Morgunblaðið - 10.01.1999, Page 18
18 B SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MANNLÍFSSTRAUMAR
VÍSlNÐllNýjar eindir?
Orka frá fjar-
lœgum kvösum
KVASAR eru öfhigustu ljósgjafar sem þekktir eru í alheimsrúm-
inu. Þeir geta sent frá sér orku sem er 100 sinnum meiri en sam-
anlögð orka allra stjarna vetrarbrautarinnar. Stærð þessara afl-
miklu ljósgjafa er samt ekki meira en tvöföld stærð sólkerfisins.
Þó enn sé margt óljóst um myndun og eiginleika kvasa hafa þeir
æ siðan þeir voru uppgötvaðir verið vísindamönnum mikið
áhugamál og veitt þeim mikilvæga innsýn í þróun og aldur
sJtjarna og vetrarbrauta. Þeir hafa einnig veitt eðlisfræðingum
mikilvægar upplýsingar um frumeindir og mismunandi eigin-
leika þeirra. Nýlega hafa stjarneðlisfræðingar í Þýskalandi greint
óvenju orkumikla geisla frá kvösum við útjaðar sjálfs alheimsins.
Fyrstu athuganir á geislum þessum benda til þess að þeir séu úr nýjum
frumeindum.
eftir Sverri
Ólafsson
Flestir stjarnvísindamenn telja að
kvasar séu úr þungum svarthol-
um, sem eru staðsett innarlega í
vetrarbrautum. Þeir draga því til
sín nálægar stjörnur og lofttegund-
ir sem hitna svo
mikið við aðdrátt-
inn að þau senda
frá sér gífurlega
mikið orkumagn.
Þessi orkumyndun
er uppistaðan af
mældum geisla-
styrk kvasanna.
Þýsku vísinda-
mennimir rannsökuðu fimm afl-
mestu tilfelli geimgeisla sem nokk-
umtíma hafa greinst. Þeir telja að
geislamir hafi komið frá fimm mis-
munandi kvösum sem allir era í gíf-
urlegri íjarlægð frá jörðinni.
Ef niðurstöður vísindamannanna
um fjarlægð kvasanna era réttar þá
munu þær hafa mikilvæg áhrif á
<*lla umræðu um nútíma eindaeðlis-
fræði. Fundur þessi virðist sérstak-
lega styðja nýlegar hugmyndir inn-
an eindafræðinnar sem segja fyrir
um tilvist nýrra einda sem falla
ekki inn í líkan, s.k. „standard“-
kenningar um uppbyggingu einda
og tengsl þeirra á milli. Niðurstöð-
ur þessar byggjast á þeirri stað-
reynd að engin þekkt eind getur
„lifað af ‘ jafn langa ferð í gegnum
alheimsrúmið og umrædd kvasa-
geislun.
Flestar hefðbundnar eindir, sem
era uppistaða allrar þekktrar geisl-
unar, eins og prótónur, rafeindir,
eða jafnvel heilir atómkjarnar, hafa
tilhneigingu til að splundrast við
geislavirka ferla og ummyndast í
aðrar eindir, þar á meðal Ijóseindir.
A ferð sinni í gegnum alheimsrúmið
rekast geislarnir einnig stöðugt á
ljóseindir bakgrannsgeislunarinnar
og tapa við það hluta af orku sinni.
Vegna þessa orkumissis og tak-
markaðra ævilíka ættu hefðbundn-
ar eindir ekki að komast lengra en
u.þ.b. 150 milljóna ljósára vega-
lengd. Þar sem geislamir sem
þýsku vísindamennirnir greindu
virðast koma frá kvösum sem eru í
meira en 150 milljóna ljósára fjar-
lægð er ólíklegt að þeir geti verið úr
hefðbundnum eindum.
