Morgunblaðið - 15.11.1998, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Könnun á efni útvarpsstöðvanna
Talað mál 23%, tónlist
73% og auglýsingar 4%
Lést í
bflslysi
MAÐURINN sem beið bana í
bílslysinu á Suðurlandsvegi
við Kotströnd á fimmtudag,
hét Alfreð Bjarni Jörgensen
múrari og tamningamaður,
fæddur 29.4. 1960, til heimilis
að Háaleitisbraut 89 í
Reykjavík. Hann lætur eftir
sig sambýliskonu og átta ára
son.
KÖNNUN sem nemendur í hagnýtri
fjölmiðlun við Háskóla Islands gerðu
á íslenskum útvarpsstöðvum í þrjá
stundarfjórðunga einn dag í október
leiddi í Ijós að 77% allrar tónlistar
voru erlend, nánast öll ensk eða
bandarísk, 18% tónlist án orða og 5%
íslensk tónlist. Hlutfall talaðs máls
reyndist hæst á Rás 1, eða 69%, en
lægst á Stjörnunni, 3,5%. Mestur
tími fór í auglýsingar á Bylgjunni og
Matthildi, eða 15% af því tímabili
sem kannað var.
Þetta kom fram í fyrirlestri nem-
endanna á Málræktarþingi sem
haldið var í gær á vegum Islenskrar
málnefndar og Utvarpsréttarnefnd-
ar. Nemendurnir tóku upp 45 mínút-
ur af efni allra útvarpsstöðvanna 23.
október síðastliðinn, 15 mínútur um
morguninn, 15 mínútur síðdegis og
15 mínútur um kvöldið, og mældu
síðan með skeiðklukku lengd mis-
munandi efnis.
Talað mál reyndist vera 23% af
öllu efni sem flutt var meðan á könn-
uninni stóð, tónlist 73% og auglýs-
ingar 4%.
Á þeim 495 mínútum sem teknar
voru upp voru aðeins flutt fjögur lög
með íslenskum texta, þrjár stöðvar
léku tónlist án orða, ein stöðin flutti
tvær aríur, aðra á frönsku og hina á
ítölsku, en afgangur tónlistarinnar
var allur enskur eða bandan'skur.
Slettur á unglingastöðvum
Skráðar voru villur og slettur í
máli útvarpsmanna og viðmælenda
þeirra og reyndust þær einkum vera
áberandi á þeim stöðvum sem eiga
að höfða til unglinga. Engin stöðv-
anna reyndist vera laus við slettur
en á þremur þeiira heyrðust engar
málvillur, þar af var ein sem höfðar
mest til unglinga.
Utvarp á erlendum málum
í frumvarpi til nýrra útvai-pslaga,
sem kynnt hefur verið stjórnarfiokk-
unum, er nýmæli að heimild er til að
gefa leyfi til útvai-pssendinga á er-
lendum málum ef sérstaklega stend-
ur á. Þetta kom fram í ávarpi Björns
Bjarnasonar menntamálaráðherra
við upphaf málræktarþings sem
haldið vai- í gær.
„Er þetta ákvæði sett til þess að
unnt sé að sinna þörfum útlendinga,
sem hér kunna að dveljast um lengri
eða skemmri tíma, og er þá hljóð-
varp fyrst og fremst haft í huga,“
sagði Bjöm. „Þykir rétt vegna jafn-
réttis og tjáningarfrelsis að orða
þessa heimild berum orðum í lögum,
þó að ekki sé gert ráð fyrir ásókn í
að reka hér á landi stöðvar til út-
varps á öðrum tungumálum en ís-
lensku."
Forsætis-
ráðherra í
heimsdkn
í Berlín
Berlín. Morgunblaðið.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
skoðaði sameiginlega sendiráðslóð
Norðurlandanna í Berlín í gær í
fylgd Ingimundar Sigfússonar
sendiherra íslands í Þýskalandi.
