Morgunblaðið - 15.11.1998, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 15.11.1998, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ 20% afsláttur af DRAGTAR-jökkum, -buxum og -pilsum dagana 16. til 30. nóvember Tannverndarráð ráðleggur foreldrum að gefa börnum sínum jóladagatöl án sælgætis Hafdís Norðfjörð hefur rekstur á Hárhúsi, HEILSA OG FEGURÐ, Síðumúla 34, sími 568 8850 frá og með þriðjud. 17. nóv. Gamlir og nýir viðskiptavinir boðnir hjartanlega velkomnir. Fagfólk ath.: Hef stóla til leigu — frábært tækifæri. Upplýsingar í símum 568 8850 og 421 6588. r í DAG VELVAKAMH Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hver á þessar myndir? PEIR sem þekkja til þessara mynda eru vinsamleg- ast beðnir að hafa samband við Hans Petersen, Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 570 7555. Grunaði ekki Gvend í GREIN á forsíðu Morg- unblaðsins í dag, sem nefn- ist Meðganga eykur gáf- urnar, segir m.a.: „Með- ganga virðist auka gáfur kvenna og hugsanlega til frambúðar. Hefur komið í Ijós við rannsóknir á dýr- um að kynhormónarnir sem mikið er af meðan á meðgöngu og brjóstagjöf stendur, efla þær heila- stöðvar sem fást við nám og minni. Kom þetta fram á ráð- stefnu taugasérfræðinga í Los Angeles. Með mynd- um hefur verið sýnt framá að fjöldi svokallaðra tauga- griplna, sem flytja boð á milli taugafrumna, tvöfald- ist við meðgöngu og brjóstagjöf og svo var líka með taugatraðimar, sem eru taugafrumunum til styrktar." Ungar konur, sem leggja út á framabraut, hvort sem er í stjómmál- um eða annars staðar, gefa minna af sér eftir ofan- greindri skilgreiningu heldur en hinai- sem hlýða kalli móður náttúru og eignast nokkm- börn. Ráðamenn sem meta ekki heimilisuppeldi til fjár, ráða auðsæilega ekki yfir gáfum sem gagnast gætu þjóðinni svo hún fái lifað í landinu til frambúðar. Rannveig Tryggvad., þýðandi. Sammála Þórunni MIG LANGAR til að taka undir það sem Þórunn skrifaði í Velvakanda í síð- ustu viku um dýra viðgerð- arþjónustu hjá Heimilis- tækjum. Eins fannst mér bæði afgreiðslufólkið og viðgerðarmennirnir virki- lega dónalegir þegar ég hringdi til að kvarta. Gyða í vesturbænum. Islenski fáninn JÓN hafði samband við Velvakanda og spurði hann hvort ekki væri hægt að ætlast til þess af stórum auglýsingastofum eins og AUK, sem er með stóraug- lýsingu í Morgunblaðinu, að þær hafi íslenska fán- ann réttan. Segir hann að í áðurnefndri auglýsingu sé íslenski fáninn ekki í rétt- um hlutföllum. Segir hann að sér finnist sárt að að sjá okkai' fallega fána svona vitlausan. Slæm þjónusta VELVAKANDA barst eft- irfarandi: „Ég var að skoða íbúð sem var til sölu hjá fast- eignasölunni Lundi. Gerði ég síðan tilboð í íbúðina sem átti að gilda til kl. 18 næsta dag. Þegar ég hringdi daginn efth' til að spyrjast fyrir um tilboðið var mér sagt að það væri komið annað tilboð í íbúð- ina. Fór ég þá á fasteigna- söluna til að gera annað til- boð en þegar þangað vai' komið vai' búið að selja íbúðina og fékk ég ekíd tækifæri til að bjóða betur. Það var ekki haft samband við mig frá fasteignasöl- unni og mér boðið að hækka mitt tilboð eða ég Iátin vita, þannig að ég missti af íbúðinni. Hélt ég þó að ég hefði forgang þar sem ég var með tilboð í gangi. Finnst mér að vara eigi fólk við svona þjón- ustu.“ Sylvia Kolbrún Halldórsdóttir. Tapað/fundið Útprjónaðir vettlingar í óskilum ÚTPRJÓNAÐIR vettling- ar fundust við Langholts- veg. Upplýsingar í síma 553 5901. V. Reykjavíkurborg býður upp á námskcið fyrir reykvískar athafnakonur sem hafa áhuga á að hrinda eigin viðskiptahugmynd i framkvæmd. Þátttakendur munu næsta árið tileinka sér ný vinnubrögð í rekstri og stjómun fýrirtækja, veita eigin viðskiptahugmynd brautargengi undir leiðsögn ráðgjafa og afla sér um leið hagnýtrar þekkingar á íslensku viðskiptaumhverfi. Stjómendur og reyndir fyrirlesarar munu kenna helstu atriði í viðskiptafræðum og leggja fýrir þátttakendur afmörkuð verkefni. Fyrirtæki í ýmsum greinum atvinnulífsins verða einnig heimsótt. Námskeiðið tekur eitt ár og hefst í janúar 1999. Það skiptist í tvær annir, janúar - júní og september - desember. Gert er ráð fyrir 20 fundum á fyrri önn og 13 fundum á þeirri seinni. Allar frekari upplýsingar era veittar á skrifstofu Atvinnu- & ferðamálastofú Reykjavíkurborgar, Aðalstræti 6, ísíma 563 2250 og á Veraldarvefnum: www.reykjavik.is Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Atvinnu- & ferðamálastofu Reykjavikurborgar. Umsóknarfrestur er til 2. desember 1998. Reykj avílvuriiorg Atvinnu- & ferðamálastofa SKAK Uinsjón Margeir I’étursson STAÐAN kom upp á öflugu opnu móti, Monareh Insurance International, sem nú stendur yfir í Englandi. Rússinn Alex- ander Baburin (2.590), sem nú teflir íyrir írland, var með hvítt en Norðmaðurinn Erik Gullaksen (2.360) hafði svart og átti leik. 19. _ Hxe3! 