Morgunblaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 41 ---------------------------f ar eftirlifandi konu sinni, Ingi- björgu Ólafsdóttur hjúkrunarfræð- ingi frá Brautarholti. Var brúðkaup þeirra gert í Kaupmannahöfn og stýrt af Ólafí óðalsbónda Bjama- syni af alkunnum myndarskap. Fataðist honum hvergi, þótt á danskri grund væri. Böm Ingibjargar og Gunnars eru Ásta kennari, gift Birni R. Friðgeirssyni sölumanni og eiga þau tvö böm, og Sigurður hjúkrun- armaður. Að námi loknu hóf Gunn- ar störf hjá borgarverkfræðingnum í Reykjavík, í gatna- og holræsa- deild, við hönnunar- og eftirlits- störf, þar sem undirritaður starfaði einnig um skeið. Síðar flutti hann sig til byggingarfulltrúans í Reykjavík og vann við yfirferð burðarþolsuppdrátta og tók loks við starfi byggingarfulltrúa er Sig- urjón Sveinsson féll frá árið 1973. Öll störf sín rækti Gunnar af sér- stakri vandvirkni og samviskusemi. Vera má að sumum hafí á stundum fundist hann smámunasamur en smáatriði þarf einnig að leysa rétt var hans skoðun. Gunnar var að eðlisfari dulur en er hann blandaði geði í góðra vina hópi lék hann á als oddi og var hvers manns hugljúfí og lagði ætíð gott til mála. Gunnar er sá fimmt- ándi úr stúdentahópnum frá MA 1945 sem kveður. Okkur sem eftir sitjum er mikil eftirsjá í hverjum, sem hverfur á braut. Mest er þó eftirsjá eiginkonu, barna, dóttur- barna, tengdasonar og systkina. Svo óheppilega vill til að ég get ekki fylgt vini mínum hinstu sporin. Löngu ákveðin för til útlanda hindrar okkur hjónin í að vera við útförina. Við Guðrún sendum Ingi- björgu, vinkonu okkar, og öllum að- standendum innilegustu samúðar- kveðjur. Við árnum vini okkar fararheilla með orðum, sem honum voru kær. „Ó heilsið öllum heima rómi blíð- um.“ Gunnar B. Guðmundsson. Jónas Hallgrímsson, skáld og náttúrufræðingur kvað, þegar hann frétti ótímabært andlát skáldbróð- ur síns, Bjarna Thorarensens, amt- manns: Skjótt hefur sól brugðið sumri, því séð hef ég fljúga fannhvíta svaninn úr sveitum til sóllanda fegri. Þessar ljóðlínur komu okkur und- irrituðum í hug, þegar við fréttum ótímabært andlát göngufélaga okk- ar og vinar um áratuga skeið, Gunnars Sigurðssonar, verkfræð- ings og fyrrverandi byggingafull- trúa í Reykjavík, á þessum fögru haustdögum. í þessari stuttu grein ætlum við ekki að rekja merkan náms- og starfsferil Gunnars. Við eftirlátum öðrum það, því að við vitum, að endurtekningar í minningagreinum í Mbl. eru óvinsælar þar rúmsins vegna. Við kynntumst Gunnari fyrst á námsárum hans og okkar í Menntaskólanum á Akureyri og síðar í háskólum. Gunnar var traustur og ágætur námsmaður, og lauk góðum prófum. Eftir að námi okkar allra lauk tóku margvísleg störf okkar við. Þá héldu kynnin áfram. Það var gott að leita til Gunnars sem embættismanns, og ekki síður til hans sem manns. Svörin voru vandlega hugsuð og greið. Kynni okkar við Gunnar urðu fyrst mikil, þegar við tókum allir upp á því 1972 að fara saman reglulega í gönguferðir eftir há- degið á laugardögum. Það hefur haldist óslitið fram á þetta ár. Að sjálfsögðu féllu gönguferðir stund- um niður vegna nauðsynja ein- stakra manna. Þá fóru stundum að- eins tveir saman, þegar þannig stóð á. Farið var á öll fjöll í ná- grenni Reykjavíkur, þar á meðal á Esjuna, sem er eftirlætisfjall göngumanna. Eitt sinn heyrðist það nefnt, að Esjugöngur okkar væru orðnar eitt hundrað. Ekki náðist samkomulag um þá tölu. Umræðuefnin í þessum göngu- ferðum voru margvísleg. Fyi’st ber að nefna dægurmálin á hverjum tíma. Fyrstu árin var oft rætt um jarðfræði og staðir skoðaðir í því sambandi. Menn lásu sér til í þeirri grein. Nú á síðustu árum tóku verkfræðingarnir upp á því að teikna alls konar flatar- og horna- myndir í snjóinn eða í leirflög, og leysa þar hinar flóknustu þrautir í þeim fræðum. Þetta eru aðeins dæmi um fjölbreytni umræðuefn- anna. Ef reiknað er með, að ferð- irnar hafí verið 35 að meðaltali á ári, en árin eru 27, þá eru ferðirnar alls 945. Mikið og ófyllt skarð er nú komið í göngumannahópinn. Gunn- ars verður mikið saknað þar og annars staðar, hann var góður og hlýr félagi. Gunnar var yngstur okkar göngumannanna. I hinni helgu bók segir t.d. í Lúkasi 13,30: „En til eru síðastir, er verða munu fyrstir ...