Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ALDARMINNING FRÉTTIR Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema 1998-1999 Niðurstöður úr fyrri hluta Geir Kristjánsson Gígja skordýi-afræðing- ur var fæddur 5. nóv. 1898 að Hnjúki í Vatns- dal, Húnavatnssýslu, dáinn 6. október 1981. Foreldrar hans voru Kristján Magnússon kennari, f. 19. júlí 1837, d. 14. maí 1910 og kona hans Sigríður Jósefs- dóttir. Geir ólst upp hjá Birni Leví Guðmunds- syni og konu hans Þor- björgu Helgadóttur á Mai-ðanúpi í Vatnsdal, frá 1899-1923. Hann gekk í alþýðuskóla Húnvetninga á Hvammstanga 1918-19. Var á garð- yrkjunámskeiði í Reykjavík 1922. Hann tók kennarapróf 1923 og var á námskeiði í skólasmíði í Dansk slöjdlærerskole, Khöfn, 1929. Hann las náttúrufræði, aðalgrein skor- dýrafræði í Dansk lærerhöjskole, Khöfn 1929-1930. Kennari var hann í Miðbæjarskólanum í Rvík 1923-1945. Hann starfaði að nátt- úrurannsóknum á sumrum 1931-1944 til undirbúnings að út- gáfu The Zoology of Iceland sem var útgefín í Khöfn. Vísindalegur starfsmaður atvinnu- deildar Háskólans í skordýrafræði var hann frá stofnun hennar 1937 og síðar Rannsóknar- stofnunar landbúnaðar- ins til 1973. Hann var stundakennari við Gagnfræðaskóla Reykjavíkur 1930-1933 og Kvennaskóla Reykjavíkur 1950-51. Hann kenndi á nám- skeiðum í framhalds- deild Bændaskólans á Hvanneyri 1949-64. Hann vann að ákvörðun og uppsetningu skordýra á NátL úrugripasafni íslands 1942-46. f stjóm Hins ísl. náttúrufræðifélags var hann 1942-46 og formaður Bý- ræktarfélags íslands 1953-60. Hann flutti mörg erindi í ríkisút- varpið um náttúrufræðileg efni. Hann stofnaði nýbýlið Naustanes í Kjalarneshreppi, rak þar bú og átti þar heima frá 1948. Hann var sæmdur Garpsmerki FRÍ 1967, gerður að heiðursfélaga Félags ísl. náttúrufræðinga 1978 og sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálka- orðu 1980. Geir tók mikinn þátt í frjálsum íþróttum, einkum hlaup- um, bæði utan lands og innan á ár- unum 1923-1930. Hann hlaut yfir 50 verðlaun og setti ísl. met í 800,1000 og 1500 m hlaupum, sem stóðu í 12, 15 og 18 ár. Helstu rit Geirs eru: Jurtagróður, 1936. Sumardagur á Öskjuhlíð, Sól- skin, 1937. Beitrag zur Kenntnis der Káfer-Fauna in Siidost-Island nebst Bemerkungen uber die Geograpie, Fauna und flora des untersuckten Gebiets (Vís.fél. ís- lendinga), 1937. Grasafræði (rílris- útg. námsbóka), 1938. Vatnakerfi Ölfusár-Hvítár (ásamt Finni Guð- mundssyni), 1941. Vatnakerfi Blöndu (ásamt F.G.), 1942. Útilíf (ásamt Jóni Oddgeiri Jónssyni o. fl.), 1943. Kleifarvatn, 1944. Mein- dýr í húsum og gróðri og vamir gegn þeim, 1944. íslenskt skordýra- tal (fylgirit skýrslu um Hið ísl. nátt- úrufræðifélag), 1945. Vatnakerfi Lagarfljóts og ár í Vopnafirði, 1946. Jurtasjúkdómar og meindýr (ásamt Ingólfi Davíðssyni), 1947. Co- leoptera auf Islandischen Hochland, 1935. Leyndardómur Kleifarvatns, 1941. Skaðsemi skordýranna, 1942. Skrá yfir íslensk skordýranöfn, 1937. Nýjar skordýrategundir fyrir ísland, 1939. Skordýr í Vestmanna- eyjum (árbók FÍ), 1948. Rannsókn á hnúðormum (ás. I.D.) 1954. Greinar um meindýr í gróðri og húsum í Vasahandbók bænda 1954 og 1960. Meindýr í mannahýbýlum, fræðslu- rit BÍ, 1954. Ljóð í „Húnvetninga- ljóðum" 1955. Kartöfluhnúðormur- inn og útrýming hans (ás. I.D.), 1956. Coleoptera I. Synopsis of the species (ás. Sven G. Larson), The Zoology of Iceland, III. 1959. Grasafræði (ríkisútg. námsb.), 1961. Grasfiðrildi og grasmaðkur á ís- landi, 1961. Náttúrufræði (ás. Pálma Jósepssyni), 1963. Skaðleg dýr í skreið, 1964. Vatnafræðilegar athuganir við Mývatn, 1971. Dalrím, ljóð 1974. Geir kvæntist 1924 Krist- jönu Gísladóttur frá Öskubrekku í Amarfirði. Þau áttu sex böm en af þeim komust