Það er því erfitt að skýra hvernig
geislar þessir hafi komist jafn mikla
vegalengd og náð alla leið til jarðar-
innar með því að notast einungis við
„standard“-líkanið. Vísindamenn-
irnir telja því að eina skýringin geti
verið að geislamir innihaldi áður
óþekktar eindir, sem ekki falla inn-
an ramma hefðbundinna líkana. Á
undanfömum árum hafa verið sett-
ar fram kenningar, sem ef til vill
geta skýrt tilvist þessara lang-
drægu geisla. Svokallaðar „súper-
symmetríu“-kenningar hafa verið
þróaðar á undanförnum 20 árum, en
hafa enn sem komið er ekki náð al-
mennri viðurkenningu á meðal
eindaeðlisfræðinga. Þessar kenn-
ingar gera ráð fyrir því að hver
hefðbundin eind eigi sér samhverf-
an eindafélaga, sem býr að mestu
leyti yfir sömu eiginleikum og upp-
hafseindin en engu að síður
nokkram viðbótar eiginleikum. Það
er skoðun þýsku vísindamannanna
að „súpersymmetría" geti skýrt til-
vist og samsetningu þessara lang-
drægu geisla.
Sú eind sem líklegust er til að
skýra fyrirbærið er s.k. SO-eind sem
„súpersymmetríu“-kenningar hafa
fyrir löngu sagt fyrir um. Sam-
kvæmt kenningunni hefur þessi
eind enga hleðslu og hún mundi þar
af leiðandi hafa litla víxlverkan við
Ijóseindir bakgrannsgeislunarinnar.
SO-eindin gæti að öllum líkindum,
a.m.k. samkvæmt kenningunni,
ferðast þúsundir milljóna ljósára í
gegnum alheimsrúmið. Sem stend-
ur eru þessar eindir því líklegasta
skýringin á fyrirbærinu, þó margir
stjameðlisfræðingar séu ekki sann-
færðir um að svo sé. Leitin eftir
öðrum mögulegum eindum heldur
því áfram.
Tækni/ Tvinnbílarnir ogpeningamálin
Grœðir þjóðfélagið á
þeim ? Grœði ég á þeim ?
í SÍÐUSTU tæknigrein var laus-
lega fjallað um tæknihlið tvinnbíl-
anna. Sé gert ráð fyrir þrefaldri
nýtni þeirra á við hinn venjulega
bensínbfl, sparar yfirritaður í elds-
neytiskostnaði vel yfir eitt hundrað
þúsund krónur á ári. Sé tekið lán
fyrir tvinnbflnum og það borgað á
tíu árum, sem er undir endingar-
tíma bflsins, mætti það lán vera sex
og hálf milljón króna, eigi ég að
fara slétt út úr þeim viðskiptum.
-^etta er það sem ég gæti borgað
aukalega fyrir það eitt að bfllinn
væri tvinnbfll. Bfll sem ég keypti
mér mætti þar með kosta átta og
hálfa milljón króna. Dálaglegur
bfll.
En tvinnbílamir kosta langt í frá
svo miklu meira en venjulegir
bílar. Verðlagning Toyota-verk-
smiðjanna á þeim bfl sem var sýndur
hér nýlega er ívið hærri en á sam-
svarandi venjuleg-
um bíl. Kæmi shk-
ur blll á markað
hér er öraggt að ég
sparaði megnið af
þessum hundráð
þúsundum á ári,
miðað við óbreyttar
verðlagsforsendur.
Þetta er miðað við
Toyota-gerðina þar sem er um að
xæða hina svokölluðu samsíða skipan
"élahluta, þar sem annað tveggja lítil
bensínvél og rafhlöðurnar snúa
hjólabúnaðinum, en hvorttveggja
þegar mikið liggur við. Öll upphaf-
lega. orkan kemur hins vegar frá
bensíninu og kosturinn felst ein-
göngu í betri nýtingu hennar. Þjóð-
arbúið sparar um tvo þriðju þess
eldsneytis sem fer á bflaflotann, en
spuming er hvort bensínverði yrði
haldið óbreyttu ef meginhluti bíla-
flotans er kominn á tvinnvél. Ríkis-
sjóður er sú hít sem yrði einhvem-
veginn að bæta sér missinn.
