Morgunblaðið - 15.11.1998, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 15.11.1998, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 39 áhugasamur um bókmenntir, sögu og ættfræði. Hann var ennfremur mikill unnandi sígildrar tónlistar og það var honum því eðlilega mik- ið ánægjuefni að sjá hve tónlist skipaði stóran sess í lífi einkason- arins Ketils og fjölskyldu hans. Síðustu æviárin átti Ingi við nokkurt heilsuleysi að stríða en naut frábærrar umönnunar Borgu á heimili þeirra. Við Vaka og börn- in þökkum samfylgdina og biðjum góðan Guð að styrkja Borgu, Ketil, Ursúlu og barnabömin. Guðmundur Magnússon. Eg mun hafa verið 12 ára gömul þegar Vilborg systir mín trúlofað- ist Ingólfí Þorsteinssyni, ungum og glaðbeittum Ólafsvíkingi, þá nýút- skrifuðum stærðfræðistúdent á leið til náms í Þýskalandi. Þetta var í upphafí fjórða áratugarins. Allar götur síðan höfum við Ingólfur átt samleið og nú eru það að verða nær sjö tugir ára. Öll þessi ár var Ingólfur í hlutverki veitandans og þeirrar gerðar var hann að einstak- lega auðvelt var af honum að þiggja. Hvort sem hann leiðbeindi ungri stúlku í stærðfræði eða að- stoðaði mágkonu sína og fjölskyldu hennar síðar á lífsleiðinni þá var það gert af ósérhlífni og ljúf- mennsku og svo sjálfsagt þótti honum að aðstoða aðra að stundum þegar hann rétti fram hjálparhönd var hann afsakandi yfír að geta ekki gert enn betur. Ég er sann- færð um að margir minnast Ingólfs Þorsteinssonar með hlýju fyrir hjálpsemi hans og rausn. Ingólfur var sannkallaður höfð- ingi og hann var heimsborgari í besta skilningi þess orðs. Hvar sem hann fór leitaði hann uppi hið besta í listum og bókmenntum. í heimi gamalgróinnar evrópskrar menningar leið honum vel. Öperu- hús heimsborganna, tónleikar og hvers kyns listviðburðir settu sterkan svip á frásagnir hans af ferðalögum þeirra hjóna erlendis. Sjálfur var hann listhneigður og listamaðurinn í honum var sfleit- andi. A ferðum sínum um Evrópu var hann sífellt að færa út sjón- deildarhringinn og fáum mönnum hef ég kynnst sem sýndu umhverfi sínu eins mikinn áhuga og Ingólfur Þorsteinsson gerði. Þekking hans á sögu og stjómmálum var víðfeðm og þjóðlegur fróðleikur og ætt- fræði voru honum hugleikin. Bókasafn átti Ingólfur ágætt. Bækur umgekkst hann af virðingu og sjaldan var ánægjuglampinn í augum hans meiri en þegar hann hélt á fallega innbundinni bók frá fyrri tíð, sem hafði að geyma merkilegan fróðleik, ljóð eða sögu. Bókasafnið hans Ingólfs fannst mér alltaf vera spegill á hann sjálf- an; handinnbundnar bækur, fagur- lega skreyttar og raðað í hillur af mikilli nákvæmni og natni. Allt varð að vera gegnumheilt og vand- að. Og þannig var hann sjálfur. Hann lagði sig fram um að gera alla hluti vel, vanda sig, bæði í stóru og smáu. Ingólfur mágur minn var að sjálfsögðu ekki óaðfinnanlegur fremur en aðrir dauðlegir menn. Hann var maður mikilla og ríkra skoðana og stundum gustaði um sali þegar málin vora krafin. Allt fór fram af góðsemi og í vinsemd en fyrir bragðið var aldrei leiðin- legt í nærvera Ingólfs. I hans ná- vist var ævinlega leiftrandi líf og fjör, á dagskrá allt milli himins og jarðar og eftirspurn eftir skoðun- um og afstöðu í öllum málum. Ingólfur og Vilborg eignuðust Ketil son sinn árið 1936. Hann var augasteinn foreldra sinna. Af þess- um frænda mínum hef ég alltaf verið stolt, enda afburðamaður á sviði vísinda og tónlistar, en mest hefur mér þó þótt um vert hve mik- ill mannkostamaður hann er. Þegar ég hugsa til baka, til allra þeirra samverastunda sem fjöl- skyldur okkar hafa átt saman, er mér þakklæti í