fimm til fullorðinsára. Þau skildu. Geir kvæntist aftur Svanhvíti L. Guðmundsdóttur, kenn- ara, frá Bfldsfelli í Grafningi og áttu þau fjögur börn. í tilefni þessara timamóta var haldið veglegt ættarmót ó Húnavöll- um í Húnavatnssýslu sl. sumar en af- komendur Geirs em nú um 130 tals- ins. Guðmundur Gígja. Frágangur áfmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali em ’nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfm Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallinubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. FYRRI hluti stærðfræðikeppni framhaldsskólanema var haldinn hinn 13. október. I ár mættu alls 698 nemendur úr 22 skólum til leiks. Keppnin fer fram í skólunum undir umsjón kennara. Á neðra stigi, sem er ætlað nemendum á tveimur fyrstu áram framhaldsskólans, vora 379 keppendur og 319 á efra stigi. Úrslit vora kunngerð í Skólabæ sunnudaginn 25. október. Alls fengu 20 nemendur á neðra stigi og 21 nemandi á efra stigi við- urkenningar fyrir góðan árangur. Stærðfræðingarnir og alþingis- mennirnir Kristinn H. Gunnarsson og Pétur H. Blöndal afhentu viður- kenningarnar. Auk þess fengu þau sem urðu í þrem efstu sætunum á hvora stigi að gjöf nýútkomna bók með dæmum og lausnum dæmanna úr keppni fyrri ára. Bókin er gefin út af IÐNU bókaútgáfunni og af- henti Ingvar Ásmundsson, stærð- fræðingur og skólameistari Iðnskól- ans, bækurnar. Kaupþing hf., sem kostar keppnina, gaf aukaverðlaun, Einingabréf að verðmæti 10.000 kr. Fulltrúi Kaupþings, Helgi Bergs, dró vinningshafann út og var sá heppni Davíð Gunnarsson úr Menntaskólanum í Reykjavík. Úrslit fyrri hluta voru sem hér segir: Neðra stig: 1. Mac Chen Zhang Menntaskól- anum á Akureyri, 2. Steinunn Arn- björg Stefánsdóttir Menntaskólan- um við Hamrahlíð, 3.-4. Benedikt Steinar Magnússon Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti, 3.-4. Yuyun Feng Kvennaskólanum í Reykjavík, 5.-6. Indriði Einarsson Mennta- skólanum við Hamrahlíð, 5.-6. Sveinn Orri Snæland Menntaskól- anum í Reykjavík, 7.-8. Ásta Ás- geirsdóttir Menntaskólanum í Reykjavík, 7.-8. Héðinn Björn Hjaltested Menntaskólanum við Hamrahlíð, 9.-11. Harpa B. Óskarsdóttir Menntaskólanum í Reykjavík, 9.-11. Kristinn Bjarna- son Menntaskólanum í Reykjavík, 9.-11. Stefán Sturla Gunnsteinsson Flensborgarskólanum í Hafnar- firði, 12.-13. Andri H. Kristinsson Menntaskólanum við Hamrahlíð, 12.-13. Hólmfríður Þorsteinsdóttir Menntaskólanum á Akureyri, 14. Ingvar Sigurjónsson Menntaskól- anum í Reykjavík, 15. Einar Þór ívarsson Berndsen Verzlunarskóla fslands, 16.-18. Guðni Ólafsson Menntaskólanum í Reykjavík, 16.-18. Matthías Kormáksson Menntaskólanum í Reykjavík, 16.-18. Þorsteinn Már Arinbjarnar- GUÐMUNDUR Bjamason, um- hverfisráðherra, hefur sett reglu- gerð um akstur í óbyggðum. Sam- kvæmt henni er allur akstur utan vega og merktra slóða þar sem náttúruspjöll geta af hlotist, bann- aður. Með náttúraspjöllum er m.a. átt við spjöll á gróðri, jarðvegi og jarðmyndunum og myndun nýrra slóða, hvort sem er á grónu eða ógrónu landi og skiptir ekki máli hvort líkur era á varanlegum skaða eða tímabundnum. Nauðsynlegum akstri utan vega í óbyggðum skal jafnan hagað svo að engin náttúruspjöll eða lýti á landi hljótist af. Með nauðsynleg- um akstri utan vega er m.a. átt við akstur vegna rannsókna eða björg- unarstarfa. Við undirbúning ferða- áætlunar skal haft samráð við Náttúravernd ríkisins sem getur son Menntaskólanum í Reykjavík, 19. Helgi Þór Helgason Verzlunar- skóla íslands og 20. Ágúst Flygenring Verzlunarskóla íslands. Efra stig: 1.-2. Marteinn Þór Harðarson Flensborgarskólanum í Hafnarfirði, 1.