Morgunblaðið - 14.01.1999, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Fj árlagabr ella
A SIÐUSTU dögum
fjárlagavinnunnar á
Alþingi gerðist það að
menn urðu skyndilega
fram úr hófi örlátir og
tóku að veita fé á báð-
ar hendur. Vai'ð þessi
stökkbreyting bæði í
fj árlaganefndinni
sjálfri og þó ekki síður
í ríkisstjóminni, - slíkt
kalla illgjai-nir kosn-
ingaskjálfta. Hækkun
útgjalda við síðustu
umræðu fjárlaga varð
því hvorki meira né
minna en hálfur fjórði
milljarður króna. Nú
urðu góð ráð dýr því
að samkvæmt þeim áætlunum sem
áður lágu fyrir var hér orðinn mik-
ill halli á þeim fjárlögum sem svo
mjög höfðu verið lofuð áður og tal-
in vera réttu megin við strikið og
því hafði verið gefið í skyn að
tekjuhliðin yrði ekki endurskoðuð
við þessa umræðu. En hinir alvitru
íjölbragðamógusar fjármálasnill-
innar létu sér ekki bilt við verða
fremur en endranær heldur fóru
með tekjuáætlun sína á svipaðan
hátt og tröllin í þjóðsögunum fóru
með ólánsama byggðamenn. Þeir
hnoðuðu hana upp úr súru sméri
og teygðu yfir eldi hafandi yfir
særingar slíkar er dugðu til þess
að teygja tekjuliðinn um 208 millj-
ónir fram yfir það sem farið hafði í
óráðsíu milli umræðna. Þóttust
þeir nú karlar fyrir sinn hatt og
Sigríður
Jóhannesdóttir
hrósuðu sér nú mjög af
því að fjárlögin væru
afgreidd með meiri af-
gangi en við fyrri um-
ræður.
Töfrabragðið í
tekjuáætluninni var þó
ekki annað en það að
áætla að skatttekjur
ykjust um 1.828 millj-
ónir króna og telja að
aukin sala á eignum
ríkisins gæti skilað
1.300 milljónum króna.
Undanfarið höfum við
rekist á eignir ríkisins
á hinum ýmsu útsölum
og er ljóst að þær
verða ekki seldar
nema einu sinni og þegar kol-
krabbinn hefur gleypt þær skila
þær ekki lengur arði til ríkissjóðs
og því óar mig við því að sækja enn
eyðslufé með þessum hætti.
Minnihluti fjárlaganefndar telur
auk þess að í þeirri þjóðhagsáætl-
un sem tekjuáætlunin byggir á
liggi vanmat á innflutningi og fjár-
festingu. Þar er gert ráð fyrir að
innflutningur aukist aðeins um
0,9% á árinu. Benda má á að síð-
asta ár hefur hann aukist um
23,3% þótt hluti þess sé að vísu til-
kominn vegna mikilla fram-
kvæmda, m.a. byggingar álvers.
Samt má telja að 0,9% aukning á
þessu ári sé allt of varlega áætluð.
Eg tel ástæðu til að óttast að þetta
sé einn af þeim fjöldamörgu spá-
dómum á undanförnum árum sem
Fjárlög
Það er íslendingum
til háborinnar skamm-
ar, segir Sigríður
Jóhannesdóttir, að
reyna ekki að nýta þá
tekjumöguleika sem
til eru til þess að rétta
hlut öryrkja.
ekki muni rætast. Það virðist þörf
á sérstöku átaki til að spár verði
haldbetra stjórntæki í fjármálum
hér á landi því þótt í spám sé eðli
málsins samkvæmt ævinlega ein-
hver vafi virðist mér oft að fjár-
málaspám með öðrum þjóðum sé
betur treystandi.
Það er t.d. mikilvægt að spár um
kaupmátt og einkaneyslu séu
byggðar á traustum forsendum.
Sapkvæmt spám átti einkaneyslan
á Islandi á liðnu ári að aukast um
5% en reyndin varð sú að hún hef-
ur aukist um 12% og er sú gríðar-
lega þensla mikið áhyggjuefni,
einkum þar sem hún er að stórum
hluta fjármögnuð með lántökum,
og máttum við síst við því að
skuldir heimilanna ykjust enn
stórlega.
Það er áríðandi að tekjugrund-
völlur ríkissjóðs verði styrktur
m.a. með virkara skattaeftirliti og
sértækum aðgerðum gegn
skattsvikum en alltof lítið hefur
farið fyrir slíkum aðgerðum und-
anfarin ár. Það er á allra vitorði að
mikið er um svai'ta atvinnustarf-
semi í landinu. Það liggur í hlutar-
ins eðli að illa hefur gengið að
áætla hversu háar fjárhæðir er þar
um að ræða en talað hefur verið
um að allt að 15 milljarðar séu á
sveimi í einhverju neðanjarðarhag-
kerfi. Mjög brýnt er að reynt sé að
sporna við slíku og þá ekki aðeins
vegna þeirra tekna sem ríkissjóður
verður af heldur ekki síður vegna
þess unga fólks sem oft lendir í
hinum verstu hremmingum eftir
að hafa ráðið sig upp á slíka skil-
mála. Gerist það svo að atvinnu-
rekendur snuði það um laun er
engum vörnum við komið því ekki
er formlega gengið frá ráðning-
unni, verkalýðsfélagsaðild eða öðr-
um réttindum.