huga. Ég er mági mínum Ingólfi Þorsteinssyni þakk- lát fyrir ótal ánægjustundir og ég er honum þakklát fyrir þá hjálp- semi og ástúð sem börn mín hafa notið af hans hálfu. Við Andrés óskum honum guðs blessunar og sendum Vilborgu systur minni og Katli og fjölskyldu okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Margrét Helga Vilhjálmsdóttir. Deyi- fé/ deyja frændr/ deyr sjálfr it samaýen orðstírr/deyr aldregi/ hveim er sér góðan getr. Þetta erindi úr Hávamálum var saumað út í stórt veggteppi á heimili Ingólfs Þorsteinssonar og Vilborgar Vilhjálmsdóttur móður- systur minnar. Mér er í barns- minni að ég sat í stól og horfði á þetta teppi. Deyja frændur - dauð- inn virtist svo órafjarri. Nú er sá frændi sem var mér nánastur, en var þó ekkert skyldur mér, dáinn. Ég vil að leiðarlokum þakka fyrir allt sem fyrir mig var gert í þau nærfellt 50 ár sem við þekktumst. Þakka fyrir Rómarferðina þar sem lukust upp fyrir unglingsstúlku töfrar hinnar fomu borgar, þakka fyrir að hafa fengið að kynnast sveitasælunni hjá frændfólki hans austur í Hreppum, þakka fyrir armbandið frá New York og allar gjafírnar sem gefnar voru af minnsta tilefni og voru til vitnis um þá hugulsemi og ástúð sem mér var sýnd. „Vertu ekki að þakka mér,“ sagði Ingólfur alltaf, „þakkaðu frekar henni frænku þinni, þetta er allt að hennar und- irlagi.“ Víst er að þau vora mjög samhent hjón, Ingólfur og Vilborg frænka mín. Saman bjuggu þau sér heimili af slíku listfengi og smekkvísi að af bar. Ingólfur var mikill fagurkeri og naut þess að kaupa fallega hluti til þess að prýða heimilið. Það var alltaf hátíð að koma á heimili þeirra, og snei'- ust umræður oft um vandamál líð- andi stundar. Ingólfur hafði ríka réttlætiskennd og hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Hann var mikill listunnandi og átti gott bókasafn. Halldór Laxness sagði í eftirmælum um Jóhann skáld Jónsson, fóðurbróður Ing- ólfs, að af öllum listum hafi hann metið tónlistina mest. Ég held að það sama hafí átt við um Ingólf. Hann spilaði á píanó og setti sig aldrei úr færi að fara á tónleika eða í óperu á ferðum sínum í út- löndum. Mér er minnisstæð sýning á Madama Butterfly á fornum úti- leikvangi í Róm. Slíkar ferðir verða ekki farnar aftur, en minn- ingin liflr. Valgerður Andrésdóttir. JULIUS SMARI BALDURSSON + Július Smári Baldursson fæddist á Akureyri 8. september 1970. Hann lést 7. nóvem- ber síðastliðinn og fór útfór hans fram frá Glerárkirkju á Akureyri 13. nóvem- ber. Þau ljós sem skærast lýsa þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (FGÞ) „Enginn veit sína ævina fyrr en öll er“ eru orð sem komu upp í huga mér þegar mér var tjáð að hann Brói okkar væri dáinn. Það gat ekki verið. Júlíus Smári var fæddur hinn 8. september 1970. Brói, eins og hann var oftast kallaður, ólst upp í mikilli hlýju og öryggi í faðmi foreldra sinna, þeirra Þorgerðar Lilju Foss- dal og Baldurs Ragnarssonar. Það er eins og Guð velji sér sér- stakt fólk til að annast börn sem búa við fötlun og þurfa á mikilli um- hyggju og umönnun að halda. Aldrei fann maður að þetta væri þeim erfítt, þvert á móti vora þau glöð og jákvæð. Það hrannast upp minningar um þann sem horfinn er. Þrátt fyrir að Brói hafí verið fatlaður frá fæðingu sá maður strax hvað hann skildi mikið. Hann tók eftir öllu í kringum sig og ekki þýddi að fara á bak við hann með neitt. Það má segja að hann hafí verið forvitinn að eðlisfari og vildi fylgast með hvað allir væru að gera. Það hlýtur að hafa verið hon- um erfitt að vera heftur í líkama sínum og geta lítið tjáð sig. Það vildi honum til að