Morgunblaðið - 05.11.1998, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 65
FRÉTTIR
Opinn fundur
um heilbrigð-
isþjónustu
í dreifbýli
LANDSSAMTÖK heilsugæslu-
stöðva efna til opins fundar með pró-
fessor Roger Strasser um heilbrigð-
isþjónustu í dreifbýli, sérstaklega
um þá erfiðleika sem eru á því að
manna stöður lækna og annars fag-
fólks í heilbrigðisþjónustunni í strjá-
býli.
Þetta er reyndar ekki séríslenskt
fýrirbrigði og mun Roger Strasser
m.a. segja frá hvernig brugðist hefur
verið við þessu vandamáli í Ástralíu
þar sem vegalengdir í dreifbýlingu
eru víða gifurlegar, segir í fréttatil-
kynningu. ■
Heimssambanbd heimilislækna
(WONCA) hefur fjallað sérstaklega
um þetta mál undir forystu Strasser
og m.a. gert tillögur um þjálfun
heimilislækna fyrir vinnu í strjábýli
og bent á að kanna þarf sérstaklega
þær aðstæður sem eru í dreifbýlinu
að þessu leyti.
Roger Strasser er forstöðumaður
Centre for Rurai Health í Ástralíu
og situr auk þess í fjölmörgum
nefndum og ráðgjafahópum um heil-
brigðismál í heimalandi sínu.
Á fundinum mun Ólafur Hergill
Oddsson, héraðslæknir, gera stutta
grein fyrir stöðu mönnunai- á læknis-
stöðum á landsbyggðinni.
Ráðstefna um
virkjanir og
umhverfi
FÉLÖG verk- og tæknifræðinga
standa að ráðstefnu um vatnsafla-
virkjanir og umhverfismál á morgun,
föstudaginn 6. nóvember á Grand
Hóteli milli kl. 13 og 17.
Fjallað verður um stefnu stjórn-
valda, áætlanir Landsvirkjunai' og
viðhorf ýmissa hagsmunaaðila á borð
við Náttúruvernd ríkisins, Ferða-
málaráð, sveitarfélög o.fl. Ráðstefn-
unni er ætlað að fjalla um þetta mik-
ilvæga málefni í víðu samhengi frá
ólíku sjónarhorni. Ráðstefnan er öll-
um opin og _fer skráning fram á
skrifstofu VFÍ og TFÍ.
Á ráðstefnunni flytja erindi þau:
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, Magnús Jóhannes-
son, ráðuneytisstjóri umhverfisráðu-
Morgunblaðið/Golli
FRA afhendingu hjólastólanna.
Afhending nýrra
hjólastóla til Grensáss
í TILEFNI af 25 ára starfsafmæli
endurhæfingar- og taugalækn-
ingadeildar Grensáss 24. apríl
1998 festi Lionsklúbburinn Freyr
kaup á fjórum nýjum hjólastólum
og afhenti þá formlega 3. nóvem-
ber sl.
Með því endurnýjast hjóla-
stólaeign deildarinnar en gömlu
og slitnu stólarnir verða aflagðir.
Nýju stólarnir taka þeim eldri
fram m.a. vegna stillibúnaðar
sem gerir þá hentugri fólki af
ólíkri stærð. Þeir eru nú form-
lega afhentir Grensási til eignar
og afnota með ósk um að þeir
komi að góðum notum fyrir alla
sem þurfa þeirra með.
„A þann hátt vill Lionsklúbbur-
inn Freyr styðja það gildisríka
og þjóðholla starf sem unnið er á
Grensási af vel menntuðu og
fórnfúsu starfsfólki er hefur bætt
líðan margra manna með þraut-
þjálfuðu sérfræðistarfi," segir í
frétt frá klúbbnum.
neytis, Páll Harðarson, hagfræðing-
ur, Helgi Bjarnason, deildarstjóri
umhverfisdeildar Landsvirlqunar,
Ái'ni Bragason, forstjóri Náttúru-
verndar ríkisins, Magnús Oddsson,
ferðamálastjóri, Smári Geirsson, for-
maður Sambands sveitarfélaga
Austurlandi, Stefán Thors, skipu-
lagsstjóri ríkisins og Þorkell Helga-
son, orkumálastjóri.
Fjallað um
makamissi
NÝ dögun - samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, halda fyrirlestur
fimmtudaginn 4. nóvember í safnað-
arheimili Háteigskh-kju.
Þá mun séra Gunnar Rúnar
Matthíasson fjalla um makamissi.
Fyrii-lesturinn hefst kl. 20 og eru all-
ir velkomnir meðan húsrám leyfir.
Fræðslufundur
um erfðarann-
sóknir
og sykursýki
FSBU, foreldrafélag sykursjúkra
barna og unglinga, stendur fyrir
fræðslukvöldi í kvöld kl. 20 um
erfðarannsóknir og sykursýki. Árni
Þórsson, yfirlæknir og Kristleifur
Ki'istjánsson, erfðalæknir hjá Is-
lenskri erfðagreiningu fjalla um
sykursýki og erfðarannsóknir.
Flestir foreldrar sykursjúkra
barna hafa tekið þátt í áhugaverðri
rannsókn um leitina að sykursýkis-
geninu. Kristleifur Kristjánsson
ætlar að fjalla um þessa rannsókn
og Árni Þórsson mun fjalla um aðra
erfðarannsókn og segja frá því
nýjasta sem er að gerast í sykur-
sýkisrannsóknum. Læknarnir svara
síðan fyrirspurnum.
