Morgunblaðið - 15.11.1998, Side 42

Morgunblaðið - 15.11.1998, Side 42
42 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 >-------------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÚTFA RARSTO FA OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AÐALSTRÆTI 4B • 101 REYKJAVÍK LÍK KISTU VINN USTO FA EYVINDAR ÁRNASONAR •u.ofO'-1899 0* '^fGAS^ / Þegar andlát ber að höndum Útfararstofa kirkjugarðanna ehf. Sími 551 1266 Alian sólarhringinn ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, simi 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands SuðurhUð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ GYLFIÞOR MAGNÚSSON tíma til þess að ræða við okkur. Það þótti okkur mjög vænt um, enda ungir og óvanir því að fullorðið fólk tæki okkur sem jafn- ingjum og sýndi okkur áhuga og virðingu. Með þessum fáu orð- um viljum við þakka Gylfa góð og eftir- minnileg kynni. Við sendum aðstandendum Gylfa okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Sumarklúbburinn. + Gylfi Þór Magn- ússon fæddist í Vestmannaeyjum 20. desember 1942. Hann lést af slysför- um 6. nóvember síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Hallgrímskirkju 13. nóvember. í dag sendum við Landnemar okkar hinstu kveðju til Gylfa Þórs Magnússonar. Horfínn er á braut drengur góður og félagi; Gylfi er farinn heim. Gylfí gerðist ungur skáti í sveit Landnema í Skátafélagi Reykjavík- ur. Þar varð hann virkur þátttak- andi í kröftugu starfí og eignaðist góða félaga og vini sem nú sjá á bak honum. Saman lögðu þeir grund- völlinn að því sem síðar varð. Sveit- in óx og dafnaði, varð að deild og síðar að skátafélagi. Atti Gylfí ríkan þátt í þessari uppbyggingu. Lagði hann markvisst stund á foringja- þjálfun og foringja- og leiðbein- endastörf innan skátahreyfingar- innar. Utilíf og ferðamennska virtist honum í blóð borin og voru þeir fé- lagar verðlaunaðir fyrir mikið starf á því sviði. Þá önnuðust þeir umsjón með elsta skátaskálanum á Hellis- heiði, Þrymheimi, í mörg ár og eiga stóran þátt í því að þetta aldna hús stendur enn, er skjól og vin ungra skáta. Skátastarf byggir á jafningja- fræðslu. Stór hluti hennar er fólg- inn í því að menn líkja eftir „foringj- anum“, þ.e. gera eins og sá sem maður ber virðingu fyrir og lítur upp til - gera eins og fyrirmyndin. Landnemar nutu þess að Gylfi var góð fyrirmynd. Hann var eins og ungir, hraustir og metnaðarfullir menn vildu vera. Hann var ekki stærstur eða frekastur heldur brosmildur og úrræðagóður, áhuga- samur og vandvirkur. Hans er sárt saknað. Við vottum fjölskyldu Gylfa okk- ar dýpstu samúð. Arnlaugur Guðmundsson, félagsforingi Landnema. Skjótt skipast veður í lofti. Okkur félögunum varð mjög brugðið þegar Magnús, einn úr vinahópnum, til- kynnti okkur að Gylfi faðir hans hefði látist skyndilega. Við vorum í tólf ára bekk í Laug- amesskólanum þegar kennarinn okkar sagði að von væri á nýjum bekkjarfélaga, Magnúsi, sem væri að flytjast með fjölskyldu sinni heim frá Þýskalandi. Síðan eru liðin tólf ár. Við urðum fljótt tíðir gestir á heimili Magnúsar og fjölskyldu hans, enda var okkur mjög vel tekið þar. Oft tók Gylfí á móti okkur í eig- in persónu, heilsaði með handa- bandi, spurði frétta og gaf sér alltaf Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík ♦ Sími 553 1099 Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Hugurinn hvarflar nær þrjátíu ár aftur í tímann. Lægð hafði verið í efnahagslífinu og vandamál blöstu við í atvinnumálum með tilheyrandi erfiðleikum í rekstri fyrirtækja. Átti það jafnt við um Akureyri, sem aðra staði. í vöxt færðist að ráða unga og menntaða menn til starfa, enda var þá ný hugsun í fyrirtækja- rekstri að ryðja sér til rúms. Örlög- in höguðu því þannig, að undirritað- ur og sá sem hér er kvaddur réðu sig á sama tíma til tveggja stórfyr- irtækja á Akureyri, sem áttu á brattann að sækja, og þótti þá ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. Að sjálfsögðu lágu leiðir okkar fljótt saman, báðir aðfluttir og í nákvæmlega sömu „súpunni", ef svo hefði mátt að orði komast, enda litu margir á þessa för okkar til Akureyi’ar sem hina mestu fífldirfsku. Eg man sérstaklega eftir því, þegar vinur okkar, Jón G. Sól- nes bankastjóri, sagði mér frá ung- um manni nýfluttum í bæinn og teknum við framkvæmdastjórn fyr- ir Valbjörku. Taldi hann sérstakt happ hvernig til hefði tekist, enda var Jón mjög áhugasamur um mál- efni fyrirtækja, sem voru í viðskipt- um hjá bankanum, auk þess sem hann taldi æskilegt, að ungir og menntaðir menn flyttu til bæjarins. Jón lagði mikla áherslu á að við kynntumst og varð það fyrir tilstilli hans skömmu síðar. Það var þá, sem ég kynntist Gylfa Þór Magnús- syni, og upp frá því hófst kunnings- skapur og síðan vinátta, sem haldist hefur í þrjá áratugi. Þegar ég nú frétti um snöggt og ótímabært fráfall þessa vinar míns kom ósjálfrátt upp í hugann þetta sameiginlega ár okkar á Akureyri fyrir nær þrjátíu árum og sú gæfa, sem mér áskotnaðist að vera honum samferða þá. Þær voru margar stundirnar, sem við sátum og bár- um saman bækur okkar og töluðum kjark hvor í annan. Þá strax fann ég hvað Gylfi var traustur og heiðar- legur drengur og ekki síst hvað hann hafði góða nærveru. Þess vegna var það mikil eftirsjá þegar hann fór aftur suður yfir heiðar til annarra starfa. En svo römm var taugin að alltaf héldum við okkar góða sambandi og áttum þess kost að hittast, þegar svo bar undir. Það varð svo mikil og óvænt ánægja, þegar leiðir okkar lágu aftur saman á sama vettvangi löngu seinna. Þá var Gylfi orðinn einn af frammá- mönnum Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna, en ég fulltrúi eins stærsta framleiðandans og stjórn- armaður í SH. Og enn nánara átti það eftir að verða, þegar hann tók við forstöðu skrifstofu SH á Akur- eyri og flutti norður ásamt sinni elskulegu fjölskyldu. Nær var varla hægt að fá þau, því tvö hús aðskildu okkur í Eikarlundinum, enda var gaman að lifa, þegar það varð ljóst. Hvað skyldi það hafa þýtt að veita skrifstofu SH á Akureyri for- stöðu? Jú, skömmu áður höfðu orðið hatrammar deilur um sölumál UA og Islenskar sjávarafurðir boðist til að flytja höfðustöðvar sínar til Akureyrar, ef þeir fengju sölu af- urða UA í sínar hendur, en þær höfðu áratugum saman verið í hönd- um SH. Ekki skal farið nánar út í hinar miklu deilur og þau átök, sem þarna áttu sér stað, en niðurstaðan varð sú, að SH ákvað að flytja hluta af starfsemi sinni til Akureyrar og hélt með því áframhaldandi við- skiptum við UA. Um þetta allt má lesa í afmælisritum bæði SH og UA. Þær frásagnir