hann hafði gott lundar- far þótt stundum væri minnst á svo- kallaða „Syðra-Hólsþrá“. Ég er sú frænka sem fékk að njóta þess að hafa systur hans í sveit. Fyrst Thelmu og seinna Berglindi. Það féllu fáir laugardag- ar úr sem ekki var hringt í sveitina og hátalarakerfið í símanum haft opið svo Brói gæti hlustað á hvað væri að frétta úr sveitinni. Það er mér kær minning þegar Brói kom í sveitina til að sjá dýrð systra sinna. Það komu upp vandamál með ýmis- legt en „það mátti leysa þau“ sögðu Lilla og Balli. Pabbi hans keyrði hann í stólnum sínum út að fjárhús- um, ofan í fjöru og á fótboltavöllinn. Hann varð að sjá alla dýrðina. Elsku Lilla og Balli, missir ykkar er mikill. Um leið og ég sendi ykkur og dætrum ykkar innilegar samúð- arkveðjur frá fjölskyldu minni óska ég þess að Guð styrki ykkur og styðji og leiði ykkur á erfiðum tím- um. Megi minning okkar um Bróa verða okkur ljós á lífsins leið. Fullviss um að líf er eftir þetta líf og að þú, Brói minn, gangir alheill á Guðs vegum kveð ég þig að sinni. Guð veri með þér Ijósið okkar. Bjarnheiður J. Fossdal. Elsku Smári minn. Núna er ég að kveðja þig. Þegar ég fór frá íslandi í sumar bjóst ég alls ekki við því að við ætt- um ekki eftir að hittast aftur. Ég var alveg ákveðin að heimsækja þig þegar ég kæmi til íslands aftur ein- hvern tíma í framtíðinni. Þegar við vorum saman var oft gaman. A meðan við gerðum æfing- ar vorum við oft að hlusta á útvarp- ið og við hlógum alltaf mikið. Við töluðum líka oft um KA-handbolta eða sögðum brandara. Við gerðum líka grín að því hvað ég talaði ís- lenskuna vitlaust. Mér leiðist mjög mikið að þessar stundir komi aldrei aftur. Vertu sæll, elsku Smári minn. Ég mun alltaf muna þig og brosið þitt. Þín vinkona, Nynke de Zee, Hollandi. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + FINNBOGI PÉTURSSON málari, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 11. nóvember. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 18. nóvember kl. 13.30. Aðstandendur. + Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, TERESIA HORVATH, Möðrufelli 15, síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu Skjóli, lést föstudaginn 30. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir sendum við þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför hennar. Gabriella Horvath, Baldur Þórðarson, börnin og fjölskyldur þeirra. + Hjartfólginn sonur okkar, bróðir, barnabarn, frændi og vinur, JÓHANN ÁRNI SÆVARSSON, Miðtúni 16, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju þriðju- daginn 17. nóvember kl. 14.00. Sævar H. Jóhannsson, Svandís Árnadóttir, Olga Dís Sævarsdóttir, Olga Fanney Konráðsdóttir, Jónína Magnúsdóttir, Gylfi Vilberg Árnason, Soffía Guðlaugsdóttir, frændsystkini og vinir. + Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, AÐALSTEINN INDRIÐASON, áður Lönguhlíð 21, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 16. nóvember kl. 13.30. Leifur Á. Aðalsteinsson, Margrét Valgerðardóttir, Aðalsteinn Ó. Aðalsteinsson, Ásdís Elín Júlíusdóttir, Jóhanna G. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, 3TANLEY KIERNAN, Jökulgrunni 13, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 16. nóvember kl. 15.00. Maren Níelsdóttir Kiernan, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. Lokað Vegna útfarar GUNNARS SIGURÐSSONAR, fv. byggingarfull- trúa í Reykjavík, verða skrifstofur byggingarfulltrúa í Borgartúni 3 lokaðar, til kl. 13.00 mánudagin 16. nóvember 1998. Byggingarfulltrúinn í Reykjavík. . ............. t
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.