Morgunblaðið - 15.11.1998, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 15.11.1998, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 23 í Hamborg. Sýndi það hversu traust og markviss öll hans vinnubrögð voru. Gylfí hafði tamið sér skýrar regl- ur í viðskiptum, sem reynst hafa mér vel. Regla Hansakaupmanna var honum mikilvæg, þ.e. að munn- legur samningur er jafngildur skrif- legum. Hann taldi jafnframt að betra væri að segja rétt og satt frá, því ef ekki var hægt að standa við skuldbindingar, myndu kaupendur komast að hinu sanna og traustið rýma. Enda var traust í viðskiptum honum mjög mikilvægt. Gylfí var nákvæmur í öllu því sem hann gerði, persónulegur í samskiptum en fylginn sér og harður, ef því var að skipta. Hann kunni mjög vel við Ham- borg og naut borgarinnar, enda hefði hann vel getað hugsað sér að dvelja þar lengur en til loka ársins 1986, þegar hann fór til íslands til að taka við framkvæmdastjórastöðu hjá SH. Gylfi hélt alltaf sterkum tengslum við borgina og starfsmenn SH þar í borg. Hann var traustur félagi og áttum við margar góðar stundir saman, enda kunnum við báðir að meta vindla og gott koníak. Sem yfírmaðm- markaðsmála hjá SH og síðar yfirmaður erlendra verkefna var samband okkar mikið og gott. Hann var ætíð reiðubúinn að setjast niður og gefa sér tíma. Hann sagði frá eigin reynslu og lét skoðun sína í ljós þegar um var beð- ið, en alltaf án þess að þröngva af- stöðu sinni upp á aðra. Gylfi var ætíð háttvís og efast ég um að hægt sé að finna nokkurn sem hefur kom- ið sér jafn vel hjá þeim sem hann skipti við. Það er því með miklum söknuði sem ég kveð þennan góða félaga og er ég þakklátur fyrir kynni okkar. Mínar bestu kveðjur eru til Sigríðar Dóru, Magnúsar Þórs og Helgu Bjargar og óska ég þeim styrks á þessum erfiða tíma. Kristján Hjaltason. Glaðlegt fas og einstaklega vina- legt viðmót var það fyrsta sem ég tók eftir í fari Gylfa Þórs er við hitt- umst á vordögum árið 1987. Hann bauð mig velkominn til starfa í sölu- deildinni á svo innilegan hátt að all- ur kvíði í huga mínum yfir sumar- starfinu hvarf út í veður og vind. Ég hafði verið heppinn með yfirmann. I viðskiptunum lagði hann áherslu á persónuleg tengsl manna og kunni öðrum fremur að rækta samstarfið og byggja upp traust milli manna og fyrirtækja. Ég hafði mikið af Gylfa að læra. Er ég kvaddi um haustið til að halda aftur utan í nám snerti mannlegt innsæi Gylfa mig djúpt er hann bauð stúdentinum út að borða í hádeginu ásamt nokkrum samstarfsmönnum úr deildinni. Glasi var lyft og mér þakkað íyrir sumarið með þeirri blöndu af glæsi- leika og einlægni sem Gylfa var töm. Að loknu námi kom ég aftur til stai-fa og lágu leiðir okkar Gylfa saman í tíu ár innan Sölumiðstöðv- arinnar. í fjölmögum heimsóknum Gylfa til kaupenda í Frakklandi só ég betur og betur einstaka hæfi- leika hans í mannlegum samskipt- um. Hann náði trausti kaupenda og vinsemd þannig að menn lögðu mik- ið á sig til að halda viðskiptunum áfram. Á skrifstofuna í Frakklandi kom hann aldrei tómhentur. Smáat- riði eins og nýtt dagblað handa ís- lendingunum og konfekt handa Frökkunum sýndi umhyggju og hlýhug sem var mikils metinn. Gylfi