Morgunblaðið - 10.01.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.01.1999, Blaðsíða 10
I ...... j 10 B SUNNUDAGUR10. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ AF EINHVERJUM ástæð- um tók langan tíma að gera mína menn, strákana í IBK, að íslandsmeisturum í fyrsta skipti. Það takmark náðist 1964 og ég man að okkur í Keflavík fannst við hafa sigrað heiminn. Öllum. Við vorum aðal. Það var ekkert annað að gerast í veröldinni og okk- ar maður var Óli B. Jónsson, þjálf- ari liðsins þetta árið. Þetta var mikil upphefð, vegna þess að við sem bjuggum þarna suður með sjó höfðum aldrei verið nálægt því að vinna nein afrek í boltanum. Enda varð þetta til þess að allt krakkagerið í bænum hellti sér út í fótbolta. Við stelpurnar byrjuðum að vísu að æfa úti á Svínavelli við hliðina á eina svína- búinu í bænum, velli sem var allur í þúfum og á voru götótt mörk. Is- landsmeistaravöllurinn var hinn helgi staður karlpeningsins sem aftur stóð sig með prýði í meistara- flokki árið eftir. En svo hætti Óli B. og Islandsmeistarabikarinn fór á flakk - annað. Mínir menn sneru sér að poppinu. En Óli B. gerði fleiri garða fræga en lítinn túnfót suður með sjó, því það má segja að hans knattspyrnu- saga sé ein óslitin sigurganga í tutt- ugu og sjö ár. Óli B. vann sinn fyrsta íslands- meistaratitil árið 1941. Hann var þá leikmaður hjá KR sem hann lék með í ein 13 ár, síðast árið 1949, enda urðu KR-ingar þá íslands- meistarar. Þá var Oli orðinn þjálf- ari meistaraliðsins, en hafði áður þjálfað yngri flokkana sem hann átti efth’ að hitta í eldri útgáfu síð- ar. „Eg tók að mér að þjálfa yngri flokkana um leið og ég var að æfa sjálfur," segir Óli, þegar við setj- umst niður á fallegu heimili hans við Kleppsveginn, „og það gerði ég fyrir ekki neitt. A þeim tíma þótti sjálfsagt að menn gerðu þetta af hugsjón. En einn dag árið 1944 var ég staddur í veiðarfæraversluninni Geysi. Þá birtast allt í einu Erlend- ur Pétursson og Kristján Gestsson sem var með verslunina Haraldur Árnason. Eg sá strax á þeim að það 7 Oli B. Jónsson er einn þeirra manna sem -------------------------7---------------- segja má að hafí kennt Islendingum að leika knattspyrnu á heimsmælikvarða. ----------------------7------------------- Hann á að baki fjölda Islandsmeistaratitla, bæði sem leikmaður og þjálfari. Súsanna Svavarsdóttir hitti Ola B. á dögunum og spjallaði við hann um knattspyrnuna, þjálfarahlutverkið og lífshlaupið. Ljósmynd/Brynjar Gauti BRÆÐURNIR Óli B., Guðbjörn, Hákon og Sigurjón Jónssynir. „Við erum fjórir bræðurnir og höfum allir orðið íslandsmeistarar í meistaraflokki í KR. Við vorum þrír saman í liðinu 1943, og urðum íslandsmeistarar það ár. For- eldrar okkar fengu einu sinni verðlaun fyrir það að eiga svona marga duglega stráka sem voru í íþróttum. stóð eitthvað mikið til, því Kristján fór að laga á mér bindið. Hann gerði það alltaf þegar hann þurfti að fá mig á sitt band. Svo spyrja þeir hvort ég sé til í að fara að þjálfa meistaraflokk. Eg bað um umhugsunarfrest í einn sólarhring. Þá sagði ég þeim að ég skyldi taka þetta að mér en fyrst vildi ég fara á Iþróttakennaraskóla Islands á Laugarvatni. Þeir samþykktu það og þar var ég í eitt ár, lauk prófi 1946.