Morgunblaðið - 05.11.1998, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 61
FRÉTTIR
FRÁ félagsstarfi aldraðra í Ásgarði í Glæsibæ.
Heilsa og hamingja á efri árum
Námskeið fyrir
eldri borgara
FÉLAG eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni gengst fyrir sérstakri
ráðstefnu fyrir félaga sína í Ásgarði í
Glæsibæ um heilsu eldri borgara og
hvað hægt er að gera til að stuðla að
betra heilsufari þegar aldurinn fær-
ist yfir. Ráðstefnan hefur hlotið
nafnið „Heilsa og hamingja á efri ár-
um“ og vísar til þess að hægt sé að
gera ýmislegt til að stefna að betri
heilsu með heilbrigðara líferni á
miðjum aldri, sem eykur líkur á því
að menn nái efri árum í betra heil-
brigðisástandi.
Ráðstefnan fer fram 2 laugardaga,
14. og 21. nóvember, siðdegis frá kl.
13 til 17 og verða haldin 4-5 sjálf-
stæð erindi hvorn dag. Þetta er end-
urgjaldslaust fyrir félaga okkar, en
þeir þurfa að hringja í síma 588 2111
á skrifstofu félagsins í Álfheimum 74
í Glæsibæ og skrá sig fyrir miðviku-
daginn 11. nóvember. Jafnframt
verða 10 fyrirtæki með sýningu á
vörum, sem snerta frekar eldri borg-
ara.
Erindin fjalla um hin ýmsu heilsu-
farsvandamál og helstu ráð til að
koma í veg fyrir þau eða bæta, svo
að menn geti lifað við þau. Fyrirles-
arar eru þessir: Pálmi Jónsson yfir-
læknir, „Sögusagnir um ellina“ og
„Forðist sjúkdóma og fótlun“. Rík-
arður Sigfússon læknir, „Slitgigt og
liðskipti". Guðmundur Vikar Einars-
son og Benedikt Sveinsson um
„Kynlíf aldraðra".
Seinni daginn, „Hreyfing og
hreysti", Guðrún Nielsen formaður
FÁIA og Bergþóra Baldursdóttir,
yfirsjúkraþjálfi Landakoti. „Bein-
þynning“, Gunnar Sigurðsson pró-
fessor. „Augnsjúkdómar aldraðra",
Einar Stefánsson prófessor. „Þvag-
leki“, Þór Halldórsson yfirlæknfr. Þá
verður einnig fyrirlestur um fjármál
aldraðra. Gefinn er tími til fyrir-
spurna til fyrirlesara.
-----------------
Námskeið í
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir tveimur námskeiðum í
almennri skyndihjálp. Fyrra nám-
skeiðið hefst fóstudaginn 6. nóvem-
ber kl. 18. Námskeiðinu verður lokið
um helgina.
Seinna námskeiðið hefst 12. nóv-
ember kl. 19. Kennt verður til kl. 23.
Einnig verður kennt 16. og 17. nóv-
ember á sama tíma. Bæði námskeið-
in eru 16 kennslustundir.
Kennt verður í Fákafeni 11, 2.
hæð. Þátttaka er heimil öllum 15 ára
og eldri.
Sænskur
Rosen-nuddari
á Islandi
CHRISTINA Wranghede, löggiltur
Rosen-nuddari, verður stödd í
Reykjavík í nóvember og desember.
Hún mun eftir því sem hún annar
bjóða landsmönnum að kynnast
Rosen-aðferðinni.
Rosen-aðferðin er nuddaðferð
sem er þróuð af Marion Rosen eftir
50 ára starf í Bandaríkjunum.
Nuddaðferðin er létt og mjúkt nudd
sem vinnur að því að fá vöðva til að
sleppa spennunni. Jafnframt því
sem spennunni sleppir, losar um or-
sök spennunnar, segir í fréttatil-
kynningu.
Sérhver meðhöndlun tekur u.þ.b.
eina klst. og fer að mestu fram í
þögn, ívafinni einföldum spurning-
um og svörum um þau áhrif sem
meðhöndlunin framkallar.
--------------
Breskra hermanna
minnst í Fossvogs-
kirkjugarði
MINNINGARATHÖFN um her-
menn frá Bretlandi og Bresku sam-
veldislöndunum verður haldin í her-
mannagrafreitnum í Fossvogs-
kirkjugarði sunnudaginn 8. nóvem-
ber kl. 10.45.
Athöfnin er til minningar um þá
sem létu lífið í heimsstyrjöldunum.
Sr. Arngrímur Jónsson stjórnar at-
höfninni og öllum er velkomið að
taka þátt í henni.
------♦-♦-♦---
V erkamannasambandið
Stuðningur við
aðgerðir SR
FORMANNAFUNDUR Verka-
mannasambands Islands, haldinn á
Akureyri 28.-29. október 1998, lýsir
yfir fullum stuðningi við réttmæta
baráttu Sjómannafélags Reykjavík-
ur fyrir þvi að íslenskir kjarasamn-
ingar séu virtir á skipum í áætlun-
arsiglingum til íslands, segir í sam-
þykkt fundarins.
wpiníver ’skorinn í 8 hluta
(en ekki 9 eins og algengast
er). Hver skammtur er tv eir
hlutar, annað hvort heill
bringubiti og leggur saman,
eða læri og vængur saman.
Þannig verða skaimntarnir sein
jalnastir og þú ftvrð alltaf
fjórðung úr kjúklingi.
Hver skammtur
(1/4 fugl)
á aðeins 295,-
(Kynning -
tímabundið tilboð)
McDonaid's
Austurstræti 20
Suðurlandsbraut 56
K JARNI
Verslunarmiðstöð Þverholti 2, Mosfellsbæ Opnum í dag kl. 17 nýjar verslanir
V fYj^ Full búð^l ( yuy af fínum \2/ fötum - frábær föt fyrir flotta krakka nú í Kjarna Mosfellsbæ
BflSK
TfSKA & SPORT er ný tískuvöruverslun í KJARNA í Mosfellsbæ. Við höfum opið len?ur Opið mán.-fös.ii - 21 Iau?ard. 1118 I wO fyrstu viðskiptavinirnir fó BASIC boli.
f ? FANNAR SKARTGRIPIR ÚR GJAFAVARA ÁLETRANIR VIÐGERÐ AÞJ ÓNU STA ——— ^
OPIÐ TIL KL. 21