ná þó ekki nema til þess, þegar þessi niðurstaða var fengin. Fyrst á eftir var hins vegar loft allt mjög lævi blandið og ljóst að ekki voru allir sáttir við þessi málalok. Það er ljóst að hlakkað hefði í ýmsum, ef einhverjir hnökrar hefðu orðið á framkæmd- inni og framhaldinu. Það var þess vegna mikið í húfi fyrir SH hvernig gengi að sanna sig í framhaldinu og byggja upp þá jákvæðu ímynd, sem nauðsynleg var á þessum tímamót- um. Þar hlaut að verða afgerandi hverjum yrði falið að veita hinni nýju skrifstofu forstöðu. Eftir á varð mér oft hugsað til þess, hvað þá var tekin rétt ákvörðun á réttum tíma. Gylfi Þór varð fyrir valinu. Hann tók þetta verkefni að sér og hann skilaði því með sóma. Eg Ieyfi mér að fullyrða, að framkoma hans og hæfni til þess að umgangast fólk skipti hér sköpum, en einnig það að hér fór hreinskiptinn og virtur mað- ur, sem allir höfðu traust á. Er því á engan hallað, þótt því sé haldið fram, að Gylfi hafi átt einn mestan þátt í því, að öldur lægði svo fljótt, sem raun bar vitni, en með því móti vann hann fyrirtæki sínu slíkt gagn að lengi má í minnum hafa. Já, Akureyri var mikill örlaga- valdur í lífi Gylfa Þórs. Hann kom hingað og fór héðan, kom aftur og endaði ferilinn hér á svo frábæran og farsælan hátt, sem lýst hefur verið hér að framan. Og hér hitti hann líka á fyrstu árunum unga og glæsilega Akureyrarmey, sem varð síðan eiginkona hans, en þau fylgd- ust að í gegnum þykkt og þunnt og súrt og sætt alla tíð síðan. Var eftir- tektarvert að sjá hve samrýnd þau voru og hvað ríkti mikil farsæld og blessun yfir þeirra fallega heimili. Þangað var gott að koma. Tvisvar hef ég kvatt vin minn Gylfa Þór hér á Akurevri og hann að flytja suður. Það var ekki laust við að tár kæmu í augu beggja, þeg- ar við tókum um axlir hvor annars sl. sumar á tröppunum hjá mér, en þau voru að stíga upp í bflinn og leggja í’ann, brottflutt. Vissulega er mikil eftirsjá að góðum vinum, en við vissum, að þau voru ekki langt undan og við mundum eiga eftir að hittast oft. Ég hugsaði hins vegar ekki út í það þá, hvað lífið getur ver- ið hverfult og að nú aðeins þremur mánuðum seinna sé Gylfi lagður í ferðalag þar sem ókunn sund skilja okkur að a.m.k. um sinn. Þá fyllist maður yfirþyrmandi trega og má vart mæla orð. Því segi ég aðeins að lokum: Hafðu þökk fyrir allt og allt, kæri vinur, og megi minningin um þig ætíð lifa og vera þeim til ánægju, sem þér kynntust. Elsku Sigga Dóra, Magnús Þór og Helga Björg. Við Guðríður og synir sendum ykkur innilegar sam- úðarkveðjur og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Þá sendum við Sigríði, móður Gylfa, tengdaforeldrum hans, Björgu og Jóhanni, svo og fjölskyld- unni allri okkar dýpstu hluttekn- ingu. Gunnar Ragnars. „Sæll og blessaður. Gylfi heiti ég.“ Svona hófust stutt en afskap- © ÚTFARARÞJÓNUSTAN EHF. Stofnað 1990 Persónuleg þjónusta Sími: 567 9110 & 893 8638 . • ,r • • Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson WWW.Utfanr.lS Utfanr@ltn.lS útfararStjóri útfararstjón lega ánægjuleg kynni mín af Gylfa Þór sem hófust í Moskvuborg í vor og enduðu allt of fljótt. Gamall skólabróðir Gylfa frá menntaskóla- árunum hafði sagt mér að hann væri góður maður. Þetta reyndist rétt. Fjarri fósturjörðinni er alltaf næringarríkt að hitta gott fólk