Morgunblaðið - 15.11.1998, Side 44

Morgunblaðið - 15.11.1998, Side 44
^4 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR WERNERPAUL HANS TESSNOW + Werner Tess- now fæddist 7. febrúar 1916. Hann lést 8. nóvember 1998.Foreldrar lians voru Olga Tessnow og Vil- helm Tessnow. Systur hans Ella Funk og Erna Federling. Werner giftist Ingunni Magnúsdóttur Tessnow, f. 26.10. >-1913, d. 7.2.1996, og eignuðust þau eina dóttur, Unni Tessnow, f. 1935. Eiginmaður hennar er Baldvin Skúlason, f. 1933, og eignuðust þau fjögur börn. 1) Ingvar Svan, f. 12.1. 1955, d. 25.11. 1989, hans kona Jóhanna Jóhannsdóttir og eign- uðust þau þrjár dætur, Önnu Maríu, f. 1977, Unni Olgu, f. 1980, og Ingunni Erlu, f. 1989. 2) Huldu Björgu, f. 1956, hennar maður Jóhannes Kristjánsson. Þeirra böm em Ingibjörg Rún, f. 1990, og Kristján Ingi, f. 1992. 3) Hafdís Erla, f. 1958, hennar maður Einar Ragn- arsson. Þeirra börn Baldvin Örn, f. 1982, Birkir ísak, f. 1989, og Sandra Dögg, f. 1993. 4) Helgi Magn- ús, f. 1961,_ hans kona Bára Agústs- dóttir. Þeirra börn Darri Freyr, f. 1985, Elfa Rós, f. 1993, og Birta Hlín, f. 1995. Wemer átti tvær dætur aðrar, Svan- hildi, f. 1935, d. 1997 og Karen, f. 1943. Böm hennar em Tomas og Bianca. Böm Tomas- ar em Charleen og Nico. Wemer vann við veitinga- rekstur eftir stríð og einnig harmonikkuleik. Síðar vann hann við akstur og eftir að hann fluttist til Islands vann hann skamma hríð í dósagerðinni í Kópavogi. Utför Wemers fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 16. nóvember og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mig langar í nokkrum orðum að þakka honum afa mínum fyrir sam- veruna þau liðlega 20 ár sem við höf- um þekkst. Ég kynntist ekki afa fyrr en ég var orðin 16 ára. Þá voru hann og amma nýgift. Hann hafði komið í heimsókn til Islands eftir um 40 ára fjarveru og hreinlega numið ömmu á brott með sér til síns heima henni til mikillar ánægju. Við systkinin þrjú elstu fórum sumarið eftir í heimsókn til þeirra í litlu íbúðina í Elmshorn. 4'ar var tekið á móti okkur eins og best varð á kosið. Við sátum í góðu yfirlæti í yndislegu veðri úti í garði og það var mikil upplifun fyrir ís- lensk ungmenni sem ekki höfðu áður farið út fyrir landsteinana, eins og okkur systumar, að geta lesið ávexti af trjánum í garðinum hans afa. Það var unun að því hvað afi sýndi okkur stoltur gersemar Hamborgar eins og höfnina, dýragarðinn, Tivolíið og síð- ast en ekki síst Planten und Blumen og vatnsorgelið sem við heilluðumst svo af. Það sem þó ber hæst í minn- ingu minni er veislan sem afi hélt okkur nýfundnu barnabörnunum sínum. Hann lagði sálu sína í undir- búninginn þó fleiri kæmu þar óneit- anlega við sögu. Þar á meðal var langamma, mamma afa, sem var yndisleg kona, systur hans og svo auðvitað amma. Það var ekkert til sparað. Heilt svín var þrætt á tein og grillað í garðinum frá miðjum degi, garðurinn prýddur ljósum og garð- húsið gert að glæsilegum borðsal. Eftir yndislega máltíð með fjölskyld- unni og nánum vinum var stiginn dans undir dillandi harmonikkuspili. Og auðvitað var það afi sem spilaði því það kunni hann svo vel. Við átt- um eftir að njóta þess síðar því árið 1979, þegar afi fór á eftirlaun, fluttu afi og amma alkomin heim til Is- lands. Já, hann afi kunni að skemmta bæði sér og ekki síður öðrum og það Viðarrimi — GrafarvogiEigum til nokkur vel skipulögð 153 og 163 fm tengi-einbýlishús á einni hæð með innb. bílskúr. 