Það er ekkert grín að slasast á
vinnustað við slíkar aðstæður.
Minnihluti fjárlaganefndar lagði
einnig til við lokaafgreiðslu fjár-
laga að tryggingagjald yi'ði hækk-
að um 0,5%, en það eitt hefði aflað
hálfs annars milljarðs sem nota
hefði mátt til að bæta hag þeirra
sem minnst mega sín og sem enn
eina ferðina fóru halloka við fjár-
lagagerð. Má þar nefna öryrkja og
aðra þá lífeyrisþega sem ekki hafa
annað sér til framfærslu en bætur
og eiga ekki möguleika á að afla
sér annarra tekna. Samkvæmt nið-
urstöðum þessara fjárlaga er því
fólki áfram ætlað að knýja á dyr
hjálparstofnana um næstu jól pg
þarf raunar ekki jól til. Það er Is-
lendingum til háborinnar skammar
að reyna ekki að nýta þá tekju-
möguleika sem til eru til þess að
rétta hlut öryrkja þannig að þeir
séu ekki læstir inni í fátækragildru
til viðbótar því oki sem fötlun
þeirra leggur á þá. Þegar hætt var
að tengja bætur við ákveðinn
launaflokk umsaminna launa fyrir
nokkrum árum hétu stjórnvöld því
að bætur myndu ekki hækka
minna í framtíðinni en sem næmi
meðaltalshækkun launa. Nú um
áramótin lagði ríkisstjórnin af
rausn sinni fram 75 milljónir króna
í þessu skyni.
Ekki þarf yfir því að kvarta að
fjölmiðlar hafi ekki gert þessu ör-
læti góð skil. Svo góð skil raunar
að stór hluti þjóðarinnar var farinn
að halda að hér hefði verið staðið
við áðurnefnt loforð. Sannleikurinn
er hins vegar sá að enn vantar 401
milljón króna til þess að loforðið sé
efnt. Meðan biðraðir aldraðra og
öryrkja við hurðir hjálparstofnana
lengjast ár frá ári hefur ríkis-
stjórnin ekki upp á aðrar trakter-
ingai' að bjóða þessum hópum en
svikin loforð.
Það er reisn yfir slíkri fjáiTnála-
stjórn nú í góðærinu!
Höfundur er alþingismaður
Alþýðubandalagsins fyrir
Iteykjanvskjördænn.
KAMBSVEGUR - 3JA HERBERGJA
Til sölu björt og mjög góð ca 100 fm 3ja herb. íbúð á
jarðhæð í fallegu húsi við Kambsveg í Reykjavík. Flísar
og parket á gólfum. Búið er að endurnýja mikið í
íbúðinni.
Nánari upplýsingar
eru veittar í síma 896 3038.
VALHOLL
FASTEIGNASALA
Síðumúla 27. Reykjavík
sími 588 - 4477. Fax 588 - 4479
Netfang
http://mbl.is/valholl/ og
einnig á http://habil.is
Opið virka daga frá kl. 9-18,
sunnudaga frá kl. 12-14.
2ja herbergja
Skaftahlíð - í góðu húsi. Falleg
rúmg. 61 fm íb. í kj., lítið niðugr., á fráb.
stað. Laus í mai/júní '99. Mögul. að yfirt.
leigusamn. Áhv. 3 m. húsbr. V. 5,8 m. 2392
Snæland - einstaklíb. - Útb. 1
millj. Mjög góð 33 fm ósamþ. íb. á jarðhæð á
rólegum eftirsóttum stað í Fossvogi. Áhv. 30
ára hagst. lán 2.350 þús. V. 3,4 m. Laus
strax. 1543
Spóahólar - lítil útb. - laus. Giæsii.
mikið endurn. 54 fm íb. á 1. hæð. Áhv. 3,3 m.
húsbr. + byggsj. V. 5,0 m. Laus strax. 1878
Þingholtin - sérinng. Falleg mikiö
standsett 52 fm íb. á jarðhæð í góðu fjórbýli. Nýl.
gler, rafmagn, lagnir og gólfefni. V. 4,5 m. 5043
Þverbrekka - byggsj. 3 m. -
ekkert greiðslumat. í einkasölu glæsil.
