Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 80
/ TVÍMÆLALAUST » "m þarfasti I N TÞJONNINN WWW.NYHgRjI.IS IBM Netfímty I CQ> NÝHERJI l Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp OPIN KERFIHF I HEWLETT I PACKARD MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Of fáir unglæknar stefna á heimilislækningar Nýliðun í greininni sögð nauðsynleg í KÖNNUN, sem Sigurður Hall- dórsson, heimilislæknir á Heilsu- gæslustöðinni í Norður-Þingeyjar- sýslu, gerði meðal unglækna í haust kom fram að enginn af þeim fjörutíu unglæknum, sem útskrif- ast næsta vor, stefnir að námi í heimilislækningum. Á árunum 1995-1998 stefndu rúm 4% unglækna að námi í heimil- ^_islækningum og nú um stundir vantar tuttugu heimilislækna til starfa úti á landsbyggðinni eða sem nemur fjórðungi. Að auki vantar heimilislækna í þéttbýlinu að sögn Katrínar Fjeldsted, for- manns Félags íslenskra heimilis- lækna. Þetta þykir Félagi íslenskra heimilislækna uggvænleg fram- vinda og í ályktun könnunarinnar segir Sigurður að heimilislækning- ar muni líða undir lok sem grunnur heilbrigðisþjónustu á Islandi á næstu 15-25 árum ef ekki verði gripið til róttækra aðgerða strax til að auka nýliðun í greininni. Hins vegar eru margir unglæknar sem vilja frekari kynningu á greininni og það vekur vonir um framtíð greinarinnar. Opinberir aðilar hjálpi til Félag íslenskra heimilislækna efnir til vísindaþings heimilislækna á morgun, fóstudag, og á laugar- dag sem unglæknum er boðið að sækja sér að kostnaðarlausu og í janúar næstkomandi verður haldin sérstök kynning á sambandi læknis og sjúklings á fræðsluviku lækna- félaganna. Katrín Fjeldsted segir að þótt Félag íslenskra heimilislækna telji sér málið skylt verði opinberir aðil- ar, eins og Háskólinn, Landspítal- inn og heilbrigðisráðuneytið, að hlaupa undir bagga og taka á mál- inu. „Við erum að horfa á framtíð heimilislækninga á Islandi á breið- um grunni og nýliðun í faginu er ein hlið hennar. Við sjáum að enn sem komið er eru of fáir unglækn: ar sem ætla í heimilislæknanám. I ljósi þess að helmingur unglækn- anna vill frekari kynningu á heimil- islæknanáminu vildum við vekja athygli heilbrigðisyfirvalda, Há- skólans og landlæknis á því að staðan er ekki alveg vonlaus ef menn leggjast á eitt,“ segir Katrín. Meðal þeirra aðgerða, sem Sig- urður Halldórsson leggur til að verði gripið til, er nánari könnun á ástæðum h'tillar nýliðunar heimihs- lækna, formleg fræðsla um nám og starf í greininni meðal unglækna og kandídata, kynning á og auð- veldun aðgangs að námsstöðum er- lendis og fleira. Þáttur um Kristján Jóhannsson í kínverska rrkisútvarpinu Allt að 600 milljónir hlýddu á þáttinn ÞÁTTURum Kristján Jóhanns- son tenórsöngv- ara hefur verið fluttur í tvígang í kínverska ríkisút- varpinu, fyrst í lok september og aftur um síðustu helgi. Aætlað er að um 600 millj- ónir manna hafi heyrt þáttinn sem er þrjátíu mín- útna langur. I upphafi þátt- arins kynnti sljórnandinn, Sun Xiaofei, Kristján sem „einn af nýju tenórsöngvur- unum þremur í heiminum" og gat þess að hann hefði sungið hlutverk Calafs í upp- færslu á Turandot í For- boðnu borginni í Peking í haust. Xiaofei íjallaði einnig um feril Kristjáns, fjölskyklu hans og persónu- leika og ræddi við Ólaf Egilsson, sendiherra Is- lands í Kína, um söngvarann. Þá gat stjórnandinn þess að tónlistar- líf vaíri blómlegt á íslandi og um það bil tuttugu óperusöngvarar lifðu af list sinni erlendis. I viðtali Xiaofei við Kristján sjálf- an var að mestu rætt um uppfærsluna á Turandot og sagði hann engu líkt að syngja óperuna í Forboðnu borginni, á heimaslóð Turandot. Þátturinn var brotinn upp með arium úr ýmsum óper- um, sungnum af Krisljáni Jó- hannssyni. Þriggja tíma tafír við Hvolsvöll UMFERÐARTAFIR urðu á Suður- landsvegi rétt austan Hvolsvallar frá kl. 20 til 23 í gærkvöld eftir að tengivagni ílutningabfls hvolfdi. Flutningabifreið frá Hornafirði á leið austur með fullfermi var ekið á eftir fólksbifreið, þegar fólksbifreið- in dró skyndilega úr hraða við Bakkakotsafleggjara. Ökumanni *gfflutningabifreiðarinnar var nauðug- ur einn kostur að nauðhemla með þeim afleiðingum að 5 tonna tengi- vagn með 7,5 tonna gámi snerist og lenti þvsrsum á veginum og hvolfdi