reyndist mér frábærlega ráðagóður félagi, í starfi og sem persónulegur vinur á erfiðum tím- um. Fráfall hans á besta aldri er okkur óskiljanlegt en minninguna um prúðmennið Gylfa Þór eigum við áfram og mun hún lifa með okk- ur. Ég sendi hans nánustu fjöl- skyldu, Siggu Dóru, Magnúsi Þór og Helgu Björgu, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Lúðvík Börkur. Við kynntumst Gylfa fyrst í Skátaheimilinu við Snorrabraut þegar við vorum unglingar, í bragg- anum sem nú er fyrir löngu horf- inn. Þar eyddum við löngum stund- um saman en ekki síður á ferðalög- um víða um landið. Það vita allir sem reynt hafa að kynni verða meiri og dýpri þegar menn arka saman með nestið á bakinu um óbyggt land og gista í tjöldum. Hinn 9. janúar 1957 stofnuðu sex strákar skátaflokkinn Fálka. Gylfi Þór Magnússon var í þeim hópi ásamt Árnfinni Jónssyni, Einari Má Jónssyni, Halldóri S. Magnús- syni, Hilmi Arnórssyni og Stefáni Arnórssyni. Þessi flokkur var mjög virkur í skátastarfi um nokkurra ára skeið og hann lifir enn. Fyrii- tæpum tveim árum var haldið upp á 40 ára afmælið. Um tíma gáfu Fálk- arnir út blað, Sókrates. Á 40 ára af- mælinu var gluggað í gamla Sókratesa. Við vorum hálfhissa hvað við höfðum getað skrifað, 15- 16 ára gamlir. Með stofnun Fálka- flokksins og þehri samvinnu og þeim eldmóði sem hún leiddi af sér stigu sexmenningarnir stórt skref í lífinu og ef til vill miklu stæira en nokkurn óraði fyrir þá. Þetta starf batt þá og aðra skátafélaga traust- um vináttuböndum. Þegar unglingsárunum sleppti skyldu leiðir um tíma, er sum okkar fóru utan til náms. Gylfi fór til Akureyrar eftir að hann lauk við- skiptafræðinámi við Háskóla ís- lands. Þá voru margir kunningj- anna gifth’ en ekki Gylfi og var ekki laust við að sumum okkar þætti hann nokkuð rólegur í tíðinni, en eins og móðir hans sagði: „Gylfi flýtir sér ekki að neinu. Hann er alltaf svo vandvirkur." Það kom líka á daginn. Þar kynntust þau Gylfi og Sigríður Dóra. Síðan lá leiðin suður til Reykjavíkur og Sigga Dóra eins og við köllum hana jafnan varð um leið hluti af gamla vinahópnum úr skátunum. Fyrir rúmum tíu árum tóku gömlu félagarnir sig til og stofnuðu gönguklúbb sem fengið hefur nafn- ið Fet fyrir fet. Gönguferðir klúbbsins eru nú orðnar yfir 100. Vorum við ásamt þeim Gylfa og Siggu Dóru virk í því að hrinda þessu starfi af stað. Að skátasið kýs hópurinn sér flokksforingja til eins árs í senn. Sá ber ábyrgð á því að skipuleggja gönguferðirnar. Eitt árið var Gylfi flokksforinginn. Þá var oft farið í fjallgöngur. Stundum gat verið hvasst og kalt á vetrum með fjúki, þótt ekki væru fjöllin há. Þegar við börðumst upp í vindinn í eitt skiptið og einhver lét í ljós að ekki væri ástæða til að halda lengra, sneri Gylfi sér við brosandi, sagði ekki mikið enda tilgangslaust vegna hávaðans í rokinu. Brosið sagði allt sem þurfti - endurspegl- aði lífsgleði Gylfa að takast á við hlutina hverjir svo sem þeir voru. Gylfi hafði vissulega sína meiningu en hann hafði til að bera þann eig- inleika að koma henni á framfæri með þeim hætti að á honum var tekið mark og að allir væru sáttir. Gylfi var fyrir margra hluta sakir einstakur maður. Lá það öðru fremur