íb. á 5. h. í nýl. viðg. lyftuhúsi. Nýl. fallegt eld-
hús. Fallegt útsýni. Mjög góð sameign. Áhv. 3
m. byggsj. 40 ára lán. V. 4,9 m. 4171
Atvinnuhúsnæði
Bæjarflöt - Grafarv. - glæsil.
iðnaðarhúsn. Vorum að fá sex 200 fm
iðnaðarbil með mikilli lofthæð. Góð innkeyrslu-
bil. Stórt athafnasvæði. Teikningar á skrifstofu.
Grensásv. - skrifstofuhúsn. í
Nökkvavogur - risíbúð m/byggsj.
Falleg mikið endurnýjuð íbúð á frábærum stað í
góðu þríbýli. Áhv. byggsj. 3.5 millj. Verð 6.5
millj. 3501
glæsil. húsi. Vorum að fá í einkasölu 250
fm hæð á 2. hæð með miklu útsýni. 3 m loft-
hæð. Góö bílastæði. 6388. Upplýs. veitir
Bárður sölustjóri.
Flutningur Land-
mælinga til Akraness
FOSTUDAGINN 8.
janúar sl. hófu Land-
mælingar formlega
starfsemi sína á Akra-
nesi og voi-u þar sér-
stök hátíðarhöld í til-
efni dagsins. Undirrit-
aður var þar viðstadd-
ur og lýsir sérstakri
ánægju með þessa
gjörð Guðmundar
Bjarnasonar umhverf-
isráðherra og reyndar
ríkisstjómarinnar allr-
ar. Um er að ræða
fyrsta flutning stofn-
unar af þessari stærð-
argráðu frá Reykjavík
út á land. Athöfnin var
þeim til sóma sem að henni stóðu,
þæði kjarnyrtar ræður og tónlist-
arflutningur.
tækifæri. Það er með
ólíkindum að eftir all-
ar þær hugmyndir
sem uppi hafa verið á
síðustu áratugum um
flutning opinberra
stofnana frá Reykja-
vík þá skuli menn
bregðast við á þann
hátt sem raun ber
vitni. Þessi orð eru
sett á blað vegna þess
að ástæða er til að
hrósa Guðmundi
Bjarnasyni fyrir festu
og stöðugleika og fyrir
að fylgja því eftir sem
hann hafði ákveðið,
þótt auðveldara hefði
verið og sennilega frekar til vin-
sælda failið að hætta við þessa að-
gerð.
Landmælingar
s
Astæða er til að hrósa
Guðmundi Bjarnasyni
fyrir festu og stöðug-
leika, segir Gisli S.
Einarsson, og fyrir að
fylgja því eftir sem
hann hafði ákveðið.
Fólk með góða menntun hefur flust
til svæðisins og eflir það stöðu
byggðanna sem njóta velkominna
krafta þess. Einnig eru þeir sem
búa í Reykjavík og starfa á stofn-
uninni boðnir velkomnh' til starfa í
nýrri stofnun á gömlum granni.
Gísli S.
Einarsson
Viðurkenning á því
sem vel er gert
Guðmundur Bjarnason hefur
staðið í orrahríð vegna flutnings
þessa ríkisfyrirtækis. Meira að
segja varð að grípa til sérstakrar
lagasetningar í kjölfar dóms
Hæstaréttar eins og sagt var í
einni ræðu sem flutt var við þetta
|Sanpellegrino|
sok
ka-
Velkomin til
Akraness
Vinnuaðstaða í hinu nýja hús-
næði Landmælinga er hið vandað-
asta og virðist öllu vel fyrirkomið
með hagsýni og myndarskap. Enda
svöraðu starfsmenn þeir sem ég
ræddi við því til að mjög hefði allt
breyst til bóta frá því sem var í
fyrri aðstöðu.
Mikill fengur er fyrir Vestlend-
inga að fá þessa stofnun til Akra-
ness og líklegt er að allt landið
komi til með að njóta góðs af á einn
eða annan hátt. Bæjarfélögin
Borgarnes og Aki-anes njóta þess
að til verða a.m.k. 15 ný störf sem
gefa tekjur til bæjarfélaganna.
Framtíðarvinna
Það er rétt að færa stjórnsýslu
út á land þar sem því verður við
komið. Það er rétt að flytja tækni
og tæki til þess að jafna aðstöðu
byggðar þegar það nýtist fyrir alla
landsmenn.
Eg tel að það verði að vanda
undirbúning flutnings stofnana á
öllum sviðum. Það eru ýmsar
stofnanir sem eiga jafn vel eða bet-
ur heima í öðram landshlutum en á
Reykjavíkursvæðinu. Þær eigum
við að flytja út á land í fyllingu tím-
ans í hverju tilviki.
Höfundur er þingmaður
jafnaðarmanna.
Gœðavara
Gjafavard — malar- og kafíislcll.
Allir verðflokkar. . -
Heimsfrægir hönnuöir
m.a. Gianni Versace.
oVERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.