Morgunblaðið - 15.11.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 15.11.1998, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Fólkið hans Becketts BECKETT hefur ekki verið mikið á dagskrá íslenskra leikhúsa síðustu ár, þó hefur töluvert verið um að verk höfunda frá því fyrr á öldinni hafi verið sett upp. Menn óttast hann ef til vill, ótt- ast óljósa skírskotun verkanna, þögnina sem ríkir í þeim og umlykur tungumálið og merkinguna. í kvöld, sunnudagskvöld, kl. 29.30 býðst að- dáendum þessa írska stórskálds tækifæri til að upplifa stutta stund með honum í Iðnó. Leiknir verða þrír einþáttungar Becketts sem nefnast Eintal, Ohio impromptu og Vögguvísa og er allir skrifaðir á ár- unum 1979 til 1981. Pessi verk eru á einn eða annan hátt tilbrigði við tím- ann og sviðsetning þeirra einkennist af því; hér er stigið aðeins út fyrir þær nákvæmu leiklýsingar sem Beckett lét fylgja verkum sínum. Þorsteinn J. er leikstjóri sýningar- innar. Eintalið er hljóðritun sem flutt var í Útvarpsleikhúsi Ríkisútvarpsins fyrir sjö árum af Róberti Arnfinns- syni leikara. Leikstjóri var Árni Ib- sen. Þessi hljóðritun verksins verður endurtekin í Iðnó og Róbert leikur á ný Mælandann sem talar ekki lengur heldur situr og hlustar á sín eigin orð á segulbandi. I Ohio impromptu eru tvær persónur, Lesarinn og Hlustandinn. I uppfærslunni í Iðnó er Hlustandinn horfinn af sviðinu en er samt sem áður nálægur. Lesarinn situr einn eftir og les úr minninga- bók sinni. Það er Ásta Amardóttir leikkona sem er í hlutverki Lesar- ans. í Vögguvísu situr kona í ruggustól og hlustar á hljóðritaða rödd sína, frásögn af lífi sínu sem eins og ruggar henni í svefn. Það er María Ellingsen leikkona sem er í hlutverid þessarar konu sem langar að komast burt úr lífinu. Þorsteinn segir í samtali við Morgunblaðið að kveikjan að þess- ari uppfærslu hafi verið uppfærsla sem hann sá á Beðið eftir Godot eft- ir Beckett í London í vetur. „Þetta Mælandann í átt til Krapps. „Mælandinn er á sviðinu sjö árum seinna, og hlustar á eintalið sitt, rétt einsog Krapp hlustar á sínar gömlu hljóðritanir. Mælandinn er kominn úr hvíta náttserknum og hvítu sokkunum einsog Beckett sagði til um, og í hversdagsfotin sín, tilbúinn til brottfarar, en er samt ekki á leiðinni neitt.“ í Ohio Impromtu sitja Lesarinn og Hlustandinn andspænis hvor öðrum. Hlustandinn lemur í borðið öðru hverju, einsog til að biðja um fleiri orð, til að frásögnin stöðvist ekki. „í þessari uppfærslu er Hlust- andinn horfinn af sviðinu," segir Þorsteinn, „og horfir á Lesarann innanúr sjónvarpstæki; hann lemur ekki lengur í borðið, en frásögnin heldur engu að síður áfram. Lesar- inn er til svo lengi sem hann talar sjálfur, og eftilvill eru lok verksins ekki endalokin heldur er frásögnin endurtekin, byrjar aftur og aftur, endalaust. Konan í Vögguvísu er líka til svo lengi sem hún talar, og samt eru hún og orðin aðskilin. Konan tekur aðeins undir setningar sem hún þekkir úr frásögninni, sem kemur einhverstaðar utanúr myrkr- inu, og biður um meira, uns röddin dofnar, ljósin dofna, og það verður algert myrkur.