3 svefnherb. Húsin verða afh. fúllbúin að utan með varanlegri múrhúð, en tilb. til innréttinga. Verð frá 10,4 millj. Teikn. á skrifst. Góð staðsetning. Breiðavík 15—17Vel skipulagðar og rúmgóðar 3ja og 4ra herb. íbúðir með sérinngangi í nýju húsi við Breiðuvík. íbúðunum verður skilað fullbúnum án gólfefna. Þvottaherb. í íbúð. Stærð 100—126 fm. Að utan verður allt frágengið. Teikn. á skrifstofu. Eyjabakki Góð 4ra herb. íbúð á 3. hæð (efstu). fbúðin snýr yfir borgina með glæsilegu útsýni. 3 svefnherb. Nýtt í eldhúsi. Parket og flísar. Áhv. 3,7 millj. Verð 7,2 millj. 9307. Veghús — útsýni Vorum að fá í sölu fallega og rúmgóða 159 fm íbúð á tveimur hæðum í góðu fjölb. Góðar innr. 4 svefnherb. 2 stof- ur. Þvottaherb. í íb. Panilkætt loft í risi. Áhv. 5,0 millj. Verð 10,9 millj. 9261. Dalsel — laust Mjög góð 89 fm endaíb. á tveimur hæðum ásamt stæði í bílskúr. 3ja—4ra herb. íb. í góðu standi og hús klætt að utan. Áhv. 3,7 millj. byggsj. Ath. skipti á 2ja herb. íb. möguleg. Laus strax. 8971. Jöldugróf — bflskúr Góð efri sérhæð í tvíbýli ásamt bílskúr og stórri geymslu. 4 svefnherb. Góðar stofur. Parket. Stærð 162 fm sam- tals. Gott útsýni. Verð 11,7 millj. Ath. Skipti á minni eign möguleg. 9304. Dalsel — skipti Fallega innréttuð raðhús á tveimur hæðum ásamt kj. og stæð í bílskýli. 4—5 svefnherb. Góðar stofur. Parket. Hús klætt að utan og í góðu ástandi. Stærð 179 fm. Verð 11,9 millj. Ath. Skipti á minni íbúð möguleg. 9203. Sogavegur Glæsilegt og mikið endurnýjað 128 fm einbýlishús ásamt 33 fm bílskúr. 3 svefnherb., 2 stofur. Glæsil. eldhús með rauðeik í innr. Ný tæki. Parket og flísar. Sólskáli. Hús klætt að utan. 9251. Vantar — vantar — vantar — vantar Óskum eftir íbúð fyrir aðila sem þegar hefur selt eign sína. íbúðin þarf að vera 100—130 fm. helst með bílskúr/bílskýli. Skoða allt Reykjavíkursvæðið fyrir allt að 10 milljónir. Sími 533 4040 Fax 588 8366 Ármúla 21 DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali. gerði hann af lífi og sál mestan hluta ævinnar. Harmonikkan var einnig hans huggun á erfiðum tímum þegar hann var hermaður í seinni heims- styrjöldinni en hana hafði hann alltaf með sér. Hún hefur eflaust einnig bjargað lifi hans oftar en einu sinni í þeim hörmungum sem hann og fé- lagar hans lentu í í fangabúðum Rússa og loks var hún seld fyrir einn brauðhleif. Ég trúi því að nú sért þú hjá Ingu ömmu glaður og fínn, eins og hana Unni Olgu dreymdi þig og þú sagðir að amma ætlaði að sækja þig. Hún hefur beðið þín nú eins og hún beið þín forðum. Frá því þú fórst heim til Þýskalands sem ungur maður og hún sat eftir í festum þunguð af henni móður minni. En biðin varð lengri en ætlað var og enn beið hún fjörutíu árum síðar er þú komst í heimsókn og ástin blómstraði á ný og þið giftuð ykkur. Saga ykkar er falleg þó hún sé í senn sorgleg en