Morgunblaðið - 15.11.1998, Page 40

Morgunblaðið - 15.11.1998, Page 40
40 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Gunnar Sig- urðsson var fæddur á Akureyri 9. desember 1925. Hann lést í Sjúkra- húsi Reykjavikur aðfaranótt 5. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Sölvason, húsa- smíðameistari á Akureyri, f. 16.1. 1895 á Akureyri, d. * 10.6. 1986, og kona hans, Elinborg Jónsdóttir, f. 18.3. 1889 á Krónustöðum í Eyjafirði, d. 31.10. 1979. Systkini Gunnars eru: Aðalsteinn, Ingólfur og María, öll búsett á Akureyri. Gunnar giftist í Kaupmanna- höfn 19. september 1951 Ingi- björgu Olafsdóttur, hjúkrunar- fræðingi, f. 27.7. 1927. Foreldr- ar hennar voru Ólafur Bjarna- son, bóndi í Brautarholti á Kjal- arnesi, f. 19. 9. 1891, og kona hans, Ásta Ólafsdóttir, 16.3. 1892, d. 8.4. 1985. Gunnar og Ingibjörg eignuðust 3 börn: 1) Ásta, kennari og forstöðumað- ' ur, f. 8.2. 1954, gift Birni Reyni Friðgeirssyni, f. 18.4. 1951. 2) Elinborg, f. 12.1. 1962, d. 13.1. 1962. 3) Sigurður Bjarni, sjúkraliði, f. 12.1. 1962. Börn Ástu og Björns eru: Gunnar Ingi, f. 20. 2. 1978, og Ásthildur Orðstír deyr aldregi hveim es sér góðan getr. Gunnar Sigurðsson mágur minn lést aðfaranótt 5. nóv. sl. eftir van- 'heilsu nokkum tíma. Þar er horfinn af hinu veraldlegu sjónarsviði góð- ur maður og gegn. Kynni okkar hófust árið 1950 í Kaupmannahöfn en þau voru þá við nám þar, Ingi- björg systir mín og Gunnar. Gunn- ar stundaði framhaldsnám við Polyteklniska Læreanstalt í verk- fraeði en systir mín hjúkrunarnám. í einni heimsókn minni til systur minnar frá Svíþjóð, á Dr. Louise barnaspítala þar sem hún stundaði nám kynnti hún mig fyrir manns- efni sínu. Það var hógvær og stillt- ur ungur maður sem gekk inn i litla herbergið hennar í risinu á spítal- anum þar sem systir mín bjó og sú góða mynd sem ég gaf mér af verð- ‘andi mági mínum við fyrstu kynni fölnaði aldrei í þau fjörutíu og átta ár sem við áttum samleið. Gunnar hóf fljótlega störf hjá Reykjavíkurborg sem verkfræðing- ur eftir að hann lauk námi, en hafði þó áður unnið þar í sumarfríum á námsárum sínum. Á árunum 1973-1996 var hann í embætti byggingarfulltrúa í Reykjavík og naut þar trausts yfirmanna sinna í hvívetna. Mágur minn flíkaði ekki oft skoð- unum sínum á mönnum og málefn- um en þegar hann gerði það kom í ljós að skoðanir hans voru mótaðar af sanngirni og íhugun um málefn- ið. Ekki er öllum gefinn sá hæfileiki %ð hlusta vel á aðra flytja mál sitt eða setja sig inn í hlutskipti ann- arra en mér varð fljótlega ljóst að þann hæfileika hafði Gunnar mágur minn í ríkum mæli og af kynnum mínum af æskuheimili hans að Munkaþverárstræti 38, Akureyri, hjá foreldrum hans Elínborgu Jónsdóttur og Sigurði Sölvasyni byggingameistara hefur verið vel hlúð að þeim hæfileika. Alltaf var leitað til Gunnars þeg- ar byggt var í Brautarholti til þess að fá hann að teikna burðarþol- steikningar af þeim húsum sem T)yggð voru. Var þá oft setið fram eftir kvöldum í Ljósheimum 1 á heimili þeirra hjóna, allt reiknað út eftir vissum formúlum og leitast við að gera bygginguna sem hagkvæm- asta og vandaðasta fyrir bygging- araðila. Virðing Gunnars á starfi sínu, skyldurækni og vandvirkni y.ir sérstök. Kristín, f. 21. sept- ember 1987. Gunnar varð stúdent frá MA 1945 og stundaði nám við verkfræði- deild Háskóla fs- lands 1945-48. Að þvi loknu hélt hann til Kaupmannahafn- ar og lauk