í lunderni hans, nærgætinni og hlýrri framkomu og tryggð við þá sem hann kynntist. Hann sá jafnan jákvæðu hliðarnar á öllum málum og særði engan, hvorki með orðum né athöfnum. Þegar við hjónakornin vorum aðskilin um stundarsakir, annað við nám í Skotlandi en hitt heima, þótti Eddu sjálfsagt að hafa samband við Gylfa og biðja hann að koma út að skemmta sér með öðrum félögum. Þannig var vinátta okkar ætíð djúp og einlæg. Sumir í kunningjahópn- um hafa dvalið erlendis um lengri eða skemmri tíma. Gylfi og Sigga Dóra dvöldu í Hamborg í allmörg ár. Það kom þó ekki í veg fyrir að þau Gylfi ræktuðu vináttuna. Ef ekki vona send heillaskeyti þegar einhver kunningjanna átti afinæli, þá var hringt. Nú hefur verið höggvið stórt skarð í vinahópinn sem varð til í Skátaheimilinu við Snorrabraut fyrir meira en 40 árum. I minning- unni lifir myndin af Gylfa Þór Magnússyni, glaðværum og hlýjum í okkar hópi einhvers staðar úti í fegurð íslenskrar náttúru tilbúinn til að takast á við að klífa fjöll eða vaða ár eins og ekkert annað væri af því að hafa en gleði og ánægju. Sígríður móðii- Gylfa og Elísabet systir hans hafa misst ástkæran son og bróður. Sigríður Dóra, Magnús Þór og Helga Björg hafa misst einstakan mann og föður. Megi guð styrkja þau í sorg sinni. Stefán Arnórsson og Edda Árnadóttir. Okkur langar að minnast Gylfa Þórs í örfáum orðum. Mér finnst að mig hljóti að vera að dreyma þegar ég hugsa til þess að Gylfi Þór sé farinn. Ég og fjölskylda mín kynnt- umst Gylfa Þór og fjölskyldu þegar ég hóf störf hjá SH á Akureyri sem ritari hans. Betri yfirmann var ekki hægt að hugsa sér. Gylfi Þór var mjög góður hlustandi með stórt hjarta, og leit á alla sem jafningja sína. Hann var góður stjórnandi með þá hæfileika að geta alltaf lægt allar öldur, sama á hveiju gekk. Eða eins og 7 ára sonur minn sagði: „Hann sem var svo yndislegur mað- ur.“ Gylfi Þór átti yndislega fjöl- skyldu sem hann elskaði og var mjög stoltur af og bar hag hennar ávallt fyrir brjósti. Þegar hann tal- aði um hana við mig færðist sér- stakur aðdáunarsvipur yfir andlit hans og honum fannst hann vera ríkasti maður í öllum heiminum. Elsku Sigga Dóra, Magnús Þór, Helga Björg, Sigríður og fjöl- skylda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi góður guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tím- um. Ykkar vinir, Vilborg*Birningur, Birgir Orn og Torfi Birningur. Kveðja frá Háskólanum á Akureyri Árið 1995 flutti Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna (SH) hluta af starfsemi sinni í Hvannavelli 14 á Akureyri. Yfirmaður starfsemi SH á Akureyri var Gylfi Þór Magnús- son, framkvæmdastjóri, sem lést sl. föstudag langt um aldur fram. Bækistöðvar SH á Akureyri eru í næsta nágrenni við húsnæði sjávar- útvegsdeildar Háskólans á Akur- eyri. Um leið og Gylfi Þór fluttist norður kom í ljós að Háskólinn á Akureyri hafði eignast traustan velunnara og góðan nágranna. Gylfi hafði lifandi áhuga á há- skólamenntun í sjávarútvegsfræði og lagði henni mikið lið á margvís- legan hátt. Fyrir hönd SH stýrði hann farsællega viðræðum við Há- skólann á Akureyri sem lyktaði með því að SH kostar stöðu pró- fessors í sjávarútvegsdeild