótímabæran dauða. Það er sárt til þess að hugsa að hún Guja okkar skyldi ekki fá að njóta þess aðeins lengur að vera á íslandi með fjölskyldu sinni og vinum. Við sameinumst í dag í hugleiðsluherbergi aðalbyggingar S.Þj. og minnumst mikils metinnar samstarfskonu og vinkonu sem verður ævinlega sárt saknað. Við starfsfólkið sem eftir erum, sendum Sigurði Jónssyni eiginmanni Guju, börnum hennar og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Erla Erlingsdóttir, hjúkrunarfræðingur í S.Þj. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐJÓN ÞÓR ÓLAFSSON, Jörundarholti 170, Akranesi, er látinn. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jóna Kristín Ólafsdóttir, Ólafur Rúnar Guðjónsson, Hrafnhildur Geirsdóttir, Valur Þór Guðjónsson, Hulda Birgisdóttir, Bryndís Ólöf Guðjónsdóttir, Júlíus P. Ingólfsson, Smári Viðar Guðjónsson, Guðlaug M. Sverrisdóttir, Garðar Heimir Guðjónsson Kristín L. Hallbjörnsdóttir, Hugrún Olga Guðjónsdóttir, Haraldur Helgason, Kristín Mjöll Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Veghúsum 31, lést á Landspítalanum að morgni 3. nóvem- ber. Arnar Björgvinsson, Jón Elvar Björgvinsson, Kolbrún Steinsdóttir, Guðbjörg Björgvinsdóttir, Ágúst Björgvinsson, Guðríður Dóra Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, UNNUR ÓLADÓTTIR frá Bakka, andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði, þriðju- daginn 3. nóvember. Fyrir hönd aðstandenda, Kristín Kjartansdóttir, Ásdís Kjartansdóttir, Guðrún Kjartansdóttir, Auður Kjartansdóttir. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÚNÍA SUMARRÓS STEFÁNSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstu- daginn 6. nóvember kl. 11 árdegis. Jarðsett verður í kirkjugarðinum í Gufunesi strax að lokinni athöfn. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarfélög. Þorkell Kristinsson, Guðrún Ármannsdóttir, Stefán Jónsson, Halldóra Jónsdóttir og fjölskyldur. + KRISTÍN ALDA GUÐMUNDSDÓTTIR, Fossheiði 9, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugar- daginn 7. nóvember kl. 13.30. Jarðsett verður í Ólafsvallakirkjugarði. Auðunn Gestsson, Guðleif Selma Egilsdóttir, Valgerður Auðunsdóttir, Guðjón Vigfússon, Gestur Ólafur Auðunsson, Anastasia Auðunsson, Guðrún Auðunsdóttir, Jón Sigurpáll Salvarsson, Ingileif Auðunsdóttir, Sigmundur Stefánsson, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.