prófi þar í byggingarverk- fræði 1953. Gunnar var verkfræðingur hjá bæjarverkfræð- ingnum í Reykjavík 1953-57 og hjá byggingarfulltrúa Reykjavíkur 1957-63. Rak eigin verkfræði- stofu í Reykjavík 1963-67. Deildarverkfræðingur hjá byggingarfulltrúanum í Reykja- vík 1967-73. Byggingarfulltrúi í Reykjavík 1973-94. Kennari við Meistaraskóla íslands frá stofn- un hans 1961-93. Gunnar var formaður nefndar um stein- steypustaðla og samræmingu burðarþolsteikninga. Ennfrem- ur í nefnd til að semja frumvarp að nýjum byggingarlögum 1973 og í nefnd til að semja nýja byggingarreglugerð 1978. I stjórn Stéttarfélags verkfræð- inga 1957. Utför Gunnars fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 16. nóvember og hefst athöfnin klukkan 10.30. Flestum er nauðsynlegt að verja tómstundum sínum á uppbyggileg- an hátt og tómstundum sínum varði Gunnar í ferðalög, sérstaklega gönguferðir um landið og brids. Gönguferðirnar voru farnar með gömlu skólafélögum sem héldu hópinn eftir skólaárin og var víða farið um landið eftir því sem árin liðu. Eg minnist jeppaferðar okkar Gunnars ásamt fleirum fyrir nokkr- um árum. Snjóskafl stöðvaði ferð- ina við Langjökul og hvorki varð komist áfram né afturábak. Bifreið- in var föst í snjóskaflinum. Á verk- fræðilegan og yfirvegaðan hátt var bifreiðin losuð úr festunni. Slíkar ferðir eru ómetanlegar í minningar- sjóði hvers manns og skilja eftir ljúfar minningar um góðar sam- verustundir. Er ég sat við sjúkrabeð mágs míns eina kvöldstund ræddi hann við mig um skólafélaga sína fyrr- verandi og störf þeirra. Hugur hans var hjá þeim og fjölskyldu hans. Trygglyndi var hans einkennis- merki. Ég og fjölskylda mín kveðjum þig, kæri mágur, með söknuði og sendum Ingibjörgu systur minni og fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúðarkveðj ur. Páll Olafsson, Brautarholti. Spor okkar á lífsleiðinni afmást en spor góðs manns afmást seint. Ég kynntist Gunnari, en hann var kvæntur systur minni, þegar þau komu heim frá Kaupmannahöfn að námi loknu. Það tók lengri tíma en kvöldstund að kynnast Gunnari, enda flíkaði hann ekki tilfinningum eða skoðunum. Gunnar var hófsam- ur, traustur og djúphygginn. Hann vandaði orð sín og verk. Mestalla starfsævina vann hann sem bygg- ingarfulltrúi Reykjavíkurborgar og sinnti því verki af vandvirkni og ör- yggi. Félagar hans tjáðu mér að hann hefði eiginlega aldrei þurft að endurvinna verk. Eitt sinn á langri starfsævi varð Gunnar fyrir gagn- rýni vegna ásakana um að hafa sett stimpil sinn á byggingar sem ekki stóðust gagnrýni yngri „fagaðila". Af þessu upphlaupi varð verulegur fjölmiðlagnýr. Gunnar tók þessari gagnrýni af stillingu þótt sár væri. Þeir sem þekktu til vinnubragða hans vissu sem var að fljótræði og óvönduð vinnubrögð mörkuðu ekki störf hans. Hann mætti því gagn- rýninni með gildum rökum og hátt- vísi og hafði fullan sigur. Davíð Oddsson, sem þá var borgarstjóri, stóð með sínum manni af dreng- skap og þekkingu eins og hans var von og vísa. Gagnrýnendur sneru hníptir til síns heima. Gunnar lauk því starfsferli sínum af farsæld og reisn. Gunnar gekk þó ekki heill til verka síðustu árin vegna langvinns sjúkdóms er á hann sótti en lauk sínu verki. Eiginkonan létti honum byrðarnar af sönnu þolgæði og um- hyggju. Gunnar vai- mikill bóka- maður og var sjófróður og skemmtilegur í umræðu um mál- efni. Umræður um hugmyndir og málefni voru honum hugstæðari en umræður um menn og aldrei heyrði ég hann mæla hnjóðsyrði um fólk. Að Gunnari er öllum mikil eftirsjá og viljum við senda systur minni, börnum, tengdasyni og bamabörn- um samúðarkveðju okkar og barna. Inga og Olafur Ólafsson. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og enginn saknar eins og sá sem misst hefur. Afi er dáinn. Þó að ég skrifaði endalaust, og lengur en það, myndi mér aldrei takast að láta hvítt blað og svart blek tjá söknuðinn og tómleikann. Að skrifa um náinn ættingja er erfitt. Það er erfitt þegar maður hefur týnt öllum minningum um galla og skapbresti og minnið svík- ur mann um erfiðu stundirnar. En þegar upp er staðið man maður hið góða og í tilfelli afa er af nógu að taka. Afi var, rétt eins og Bjartur í Sumarhúsum, sjálfstæður og stolt- ur einstaklingur. Það fór honum illa að vera sjúklingur. Endirinn var líknandi og réttur, en ekki auðveld- ur. Afi var jarðbundinn og rökrétt- ur. Hann var fræðimaður fram í fingurgóma og trúði á mátt mennt- unar. Hann virti skoðanir annarra þó að hann væri ekki sammála þeim og studdi þær ákvarðanir sem ást- vinir hans tóku, þótt þær væru á skjön við hans eigin hugmyndir. Ég upplifði afa sem sanngjarnan mann, mann sem að þekkti það sem bjó í öðrum og hvatti þá til að nýta það. Og hvatningar afa fóru aldrei fyrir daufum eyrum. Þær lifa áfram rétt eins og minningin um hann. Gunnar Ingi Björnsson. Andlát Gunnars, vinar míns, kom ekki á óvart. Hann hafði um langt skeið barist við erfiðan sjúkdóm. Sárt er að sjá eftir aldavini og sam- tíðarmanni frá unglingsárum. Þótt báðir séum við Gunnar fæddir og uppaldir á Akureyri lágu leiðir okk- ar fyrst saman við upphaf náms við Menntaskólann á Akureyri 1939. Seinustu þrjá veturna í MA lásum við Gunnar ásamt Gunnari B. Guð- mundssyni, sem þá bjó heima hjá Gunnari, saman undir kennslu- stundir. Eigum við frá þeim árum margar góðar minningar og vin- áttubönd sem aldrei hafa rofnað. Gunnar var góður námsmaður og fjölhæfur, jafnvígur á húmanísk fræði og raungreinar, og fannst mér raunar þá að hugur hans stæði frekar til húmanískra fræða. Á þessum árum stundaði hann jafnan byggingarvinnu á sumrum og mun það hafa vakið áhuga hans á mann- virkjagerð. Eftir stúdentspróf hóf- um við samtímis nám í verkfræði við Háskóla Islands. Á háskólaár- um sínum tók Gunnar þátt í félags- lífi stúdenta á vegum Vöku, en ekki varð framhald á þeim vettvangi. Eftir fyrrihlutapróf í verkfræði hér heima var haldið til Kaupmanna- hafnar til náms við DTH í bygging- arverkfræði. Við urðum samferða öll námsárin þar. Hafnarárin voru kapítuli út af fyrir sig, viðburðarík og eftirminni- leg. Það leiddi af sjálfu sér að sam- gangur varð mikill hjá íslenskum stúdentum og á stundum var glatt á hjalla og gömul minni rifjuð upp. I Kaupmannahöfn, 19. sept. 1951, gekk Gunnar að eiga Ingibjörgu Olafsdóttur frá Brautarholti á Kjal- arnesi, mikla mannkostakonu. Hún stundaði þar nám í hjúkrunarfræð- um. Að námi þeirra loknu héldu ungu hjónin til Islands. Stuttu eftir heimkomuna réð- umst við fjórir verkfræðingar í að byggja raðhús við Ljósheima. Við Gunnar og fjölskyldur okkar höfum nú verið nágrannar í fjörutíu ár. Varla hefur liðið sá dagur að við hittumst ekki á gangi. Skugga bar aldrei á samskipti okkar öll þessi ár. Gunnar hóf störf hjá Reykjavík- urborg eftir heimkomuna og starf- aði nær óslitð þar, frá 1973 sem byggingarfulltrúi, uns