í kjölfar sameiningar Þýska-
lands og flutnings Sambands-
þingsins og ríkisstjórnarinnar til
Berlínar ákváðu Norðurlöndin að
flytja höfuðstöðvar sínar til nýju
höfuðborgarinnar. Ai-kitektar og
byggingastjóri svæðisins kynntu
verkefnið fyrir forsætisráðherran-
um og fylgdarliði hans.
Hönnun og heildarskipulag
til fyrirmyndar
í samtali við fréttaritara Morg-
unblaðsins í Berlín sagði Davíð
hönnun og heildarskipulag svæðis-
ins vera til fyrirmyndar. Utfærsla
verkefnisins og byggingarlistin
sjálf undirstrikar að mati Davíðs
gott norrænt samstarf. Enda tákn-
rænt fyrir samstöðu þjóðanna
fimm út á við að ráðast í slíkar
framkvæmdir. Islenska sendiráðið
flytur til Berlínar 1. maí 1999.
Að lokinni skoðunarferðinni ætl-
aði forsætisráðherrann að skoða
byggingaframkvæmdir í borginni
sem nú eru í fullum gangi til að
undirbúa flutning Sambandsþings-
ins og stjómarráðanna á komandi
vori.
HEFURÞU
SPURNINGAR
VARÐANDI
FJÁRFESTINGAR
ocLÍFEYRISMÁL?
rXogmfarokkar
5VARA SPURNINCUM
Á VERÐBRÉFADÖGUM
18.-20. NÓVEMRFR
IÚTIBÚUM lÚNAtMMMMKANS
XHELLU
ÞRÚÐVANGIS. IIMM8731I1
OOIVIK
AUSTURVECI11. IlMI 4871301
VERIÐ VELKOMINI
fiO«iN«mniMW.lNN
'iy Mwwi
VCROBRÉF
BLAÐINU í dag fylgir auglýs-
ing um verðbréfadaga Búnað-
arbankans á Hellu og Vík, dag-
ana 18,- 20. nóvember. Auglýs-
ingunni er dreift á fyrrgreind-
um stöðum.
Morgunblaðið/Golli
Meiri þátttaka
SJÁLFSTÆÐISMENN á Reykjanesi héldu prófkjör
í gær, laugardag, til að velja frambjóðendur á lista
flokksins í alþingiskosningunum í vor. Kosið var á
ellefu stöðum í kjördæminu og er myndin tekin á
kjörstað í Viðistaðaskóla í Hafnarfirði. Klukkan 11
í gærmorgun höfðu 485 kosið en 419 í prófkjöri fyr-
ir alþingiskosningarnar 1995. Þá kusu 625 utan-
kjörfundar nú en 419 fyrir fjórum árum.
Viðskiptaráðherra um söluna á FBA
Eftirspurn eftir bréfum
kom þægilega á óvart
FINNUR Ingólfsson viðskipta- og
iðnaðarráðherra segist vera mjög
ánægður með þá miklu eftirspurn
sem reyndist vera eftir hlutabréfum
í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins.
Hann segir að í Jjósi árangursins
verði hugsanlega farin önnur leið við
sölu á eftirstandandi hlut ríkisins í
bankanum til að tryggja að há-
marksverð fáist fyrir hann.
„Eftirspumin kom þægilega á
óvart, ekki síst í ljósi þess að þegar
við vorum að setja Fjárfestingar-
bankann á fót fyrir rúmu ári komu
miklar viðvaranir frá þeim sem þótt-
ust þekkja best tO á þessum markaði
um að þetta væri röng leið, að fjár-
festingalánasjóðirnir væru lítils virði
og það ætti bara að skella þeim inn í
bankana. Við völdum hins vegar þá
leið að stofna Fjárfestingarbankann
og Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins og
nú kemur það í ljós, þegar við bjóð-
um þessar eignir til sölu, að þarna er
um veruleg verðmæti að ræða, sem
að ríkið getur nýtt sér til að lækka
skuldir og draga úr vaxtakostnaði."