-2. Stefán Ingi Valdi- marsson Menntaskólanum í Reykja- vík, 3. Bjarni Kristinn Torfason Menntaskólanum í Reykjavík, 4. Jó- el Karl Friðriksson Menntaskólan- um í Reykjavík, 5. Tryggvi Þor- geirsson Menntaskólanum í Reykja- vík, 6. Jens Hjörleifur Bárðarson Fjölbrautaskóla Suðurlands, 7.-8. Eyrún Linnet Flensborgarskólan- um í Hafnarfirði, 7.-8. Grétar Karl Guðmundsson Fjölbrautaskóla Suð- urlands, 9.-10. Alfreð Kjeld Mennta- skólanum í Reykjavík, 9.-10. Pawel Bartoszek Menntaskólanum í Reykjavík, 11.-14. Haukur Þor- geirsson Menntaskólanum í Reykja- vík, 11.-14. Hörður Mar Tómasson Menntaskólanum við Hamrahlíð, 11.-14. Páll Melsted Menntaskólan- um í Reykjavík, 11.-14. Páll Ragnar Jóhannesson Menntaskólanum í Reykjavík, 15.-17. Eleanor Boyce Fjölbrautaskóla Suðurlands, 15.-17. Ingvar Rafn Gunnarsson Mennta- skólanum í Reykjavík, 15.-17. Snæ- björn Gunnsteinsson Menntaskólan- um í Reykjavík, 18. Haukur Bald- ursson Menntaskólanum á Akur- eyri, 19. Reynir Sævarsson Mennta- skólanum í Reykjavík, 20.-21. Berg- þór Ævarsson Menntaskólanum á Akureyri og 20.-21. Karl Sigurjóns- son Menntaskólanum í Reykjavík. í fyrsta skipti síðan keppnin byrj- aði tóku skiptinemar þátt og náðu frábæram árangri. Niðurstöður stærðfræðikeppninnar voru hafðar til hliðsjónar við val þátttakenda í 9. Eystrasaltskeppninni í stærðfræði, sem verður haldin í Varsjá 6.-10. nóvember næstkomandi. Fyrir ís- lands hönd keppa þar Bjarni Krist- inn Torfason, Jóel Karl Friðriksson, Marteinn Þór Harðarson, Stefán Ingi Valdimarsson og Steinunn Arn- björg Stefánsdóttir. Einnig stendur til að taka þátt í Norðurlandakeppni í stærðfræði í aprfl á næsta ári og Alþjóðlegu ólympíukeppninni í stærðfræði, sem fer fram í Rúmeníu í júlí á næsta ári. íslenska stærðfræðafélagið og Félag raungreinakennara í fram- haldsskólum standa að keppninni: Félögin njóta stuðnings Kaupþings hf., menntamálaráðuneytisins, skóla keppendanna, Raunvísindastofnun- ar Háskólans og Seðlabanka ís- lands. sett skilyrði varðandi tækjabúnað og leiðaval. Tilkynna skal fyrirfram um akstur til viðkomandi sýslu- manns eða lögreglustjóra, en nauð- synlegan fyrirvaralausan akstur utan vega skal tilkynna til viðkom- andi sýslumanns við fyrsta tæki- færi. Náttúruvernd ríkisins getur í verndarskyni takmarkað umferð tímabundið eða lokað svæðum í óbyggðum enda hafi stofnunin að jafnaði gert grein fyrir fyrirhugaðri lokun í skýrslu til umhverfisráð- herra. Náttúravernd ríkisins og vegamálastjóri gefa út kort m.a. á vorin, með upplýsingum um ófærð á vegum og hvar óheimilt er að aka og á hvaða tímabili. Brot gegn reglum þessum varða sektum eða fangelsi allt að tveimur áram. + Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLFRÍÐAR STEFANÍU AXELSDÓTTUR. Reynir Ölversson, Ólafur Ágústsson, Matthildur Ágústsdóttir, Friðfinnur Ágústsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður minnar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNARJÖRUNDARDÓTTUR, Guilsmára 9, Kópavogi. Starfsfólki lyflæknisdeildar St. Jósefsspítala í Hafnarfirði þökkum við sérstaklega góða umönnun og hlýju við hana og okkur í veikindum hennar. Helga Sigurbjörg Árnadóttir, Helgi Freyr Kristinsson, Árni Freyr Helgason. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- arhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, KRISTBJARGAR LÍNEYJAR ÁRNADÓTTUR frá Garði. Borghildur Garðarsdóttir, Sveinbjörn Blöndal, Hulda Garðarsdóttir, Böðvar Valdimarsson, Páll G. Björnsson, Erla Emilsdóttir. + Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, sonar og afa, ÞORFINNS EGILSSONAR lögmanns, Næfurási 14, Reykjavík. Sigþrúður Þorfinnsdóttir, Egill Þorfinnsson, Ástrún Jónsdóttir, Egill Þorfinsson, Stefán Barði Egilsson. GEIR GIGJA Reglugerð um akstur í óbyggðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.