hann lét af störfum 1993. Hann var í námi og starfi afar nákvæmur og íhugull og tel ég að embættisfærsla hans hafi ávallt verið til fyrirmyndar. Á þess- um árum jukust umsvif embættis byggingarfulltrúa mikið og reyndi því mikið á hæfni hans og starfs- þrek. Sérlega sterk tengsl hafa haldist gegnum árin milli bekkjar- systkina okkar frá MA. Árlega eða oftar hefur hópurinn hist við mikla gleði og ánægju. Hafa þessir vina- fundir verið okkur öllum mikils virði. Við bekkjarsystkini Gunnars munum sakna góðs félaga og geyma minningu hans. Ingibjörg og Gunnar eignuðust tvö börn, Ástu kennara og Sigurð Bjarna sjúkra- liða. Ingibjörg reyndist manni sín- um dyggur förunautur. í erfiðum veikindum hans var hún honum mikill styrkur. Sár er missir fjöl- skyldunnar og harmur að henni kveðinn. Við Helga og börn okkar vottum fjölskyldunni okkar dýpstu samúð og biðjum henni Guðs blessunar. Jóhann Indriðason. Ekki urðu þau mörg árin sem Gunnar Sigurðsson, fyrrverandi byggingarfulltrúi, fékk til að njóta eftirlaunaáranna. Tæp fimm ár eru liðin síðan hann var kvaddur af borgarstjóranum í Reykjavík í sér- stakri veislu í Höfða íyrir þá þre- menninga, sem allir létu af störfum um líkt leyti. Það voru þeir Gunnar, sem við kveðjum nú, Þóroddur Th. Sigurðsson vatnsveitustjóri og Bergur Tómasson borgarendur- skoðandi. Mér er sú veisla minnis- stæð fyrir það að þeir héldu allir ræður, og voru þær harla ólíkar, en hver annarri betri og hver með sín- um hætti. Þeir horfðu um öxl yfir farinn veg og lýstu starfsævinni. Slíkum ræðum á að halda til haga. Gunnar var mikill ljúflingur og prúðmenni eins og það fólk hans sem ég þekki. Svo vill til að ég hef kynnst þrem systkinum Gunnars, rejmdar á mismunandi tímum. María hárgreiðslukona, sem á mínu bernskuheimili á Akureyri var alltaf kölluð Maja Sigga Sölva, hjálpaði móður minni við að passa frumburðinn og tókst með þeim vinátta sem enn stendur, því María heimsækir móður mína níræða í hverri einustu viku, Aðalsteinn menntaskólakennari kenndi mér og mínum bekkjarsystkinum landa- fræði og sögu í MÁ og loks kynntist ég Ingólfi, bróður þeirra, löngu seinna, en við urðum samstarfs- menn þegar hann var verkstjóri í Pípugerð Reykjavíkur. Við Gunnar kynntumst í Skúla- túni 2, en þar var þá skrifstofa byggingarfulltrúa. Ég bar undir hann fyrstu burðarþolsteikningar sem ég teiknaði hér á landi, en ég hafði áður starfað erlendis, og töl- uðum við lengi saman, því ekki voru þær teikningar eins og hér tíðkað- ist. Hann var mjög fær burðarþols- hönnuður, gerði sér góða grein fyr- ir aðalatriðunum og var fljótur að sjá veilur í hönnun og hann veitti mörgum ungum manninum góð ráð. í hlutverki hins opinbera eftirlits- manns var Gunnar sveigjanlegur, en hinum íslenska húsbyggjanda hefur löngum líkað aginn illa og margir voru þakklátir fyrir vinsam- legar ábendingar og tóku þeim bet- ur en beinum fyrirmælum. Nú er þetta að breytast. Á tímum Evr- ópureglugerða semja menn ekki lengur um hvað sé leyfilegt. En Gunnar gat líka verið ákveðinn þegar mikið lá við og laginn að beita fortölum, ef á þurfti að halda. Gunnar varð fyrstur byggingar- verkfræðinga til að gegna embætti GUNNAR SIGURÐSSON byggingarfulltrúa í Reykjavík. Ég man vel eftir umræðunni þegar honum var veitt staðan. Þá var eng- inn arkitekt starfandi hjá bygging- arfulltrúa, en til siðs var að arki- tektar sætu í byggingarnefnd, ásamt reyndum