nú sé ég ykkur svo sæl fyrir mér á ströndinni hinum megin og ekkert fær ykkur skilið. Svo er ég viss um að hann Ingi bróðir er þarna hjá ykkur, ykkur til mikillar ánægju. Þakka þér fyrir samveruna elsku afi minn. Guð geymi þig í ljósi og sælu. Þín dótturdóttir Hafdís Erla og fjölskylda. Afa sá ég fyrst þegar ég var 11 ára, eða 1973. Hann kom hingað til lands í heimsókn ásamt systrum sín- um og mági. Þá strax blossaði að nýju upp ást á milli afa og ömmu, sem ekki höfðu hist í nær 30 ár. Það fór svo að amma flutti til Þýskalands stuttu síðar og giftist afa. Þar dvöldu þau næstu ár, en komu þó í heim- sóknir til Islands. Sérstaklega man ég þó eftir því þegar þau komu hing- að í ferminguna mína. Það var ein- staklega gott veður þann dag og meðan veislan var undirbúin vorum við afi úti i garði þar sem hann spil- aði fyrir mig á harmonikku og sýndi mér fimleikalistir. En hann var lík- amlega mjög hraustur á þessum ár- um. Arið 1979 fluttu þau aftur til ís- lands og bjuggu hér til dánardags, en amma dó á 80 afmælisdegi afa, 7. febrúar 1996. Saga afa er okkur flestum hulin. Hann vildi lítið rifja upp þá fortíð sem hann lifði á stríðstímum, enda vist í fangabúðum tæplega til þess fallin að rifja upp með barnabörnun- um. Við fengum tímalaus minningar- brot öðru hvoru og af sögunum gat maður smám saman byggt upp mynd af honum. Hann var músikalskur og spilaði bæði á harm- onikku, hljómborð og munnhörpu af einstakri list. Hann hafði gaman af að vera innan um fólk og skemmta því og sjálfum sér með hljóðfæraleik og öll tilefni notuð til að koma saman og syngja og spila. Þegar ég hélt upp á 30 ára afmæli mitt kom afi í afmælið og spilaði af mikilli ánægju á harmonikku og munnhörpu fyrir gestina. Ég kveð afa og bið guð að geyma hann. Helgi. AÐALSTEINN LÚTHER INDRIÐASON + Aðalsteinn Lúther Indriða- son fæddist á Pat- reksfirði 10. októ- ber 1906. Hann lést á Droplaugarstöð- um 6. nóvember síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Indriði Guðmundsson og Guðríður Karvels- dóttir. Systkini Að- alsteins _ voru: Bjarni Ólafur f. 27.10. 1897; Ágúst, f. 4.8. 1901; Guðný, f. 23.6. 1904; Sigur- ey, f. 24.12. 1910, og Hermann, f. 14.12. 1912. Þau eru látin. Eiginkona Aðalsteins var Stefánía Jóhannsdóttir, fædd 20. mars 1902. Hún lést 6. októ- ber 1997. Börn þeirra eru 1) Leifur Ársæll, f. 30.11. 1943, eiginkona hans er Margrét Val- gerðardóttir. Þau eiga þijú börn og þrjú barnabörn. 2) Að- alsteinn Ólafur, f. 3.11. 1945, eiginkona hans er Ásdís Elín Júlíusdóttir. Þau eiga einn son. Stef- ánía átti fyrir dótt- ur, Jóhönnu Guð- nýju Sigurðardótt- ur, f. 25.5. 1924, og gekk Aðalsteinn henni í föðurstað. Aðalsteinn ólst upp á Patreksfirði og vann við sjó- mennsku frá ung- lingsaldri. Hann tók mótoristapróf í Stykkishólmi 1925 og stundaði sjó frá V e stm a n n a eyju ni, lengstum hjá Utgerð Ársæls Sveinssonar. Aðalsteinn starf- aði við vélgæslu í Vestmanna- eyjum og Reykjavík. Um árabil vann hann hjá verslun Gísla J. Johnsen og Stillingu hf. Síðustu starfsárin var Aðalsteinn gangavörður í Vogaskóla. Utför Aðalsteins fer fram frá Fossvogskapellu á morgun, 