Morgunblaðið - 14.01.1999, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
39 af 89 fyrsta árs nemum í hjúkrimarfræði við Háskóla Islands
39 AF 89 þátttakendum í sam-
keppnisprófum fyrsta árs nem-
enda í hjúkrunarfræði í Háskóla
Islands hafa kært framkvæmd
prófanna.
Katrín Júlíusdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stúdentaráðs, segir
að megn óánægja hafi blossað upp
eftir prófm, sem haldin voru í des-
ember. Osamræmi hafí verið milli
kennsluefnis í líffærafræði og
prófverkefnis og próf fyrir mis-
gáning verið lagt fyrir fjórða árs
nema snemma morguns en fyrsta
árs nemar þreyttu prófíð eftir há-
degi. Prófíð hafí því lekið út til
sumra.
Kæra fram-
kvæmd prófa
Katrín segir að ekki hafí fengist
fullnægjandi niðurstaða frá náms-
braut í hjúkrunarfræði vegna
kæranna og þær því verið sendar
rektorsembættinu, sem hafí falið
kennslusviði að íjalla um málið.
Niðurstaðan varð sú að kennslu-
svið gæti ekki farið gegn úrskurði
námsbrautarinnar.
„Það kemur í ljós að Háskólinn
getur ekki farið gegn vilja náms-
brautarinnar. Námsbrautin sem
verið er að kæra dæmir því í eigin
sök,“ segir Katrín.
Guðrún Kristjánsdóttir, for-
maður námsbrautar í hjúkrunar-
fræði, kannaðist ekki við að próf
hefði fyrir misgáning verið lagt
fyrir fjórða árs nemendur.
Hins vegar hafí munnlegar at-
hugasemdir vegna námskeiðs í líf-
færafræði verið afgreiddar með
innbyrðis samskiptum kennara og
stúdenta. í lok síðasta prófs hafí
borist skrifleg kæra frá réttinda-
skrifstofu stúdenta. Prófið hafi ver-
ið þyngra en oft áður en engu að
síður hafí útkoman að jafnaði verið
betri. Guðrún sagði að í ljósi at-
hugasemda yrði námskeiðið í líf-
færafræði endurskoðað og einnig
vænti hún þess að settar yrðu skýr-
ar reglur um frágang námsefnis.
Gjöld vegna öku-
skírteina hækka
um 17-33%
GJALD fyrir almennt ökuskírteini
hækkaði um 500 krónur um áramót-
in úr 3.000 krónum í 3.500 krónur
eða um tæp 17%. Á sama tíma
hækkaði gjald fyrir' bráðabirgða-
ökuskírteini einnig um 500 krónur
úr 1.500 krónum í 2.000 krónur eða
um rúm 33%.
Stefán Eiríksson, lögfræðingur í
dómsmálaráðuneytinu, sagði að
gjald vegna ökuskírteinanna hefði
verið þjónustugjald en hefði nú ver-
ið tekið inn í aukatekjulögin sem
skattur og væri þar meðal annars
verið að taka tillit til þeirra breyt-
inga sem gerðar hefðu verið á út-
gáfu skírteinanna og aukins kostn-
aðar vegna útgáfu þeirra.
Prófgjöld hækkuðu um
nálægf 20%
Bráðabirgðaskírteini eru gefin út
í tvö ár til þeirra sem eru að fá öku-
skírteini í fyrsta skipti og einnig
þeirra sem orðnir eru 65 ára og
eldri. Stefán sagði að gera mætti
ráð fyrir að um 15 þúsund skírteini
væru gefin út árlega.
Þá hækkuðu prófgjöld vegna öfl-
unar ökuréttinda einnig um áramót-
in um nálægt 20% að meðaltali að
sögn Stefáns. Sú gjaldtaka er ekki
inni í aukatekjulögunum, enda um
notendagjald að ræða. Hækkanir
eru mismunandi eftir því um hvaða
ökuréttindi er að ræða, en prófgjald
vegna almenns ökuprófs hækkaði
úr 2.800 krónum í 3.400 krónur eða
um rúmlega 21%.
Stefán sagði að þarna væri fyrst
og fremst um hækkun vegna verð-
lagshækkana að ræða á liðnum ár-
um. Prófgjöldin hefðu ekki hækkað
í mörg ár. Þama væri um þjónustu-
gjöld að ræða, sem væri ætlað að
standa undir kostnaði við prófadeild
Umferðarráðs. Prófadeildin hefði
umsjón prófanna með höndum og
hún hefði verið rekin með halla,
einkum á síðasta ári.