Tvinnbílamir era komnir til að
vera. Að sögn Toyota-umboðsins hér
kemur hann á markað í Vesturevr-
ópu og hér á fyrri hluta ársins tvö
þúsund. Þetta er sá kostur sem not-
aður verður næstu áratugina, uns
rafbílar taka alveg við, i seinasta lagi
um það leyti er verulega fer að
sneyðast um ohubirgðir heimsins á
miðri komandi öld. En rafbfll er i
engu framfor út frá umhverfissjón-
armiðum séð, sé ekki sú raforka sem
er upprunalega framleidd umhverf-
isvæn, þ.e. orðin til við vindorku, sól-
arorku eða kjamasamrana. Engu
skiptir hvort koltvíildið kemur frá
stóram kolaorkuveram eða út úr
púströram ótal bfla, ef magnið er hið
sama.
Einn sá kostur sem við getum
horft fram til er sá að gróflega áætl-
að fellur koltvíildismengun Islend-
inga um einn sjötta hluta. En það
væri óskalausn íyrir okkar þjóðarbú
ef við gætum sameinað kosti tvinn-
bíls og orkuframleiðslugetu landsins,
enda þótt hún sé afar umdeild stærð
sem stendur. Samanber hina miklu
deilu er stendur meðal þjóðarinnar
um nýtingu miðhálendisins. Tvinn-
bfll sem gæti staðið á stæði og tekið
við orku úr rafkerfinu á nóttum,
þannig að minnihluti orkunnar kæmi
frá bensínvélinni, myndi spara okkur
meginhluta, e.t.v. 90% allra bensín-
kaupa til bflaflotans. Fljótt á litið
myndi slíkt krefjast nokkra meiri
orkuframleiðslu vatnsafls- og jarð-
hitavirkjana aukalega en nú er þegar
fyrir hendi. Það yrði ekki átakalaust
að koma upp þeim mannvirkjum er
til þyrfti. En eigi að virkja orkulindir
vorar á annað borð, væri skynsam-
legra að nýta slíkt til gjaldeyris-
sparnaðar og til að halda niðri koltví-
ildismengun okkar en til að selja það
norskum eða einhverjum enn alþjóð-
legri auðhringum í málmframleiðslu.
Á þessari tækniaðferð er hins vegar
enn sá hængur, að shkt krefst hátt í
sama magns rafhlaðna og er að finna
í hreinum rafbflum, a.m.k. á meðan
ekki hafa fundist virkari rafhlöður
en reyndin er. Það magn af rafhlöð-
um ásamt tveimur aflvélum, bensín-
vél og rafmótor, gerir að líkindum
meiri kröfúr til rýmis en svo að bfll-
inn verði að öllu leyti sambærilegur
við fólksbfla dagsins í dag hvað varð-
ar akstursgetu, farþegarými og
þyngd.
MATARLISTA/ r///;/ við öfgaþjóð?
Með hœkk-
andi sól
Gleðilegt nýtt ár, kæru lesendur. Vonandi hafið þið haft það gott um
jólin, hlýtt á fallega tónlist, slappað vel af og átt ánægjulegar stundir í
faðmi fjölskyldu og vina. Nú eru veisluhöld jólanna að baki þar til að
ári, nýtt ár hafið og þar með ný verkefni sem bíða okkar.
Flestir eru nú svona
hálfþungir á sér í
ársbyrjun eftir allt
hangikjötið, jólaölið og
allar hinar jólakræsing-
arnar og
ekki
beint í
drífandi
gír, auk
þess
sem sól-
eftir Álfheiði Hönnu arhring-
Friðriksdóttur urinn er
kominn
á ská og skjön. En það
er óþarfi að örvænta,
eða fara í einhverja
öfgakennda líkamsþjálf-
un með nagandi sam-
viskubit. Öllum er nátt-
úrlega nauðsynlegt að
hreyfa sig og það helst
daglega, en góður
göngutúr, sundferð og
tuttugu mínútna heima-
leikfimi eru til dæmis
mjög ódýrar lausnir og
á flestra færi.
Hvað mataræðið
varðar er gott bæði fyrir budd-
una og sálina að halda dálítð í við
sig í mat og drykk og sumir fasta
á þessum árstíma. Það er einnig
gott fyrir hugmyndaflugið að láta
reyna á hvað maður getur mallað
úr hinum og þessum aðföngum,
hreinsað bókstaflega út úr eld-
hússkápunum áður en maður
verslar aftur eitthvað að ráði. Að
sama skapi eru öfgar í þessum
efnum ekki af hinu góða. Eftir
svona mikil veisluhöld er ekki vit-
laust að vinda ofan af neyslunni í
rólegheitum, svona frameftir jan-
úar og matbúa t.d. ríkulega
grænmetisrétti, sannkallaða
veislurétti, sem eru samt léttir.