byggingarmönn- um. Starfsmenn byggingarfulltrúa voru flestir iðnaðarmenn við eftir- litsstörf eða verk- og tæknifræðing- ar. Var því mjög eðlilegt að bygg- ingarfulltrúi væri verkfræðingur. Starf byggingarfulltrúa var, og er reyndar enn, afskaplega erilsamt og krefjandi. Ég veit ekki hvort er erfiðara að hafa mikið regluverk til að framfylgja eða að þurfa að meta margt eftir eigin hyggjuviti og þekkingu. Gamla aðferðin var að minnsta kosti ekki létt og erfitt að koma framförum á, sem Gunnar þó gerði í verulegum mæli, meðal ann- ars með skynsamlegum tillögum og yfirvegaðri afstöðu til framfara- mála. Hafi hann þökk fyrir. Ingibjörgu eiginkonu hans og fjölskyldu þeirra Gunnars sendi ég innilegustu samúðarkveðjur. Stefán Hermannsson, borgarverkfræðingur. Þegar náinn vinur til margra ára fellur frá verður veröldin önnur. Kynni okkar Gunnars hófust vorið 1940 er ég kom til Akureyrar að þreyta utanskóla próf upp í 2. bekk Menntaskólans á Akureyri. Æ síð- an var félagsskapur okkar náinn og síðustu ár Menntaskólans bjó ég í skjóli hans á heimili foreldra hans á Akureyri. Stóð það heimili opið mér og minni fjölskyldu æ síðan. Að loknu stúdentsprófi lögðum við báðir stund á byggingarverk- fræði og er við héldum til fram- haldsnáms til Kaupmannahafnar leigðum við saman húsnæði um hríð. Á þessum árum var hús- næðisekla í Kaupmannahöfn og höfðu því yfirvöld lagt fyrir efna- fólk, er bjó í stóru húsnæði, að leigja út frá sér. Þannig fengum við leigða efri hæð hjá eldri dömu úti á Friðriksbergi með því skilyrði að ekki yrði hreyft við húsbúnaði í svefnherbergi foreldra hennar, sem enn stóð með uppbúnu hjónarúmi. Ur þessum vanda leystum við, en þegar blessaðri konunni fór að finn- ast við koma of seint heim á kvöldin var ekki nema um einn kost að ræða. Gunnar var mikill námsmaður, jafnvígur á raungreinar og mál, m.a. framúrskarandi íslenskumað- ur. Hann var mjög nákvæmur og gjörhugull við hvað sem hann tók sér fyrir hendur. Hann kastaði aldrei höndunum að neinu, tók sér þann tíma, sem hann taldi nauðsyn- legan til að öðlast skilning á þeim verkefnum sem við var að glíma hverju sinni. Gunnar las alla tíð mikið og ekki tel ég ofmælt að bókakaup hafi ver- ið nokkur ástríða hjá honum hin síðustu ár. Ennfremur hafði hann ánægju af spilamennsku og sýndi þar sömu vandvirkni og við önnur störf. Um árabil höfum við nokkrir skólafélagar spilað bridge saman. Nú hafa þrír þeirra sem upphaflega hófu þá spilamennsku, að mestu undir leiðsögn Gunnars, horfið yfir móðuna miklu, og bíða þar enn um stund fjórða manns. Gunnar var fæddur á Akureyri 9. desember 1925 sonur hjónanna El- inborgar Jónsdóttur og Sigurðar Sölvasonar byggingarmeistara. Voru þau miklar mannkostamann- eskjur, Elinborg framarlega í fé- lags- og líknarmálum og ætla ég að starfa hennar megi enn sjá stað í höfuðstað norðurlands, Sigurður einn af mikilvirkustu byggingar- meisturum Akureyrar um miðbik aldarinnar. Bæði eru þau látin fyrir mörgum árum. Blessuð sé minning þeirra. Gunnar lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 5. nóv. sl. eftir erfitt sjúkrastríð. Stóð eiginkona hans sem klettur er allt á brotnar í þeim átökum. Eftirlifandi systkini Gunn- ars, öll búsett á Akureyri, eru: Ingólfur fv. skipstjóri, Aðalsteinn fv. menntaskólakennari og María hárgi’eiðslumeistari. Á Hafnarárunum kynntist Gunn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.