frá Islandi. Ég var ríkari maður eftir slíka „fundi“ með Gylfa þar sem margt bar á góma varðandi fyrir- tækjarekstur í Rússlandi á þessum breytingatímum. Þar miðlaði hann af reynslu sinni af þessum vett- vangi. En við ræddum einnig aðra skemmtilega hluti á persónulegri nótum. En það sem situr helst í mér eftir okkar stuttu og góðu kynni er kvöldstund sem við áttum saman þegar Gylfi var að fara heim eftir nokkurra mánaða dvöl í Moskvu. Við íslendingarnir fórum með Gylfa út að borða til að kveðja góðan dreng sem okkur þótti vænt um. Það er ekki á allra vörum að mið- borg Moskvu er með fallegri borg- um í heimi og menningar- og skemmtilíf með því betra. Það var komið myrkur en heiðskírt og borg- in skartaði sínu fegursta. Ég fer ásamt Gylfa út á tröppur til að fá mér frískt loft milli rétta (sem voru margir). Spyr hann hvernig Moskva sé. Hann svarar: „Borgin er falleg og hér er skemmtilegt að vera. En ég á konu og fjölskyldu heima.“ Svo horfði hann beint í augun á mér. Þetta var sagt þannig að ekki fór á milli mála hvaða mann Gylfi hefur að geyma né kærleika í garð hans nánustu. Svona stundir man maður og geym- ir sér til andlegrar næringar í fram- tíðinni. En kynnin voru stutt og ekki er laust við ósamkomulag við máttar- völdin þegar svona gerist. Fjöl- skyldan á samúð mína alla og ósk um styrk og stuðning frá Herran- um. Góður drengur er fallinn en ég ætla að muna eftir honum. Lengi. Jóhann V. Ólafsson. Það mun taka langan tíma að átta sig á því að Gylfi Þór sé látinn. Að góður félagi fari svo snögglega hélt ég að væri ekki mögulegt. Mig lang- ar því að minnast hans með örfáum orðum. Kynni okkar hófust sumarið 1984. Hann hafði stundað nám við London Business School, sama skóla og ég var í, og leitaði ég m.a. til allra fyrrverandi nemenda skól- ans í þáverandi Vestur-Þýskalandi til að fá sumarstarf. Gylfi, sem þá var framkvæmdastjóri SH í Ham- borg, tók mér strax mjög vel og var mér hjálplegur við að komast í sam- band við heimildarmenn. Það var mjög gott að leita til hans. Að loknu námi réði Gylfi mig til að skrifa skýrslu um neyslu og dreifingu á fiskafurðum í Vestur- Þýskalandi. Það gladdi mig mikið, að að loknu verki lét hann fjölfalda skýrsluna, númera og dreifa til ým- issa starfsmanna SH. Þess þurfti hann ekki. Gylfi var svo endanlega ábyrgur fyrir því að ég fór að vinna hjá SH, þegar hann réð mig vorið 1986 til starfa á skrifstofuna í Ham- borg. Þekking mín á fiski var engin, hvað blokk var eða fimm pund voru var ekki að finna í minni orðabók og eyddi Gylfi hálftíma á hverjum degi með mér til að kenna mér á afurðir og fagheiti, fara yfir birgðalista og koma mér í samband við starfs- menn SH í Reykjavík. Náðum við strax vel saman. Einkennandi við Gylfa hefur ætíð verið að gefa fólki góðan tíma, hlusta vel og að vanda til upphafsins. Skipuleg vinnubrögð voru hans aðalsmerki og er ég viss um að fróð- legt og lærdómsríkt væri að lesa minnisbækur hans, svo skipulegar og skýrar voru þær. Hvemig Gylfi hagaði minnisbókum sínum var fyr- irmynd fyrir mig. Þó svo að ekki sé hægt að segja að Gylfí hafi tekið tölvuna strax í sátt þá var auðvelt að koma sölukerfi því sem hann setti upp í Hamborg inn í tölvu en það gerðum við fyrsta sumarið mitt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.