háskól- ans. Þetta var tímamótaákvörðun enda um að ræða fyrsta prófessors- embætti í sjávarútvegsfræði hér á landi. Þrátt fyrir erilsamt og krefj- andi starf var Gylfi ætíð reiðubúinn að taka að sér mikilvæg verkefni fyrir sjávarútvegsdeildina. Þannig var Gylfi prófdómari við ýmis B.S. lokaverkefni nemenda í sjávarút- vegsdeild og kom þar vel í ljós yfir- burða þekking hans á markaðsmál- um atvinnugreinarinnar, skarp- skyggni hans og nákvæmni. Gylfi tók jafnan þátt í faglegri umræðu um málefni sjávarútvegs á vegum deildarinnar með fyrirlestrum, kynningum og það var aðdáunar- vert að fylgjast með Gylfa stýra ráðstefnum um málefni sjávarút- vegsins þar sem fagleg þekking hans og rökvísi laðaði fram eftir- minnileg skoðanaskipti. Gylfi hafði mikinn áhuga á velferð nemenda í sjávarútvegsdeild og var óþreyt- andi að liðsinna þeim um fagleg málefni sem og að kynna starfsemi fyrirtækisins fyrir þeim. Ég vil fyrir hönd Háskólans á Akureyri þakka Gylfa fyrir framlag hans til háskólamenntunar í sjávar- útvegsfræði, ánægjulega viðkynn- ingu og velvild. Jafnframt votta ég fjölskyldu Gylfa innilega samúð mína. Þorsteinn Gunnarsson. ANNA ÞÓRHALLSDÓTTIR + Anna Þórhalls- dóttir söngkona fæddist á Höfn í Hornafirði 27. des- ember 1904. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 5. nóv- ember siðastliðinn og fór útför hennar frani frá Hafnar- kirkju á Höfn í Hornafirði 13. nóv- ember. Skömmu eftir að ég flutti á Birkimel 8B mætti ég roskinni komu í stiganum. Hún tók mig tali - vildi greinilega vita eitthvað um þennan nýkomna íbúa sem tekinn var að deila með henni heilum stigapalli. Samtalið dróst á langinn enda konan ræðin og endaði með því að hún spurði hvort ég ætti nokkuð leið niður í bæ. Hún þyrfti að komast niður á Morgunblað, sem þá var í Aðal- strætinu. Forvitni mín hafði vaknað á þessari persónu svo ég gerði mér upp erindi í Kvosina og konan sett- ist inn í bflinn hjá mér. Á leiðinni héldum við áfram að spjalla og mér fannst ég vita orðið nokkuð um hana. Þegar við höfðum staðnæmst fyrir framan Morgunblaðshúsið spurði hún án nokkurs formála hvort ég þekkti til í Höfðahverfi norður við Eyjafjörð. Þar hefði ver- ið uppi mjög merkur maður á síð- ustu öld. Þegar ég sagðist þekkja nokkuð til þar og væri ættaður að norðan tók hún að segja mér frá Einari Ásmundssyni í Nesi, afrek- um hans á lífstíð og skyldmennum. Henni þótti greinilega nokkuð til mannsins koma og lauk máli sínu á að segja mér frá því að hánn hefði verið ömmubróðir sinn. Hún vildi vita hvort ég hefði heyrt þessa heið- ursmanns getið og ég var í fyrstu nokkuð hikandi að játa því mann- eskjan var að ræða um langalangafa minn. Um síðir upplýsti ég hana að fleiri í bflnum væru í ætt við Einar í Nesi en hún sjálf og þá fyrst kom dálítið þögn í málflutning þessarar ágætu konu því nú uppgvötvaði hún að hún hafði ekki aðeins eignast nýjan nágranna heldur einnig frænda. Frændsemin hefur eflaust orðið til þess að kynnin við Önnur Þórhallsdóttur söngkonu urðu meiri en annars hefðu orðið um venjuleg- an nágranna. Anna var fyrir margra hluta sakir merkileg manneskja. Hún kaus ávallt að fara sínar eigin leiðir í lífinu og lagði ýmislegt á