Morgunblaðið - 14.01.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 15
Nýtt bakarí
á Akureyri
NOKKRIR aðilar á Akureyri hafa
stofnað hlutafélag um rekstur bak-
arís í bænum. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins eru þar á með-
al Jörundur Traustason, sem var
yfirmaður Brauðgerðar KEA, Sig-
urður Sigurðsson, sem rekur bygg-
ingafyrirtækið SS Byggir, og
Andrés Magnússon bakari, sem
jafnframt verður bakarameistari
nýja bakarísins.
Ekki liggur fyrir hversu margir
starfsmenn vinna í nýja bakaríinu
en stefnt er að því að starfsemin
hefjist sem allra fyrst. Bakaríinu,
sem ekki hefur enn verið gefið
nafn, hefur verið valinn staður við
Dalsbraut, upp með Gleránni og
við nýju Borgarbrautina. Um er að
ræða handverksbakarí, sem sér-
hæfir sig í framleiðslu á náttúru-
legum afurðum og sölu þeirra.
Þrjú bakarí hafa verið starfrækt
á Akureyri til fjölda ára en þeim
fækkaði um eitt í lok síðasta árs er
Krístjánsbakarí keypti Brauðgerð
KEA. Hitt bakaríið er Brauðgerð
Axels en þegar nýja bakaríið tekur
til starfa verða þau aftur þrjú í
bænum.
Ferðamálasamtök Eyjafjarðar og sljórn íþróttafélagsins Þórs
Verslun í stað íþróttavall
ar ekki fráleit hugmynd
STJÓRN Ferðamálasamtaka Eyja-
fjarðar tekur undir hugmyndir sem
fram hafa komið um að reisa stórt
verslunarhúsnæði á íþróttaleik-
vangi Akureyrar og er í ályktun frá
fundi stjómar tekið undir sjónar-
mið stjórnar Kaupmannafélags
Akureyi’ar og nágrennis um að
málefnaleg umræða fari fram um
stækkun miðbæjarins til norðurs.
Telur stjómin að mikilvægt sé
að leita allra leiða til að styrkja at-
vinnulíf í bænum og mæta þannig
mikilli samkeppni við Reykjavíkur-
svæðið. „Brýnt er því að kanna all-
ar þær leiðir sem geta gert pláss-
frekum verslunarmiðstöðvum
kleift að starfa í nálægð við miðbæ-
inn. Slíkar miðstöðvar gegna æ
þýðingarmeira hlutverki í nútíma-
verslunarrekstri og mannlífi víða
um heim,“ segir í ályktuninni og að
nú sé lag að efla Akureyri sem
verslunarstað, auðga mannlífið og í
leiðinni að renna styrkari stoðum
undir ferðaþjónustu í bænum.
Sambærileg aðstaða
fáist í staðinn
Fjallað var um sama mál á fundi
aðalstjórnar Iþróttafélagsins Þórs
í vikunni en þar kemur fram að að-
eins sé hægt að taka undir hug-
myndir um breytingar á íþrótta-
svæðinu ef sambærileg eða betri
aðstaða verði sköpuð annars stað-
ar. Stjórn félagsins er reiðubúin til
viðræðna við Akureyrarbæ um að
leita lausna við að koma til móts við
þarfir íþróttafólks í bænum, m.a.
með því að leggja hluta af æfinga-
svæði félagsins undir framtíðar-
keppnisaðstöðu í knattspyrnu og
frjálsum íþróttum enda verði gerð-
ar nauðsynlegar endurbætur á því.
Til að bæta félaginu missi æfinga-
aðstöðunnar fái félagið í staðinn
æfingasvæði í Giljahverfi.
Benda Þórsarar á að gert sé ráð
fyrir hlaupabrautum og annarri að-
stöðu frjálsra íþrótta á félagssvæði
sínu. Einnig að nýlega hafi verið
gengið frá samkomulagi við Ung-
mennafélag Akureyrar um afnot
þess af félagsheimiÚ Þórs undir fé-
lagsstarf sitt.
Meirihluti bæjarstjórnar stefnir
að því að reisa fjölnota íþróttahús á
svæði Þórs innan þriggja ára, en
með tilkomu þess mun aðstaða til
iðkunar knattspymu og frjálsra
íþrótta batna til muna. Telja stjóm-
armenn í Þór eðlilegt að ný keppn-
isaðstaða knattspymufólks verði
staðsett sem næst fyrirhuguðu æf-
ingahúsnæði, en með því að færa
hana nær notendum þannig að æf-
inga- og keppnissvæði séu hlið við
hlið eykst nýting fjárfestinga.