utan vegarins. Mikil hálka var á veg- inum og sagði lögreglan á Hvolsvelli það mikið happ að ekki urðu slys á fólki. Kallaður var til öflugur krani til að koma tengivagninum á hjólin og hífa gáminn á sinn stað. Hélt svo ökumaður flutningabifreiðarinnar áfram til Hafnar í Hornaílrði. Viðræður um sam- einingu VR og VH VERSLUNARMANNAFELAG Reykjavíkur og Verslunarmannafé- lag Hafnarfjarðar hafa ákveðið að hefja viðræður um sameiningu félag- anna og hafa viðræðunefndir verið skipaðar af hálfu félaganna til að fara yfir viðhorfin í þeim efnum. Magnús L. Sveinsson, formaður VR, sagði í samtali við Morgunblaðið -----+++------ Arekstur á Lag’- arfljótsbrúnni TVÆR fólksbifreiðir rákust saman á Lagarfljótsbrúnni í umdæmi lögregl- unnar á Egilsstöðum um kl. 17 í gær. Ökumenn voru báðir einir á ferð og sluppu ómeiddir, enda ökuhraði lítill og báðir í bflbeltum. Bifreiðarnar *. skemmdust hins vegar það mikið að draga þurfti þær á brott með krana. að upphaf málsins mætti rekja til þess að stjóm VR hefði skrifað Versl- unarmannafélagi Hafnarfjarðar og vakið máls á því hvort áhugi væri fyr- ir hendi á að athuga möguleikana á sameiningu félaganna. Svar VH hefði verið jákvætt og hefðu nú verið skip- aðar viðræðunefndir af hálfu beggja félaganna til að fara yfir málið. Sagð- ist hann eiga von á því að fyrsti fund- urinn yrði boðaður fljótlega. Félagssvæði Verslunarmannafé- lags Reykjavíkur hefur verið höfuð- borgarsvæðið ef frá eru taldir Hafn- arfjörður, Garðabær og Bessastaða- hreppur, þar sem félagssvæði Versl- unarmannafélags Hafnarfjarðar er. Magnús benti aðspurður á að bæði fé- lögin störfuðu á sama atvinnusvæði og þætti fólki til dæmis undarlegt að þurfa að skipta um stéttarfélag þó það flytti vinnustað sinn milli sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu. Tillaga fslands um undanþágu á loftslagsráðstefnunni Óljóst hvaða niðurstaða fæst TILLAGA Islands um undanþágu frá samningnum um losun gróður- húsalofttegunda fyrir einstakar framkvæmdir í litlum samfélögum, sem kom til umræðu á fjórðu lofts- lagsráðstefnunni í Buenos Aires í gær, er nú til umfjöllunar milli funda. Fulltrúar nokkurra ríkja tóku til máls um tillöguna í gær og komu ýmis sjónarmið fram. Ole Ploughmann, ráðuneytis- stjóra danska umhverfisráðuneyt- isins, var falið að ræða við fulltrúa þeirra ríkja sem þátt tóku í um- ræðunni til að freista þess að ná samkomulagi um tillöguna. Hall- dór Þorgeirsson, einn fulltrúa um- hverfisráðuneytisins á ráðstefn- unni, tjáði Morgunblaðinu í gær að ekki væri ljóst hvað yrði um tillögu íslands en hún gerir ráð fyrir að ríki, sem losuðu minna en 0,05% af heildarlosun iðnríkjanna árið 1990, megi halda utan losunarkvóta ein- stökum framkvæmdum sem myndu auka heildarlosun um 5% eða meira ef þær byggjast á end- urnýjanlegum orkugjöfum. Hall- dór sagði vart Ijóst fyrr en eftir nokkra daga hvort Öle Plough- mann tækist að ná sátt um tillög- una. Fundir loftslagsráðstefnunnar standa frá klukkan 10 til 18 en í gærkvöld var einnig fundur. Ráð- stefnunni á að ljúka 13. nóvember. Morgunblaðið/Golli Öndum gefið í haustsólinni ENDURNAR á Tjöminni þáðu innar. Þunnur ís er á Tjörninni brauð úr hendi mannsins sem sat og möguleikar andanna til að á bakkanum og naut haustsólar- synda um era því minni en áður. Sameining SR-mjöls og Jökuls Fyrirhuga smíði nýs skips í Kína STJÓRNIR SR-mjöls hf. og Jökuls hf. á Raufarhöfn samþykktu á fundi í gær áætlun um samruna félaganna undir nafni SR-mjöls hf. Með sam- einingu fyrirtækjanna er stefnt að aukinni þátttöku í útgerð og er í undirbúningi samningur um smíði öflugs nóta- og togveiðiskips fyrir félagið í Kína. Forsvarsmenn félaganna telja að starfsemi fyrirtækjanna í vinnslu á sjávarafla verði með samrunanum mun fjölþættari en fyrr. SR-mjöl hefur síðustu misserin fikrað sig inn á svið útgerðar og keypti íyrr á þessu ári 40% hlut í útgerð nóta- og togveiðiskipsins Þórðar Jónassonar EA. Eignarhluti hluthafa Jökuls hf. í hinu sameinaða félagi verður 23% og eftir sameininguna verður Rauf- arhafnarhreppur stærsti einstaki hluthafi SR-mjöls hf. með 14% eign- arhlut. Hluthafar hins sameinaða félags verða um 1.150 talsins. ■ Stefnt að/B5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.