Morgunblaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Þótt dregið hafí úr atvinnuleysi og góðæri ríki fer það framhjá hluta þjóðarinnar. Skjólstæðingum félagsmálastofnana fækkar vissulega í góðærinu, en eftir situr ákveðinn hópur fólks. Ragnhildur Sverrisdóttir ræddi við starfsmenn félagsmálastofnana Hafnarfjarðar, Kópavogs og Reykjavíkur. FYRIR skömmu var haldin ráðstefna um aðstæður og kjör jaðarhópa, þar sem fram kom að fátækt er raunverulegt vandamál hér á landi. Niðurstöður könnunar Fé- lagsvísindastofnunar Háskólans sýna, að fátækt náði hámarki hér árið 1995, þegar 12% þjóðarinnar töldust undir fátæktarmörkum. I dag teljast 9% þjóðarinnar undir fátæktannörkum og eru konur þar í mehihluta, eða 12% þeirra á móti 8% karla. I útreikningum sínum miðaði Fé- lagsvísindastofnun við að fátæktar- mörk einhleypra árið 1997 væru 44 þúsund króna mánaðartekjur, hjá barnlausum hjónum 75 þúsund krón- ur á mánuði, hjá hjónum með eitt barn 97 þúsund krónur, pari með tvö börn 119 þúsund krónur og einstæðu foreldri 66 þúsund krónur á mánuði. Þessar tölur miðast við helming meðaltekna þessara hópa og þeir sem ekki ná hálfum meðaltekjunum teljast undir fátæktarmörkum. Starfsmenn félagsmálastofnana sveitarfélaga þekkja þennan vanda af eigin raun, þar á meðal þau María H. Hjálmarsdóttir, yfirfélagsráðgjafí fjölskyldudeildar Félagsmálastofn- unar Hafnarfjarðar, Gunnar Klæng- ur Gunnarsson, deildarfulltrúi fjöl- skyldudeildar Félagsmálastofnunar Kópavogs og Sigríður Jónsdóttir, forstöðumaður rannsóknai-- og þró- unarsviðs Félagsþjónustunnar í Reykjavík. Þau segja ekki alltaf samræmi á milli þess hvort fólk telst fátækt samkvæmt skilgreiningu á tekjum, eða hvort þetta sama fólk telur sig sjálft vera fátækt. „Við þekkjum vandann hjá því fólki sem leitar til okkar, en það er alls óvíst hve stór sá hópur er, sem aldrei leitar til félagsmálastofnana, þrátt fyrir svipaða stöðu,“ segir Sig- ríðui-. ,Afstaða fólk til að þiggja að- stoð er mismunandi. Þegar bomar eru saman aðstæður fólks hér á landi og á hinum Norðurlöndunum, sam- kvæmt könnun á högum þeirra sem fá aðstoð til langs tíma, kemur í ljós að hlutfallslega fleiri hér á landi geta ekki veitt sér ýmis lífsgæði sem spurt var um, en færri líta þó á sjálfa sig sem fátæka. Af þeim sem leita aðstoðar hér á landi telja 57% sig fá- tæka, en út frá skilgreiningum um fátæktarmörk er hópurinn stærri.“ 44 þúsund kr. markið of lágt Gunnar Klængur tekur undir að afstaða fólks til fátæktar sé mjög mismunandi, en of lágt sé að miða við 44 þúsund króna mánaðartekjur hjá einstaklingi, enda miði félags- málastofnanir sveitarfélaganna við hæm upphæð, um og yfir 50 þúsund krónur. Þar er gengið út frá grunni tryggingabóta, en hvert sveitarfélag setur sér reglur um fjárhagsstuðn- ing. Sigríður segir að endurskoða þuríí viðmið um mánaðargreiðslur í Reykjavík, sem núna eru tæpar 53.600 krónur. Slík endurskoðun hafí síðast verið gerð í maí 1995. María segir að hópurinn sem teljist fátækur sé stór, þrátt fyrir að miðað sé við svo lága tölu. „Ef miðað væri við 54 þúsund króna tekjur á mán- uði, sem telst seint ofrausn, þá værí hópurinn enn stærri, hugsanlega 16- 20% af þjóðinni, en þá þarf líka að taka með í reikninginn hvort fólk býr í eigin húsnæði eða á leigumarkaði og hver skuldastaða þess er. Kröf- urnar breytast líka. Telur fólk til dæmis að það sé munaður að eiga bíl? Einstæð móðir, sem þarf að koma börnum sínum í leikskóla og skóla þarf bíl, en eini bíllinn sem hún getur keypt er gömul drusla og hún ræður ekki við að greiða iðgjöldin af tryggingunum. Hún hefur nefnilega alls ekki efni á að