Morgunblaðið - 05.11.1998, Side 80
/ TVÍMÆLALAUST
» "m þarfasti
I N TÞJONNINN
WWW.NYHgRjI.IS
IBM Netfímty
I CQ> NÝHERJI
l
Það besta
úr báðum heimum!
unix og NT = hp
OPIN KERFIHF
I HEWLETT
I PACKARD
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Of fáir unglæknar stefna á heimilislækningar
Nýliðun í greininni
sögð nauðsynleg
í KÖNNUN, sem Sigurður Hall-
dórsson, heimilislæknir á Heilsu-
gæslustöðinni í Norður-Þingeyjar-
sýslu, gerði meðal unglækna í
haust kom fram að enginn af þeim
fjörutíu unglæknum, sem útskrif-
ast næsta vor, stefnir að námi í
heimilislækningum.
Á árunum 1995-1998 stefndu
rúm 4% unglækna að námi í heimil-
^_islækningum og nú um stundir
vantar tuttugu heimilislækna til
starfa úti á landsbyggðinni eða
sem nemur fjórðungi. Að auki
vantar heimilislækna í þéttbýlinu
að sögn Katrínar Fjeldsted, for-
manns Félags íslenskra heimilis-
lækna.
Þetta þykir Félagi íslenskra
heimilislækna uggvænleg fram-
vinda og í ályktun könnunarinnar
segir Sigurður að heimilislækning-
ar muni líða undir lok sem grunnur
heilbrigðisþjónustu á Islandi á
næstu 15-25 árum ef ekki verði
gripið til róttækra aðgerða strax til
að auka nýliðun í greininni. Hins
vegar eru margir unglæknar sem
vilja frekari kynningu á greininni
og það vekur vonir um framtíð
greinarinnar.
Opinberir aðilar
hjálpi til
Félag íslenskra heimilislækna
efnir til vísindaþings heimilislækna
á morgun, fóstudag, og á laugar-
dag sem unglæknum er boðið að
sækja sér að kostnaðarlausu og í
janúar næstkomandi verður haldin
sérstök kynning á sambandi læknis
og sjúklings á fræðsluviku lækna-
félaganna.
Katrín Fjeldsted segir að þótt
Félag íslenskra heimilislækna telji
sér málið skylt verði opinberir aðil-
ar, eins og Háskólinn, Landspítal-
inn og heilbrigðisráðuneytið, að
hlaupa undir bagga og taka á mál-
inu.
„Við erum að horfa á framtíð
heimilislækninga á Islandi á breið-
um grunni og nýliðun í faginu er
ein hlið hennar. Við sjáum að enn
sem komið er eru of fáir unglækn:
ar sem ætla í heimilislæknanám. I
ljósi þess að helmingur unglækn-
anna vill frekari kynningu á heimil-
islæknanáminu vildum við vekja
athygli heilbrigðisyfirvalda, Há-
skólans og landlæknis á því að
staðan er ekki alveg vonlaus ef
menn leggjast á eitt,“ segir Katrín.
Meðal þeirra aðgerða, sem Sig-
urður Halldórsson leggur til að
verði gripið til, er nánari könnun á
ástæðum h'tillar nýliðunar heimihs-
lækna, formleg fræðsla um nám og
starf í greininni meðal unglækna
og kandídata, kynning á og auð-
veldun aðgangs að námsstöðum er-
lendis og fleira.
Þáttur um Kristján Jóhannsson í
kínverska rrkisútvarpinu
Allt að 600 milljónir
hlýddu á þáttinn
ÞÁTTURum
Kristján Jóhanns-
son tenórsöngv-
ara hefur verið
fluttur í tvígang í
kínverska ríkisút-
varpinu, fyrst í
lok september og
aftur um síðustu
helgi. Aætlað er
að um 600 millj-
ónir manna hafi
heyrt þáttinn sem
er þrjátíu mín-
útna langur.
I upphafi þátt-
arins kynnti sljórnandinn,
Sun Xiaofei, Kristján sem
„einn af nýju tenórsöngvur-
unum þremur í heiminum"
og gat þess að hann hefði
sungið hlutverk Calafs í upp-
færslu á Turandot í For-
boðnu borginni í Peking í
haust. Xiaofei íjallaði einnig
um feril Kristjáns, fjölskyklu
hans og persónu-
leika og ræddi við
Ólaf Egilsson,
sendiherra Is-
lands í Kína, um
söngvarann. Þá
gat stjórnandinn
þess að tónlistar-
líf vaíri blómlegt
á íslandi og um
það bil tuttugu
óperusöngvarar
lifðu af list sinni
erlendis.
I viðtali Xiaofei
við Kristján sjálf-
an var að mestu rætt um
uppfærsluna á Turandot og
sagði hann engu líkt að
syngja óperuna í Forboðnu
borginni, á heimaslóð
Turandot.
Þátturinn var brotinn upp
með arium úr ýmsum óper-
um, sungnum af Krisljáni Jó-
hannssyni.
Þriggja tíma
tafír við
Hvolsvöll
UMFERÐARTAFIR urðu á Suður-
landsvegi rétt austan Hvolsvallar
frá kl. 20 til 23 í gærkvöld eftir að
tengivagni ílutningabfls hvolfdi.
Flutningabifreið frá Hornafirði á
leið austur með fullfermi var ekið á
eftir fólksbifreið, þegar fólksbifreið-
in dró skyndilega úr hraða við
Bakkakotsafleggjara. Ökumanni
*gfflutningabifreiðarinnar var nauðug-
ur einn kostur að nauðhemla með
þeim afleiðingum að 5 tonna tengi-
vagn með 7,5 tonna gámi snerist og
lenti þvsrsum á veginum og hvolfdi
utan vegarins. Mikil hálka var á veg-
inum og sagði lögreglan á Hvolsvelli
það mikið happ að ekki urðu slys á
fólki. Kallaður var til öflugur krani
til að koma tengivagninum á hjólin
og hífa gáminn á sinn stað. Hélt svo
ökumaður flutningabifreiðarinnar
áfram til Hafnar í Hornaílrði.