“. Það virðist staðfestast hér. Gunnar barðist af miklum hetju- skap við sjúdóma sína. Síðustu dagarnir munu hafa verið honum erfiðir. Ingibjörg, kona hans, og börn þeirra reyndu eftir mætti að létta honum róðurinn, en við of- urefli var að etja. Við vottum Ingibjörgu og allri fjölskyldunni dýpstu samúð okkar. Þeir einir, sem átt hafa mikið, geta misst mikið. Við verðum öll að ljúka jarðvist okkar. Spurningin er aðeins hvenær. Árni Stefánsson, Bragi Þorsteinsson. Gunnar Sigurðsson verkfræðing- ur, kær vinur minn, er fallinn frá og þar sem ég er stödd erlendis sendi ég saknaðar- og vinarkveðju. Ingibjörg og Gunnar hafa verið mínir bestu vinir frá árinu 1952 er ég giftist Móses Aðalsteinssyni. Þeir voru æskuvinir á Akureyri, bekkjarfélagar í MA og stunduðu verkfræðinám á sama tíma í Kaup- mannahöfn. Á okkar fyrsta hjú- skaparári leigðum við Móses kjall- araíbúð á Kvisthaga og í sama inn- gangi bjuggu Ingibjörg og Gunnar. Oft er Ásta, móðir Ingibjargar, kom færandi hendi með góðgæti frá Bautarholti nutum við Móses góðs af. Þótti mér á einhvern máta sérlega vænt um þau kynni, því móðir mín, Ragnhildur Erlends- dóttir frá Stóru-Giljá, hafði sagt mér að Olafur faðir Ingibjargar og bræður hans frá Steinnesi hefðu aðstoðað við byggingu íbúðarhúss fjölskyldunnar að Beinakeldu í Húnaþingi. Síðan byggði hver yfir sig, en samskipti okkar Gunnars og Ingi- bjargar hafa verið mikil og góð alla tíð. Gunnar og Móses voru spilafé- lagar í áratugi ásamt öðrum bekkj- arfélögum og er mér minnisstætt hve dóttursonur minn beið spennt- ur að sjá „vinina hans afa“, þegar þeir komu að spila brids. Þeir bættu stöðugt við sig árum eins og vera ber, en urðu alltaf sömu ung- lingarnir yfir spilunum og á fjölda- mörgum samkomum MA ‘45 gegn- um árin kom ætíð fram á fallegan og skemmtilegan máta hinn hreini tónn og hve dýrmætt er að geyma barnið í sjálfum sér og njóta sam- veru af hjartans lyst. Eftir að Móses lést árið 1994 veitti Gunnar mér ómetanlega að- stoð sem ég þakka. Elsku Ingibjörg mín, Siggi, Ásta og fjölskylda. Innilegustu samúð- arkveðjur frá mér og systrum mín- um, Ástu og Erlu, og Ásgeiri bróð- ur okkar, sem er heima. Guð blessi minningu Gunnars Sigurðssonar. Ingibjörg Gunnarsdóttir, stödd í Washington DC. Fallinn er í valinn Gunnar Sig- urðsson fyrrverandi byggingafull- trúi. Ekki fór á milli mála að hverju stefndi undanfarna mánuði. Hann barðist eins og hetja í sínum veikindum til hinstu stundar. Kynni okkar hófust stuttu eftir að ég kvæntist bróðurdóttur hans, Elínborgu Ingólfsdóttur. Fyrsta handtakið man ég vel en þá var ég nemandi hans í Meistaraskólanum. Þar kenndi hann steypufræði til margra ára. Eg átti eftir að kynn- ast honum mun betur eftir því sem árin liðu, þau eru nú orðin 28. Þetta þróaðist í það að hann varð minn verkfræðingur og ég hans smiður. Þar með kynntist ég einnig eiginkonu hans, Ingibjörgu, og börnum þeirra, Ástu og Sigurði. Voru það sérlega góð kynni. Fannst mér eins og við hefðum alltaf þekkst. Gunnar var ákveðinn við okkur í Meistaraskólanum og komust við fljótt að því að ekki þýddi að vera með neitt múður, hann kunni sitt fag og vildi koma því til skila. Hann var mjög vel liðinn sem bygginga- fulltrúi en ég held að enginn sem ekki er í byggingabransanum skilji hve annasamt þetta starf er og slít- andi. Gott var að leita ráða hjá hon- um og einnig var hann ákaflega bóngóður og vildi öllum vel. Ef honum fannst ástæða til gat hann staðið á meiningunni og verið fast- ur fyrir, þannig að það fór enginn neitt með hann. Er ég sit hér og hripa þessar línur kemur ætíð sama myndin af honum upp í hug- ann, þetta góða viðmót, hjálpsemin og ekki síst heiðarleikinn sem var hans aðalsmerki. Að lokum langar mig til að þakka honum fyrir góð kynni og alla hjálpsemina í gegnum árin. Eg og fjölskylda mín sendum Ingibjörgu, Ástu, Sigurði og öðrum aðstandendum innilegustu samúð- arkveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur. Magnús Þórðarson og fjölskylda. Látinn er í Reykjavík Gunnar Sig- urðsson, byggingarverkfræðingur, fv. byggingarfulltrúi í Reykjavík. Gunnar var fæddur á Akureyri 9. desember 1925 af eyfirsku for- eldri. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskóla Akureyrar vorið 1945 og lokaprófi í byggingarverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1953. Að námi loknu starfaði Gunnar hjá bæjarverkfræðingi í Reykjavík til 1957 og hjá byggingarfulltrúa í Reykjavík 1957-1963. En á árunum 1963-1967 rak hann eigin verk- fræðistofu aðailega á sviði burðar- virkjahönnunar. Gunnar réðst að nýju til starfa hjá byggingarfull- trúa árið 1967, fyrst sem deildar- verkfræðingur en frá miðju ári 1973 sem byggingarfulltrúi. Gegndi hann því starfi til 1. nóvem- ber 1993 til ársloka 1995. Gunnar starfaði því hjá Reykja- víkurborg í tæpan mannsaldur á einu mesta uppbyggingar- og út- þensluskeiði borgarinnar. Á þeim tíma byggðust að verulegu leyti efri hlutar Breiðholts, Ártúnsholts, Suðurhlíðar í Fossvogi, Eiðis- grandi, Ái-túnshöfði, Selás og hluti Grafarvogs. Vinnudagurinn var því oft bæði langur og strangur í eril- sömu starfi byggingarfulltrúa. I embættistíð Gunnars urðu veruleg- ar breytingar á starfsumhverfi byggingarfulltrúans, ný bygging- arlög voru sett og fyrsta bygging- arreglugerð á landsvísu tók gildi. Vann Gunnar í nefndum að samn- ingi hvortveggja laga og reglugerð- ar. Jafnframt var hann formaður nefnda um gerð fyrstu steinsteypu- staðla á landinu og átti sæti í stein- steypunefnd. Þá var Gunnar kennari við meistaraskóla Iðnskólans í Reykja- vík um árabil. Gunnar var ná- kvæmur og samviskusamur emb- ættismaður, hann var yfirvegaður til orðs og æðis og átti fullt traust samstarfsmanna sinna sem og við- skiptavina embættisins. Gunnar var kvæntur Ingibjörgu Olafsdóttur, hjúkrunarfræðingi, frá Brautarholti á Kjalarnesi og áttu þau tvö börn. Við leiðarlok eru Gunnari færðar þakkir fyrir giftu- drjúg störf í þágu Reykjavíkur- borgar jafnframt sem samstarfs- menn hjá embætti byggingarfull- trúa og borgarverkfræðings flytja Ingibjörgu og börnum hennar og tjölskyldu þeirra innilegustu sam- úðarkveðjur. Magnús Sædal. + Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN TH. MEYVANTSSON, Álftamýri 28, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 17. nóvember kl. 13.30. Unnur Ólafsdóttir, Víglundur R. Jónsson, Kristján M. Jónsson, Gunnar Ó. Jónsson, Kristvin J. Sveinsson, Sigurður Þ. Sveinsson, Jón T. Sveinsson, Rannveig Christensen, Ásta Baldursdóttir, Ólöf Guðmundsdóttir, Alma Capul Avila, Guðrún S. Róbertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæru, HRAFNHILDAR ÁSKELSDÓTTUR, Túngötu 17, Grenivík. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækninga- deildar Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar. Sæmundur Guðmundsson, Guðmundur Þór Sæmundsson, Áskell V. Bjarnason, Þórhildur M. Ingólfsdóttir, Jakobína Elín Áskelsdóttir, Rúnar Davíðsson, Bjarni Áskelsson, Anna Rósa Magnúsdóttir, Ingóifur Áskelsson, Helga Signý Hannesdóttir, Guðmundur Jónsson, Margrét Pálsdóttir og fjölskylda. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför KRISTJÁNS BENEDIKTS JÓSEFSSONAR, sambýlinu Skjólbraut 1a, áður Hjallabrekku 43, Kópavogi. Sérstakar þakkir til dagdvalar Sunnuhlíðar og sambýlisins á Skjól- braut 1 a. Ása Benediktsdóttir, Stefán Jónatansson, Sigrún Stefánsdóttir, Steinar Þór Kristinsson, Sigurður Benedikt Stefánsson, ína Leverköhne, Svanhvít Stefánsdóttir, Stefán Kristinn Steinarsson. -f + Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda sam- úð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, EIRÍKS EYLANDS, Hæðargarði 54, Reykjavík. Þórunn Eylands Margrét Eylands, Frank Brandsás, Þóra Eylands, Hörður Sigurðsson, Elísa og Eirík. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát móður okkar, tengdamóður og ömmu, JÚNÍU SUMARRÓSAR STEFÁNSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Þorkell Kristinsson, Guðrún Ármannsdóttir, Stefán Jónsson, Halldóra Jónsdóttir og ömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.