Morgunblaðið/RAX
Beðið eftir afla
í ljósaskiptunum
FUGLARNIR á Höfn í Horna-
fírði silja rólegir á þakskeggi
við höfnina og bíða eftir að bát-
arnir komi inn. Þá fljúga þeir af
stað og næla sér í æti á auð-
veldan hátt. Best þykir þeim
sfídin og loðnan og því er um að
gera að vera í viðbragðsstöðu
og ná sér í smábita áður en afl-
inn er bræddur.
Norrænt
sjónvarp
í Breið-
varpinu
FRÁ og með deginum í dag bætast
sex norrænar sjónvarpsrásir við í
Breiðvai-pi Landssímans. Þetta eru
tvær rásir sænska ríkissjónvarps-
ins, SVTl og SVT2, tvær rásir
norska ríkissjónvarpsins, NRKl og
NRK2, danska í-íkissjónvarpið
DRl og danska sjónvarpsstöðin
TV2.
Barnaefni, framhaldsþættir,
íþróttir, kvikmyndir og fréttir eru
hluti af daglegri dagskrá, á við-
komandi tungumáli eða með texta
ef um erlenda þætti eða kvikmynd-
ir er að ræða.
Tilkoma norrænu rásanna sex á
Breiðvarpinu eykur mjög fjöl-
breytni sjónvarpsefnis á Islandi,
segir í fréttatilkynningu. í kynn-
ingarskyni eru norrænu rásirnai'
opnar fram til 1. marz öllum sem
aðgang hafa að breiðbandi Lands-
símans. Eftir 1. marz verða rásirn-
ar seldar í áskrift. Er þá jafnframt
ætlunin að bjóða upp á nokkra mis-
munandi áskriftarflokka í Breið-
varpinu.
----------------
I haldi vegna
innbrota
í Mjódd
UNGUR maður var handtekinn á
þriðjudag vegna gruns um innbrot
í fjögur fyrirtæki í Mjóddinni í
Reykjavík nóttina áður.
Þýfið úr innbrotunum fannst
þar sem mannsins var leitað og í
framhaldi af því var annar ungur
maður handtekinn vegna þessara
mála.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar, aðstoðaryfirlögi-egluþjóns í
Reykjavíkurlögreglunni, sátu
mennirnir enn inni eftir hádegi í
gær vegna rannsóknar málsins og
færi það eftir framgangi hennar
hvort farið yrði fram á gæsluvarð-
hald yfír þeim.
Stjórn fulltrúaráðs mælir
ekki með prófkjöri
STJÓRN fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík leggur ekki
til að fram fari prófkjör í Reykja-
vík fyrir komandi alþingiskosning-
ar. Fari svo að ekki verði gerð til-
laga um prófkjör á aðalfundi full-
tráaráðsins 23. janúar nk. verður
þetta í fyrsta sinn frá 1974 sem
prófkjör verður ekki fyrir valinu í
Reykjavík fyrir þingkosningar.
Baldur Guðlaugsson, formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna,
segir að almenna reglan sé sú að
kjörnefnd geri tillögu um lista.
Það þurfi hins vegar sérstaka
ákvörðun til þess að það fari fram
prófkjör.
„Endurspeglar hið alnienna
viðhorf í flokknum"
Aðalfundur fulltrúaráðsins
verður 23. janúar næstkomandi
og þar verður gerð grein fyrir
niðurstöðu stjórnarinnar. Búið er
að velja kjörnefnd og tekur hún
fljótlega til starfa. Ekki er ljóst
hvenær hún lýkur störfum. Bald-
ur segir að niðurstaða stjórnar
fulltrúaráðsins hafi verið sam-
hljóða og hún endurspegli að
vissu leyti hið almenna viðhorf í
flokknum. Það sé lagt mat á það
hverju sinni hvort prófkjör kunni
að henta flokknum. Það hafi verið
niðurstaða stjórnarinnar að
þokkaleg samstaða sé um fram-
bjóðendur sem hafi komið inn á
framboðslista fyrir síðustu kosn-
ingar eftir prófkjör.
í dag
••••••••••••••••••••••••••••••••••••<
VIDSiaFn AIVINNULÍF
HLUTABREF
Árið
1999
Ástand og
horfur/D4
HUGBUNAÐUR l
Samruni :
félaga
Meðalaldur- :
inn 23 ár/D7 •
AUGLÝSING
Blaðinu í dag
fylgir 4ra síðna
auglýsingablað
frá Nóatúni.
www.mbl.is
• Jason Ólafsson þakkaði
• fyrir sig í Dessau/B1
» • • • •
: Michael Jordan leggur
: skóna á hilluna/B3