Morgunblaðið/Kristján
Vernharð
íþrótta-
maður KA
VERNHARÐ Þorleifsson
júdómaður var útnefndur
íþróttamaður KA 1998 í af-
mælishófi félgsins sl. sunnu-
dag. Vernharð gerði góða
hluti á síðasta ári og varð
m.a. Islandsmeistari í sínum
þyngdarflokki og sigraði á
opna skandinavíska meist-
aramótinu. Þá var hann út-
nefndur Iþróttamaður Akur-
eyrar 1998 undir lok ársins.
Knattspyrnumaðurinn
Atli Sveinn Þórarinsson
varð í öðru sæti í kjöri
íþróttamanns KA og hand-
knattleiksmaðurinn Sverrir
Björnsson í því þriðja. Á
myndinni er Vernharð með
verðlaunin sem fylgja nafn-
bótinni.
Norðurland eystra
Atvinnulaus-
um Qölgar
Atvinnuleysi á Norðurlandi eystra
UM SIÐUSTU áramót voru 483
skráðir atvinnulausir á Norður-
landi eystra, 287 konur og 196
karlar, samkvæmt yfirliti frá
Svæðisvinnumiðlun Norðurlands
eystra. Atvinnulausum fækkaði
um 143 frá sama tímabili árið áður
en fjölgaði um 93 frá mánuðinum á
undan.
Atvinnulausum fækkaði á Akm’-
eyri, Húsavík og í Dalvíkm’byggð á
milli áramótanna 1997 og 1998 en
fjölgaði lítillega i Ólafsfirði. Hins
vegar fjölgaði atvinnulausum á
Akureyri, ðlafsfirði og í Dalvíkur-
byggð frá lokum nóvember á síð-
asta ári til áramóta en fækkaði á
sama tímabili á Húsavík.
Helena Karlsdóttir, forstöðu-
maður Svæðisvinnumiðlunar Norð-
urlands eystra, sagði atvinnuá-
stand þokkalegt á svæðinu en hins
vegar hefði verið mikið um ný-
skráningar að undanförnu, m.a.
vegna gjaldþrots Foldu á Akur-
eyri. Einnig ætti nýskráningum
eftir að fjölga í Dalvíkurbyggð þeg-
ar til uppsagna kemur í rækju-
vinnslu Samheija í mars.
árin 1997 og 1998 31. des. 1997 30. nóv. 1998 31. des. 1998
i Norðurland eystra I 369 257 248 142 287 196 konur karlar
626 390 483 samtals
207 191 konur4f-
Akureyri 133 103 132 karlar
340 278 323 samtals
j mmmm 27 . 24 koniJÉBi
Húsavík ! 1 32 17 14 karlar
75 44 38 samtals
f Ólafsfjörður i... 9 11 t'- 12 konur
16 9 16 karlar
25 19 28 samtals
6 satttsssi 7 konur
Dalvíkurbyggð 7 3 4 karlar
13 8 11 samtals
PETUR GAUTUR
í UPPSETNINGU LEIKFÉLAGS AKUREYRAR
EFTIR HENRIK IBSEN
Frumflutningur nýrrar þýðingar Helga Hálfdanarsonar
Tónlist: Guöni Franzson og Edvard Grieg
8
,,Hvað get ég sagt...?"
Jakob Þór Einarsson
leikari
FLUG, GISTING OG LEIKHUSFERÐ
SÝNINGAR Á FÖSTUDÖGUM OG LAUCARDÖGUM KL. 20
• Alvöru, upphækkanlegur, 4x4 jeppi
á ótrúlegu veröi
• Hátt og lágt drif- byggður á grind
• Kraftmikil og hljóðlát vél
• Einstaklega góður í endursölu
11.900 kr.
ÍSLANDSFLUG
I JANUAR
gertr notrum taort 0O fijúgn
Sími 570 8090
fOttHOlfl
Afþreying þín - okkar ánægja
1
FULIQl
framíIHI
mM
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
VITARA
TEGUND: VERÐ:
JLX SE 3d 1.580.000 KR.
JLXSE 5d 1.830.000 KR.
DIESEL 5d 2.180.000 KR.
Sjálfskipting kostar 150.000 KR.