sig til þess að þær væru henni greiðar og færar. Ánna var tónlistarmann- eskja af Guðs náð og auðgaði þá hæfdeika sína með námi fyrr á ár- um. Þótt hún legði söng og hljóð- færaleik ekki fyrir sig sem atvinnu nema að hluta þá var hugur hennar ætíð bundinn þessu stóra áhugamáli og allt fram á síðustú ár settist hún við pí- anóið sitt og söng með þótt röddin væri farin að gefa sig vegna langvarandi veikinda. Á hljóðum síðkvöldum fékk nágranninn stundum notið lagavals hennar, leiks og söngs þótt einangraður vegg- ur skildi stofur að. Áhugi hennar fyrir langspilinu, hinu forna hljóðfæri, var einnig^ eftirtektarverður. Hún bar mikla virðingu fyr- ir þeim grip er sjá mátti af því á hvern hátt hún handfjallaði það. Hún hafið kynnt sér sögu þess og lært að leika á það ein fárra íslend- inga. Hún leyfði landsmönnum einnig að deila þeirri þekkingu með sér því á árum áður ferðaðist hún um landið, kynnti langspilið og hélt söngskemmtanir. Einhverju sinni um jólaleytið hringdi Anna dyra- bjöllunni hjá mér og spurði hvort ég þægi hjá sér kaffisopa. Ég ákvað að þiggja kaffið, þótt langt væri lið- ið á kvöld, ekki síst af því að komið var tækifæri til þess að fræðast af henni um langspilið og fá hana tiV þess að leika á það. Það þurfti ekki annað en að nefna þetta hljóðfæri sem Anna hafði tengst sterkum til- finningaböndum. Hún stóð upp og sótti langspilið. Ræddi nokkuð um sögu þess en hóf bogann síðan á loft og hóf að spila upp úr hinum þjóð- legu íslensku tónbókmenntum. Anna var Hornfirðingur og upp- runa sínum gleymdi hún aldrei. Hún bar ætíð mikla virðingu fyrir fjölskyldu sinni, föður sínum Þór- halli Daníelssyni, sem af mörgu^ er talinn faðir Hafnar í Hornafirði. Eflaust væri ég ófróðari um upp- byggingu þess staðar ef Anna hefði ekki fært mér ævisögu föður síns sem jafnframt er nokkurs konar uppbyggingarsaga Hafnar og rituð af henni sjálfri. Kynnin af Önnu Þórhallsdóttur söngkonu verða minnisstæð. Akveðin lífssýn og sterkur per- sónuleiki sem ætíð stóð fast á sínu gleymist ekki auðveldlega. Anna var í raun baráttumanneskja og ekki var heldur annað hægt en að bera virðingu fyrir viðhorfum henn- ar til þess sem henni var annt um. Viðhorfin til heimahaganna, langspilsins og tónlistarinnar .í heild endurspegluðu hennar innri^ mann. Ég er heldur ekki frá því að við bræðurnir höfum notið þess að einhverju leyti eftir að ættirnar voru raktar saman þótt það kæmi fram á þann hátt sem henni einni var lagið. Að leiðarlokum viljum við Sveinn bróðir minn þakka. þá sam- fylgd er við þáðum um nokkurra ára skeið í Vesturbænum. Þórður Ingimarsson. t Elskulegi eiginmaður minn, faðir og afi VIGFÚS SIGURÐSSON Sogavegi 34 Reykjavík lést að heimili sínu föstudaginn 13. nóvember. Ragna Þ. Stefánsdóttir Hanna Rúna Vigfúsdóttir Ragna Skinner t Ástkaer sonur okkar og bróðir, mágur, föðurbróðir og barnabarn ÓLAFUR ELDJÁRN lést í Landsspítalanum, föstudaginn 13. nóvember. Unnur Ólafsdóttir Þórarinn Eldjárn Kristján Eldjárn Eyrún María Rúnarsdóttir, Unnur Sara Eldjárn Úlfur Eldjárn Ari Eldjárn Halldór Eldjárn Anna Sigríður Björnsdóttir Ólafur Þálsson Halldóra Eldjárn V
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.