Pizzur þykja nú t.a.m. ekkert
slor, en þær eru mjög handhægar
og þær má búa til í ýmsum stærð-
um og möguleikarnir til að fylla
þær eru óteljandi. Það er t.d.
upplagt að nota matarafganga
sem fyllingu, s.s. kjöt, físk,
kryddpylsur eða grænmeti, séu
aðeins ostur og tómatkraftur við
hendina.
Maður getur nefnilega haft
veislumat allt árið um kring þótt
hann sé úr afgöngum eða mjög
ódýra hráefni og margréttað, t.d.
boðið upp á heitan grænmetisrétt
eða súpu með salati og brauð og
ávöxt, kaffi eða te í eftirrétt. Hér
er tillaga að tveimur álíka matseðl-
um: grískt salat, gróft brauð,
ávöxtur, kökusneið, kaffi eða te,
eða: ítölsk minestrone (tær græn-
metissúpa) gróft brauð, ferskt sal-
at, ávextir og ostur, kaffi. Það sést
á þessum matseðlum að margrétta
máltíð þarf alls ekki að þýða meiri
matur eða flóknari eldamennska,
heldur nýtur maður einfaldlega
hvers réttar betur og gefur honum
meiri gaum, heldur en ef öllu er
hrúgað saman á einn og sama
diskinn.
Hér fylgir hins vegar uppskrift
að heitum grænmetisrétti, sem er
kjörinn orkugjafi nú með hækk-
andi sól, sem endranær, með dálít-
ið suðrænni sveiflu. Hann er svona
í sparilegri kantinum, t.d. sem
staðgengill sunnudagssteikurinn-
ar. Með þessum rétti er ágætt að
bera fram ferskt salat og brauð og
jafnvel kotasæluíylltar appelsínur
í eftirrétt, fylling: appelsínukjöt,
kotasæla, sveskjur, ristað
haframjög og e.t.v. smádreitill af
appelsínulíkjör.
Fyllt eggaldin
Uppskrift fyrir 4
_________2 meðalstór eggaldin_______
1 msk. ólífuolía
_______2 stórir, hokkoðir laukar____
2 marÖir hvítlauksgeirar
175 g saxaðir sveppir
4 stórir tómatar (hakkaðir,
sem búið er að flysja)
1 tsk. tómatkraftur
75 t heilhveitiraspur
___________2 msk. hveitiklíð________
50 g hakkaðar möndlur
1 msk. hökkuð steinselja
1 tsk. sítrónusafi
____________salt og pipar___________
50 g rifinn maribó-ostur.
Hitið ofninn í 180°. Pikkið í
eggaldingrænmetið með gaffli á
nokkrum stöðum til að varna því
að börkurinn rifni við hitun. Legg-
ið grænmetið á bökunarplötu og
bakið í ca. 30 mín. og snúið einu
sinni. Skerið eggaldingrænmetið
langsum í tvennt og skrapið kjötið
innan úr og merjið það eða hakkið
í matvinnsluvél. Hitið nú olíuna í
potti og hitið laukinn við miðl-
ungshita í u.þ.b. 3 mín. Bætið þá
hvítlauknum út í og hitið áfram í 1
mín. Setjið nú sveppina, tómatana
og tómatkraftinn út í pottinn og
látið malla í ca. 5 mín. Hrærið í af
og til. Bætið nú út í pottinn
eggaldinkjötinu 273 af raspinum,
helmingnum af hveitiklíðinu,
möndlum, sítrónusafa og stein-
selju og látið malla í 2-3 mín.
Leggið eggaldinbörkinn nú í eld-
fast fat og komið fyllingunni fyrir í
þessum 4 helmingum. Blandið
saman restinni af raspinum,
hveitiklíðinu og ostinum og stráið
yfir. Bakið við 180° í 20-25 mín.
Berist fram strax. Ferskt,
múskatkryddað spínatsalat er til-
valið með þessum rétti, eins
gufusoðið spergilkál með val-
hnetukurl.