“ Þorsteinn segir að það komi hvergi jafn vel fram í höfundarverki Becketts og í einþáttungunum að hann var meistari formsins. I ein- þáttungunum verði rýmið sífellt þrengi-a, ljósið alltaf minna og minna, orðin færri og færri, og loks verði þau utan við persónuna, í myrkrinu sjálfu, ríki þagnarinnar. En þrátt fyrir þessa tilhneigingu til einfóldunar og smækkunar er margt að gerast í verkum hans, þótt það virðist ekki stórvægilegt í fyrstu. „Það er svo mikið af þessum stóru litlu hlutum í verkunum sem skipta kannski ekki miklu máli í sögu heimsins en geta verið merk- ingarþrungnir viðburðir í lífi ein- staklingsins." Sýningin verður einungis sýnd einu sinni. Þorsteinn segir að að- standendum hennar hafí þótt það við hæfi. „Það er eitthvað svo beckettiskt að hafa bara eina sýn- ingu, þetta er bara eitt atvik. Beckett er líka svo „brilliant" höf- undur að það er alveg nóg að sýna hann bai-a einu sinni.“ TRÉRISTUR Þorgerðar Sigurðardóttur í Grafarvogskirkju. Grafarvogskirkja Tréristur úr myndröð um heilagan Martein ÞORGERÐUR Sigurðardóttir myndlistarkona sýnir grafíkverk úr myndröð sinni um heilagan Martein frá Tours í Grafarvogs- kirkju. Sýningin verður opnuð eftir guðsþjónustu í dag kl. 14. Verkum sinum kom Þorgerður fyrir í kirkjunni á Marteins- messu, 11. nóvember sl. Myndirn- ar eru allar tréristur og voru unnar á árunum 1995-97. Engar tvær þeirra eru eins. Myndefnið sótti hún í einn þekktasta listgrip íslendingasögunnar, Marteins- klæði frá Grenjaðarstað f S.- Þing., sem varðveitt er í París. Þorgerður sýndi fyrst verk úr myndröðinni í Listasafni Kópa- vogs árið 1995. Listvinafélag Hallgrímskirkju valdi Þorgerði sem sumarlistamann ársins 1996 og voru Marteinsmyndir í and- dyri kirkjunnar um sumarið. Aðrar sýningar á myndunum hafa verið í Varmahlíð í Hvera- gerði, safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju í Reykjavík, á Kirkju- listaviku Akureyrarkirkju 1997 og í Lauderdal House í London 1998. Auk þess hafa verk úr myndröðinni verið á samsýning- um grafíklistainanna erlendis. ÞRÍR einþáttungar eftir Samuel Beckett verða sýndir í Iðnó í kvöld. Hér er María Ellingsen í einu hlutverkanna. var mjög hefðbundin uppfærsla eft- ir Peter Hall, manninn sem leik- stýrði fyrstu uppfærslunni á Beðið eftir Godot í London á sínum tíma. Hall hafði litlu sem engu breytt frá því hann setti verkið upp í fyrsta sinn enda sagði hann þess ekki þurfa, verkið væri sígilt meistara- stykki. Þessi uppsetning kveikti engu að síður hjá mér hugmyndir um, að jafnvel þótt verk Becketts væru óumbreytanleg í sjálfu sér, að þá væri líka hægt að fara nýjar leið- ir, sviðsetja verkin á annan hátt, og sýna að persónur hans væru líka af holdi og blóði.“ Þorsteinn ritar gi-ein í sýningar- skrá um uppfærsluna. Þar segir að Beckett hafi byrjað að vinna með hljóðupptökur í einþáttungnum Síð- asta hljóðritun Krapp’s frá 1958. „Segulbandstækið er einskonar tímavél, Krapp hlustar á gamlar hljóðritanir með sjálfum sér, spólar fram og aftur á tækinu, og ferðast þannig um þessar skrásettu minn- ingar sínar. Hann er auðvitað líka að bíða eftir að eitthvað gerist, einsog hinir veglausu Vladimir og Estragon í þekktasta leikriti Becketts, Beðið eftir Godot (1952).“ Þorsteinn segir að sér hafi þótt það forvitnilegt að leika hljóðritun- ina á flutningi Róberts Amfinns- sonar á Eintalinu í leikhúsi og færa LANDS SÍMINN www.simi.is í fjarskiptasafni landssímans, sem er ný- opnað, er að finna minjar og fróðleik um sögu fjarskipta á íslandi frá upphafi. Safnið er til húsa í gömlu Loftskeytastöðinni á Melunum, við Suðurgötu skammt frá Háskólabíói. Safnið verður opið á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum frá kl. 13:00 til 17:00. Tekið verður á móti hópum á öðrum timum eftir samkomulagi og er aðgangur ókeypis. Umsjónarmaður safnsins er Jón Ármann Jakobsson. Sími Fjarskiptasafnsins er 550 6410, fax 550 6416 og netfang: safn@>simi.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.