Finnur segir að góður árangur
hafi ekki áhrif á áform um sölu á öðr-
um ríkisfyrirtækjum, en hugsanlega
muni það hafa áhrif á fyrirkomulag á
sölu á þeim 51% hlutafjár í FBA sem
enn eru í eigu ríkissjóðs.
„Það er spurning, úr því eftir-
spurnin er svona mikil, hvort við eig-
um að kanna annað fyrirkomulag á
sölunni. Markmiðið hjá okkur hlýtur
að vera að hámarka verðmætið á
þessum eigum fyrir ríkið og hugsan-
lega myndi annað fyrirkomulag
tryggja að ríkið fengi meira fyrir
þær.“
Lj ósmyndasýning
frá Kúbu á mbl.is
SÝNINGU á 36 Ijósmyndum Þorkels Þorkelssonar,
Ijósmyndara Morgunblaðsins, hefur verið komið upp á
Morgunblaðinu á Netinu á slóðinni mbl.is. Myndimar
eru ferðasaga Þorkels frá Kúbudvöl hans í vor og fylgja
ferðasögu Péturs Blöndals blaðamanns sem fór þangað
í sumar. Þetta er önnur ljósmyndasýningin á Netinu og
verða sýningar af þessu tagi fastur liður á mbi.is. Þær
gera kleift að birta fleiri myndir en rúmast í blaðinu.
Kúbugreinin ásamt myndaþætti er á síðu B1 og BIO til
B13 í Morgunblaðinu í dag.
manns og nátlúru
► Pinnur Ingólfsson ræðir um ný
viðhorf varðandi nýtingu nátt-
úrauðlinda á hálendinu og einka-
væðinguna sem er að umbylta
bankakerfinu. /10
Vinnum að þvi að gera
ranglætið sjáaniegt
► Til eru þeir sem berjast frið-
samlegri baráttu fyrir mannrétt-
indum og afnámi hernáms ísraela
á Vesturbakkanum. /12
Harðæri þeirra
sem eftir sitja
► Þótt mjög hafi dregið úr at-
vinnuleysi og góðæri ríki á íslandi
fer það framhjá hluta þjóðar-
innar. /26
Sljórnað með skýrum
markmiðum
► í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Hrein Jak-
obsson, forstjóra Skýrr hf. /30
►1-28
Á Kúbunni
►Kúba stendm- á þröskuldi mik-
illa breytinga. Morgunblaðsmenn
höfðu þar stuttan stans og bregða
upp myndum af landi og þjóð.
/1&14-17
í mér siær ennþá
gamla AB-hjartað
►Páll Bragi Kristjónsson réðst
ungur til Almenna bókafélagsins.
Síðan hefur margt drifið á daga
hans, meðal annars Hafskipsmál-
ið, en nú er hann orðinn eigandi
hins gamalgróna bókaforlags
Þjóðsögu. /4
Slóðin rakin
►Áfram haldið að fylgja slóð
Guðríðar Símonardóttur eða
Tyi'kja-Guddu úr Barbaríinu til
Kaupmannahafnar. /8
c
\Jferdalog
► l-4
Heilsutengd ferðaþjón-
usta er í sókn
► Samstai'f milli Reykjavíkur og
Heilsulindai’samtaka Evrópu. /4
Róm
►Enginn verður svikinn af þeirri
heimsókn. /2
BÍLAR
► l-4
London - Madríd
á einum tanki
►Timi hinna ofursparneytnu bíl-
véla er runninn upp. /2
Reynsluakstur
► Jeep Grand Cherokee - aflmik-
ill eðaljeppi með endurbótum. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-20
►Unnið að þróun tölvulíkans. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir W4/8/bak
Leiðari 32
Helgispjall 32
Reykjavíkurbréf 32
Skoðun 36
Minningar 38
Myndasögur 48
Bréf til blaðsins 48
í dag 50
Brids 50
Stjörnuspá 50
Skák 50
Fólk í fréttum 54
Útv/sjónv. 52,62
Dagbók/veður 63
Mannl.str. 18b
Dægurtónl. 24b
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6