Morgunblaðið - 15.11.1998, Qupperneq 60
60 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Hagatorgi, sími 530 1919
IOIIN 'IMÍ;)I.TA
l-MMA TWVIFSON
HK DV. "1 \
AURAR
. A A A /2 BYLGJAN
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
BREMIpA BLÍFHYN
iés)
JULIE WALTERS
[Educating Rita]
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
muramn
JMSi ■» ‘1
; Camero Dia Matt Dillon Ben Stlll
Frá leikstjómum Dumb and Dumber og
Kingpin kemur gamanmynd ársins.
^★^1/2 BYLGJAN
★ ★★1/2 KVIKMYNDIR.IS
★ ★★ MBL
Sýnd kl.2.30, 5, 6.30, 9 og 11.20. HEEWGÍTAL
WM
4
w
Atbnrðarásio
hröð og marktrok.
★★★nv **
m£ ' 7'
HANN HEFUR
V
14.000 VITNI
OG ENGINN SA
HVAÐ GERÐIST
mm.
S N A K E E Y E S
HANN HEFUR 14.000 VITNI 0G ENGINN SA HVAÐ GERÐIST
Hafðu augun hió þér því það er glæpur í uppsiglingu beinl fyrir framan nefið ó
þér og 14,000 aoxáhorfendum. Magnaður spennutryllir eftir einn mesla snilling
kvikmyndasögunnar, Brian De Palma (Unlouchables, Mission Impossible) með
tveimur fremstu leikurum samtímans í aðhlutverkunum, óskarsverðauna-
hafanum Nicolos Cage (Ihe Rock) og Gary Sinise (Forrest Gump).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05. b.í. i6.
Sýnd kl. 2.30, 4.40, 7 og 9.20.
Sýnd kl. 3 og 4.50. ísl tal.
Sýndld. 230 og 5. B.i. 12.
www.samfilm.is
Freyvangsleikhúsið fær nýja leikara
Ráðherra og1 fyrr-
verandi bæjarstjóri
í kabarett
Freyvangsleikhúsið hóf vetrarstarfið um
síðustu helgi. Dóra Osk Halldórsdóttir
hringdi í Leif Guðmundsson bónda í Klauf
og spurðist fyrir um nýja kabarettinn.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra í hlutverki sínu í kabarettnum.
LEIKHÚSLÍFIÐ blómstrar fyrir
norðan og Freyvangsleikhúsið
eyfirska hóf vetrarstarfsemi sína
laugardagskvöldið 7. nóvember sl.
þegar kabarettinn Lómur bar - eró-
tískur dansstaður var frumfluttur í
Freyvangi. Leifur Guðmundsson
bóndi í Klauf er ein af drifíjöðrum
Freyvangsleikhússins. Hann segir
að leikhúsið hafi staðið fyrir kabar-
ettskemmtun á hverju hausti.
Leika sig sjálfa
„Við reynum að hafa sýninguna
breytilega frá ári til árs,“ segir Leifur.
„Við tökum fyrir þau málefni og atvik
sem hæst ber innan sveitar og setjum
þau í kómískan búning. I ár datt okk-
-4
ur í hug að taka fyrir ráðningu sveit-
arstjóra en Jakob Bjömsson sótti um
það starf. Þá lá beint við að biðja Jak-
ob um að taka þátt í kabarettnum með
okkur, sem hann gerði mjög fúslega.
Hann stóð sig sérstaklega vel, en
hann lék á móti Hólmgeiri Karlssyni
oddvita Eyjafjarðarsveitar. Hólmgeir
lék sjálfan sig og fjallaði atriðið um
umsókn Jakobs um áframhaldandi
starf sveitarstjóra. Salurinn tók þessu
mjög vel og átti greinilega ekki von á
að sjá Jakob í eigin persónu í verk-
inu.“
Ekki létu Freyvangsmenn þar
staðar numið því í kjölfarið vaknaði
sú hugmynd að fá Halldór Blöndal
samgönguráðherra með í kabarett-
inn. „Við höfðum samband við Hall-
dór og hann var strax mjög jákvæð-
ur. Kom bara þarna á barinn og
hafði orðaskipti við barþjón og fasta-
gesti staðarins. Síðan tók hann þátt í
hagyrðingaþætti sem var hluti sýn-
ingarinnar, en fyrir nokkrum vikum
var hagyrðingakvöld í Freyvangi þar
sem landsþekktir hagyrðingar
mættu og við ákváðum að hafa það
hluta af sýningunni."
Skrýtnir gerast Adams órar
Leifur segir að þessi nýbreytni að
fá þjóðþekkta menn til liðs við leik-
hópinn sé nýlunda, en hafi tekist af-
skaplega vel. Aðspurður um titil
verksins segir hann að í dagskránni
hafi komið fram Álfakroppssystur
sem hafi unnið hug og hjarta áhorf-
enda. „Þær voru nú kannski ekki
mjög djarfar," segir Leifur og hlær.
Hugmyndina að systrunum má rekja
til fyrrnefnds hagyrðingakvölds en
þar komu fram Alftagerðisbræður
og við ákváðum að hafa þær systur
til mótvægis við bræðurna úr Skaga-
firði. Þær voru síðan dæmdar af hag-
yrðingunum á eftir eins og gert var
við Alftagerðisbræður á hagyrðinga-
kvöldinu."
Halldór Blöndal orti m.a. um Alfa-
kroppssystur:
I mig togar, kitlar, klórar:
Kellur eru bosmastórar.
Skrýtnir gerast Adams órar:
Ein og tvær og þrjár og fjórar.
Fleiri vísur voru látnar fljúga og
kom Halldór með eina sem tengdist
vígslu reiðbrúarinnar yfir Eyjafjarð-
ará, en hann reið á stóðhestinum
Garði yfir brúna.
Hvergi sparði gamli Garður í garra harðan
hóf og barði blakkur svörðinn.
Brosti og starði merarhjörðin.
Poki og prófastur
Leifur sagði að margar vísnanna
JAKOB Bjömsson og Haimes
Öni Blandon .
hefðu verið ortar í orðastað Hjálm-
ars Jónssonar alþingismanns sem
hafði ort af miklum móð á hagyrð-
ingakvöldinu. Ein vísan hljóðar svo:
Eg var poki og prófastur,
í prestakalli rótfastur,
í kolkrabbanum klófastur,
í kvæðabulli pikkfastur.
Að sögn Leifs koma margir sveit-
ungar að því að semja efnið fyrir
kabarettinn og eins og áður sagði er
verið að gera grín að ýmsu sem ger-
ist í sveitinni.
En þrátt fyrir að talsvert af efninu
sé hálfgerð innansveitai’króníka eru
einnig atriði innan um sem fleiri geta
haft gaman af en sveitungar Eyja-
fjarðarsýslu.
„Við ætlum að endui'taka leikinn í
Freyvangi fimmtudaginn 19. nóvem-
ber vegna fjölmargra óska og förum
síðan til Þingeyjarsýslu og sýnum
kabarettinn kvöldið á eftir, föstudag-
inn 20. nóvember."
AROMAZONE
Sooæöanuúú/ílffiitíun
Hönnu Hrlstínar Laugavegi 40 • Sfml 561 8677
Full búð af vðrum,
ódýrari en í útlöndum
Opið virka daga kl. 9-18,
laugard. kl. 11-14 iengur í desember
Pantið jólagjafirnar tímanlega
Sumar vörutegundir seljast upp
Kayslistinn Vörulistinn
^ Pantanasími 555 2866
BMB.MAGNÚSSOIfHF. Hólshrauni 2, Hafnarfirði