16. nóvember, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Langiá og farsælli ævi afa míns er lokið. Ég sakna góðs manns og umhyggjusams afa en veit að hann er ánægður með að vera aftur við hlið ömmu, Stefáníu Jóhannsdóttur, sem lést á síðasta ári. Afi var sér- stakur gæfumaður sem gaf sam- ferðamönnum sínum af gnægta- brunni gæsku og hlýju. Hann átti ástríka eiginkonu, lifði löngu og góðu lífi og dó í sátt við Guð og menn. Aðalsteinn varð níutíu og tveggja ára gamali, fæddur í allt öðrum raunveruleika en við þekkjum í dag. Lífið var eflaust ekki auðvelt fyrir dreng sem reri fyrst ellefu ára gam- all á opnum bát til fiskjar og mátti standa á eigin fótum frá fermingu. En afi var ekki maður mótaður af erfiðleikum. Þvert á móti. Hann var einstaklega glaðlyndur og æðrulaus maður. Alltaf umburðarlyndur, nærgætinn og jákvæður. Umhyggja hans gagnvart okkur barnabörnun- um og barnabarnabörnunum kunni sér lítil eða engin takmörk. Skilyrö- islaus kærleikur hans og stuðningur var mikilvægur bakhjarl fyrir okkur öll. Frá honum kom aldrei styggð- aryrði, aðeins velvild og hlýja. Börn læra af því sem fyrir þeim er haft og af fordæmi þeirra sem þau líta upp til. Það var ómetanlegt að geta sótt fyrirmynd í jafnlyndi og heiðar- leika Aðalsteins. Innilegt og kærleiksríkt samband afa og ömmu fram á síðustu stundu snerti djúpt alla þá sem þekktu þau. Ég gleymi aldrei heimsóknum með afa á sjúkrahúsið til ömmu síðasta Dalvegur frábær staðsetning árið sem hún lifði. Hugur afa var stöðugt hjá ömmu, hann gat ekki beðið þess að koma til hennar og þegar þau héldust í hendur urðu bæði stærri og sterkari. Augnatillit og snerting nægði til að tjá gagn- kvæma ást og virðingu. Nú hefur sál afa yfirgefið lúinn líkama. Hann er aftur við hlið ömmu og hefur tek- ið sér bólfestu hjá Guði. Ég er stolt- ur af að hafa nafnið þitt afi og þakk- látur fyrir allt það sem þú hefur gefið mér. Aðalsteinn Leifsson. Mig langar til að kveðja tengda- föður minn Aðalstein Indriðason með nokki’um orðum. Að morgni jarðarfarardags fóður míns og afa sonar míns kvaddi hann þennan heim. Þótt aldurinn væri hár og heilsan farin að bila er sorgin og söknuður- inn sá sami, og erfitt er fyrir ungan dreng að missa báða afa sína með svo stuttu millibili. Aðalsteinn var einstakt ljúfmenni, svo blíður og góður, að hann átti fáa sína líka. Mér er minnisstætt hjartnæmt samband hans og tengdamóður minnar Stefaníu, sem lést fyrir rúmu ári, og syrgði hann hana mik- ið. En nú hafa þau sameinast hand- an við móðuna miklu, og okkar er að þakka liðna tíð og allt sem þau gerðu fyrir okkur. Far þú í friði, fiiður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Vertu sæll, elsku tengdapabbi og afi. Ásdís Elín og Stefán Orri. ||® 3tnrnsm Til sölu mjög glæsilegt fullbúið húsnæði sem er sérhannað þjónustu- húsnæði. Steerðir frá 70—310 fm. Allur frágangur mjög vandaður. Hús þetta hefur mikla nýtingarmöguleika og frábært auglýsingagildi. Til afhendingar mjög fljótlega. Verð frá 5,6 millj. Einkasala. Upplýsingar veitir Ásbyrgi fasteignasala, Suðurlandsbraut 54, sími 568 2444. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.