Morgunblaðið - 10.01.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.01.1999, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ í norðausturhorni Portúgals er lítt þekktur hæðóttur þjóðgarður. „Landið kalda“, Terra fria, kalla Portúgalir þetta bakland þar sem um 9000 manns búa í um 90 litl- um þorpum. Þetta er af- skekkt veröld, staður sem samtíminn veit ekki af og ------------------------7--- peningar virðast forðast. Ibú- arnir segja að styrkjakerfi Evrópubandalagsins nái ekki til frumstæðs landbúnaðarins sem þeir lifa á. Einar Falur Ingólfsson ferðaðist um Montesinho þjóðgarðinn. / IDÆGURLAGI nokkru segir að gleymdur tími sé glataður þar til hann finnst. Það má hæglega heimfæra á fólkið sem býr í Montesinho þjóðgarðinum í hæðunum nyrst í Portúgal. Því þótt Portúgalir séu almennt að ná öðrum íbúum Evrópu hvað lífsgæði snertir, og hagvöxtur sé mikill í landinu, þá hafa þau áhrif ekki náð til fátækra bændanna nyrst í Trás-os-Montes héraði. Samruni Evrópu og hagsældin hafa ekki enn fundið þetta fólk og leyst það úr viðjum annars fyrndra lífshátta. Þjóðgarðurinn var stofnaður fyrir tíu árum en er samt lítt kunnur og lítið kynntur fyrir er- lendum ferðamönnum. Er það meðvituð ráð- stöfun; markmið stjómvalda er að vemda gróð- urríkið og jafnvægið í einföldu mannlífi svæðis- ins. íbúamir eru þannig að vissu leyti varðveitt- ir heima í héraði og reynt að halda umheiminum frá þeim, meðal annars með því að takmarka upplýsingar um svæðið og margbreytilega möguleika þess. En það er þó ekki svo að engir ferðamenn viti af þjóðgarðinum. Að sumarlagi er hann nefni- lega áfangastaður margra portúgalskra fjöl- skyldna í helgarferð. Þá má víða sjá fólk í laut- arferð eða að spjalli við bændur, gjaman við verslunina í sendibílnum sem fer á milli flestra þorpanna því þau em of fámenn til að kjörbúð geti borgað sig. Ibúamir í Montesinho þjóðgarðinum eru eitt- hvað um 9000 og búa í rúmlega 90 þorpum. Á milli þorpanna hlykkjast mjóir en víðast hvar malbikaðir vegir; þorpin em jítil og hverfast oftast nær um hlaðna kirkju. Ibúðar- og gripa- hús renna síðan oft út í eitt og allsstaðar era ux- ar og asnar og sauðfé. Dráttarvélar og bifreiðar eru sjaldgæf sjón. Hinsvegar eru hrísbúntin myndarleg við húsin og víða í stöflum uppi um hlíðar og ása, nauðsynleg til upphitunar enda verða vetumir kaldir á þessu svæði. Eldra fólk er í meirihluta, sérstaklega í af- skekktustu þorpunum. Skólabflar silast á milli byggðanna og sameina börn í skólana í stærstu þorpunum; síðar taka sum barnanna við fá- breytilegum búskapnum en það er frekar und- antekning; eins og annarsstaðar leita þau uppi tækifæri utan fjallanna, nám og störf sem fela í sér ávísun á öragga framtíð. I kyrrð sinni og framandleika er Montesinho skemmtilegur viðkomustaður ferðalanga sem fara akandi um héruð Portúgals; ferðalanga sem vilja kynnast fleiru en strandsvæðunum fyrir sunnan er íbúar norðurhéraðanna fullyrða að séu ekki lengur hið raunverulega Portúgal. En Montesinho er raunverulegt svæði. Og ferðalangurinn getur til dæmis haldið til í litlu héraðsborginni Braganca og farið í dagsferðir þaðan og kannað þjóðgarðinn og vinsamlegt mannlífið innan hans. Þá er Montesinho draumasvæði þeirra sem fara um á fjallahjólum eða ganga, og slá upp tjöldum þegar líður á kvöldið, eða falast eftir gistingu í þeim gistihús- um sem finnast á svæðinu. ■ llsfliPS* lifsSÍfis# DYTTAÐ að vegarkanti við eitt þorpið; haki og skóflur eru áhöldin sem karlmennirnir nota, vélvæðingin hefur ekki teygt langa anga sína til Montesinho. í EINU þorpa þjóðgarðsins, korti, hafa nokkrir íbúar 1 bermorgni og slátrað mynd innyffum er skipt á mi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.