Morgunblaðið - 10.01.1999, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1999 B 7
MARGRÉT flýgur fúslega til húsbónda síns, sem heldur á einhverju gógæti handa henni.
ræktaða ránfugla. „Ég hef fengið
fálka frá Kanada og þeim fylgir
vottorð upp á að þeir séu aldir upp á
fálkagarði. Það er orðið algengt
núorðið." Þetta leiðir hugann að
blaðafregnum undanfarin ár um
stolin fálkaegg og fálka. Frank kink-
ar kolli og kannast vel við slíkar
fréttir, líka frá íslandi, því fálka-
heimurinn er lítill og þeir sem
þekkja á annað borð til þar vita allt
sem þar gerist. „Blaðamenn tala
alltaf um að fálkar kosti margar
milljónir og það ýtir kannski við
veikum sálum að reyna að verða sér
úti um fálka og selja. En það er
orðið ógjörlegt að hafa ólöglega
fálka um hönd, því með blóðsýni,
hring um löppina, örflögu og öðru er
ekki lengur hægt að fela upprunann.
Eftirlitið er bæði fullkomið og
tæknivætt,“ segir hann.
Og hann er heldur ekki trúaður á
sögur um auðmenn, sem kaupi ólög-
lega fugla til að hafa í felum hjá sér,
því meginánægjan við að eiga góða
og fallega fugla er að geta haft þá til
sýnis eða notað þá við veiðar, þar
sem það er leyft. „Sannleikurinn er
sá að það kaupir enginn lengur fugla
af óþekktum uppruna fyrir ómældar
upphæðir," fullyrðir hann. „Arabar
kaupa ekki lengur ólöglega fugla, því
þeir eiga nóg af peningum til að
kaupa fugla löglega. Það er ekkert
gaman að eiga fugla, sem ekki er
hægt að sýna.“
En á hinn bóginn er mikil eftir-
spurn eftir fuglum og hert eftirlit
hefur einnig gert ránfugla að fágætri
vöru, sem fólk reynir að stela, ekki
aðeins úr náttúrunni, heldur frá öðr-
um fuglaeigendum. Frank bendir á
að ef fálkar séu til dæmis orðnir svo
algengir að bændur kvarti undan
þeim gætu stjórnvöld kannski hug-
MARGRÉT svífur hátignarlega yfir heimkynnum sínum.
SULTANA rífur í sig bráð sína.
leitt að miðla takmörkuðum fjölda á
markað. Hann bendir á að í Kanada
leyfi stjórnvöld til dæmis árlega að
teknir séu 10-12 fálkar. Þeir eru ekki
seldir, svo stjómvöld gera þetta ekki
til að græða, heldur er hægt að
sækja um að fá fugla og síðan er
valið úr umsóknum. Það er hins veg-
ar rándýrt að verða sér úti um fálka,
því það þarf þyrlu til að fara til
þeirra afskekktu svæða, þar sem
fálkarnir eru og svo þarf tvo fugla-
fræðinga með til að tryggja að vel og
rétt sé að öllu staðið. „Islendingar
gætu hugleitt hvort þetta sé leið,
sem þeir vilji fara,“ segir Frank að
lokum. Ai-nargriðlandið hans er
einnig áhugavert dæmi um hvemig
fólk getur kynnst fuglalífinu. Þeir
sem ekki komast þangað en vilja
kynnast starfseminni geta gert það á
netinu: www.eagleworld.dk.
Bætt næring - betri þyngd
Erum að fara af stað með tvo nýja
megrunarhópa, 5. árið í röð.
Námskeiðið stendurtil loka maí.
Minnum á viktvaktina sem er stuðningshópur
fyrir þá sem áður hafa sótt námskeiðin okkar.
Upplýsingar og skráning í síma 551 4742 í
dag, sunnudag, milli kl. 13:00 og 16:00 og á
mánudag og þriðjudag næstkomandi
milli kl. 09:00 og 13:00.
IMæringarsetrið ehf., Laugavegi 7,
tölvupóstfang: annael@isholf.is
Nicotinell
tyggjó og plástur
Hættu
nu
alveg!
Ráðgjöf og kynning
í eftirtöldum apótekum:
Mánudaginn ll.jan.
kl. 14.00-18.00
Lyfja.Setbergi
Þriðjudaginn 12.jan.
kl. 14.00-18.00
Apótek Austurbæjar
Miðvikudaginn 13.jan.
kl. 14.00-18.00
Iðunnarapótek,
Domus Medica
Fimmtudaginn 14.jan.
kl. 14.00-18.00
Borgar apótek
Breiðholts apótek
Föstudaginn 15.jan.
kl. 14.00-18.00
Ingólfs apótek
Keflavíkur apótek
Laugardaginn lö.jan.
kl. 14.00-18.00
Apótekið Smáratorgi
Gott bragð til að hætta að reykja
Útsala
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hótel, Reykjavík,
HÓTEIy
REYKJAVIK
25-40% afsláttur ef greitt er með korti
5% aukaafsláttur m.v. staðgreiðslu
í dag, sunnudaginn 10. jan.,
frá kl. 13-19
Verðdæmi Stærð Verð áður Nú stgr.
Pakistan sófaborösstærð Chachun, Afghanistan Balutch-bænamottur og margt, margt fleira. ca 125x175-200 196x169 36-42.600 84.900 10-16.200 28.300 52.400 8.900
RAÐBREIDSLUR
Ferð a h appdræ tti
Flugfélags Islands
2. útdráttur af sex
Taktu fram flugáætlun okkar, sem þú fékkst með Morgunblaðinu
6. desember, og kannaðu hvort númerið á henni er meðal
lukkunúmera mánaðarins.
I ukhmtiwti't iiiuiiiiniuUhulai rtu.
5.281
20.481
21.843
25.810
30.365
47.777
Við óskum vinningshöfum til hamingju og óskum þeirn góðrar ferðar.
Hver vinningur felur í sér ferð fyrir tvo, fram og til baka, tíl hvaða
áfangastaðar Flugfélags íslands sem er - innanlands.
Vinninga skal vitjað ísíma 570 3600.
Næst verður dregið í lokfebrúar.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
fyrir fólk eina o$ þig