Viðræður um sam-
einingu VR og VH
VERSLUNARMANNAFELAG
Reykjavíkur og Verslunarmannafé-
lag Hafnarfjarðar hafa ákveðið að
hefja viðræður um sameiningu félag-
anna og hafa viðræðunefndir verið
skipaðar af hálfu félaganna til að
fara yfir viðhorfin í þeim efnum.
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, sagði í samtali við Morgunblaðið
-----+++------
Arekstur á Lag’-
arfljótsbrúnni
TVÆR fólksbifreiðir rákust saman á
Lagarfljótsbrúnni í umdæmi lögregl-
unnar á Egilsstöðum um kl. 17 í gær.
Ökumenn voru báðir einir á ferð og
sluppu ómeiddir, enda ökuhraði lítill
og báðir í bflbeltum. Bifreiðarnar
*. skemmdust hins vegar það mikið að
draga þurfti þær á brott með krana.
að upphaf málsins mætti rekja til
þess að stjóm VR hefði skrifað Versl-
unarmannafélagi Hafnarfjarðar og
vakið máls á því hvort áhugi væri fyr-
ir hendi á að athuga möguleikana á
sameiningu félaganna. Svar VH hefði
verið jákvætt og hefðu nú verið skip-
aðar viðræðunefndir af hálfu beggja
félaganna til að fara yfir málið. Sagð-
ist hann eiga von á því að fyrsti fund-
urinn yrði boðaður fljótlega.
Félagssvæði Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur hefur verið höfuð-
borgarsvæðið ef frá eru taldir Hafn-
arfjörður, Garðabær og Bessastaða-
hreppur, þar sem félagssvæði Versl-
unarmannafélags Hafnarfjarðar er.
Magnús benti aðspurður á að bæði fé-
lögin störfuðu á sama atvinnusvæði
og þætti fólki til dæmis undarlegt að
þurfa að skipta um stéttarfélag þó
það flytti vinnustað sinn milli sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu.
Tillaga fslands um undanþágu á loftslagsráðstefnunni
Óljóst hvaða niðurstaða fæst
TILLAGA Islands um undanþágu
frá samningnum um losun gróður-
húsalofttegunda fyrir einstakar
framkvæmdir í litlum samfélögum,
sem kom til umræðu á fjórðu lofts-
lagsráðstefnunni í Buenos Aires í
gær, er nú til umfjöllunar milli
funda. Fulltrúar nokkurra ríkja
tóku til máls um tillöguna í gær og
komu ýmis sjónarmið fram.
Ole Ploughmann, ráðuneytis-
stjóra danska umhverfisráðuneyt-
isins, var falið að ræða við fulltrúa
þeirra ríkja sem þátt tóku í um-
ræðunni til að freista þess að ná
samkomulagi um tillöguna. Hall-
dór Þorgeirsson, einn fulltrúa um-
hverfisráðuneytisins á ráðstefn-
unni, tjáði Morgunblaðinu í gær að
ekki væri ljóst hvað yrði um tillögu
íslands en hún gerir ráð fyrir að
ríki, sem losuðu minna en 0,05% af
heildarlosun iðnríkjanna árið 1990,
megi halda utan losunarkvóta ein-
stökum framkvæmdum sem
myndu auka heildarlosun um 5%
eða meira ef þær byggjast á end-
urnýjanlegum orkugjöfum. Hall-
dór sagði vart Ijóst fyrr en eftir
nokkra daga hvort Öle Plough-
mann tækist að ná sátt um tillög-
una.
Fundir loftslagsráðstefnunnar
standa frá klukkan 10 til 18 en í
gærkvöld var einnig fundur. Ráð-
stefnunni á að ljúka 13. nóvember.
Morgunblaðið/Golli
Öndum gefið í
haustsólinni
ENDURNAR á Tjöminni þáðu innar. Þunnur ís er á Tjörninni
brauð úr hendi mannsins sem sat og möguleikar andanna til að
á bakkanum og naut haustsólar- synda um era því minni en áður.
Sameining SR-mjöls
og Jökuls
Fyrirhuga
smíði nýs
skips í Kína
STJÓRNIR SR-mjöls hf. og Jökuls
hf. á Raufarhöfn samþykktu á fundi
í gær áætlun um samruna félaganna
undir nafni SR-mjöls hf. Með sam-
einingu fyrirtækjanna er stefnt að
aukinni þátttöku í útgerð og er í
undirbúningi samningur um smíði
öflugs nóta- og togveiðiskips fyrir
félagið í Kína.
Forsvarsmenn félaganna telja að
starfsemi fyrirtækjanna í vinnslu á
sjávarafla verði með samrunanum
mun fjölþættari en fyrr. SR-mjöl
hefur síðustu misserin fikrað sig inn
á svið útgerðar og keypti íyrr á
þessu ári 40% hlut í útgerð nóta- og
togveiðiskipsins Þórðar Jónassonar
EA.
Eignarhluti hluthafa Jökuls hf. í
hinu sameinaða félagi verður 23%
og eftir sameininguna verður Rauf-
arhafnarhreppur stærsti einstaki
hluthafi SR-mjöls hf. með 14% eign-
arhlut. Hluthafar hins sameinaða
félags verða um 1.150 talsins.
■ Stefnt að/B5