20. fxe3 _ Bc5 21. Kfl _ Rg4 22. Hd7? (Baburin er greinilega illa brugðið, hann varð að reyna 22. Hd8+ _ Kg7 23. Hcl Rxe3+ 24. KÍ2 Bb6 þótt svart- ur hafi fyllilega nægar bætur fyrir skiptamun- inn) 22. Rxe3+ 23. Kel Hxb3! 24. axb3 _ Rc2+ 25. Kdl Rxal og með tvo menn fyrir hrók og peð yfir vann Gullaksen skákina örugg- lega. Deildakeppni SÍ. Fjórða umferðin hefst í dag kl. 10 í félagsheimili Hellis, Þönglabakka 1 í Mjódd. 40 sveitir tefla í keppninni í fjórum deildum. Víkveni skrifar... NORÐMENN draga í efa ís- lenzkt þjóðerni Eiríks rauða og Leifs heppna, sem komu við sögu landafunda í Vesturheimi. Víkverji lærði það ungur að fyrsta tilraun til landnáms á Grænlandi hafi verið gerð um 970. Þá sigldi Snæbjörn galti Hólmsteinsson með 20 menn í leit að Gunnbjarnarskerjum. Eftir vetursetu á Grænlandi kom hann aftur til íslands. Þá hafði Eiríkur rauði Þorvalds- son, sem bjó á Eiríksstöðum í Haukadal í Dölum, verið dæmdur fyrir vígaferli. Hann lagði upp í landkönnun til Grænlands árið 981 eða 982, sigldi í norðvestur frá Breiðafirði suður með strönd Græn- lands og fór fyrstur manna fyrir suðurodda landsins. Kannaði suð- vesturströndina í 3 ár en hélt síðan heim. Árið 986 eða 987 sigldi hann öðru sinni til Grænlands, ásamt 300 land- nemutn (og kvikfé) á 25 skipum. Ell- efu fórust í hafi eða hröktust aftur til Islands. Eiríkur og fylgdarlið settust að í Eystribyggð (Juli- anehaab) og Vestribyggð (Godthaab). Bær Eiríks hét Bratta- hlíð. Talið er að um 1000 mans hafi flutzt frá Islandi til Grænlands og að þar hafi búið 4.000 til 5.000 nor- rænir menn þegar flestir voru. BJARNI HERJOLFSSON frá Eyrarbakka hugðist sigla til Grænlands haustið 986. Hann hrakti af leið og gi'eindi lönd í vestri (Ameríku) en kannaði ekki. Leifur heppni, sonur Eiríks rauða, sem fæddur var í Dölum vestur, fór um eða upp úr 990 að leita landa þeirra er Bjarni Herjólfsson taldi sig hafa séð. Hann fann þau og kallaði Helluland, Markland og Vínland hið góða. Arið 1000 fór Þorfmnur karlsefni Þórðarson frá Höfðaströnd í Skaga- firði í landkönnunarferð ásamt konu sinni, Guðríði Þorbjamardóttur, til Vínlands hins góða. Hún var fyrsta hvíta konan sem kom til Ameríku. Hún fór síðar í pílagrímsferð til Rómar, eins og þá var títt. Þessi skagfirzka, kristna kona gerði því víðreist um sína daga. xxx VERT ER upphaf íslenzks þjóðernis? Hvenær urðu ís- lendingar að Islendingum, ef Vík- verji má taka þannig til orða? Um þetta er deilt, m.a. með tilliti til þess hvort telja eigi Leif heppna íslend- ing eða Norðmann. Landnámsöld er talin hafa staðið frá því um eða litlu fyrir 870 fram til 930. Það ár er stofnað íslenzkt þjóð- veldi að Þingvöllum við Öxará. Frá þeim tíma a.m.k. er réttlætanlegt að tala um íslenzkt ríkisfang og ís- lenzka þjóðernisvitund. Nafnið Island kemur fyrst fram í norrænum kvæðum á 10. öld, segir í íslandssögu Einars Laxness. Það má og sjá í ritum Adams erkibisk- ups í Brimum frá árinu 1072. Enn- fremur á bresku korti og rúnasteini frá 11. öld. Heitið Islendingur kem- ur fyrst fyrir í samningi, sem Is- lendingar gerðu við Ólaf helga Nor- egskonung um 1022 (skrásettur um 1083). Á 11. öld notaði Sighvatur skáld Þórðarson orðið íslenzkur í Austurfararvísum. xxx ÞAÐ ER völlur á okkur íslend- ingum í dag sem á þjóðveldis- öld. Sólarferðir nánast uppseldar fram á nýtt ár.Einnig skíðaferðir til Mið-Evrópu. ítem flestar leiksýn- ingar í menningar- og bjórkráa- borginni Reykjavík. Eftirspurn eft- ir jólahlaðborðum er sögð meiri en nokkru sinni. Og það þykir ekki saga til næsta bæjar þótt vinnu- staðaárshátíðir séu haldnar í hinum og þessum erlendum stórborgum. Já, við erum menn með mönnum, Mörlandarnir, hvað sem líður fyrir- hyggjunni og ráðdeildarseminni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.