Fræðslufundurinn verður haldinn
í félagsmiðstöðinni Vitanum,
Strandgötu 1, 3. hæð í Hafnarfirði
og býður Hafnarfjarðarbær upp á
léttar veitingar.
Allir eru velkomnir.
Fræðslufundur
í Smáraskóla
FORELDRAFÉLAG Smáraskóla
stendur fyrir fræðslufundi í Smára-
skóla Dalsmára 3, Kópavogi, í dag,
fimmtudaginn 5. nóvember undir
kjörorðinu „Gerum góðan skóla
betri“.
Guðjón Ólafsson sérkennslufræð-
ingur mun ræða um „samskipti, líð-
an/einelti“ og svarar fyrirspurnum
að erindi loknu.
Fundurinn byrjar stundvíslega
klukkan 20.30 í sal skólans, gengið
inn að vestanverðu gegnt Smáran-
um.
Félagsfundur
hjá Neistanum
FÉLAGSFUNDUR Neistans,
Styi'ktarfélags hjartveikra barna,
verður haldinn í Seljakirkju í kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 20.
Þar mun m.a. sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir, formaður prestafé-
lagsins, halda erindi, tekið verður
við pöntunum á dagbókum auk ann-
arra mála.
Stofnfundur
Hollvinafélags
námsbrautar í
sjúkraþjálfun
STOFNFUNDUR Hollvinafélags
námsbrautar í sjúkraþjálfun verður
haldinn fostudaginn 6. nóvember í
nýju húsnæði námsbrautarinnar í
Skógarhlíð 10 og hefst kl. 16.
Á fundinum verður borin upp
stofnskrá Hollvinafélagsins og
kjörin stjórn. Formaður náms-
brautarstjórnar, dr. Þórarinn
Sveinsson, býður fólk velkomið og
sýnir húsakynnin. Framkvæmda-
stjóri Hollvinasamtaka Háskóla
Islands, Sigríður Stefánsdóttir,
flytur ávarp. Allir velunnarar eru
velkomnir að koma og kynna sér
hina bættu aðstöðu og njóta veit-
inga í boði námsbrautarinnar.
I undirbúningsnefnd að stofnun
Hollvinafélags námsbrautar í
sjúkraþjálfun sitja Karl Guð-
mundsson, Ágúst Hilmisson, Joost
van Erven, Ingveldur Ingvars-
dóttir og María H. Þorsteinsdótt-
ir.
Þeir sem ekki eiga kost á að
koma á fundinn, en vilja gerast
stofnfélagar, geta haft samband
við skrifstofu Hollvinasamtaka
Háskóla íslands og skráð sig.
Basar og
kaffísala í
Sunnuhlíð
HINN árlegi haust- og jólabasar
verður haldinn í Dagdvöl Sunnu-
hlíðar, Kópavogsbraut 1, laugar-
daginn 7. nóvember kl. 14.
Seldir verða handunnir munir,
margt fallegt til jólagjafa og
heimabakaðar kökur og lukku-
pakkar.
Kaffisala verður í matsal þjón-
ustukjarna og heimabakað meðlæti
á boðstólum.
Allur ágóði rennur til starfsemi
Dagdvalar þar sem aldnir Kópa-
vogsbúar dvelja daglangt og njóta
ýmissar þjónustu og félagsskapar,
segir í fréttatilkynningu.
Forseti sendir
samúðar-
kveðjur
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sendi í gær forseta
Honduras, Carlos Roberto Flores
Facusé, og forseta Nikaragua,
Arnoldo Almán Lacayo, samúðar-
kveðjur vegna hinna hræðilegu
náttúruhamfara, segir í fréttatil-
kynningu frá skrifstofu forseta.
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
RANGT var farið með föðurnafn
Sigríðar Loftsdóttur, sem búsett er
í Hondúras, í forsíðufrétt í gær.
Þar var Sigríður sögð Sveinsdóttir
en hún kallar sig Sveinsson þar í
landi, eftir fóðurnafni eiginmanns
síns.
0FNUNARTILB0D
Kvenfatnaöur í ótrúlegu úrvali!
Aðeins 4 verð: 1
Blússur, peysur, buxur, jakkar, dragtir, kápur, vesti, toppar o.m
Gæðafatnaður frá Þýskalandi - FRÁBÆRT VERÐ - ALLAR STÆRÐIR
> Glæsilegar gæðavörur á ótrúlegu verði
[.395,-
5 stk. Ilmvatnsglös
Fallegur kertastjaki
1.290,- 3.890,- 2.490,- 990,- 2.295,- 2.390,- 3.790,- 5.890,- 3.900,- 890,- 995,-
Quarz-úr Framr. og steikarpönnur 3ja hlutaleðurtöskusett Salatskálar - 7 hl. Hnífasett-14 hl. 30 hl. stál borðbúnaður Fjölnotapotturm. gufu 5hl pottasettm. glerioki Pottasett-8 hl. 3 skálar m. loki 3 framreiðsluföt
i n IIjt. oe^1' 4 »VÍm iúndk Itúiinu
V9ÍU6II6 DALVEGI2 • SÍMI 564 2000
EKKIMISSA AF ÞESSU