reka bfl, en við út- reikninga á nauðsynlegu fram- færslufé er ekki gert ráð fyrir þess- um kostnaði." Samsetning hóps fátæks fólks hér á landi er mjög svipuð og í nágranna- löndunum. Lágt hlutfall hópsins, eða tíundi hluti, hefur atvinnu, sem oft er hlutastarf eða stopul vinna. Þetta er nokkuð misjafnt eftir sveitarfélögum, í Reykjavík hefur til dæmis lægra hlutfall fólks sem leitar til félagsmála- stofnana einhverja atvinnu en í Hafn- arfirði, eins og María bendir á. ,At- vinna þessa hóps í Hafnarfirði byggir hins vegar oft á tímabundnu starfi, til dæmis í fiskvinnslu. Hafnarfjörður er nær gnmnatvinnuvegunum að þessu leyti,“ segir hún. Gunnar Klængur segir hið sama eiga við um Kópavog, sem skýrist hugsanlega af þvi að fé- lagsmálastofnanir í smærri sveitarfé- lögum séu nær atvinnumiðlunum og eigi því hægara um vik að styðja fólk til vinnu. I Ijósi þessa þyki sér undar- legt að vinnumiðlun skuli hafa verið flutt frá sveitai-félögum til rfldsins. Búum verr að barnafólki Sigríður segir Island skera sig úr að því leyti að hér þurfi hærra hlut- fall einstæðra foreldra stuðning fé- lagsmálastofnana en hjá nági-anna- þjóðum og þau eru sammála um að þá niðurstöðu sé einungis hægt að túlka á þann veg að Islendingar búi verr að barnafólki. í hópi einstæðra foreldra sé hæst hlutfall þeirra sem stundi vinnu og þurfi samt aðstoð, bæði vegna þess að störfin eru lág- launastörf og fólk geti ekki unnið eins langan vinnudag og aðrir. Hins vegar hafi atvinnuleysisbætur skán- að nokkuð og fólk þurfi ekki lengur að þreyja bótalaus tímabil. „Þegar atvinnuástandið skánar þá leita að sjálfsögðu færri aðstoðar félags- málastofnana, en eftir situr hlutfalls- lega stór hópur. Þar eru einhleypir og barnlausir öryrkjar áberandi. Það er sá hópur sem ekki nær að vinna sig upp þótt aðstæður í þjóðfélaginu batni,“ segir Gunnar Klængur. „Hins vegar eru slitnir, fullorðnir einstaklingar, sem áður voru áber- andi, að hverfa. Þeir eru hugsanlega fremur skráðir öryrkjar núna.“ Sigríður tekur undir þetta. Hún kveðst hafa kannað stöðu öryrkja tíu ár aftur í tímann og séð að hópurinn hafi staðið í stað. „Svo leita til okkar sjúklingar, sem stundum geta stund- að einhverja vinnu og teljast því hvorki öryrkjar né atvinnulausir." María bendir á annan hóp, sem er mjög áberandi hjá félagsmálastofn- unum, en það eru einhleypir karl- menn, oft á miðjum aldri og eldri. „Þessir menn búa einir, stunda stopula vinnu, eru kannski túramenn. Á þessum hópi sannast að karlar halda síður tengslum við fjöl- skyldur sínar. Ef þeir eru fráskildir hafa konurnar þeirra oftar en ekki séð um að rækta fjölskyldutengslin, bjóða til samkvæma, muna eftir af- mælisdögunum og svo framvegis.“ Sigríður tekur undh' þetta og seg- ir að lífstfll einhleypa mannsins falli oft illa að hefðbundnu íjölskyldulífi. Hann eigi stundum við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða, lendi í kast við lögin, og eigi í sumum tilvikum við geðræn vandamál að etja. Hann verði því einstæðingur, sem njóti ekki góðs af öryggisneti fjölskyld- unnar, en óvanalegt sé að finna kon- Morgunblaðið/Kristinn SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR: „Hér á landi þarf hærra hlutfall einstæðra foreldra stuðning félagsmálastofnana en hjá nágrannaþjóðum." GUNNAR KLÆNGUR GUNNARSSON: „Það er einfaldlega ekkert pláss lengur fyrir þá sem geta aðeins stundað einföldustu störf.“ MARÍA H. HJÁLMARSDÓTTIR: „Þess sjást vissulega merki að önnur og þriðja kynslóð komi til félagsmálastofnunar af því að hún hefur lent í sama farinu og foreldrarnir."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.