“ Ég treysti því að þú standir þig vel „Sumarið sem ég lauk náminu var enskur þjálfari hjá KR. Ég hafði alltaf verið sóttur á Laugar- vatn til að keppa en þessi þjálfari var nýr og þekkti mig ekki. Þá var Björgvin Schram formaður knatt- spyrnudeildar. Fyrir fyrsta leikinn, sem ég tók þátt í, sagði hann við mig: „Ég treysti því að þú standir þig vel, vegna þess að þjálfaranum er illa við að taka mann sem hann hefur aldrei séð.“ En þegar leikur- inn var búinn, kom Björgvin aftur til mín og sagði að þjálfarinn hefði sagt: „Ef við hefðum tvo svona menn, þá gætum við unnið alla.“ En þetta var bölvað puð hjá mér, vegna þess að ég þurfti alltaf að vera kominn aftur á Laugarvatn fyrir miðnætti og svo í sund klukk- an átta næsta morgun, jafnvel allur skrámaður." Svo var það árið 1949 að Óli lék sinn síðasta leik. En hvers vegna hætti hann? „Það var vegna þess að hin félög- in voru óánægð með að ég væri þjálfarinn og léki líka með. Ég hafði þá verið þjálfari meistara- flokks 1948 og 1949 og leikið með bæði árin.“ Var eitthvað sem bannaði það? „Nei, en þannig var það ekki hjá hinum félögunum og þess vegna vildu þau ekki að KR-ingar hefðu þennan háttinn á. Ég tók það hins vegar upp hjá sjálfum mér að hætta. Þá var ég búinn að prófa nokkra sem gætu fyllt stöðuna mína og fann manninn. Það var Hörður Felixson." En Óli B. hafði hreint ekki kvatt KR-inga og það sem meira er, bræður hans hafa allir komið þar við sögu. „Við erum fjórir bræðumir og höfum allir orðið Islandsmeistarar í meistaraflokki í KR. Við vorum þrír saman í liðinu 1943, og urðum Islandsmeistarar það ár. Foreldrar t okkar fengu einu sinni verðlaun fyrir það að eiga svona marga dug- i lega stráka sem voru í íþróttum. | Svo áttum við systur sem var líka í íþróttum." Þess má líka geta að Óli á tvo syni og annar þeirra, Jón Már, lék með meistaraflokki KR í nokkur ár. Það má því segja að fjöl- skyldan hafi verið mikill burðarás í þessu íþróttafélagi. Dugði ekkert annað en járnagi Árið 1948, þegar Óli tekur við 1 þjálfun meistaraflokks hjá KR J verða þeir Islandsmeistarar og síð- an aftur árin 1949 og 1950. „En árið 1947, þegar ég hafði lokið vertíðinni hér, fór ég til Eng- lands pg var hjá Queen Parks Ran- gers. Ég fylgdi eftir öllum æfingum hjá þeim ogpkrifaði niður allt sem þeir gerðu. Ég kom heim rétt fyrir jólin og var þá með heilmikið safn g af æfingum sem ég var búinn að ná fj Ekki var þessi aðferð stunduð 1 meðal knattspyrnuþjálfara á þess- um tíma, en ðli B. hélt þessum sið árum saman og hefur sótt fjölda námskeiða og var stöðugt að endur- nýja þekkinguna. „Þarna úti sá ég að það dugði ekkert annað en járnagi. Ég rak strákana umsvifalaust heim, ef þeir fóru ekki nákvæmlega eftir því sem j ég sagði. Ef ég hóstaði, þá hrukku þeir í kút.“ Enda leið ekki á löngu þar til Óli B. var beðinn um að taka að sér þjálfun landsliðsins í knattspyrnu. „Ég tók við landsliðinu 1951 og það ár unnum við Ólympíumeist- ara Svía á Melavellinum, 4:3. Rík- harður Jónsson frá Akranesi gerði öll fjögur mörkin. Hann var óhemju góður knattspyrnumaður og hefði getað komist í erlend lið, en hann fór ekki. Hvers vegna, veit ég ekki. En þetta var pumar | stórra sigi-a fyrir okkur Islend- * inga, því á sama tíma unnum við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.