Morgunblaðið - 14.01.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 35
UMRÆÐAN
Loksins,
loksins
LOKSINS, loksins kom að því að
einhver úr kennarastéttinni viti mig
svars við grein minni frá lokum nóv-
embennánaðar. Sá sem það gerir er
enginn annar en Olafur Oddsson,
reyndur og vel þekktur kennari við
elsta skóla landsins, maður sem hef-
ur látið sig varða málefni íslenskrar
æsku í tæp þrjátíu ár. Olafur lýsir
mér sem ófrumlegum og illa upp-
lýstum manni, fáfróðum og for-
dómafullum og setur mig í hóp allra
verstu óvina kennarastéttarinnar,
en ég nenni ekki að elta ólar við þær
Kennaralaun
Átta af hverjum tíu
framhaldsskólakennur-
um, segir Þórður Kri-
stjánsson, greiddu
þessum skammarlaun-
um atkvæði sitt í sein-
ustu samningum.
fullyrðingar. Verra þykir mér að
hann skuli ekki telja innihald grein-
ar minnar umfjöllunarvert en eyði
öllu sínu púðri á fyrirsögn hennar
og persónu mína. Sá grunur sækir
að mér að Ólafur hafí aldrei lesið
meira en fyrirsögnina og að það
gildi jafnvel um flein kennara.
Þetta er miður, því við Ólafur ei-um
greinilega sammála um margt. Mun
ég því leitast við að setja mál mitt
fram i samhengi við gi-ein Ólafs.
Laun kennara eru of lág
106.445 eru laun kennara á fer-
tugsaldri með fjögurra ára háskóla-
nám að baki. Við Ólafur erum sam-
mála um að þetta er of lágt, en átta
af hverjum tíu framhaldsskólakenn-
urum greiddu þessum skammar-
launum atkvæði sitt í seinustu
samningum. Það segir mér að kenn-
arar eru búnir að gefast upp á verk-
föllum og uppsögnum; þær leiðir
hafa litlu sem engu skilað - nýrra
leiða verður að leita. Tillagan mín
hækkaði þessa tölu þó í 141.926, það
er umtalsvert, en ekki yfírgengi-
legt.
Launin eru ekki
samanburðarhæf
Umræða um það hvaða kennarar,
eða hve margir sæki endurmennt-
unarnámskeið eða semji námsefni á
sumrin, er deila um keisarans skegg
og hún heldur launum kennara
niðri.
A meðan starfsemi framhalds-
skólanna er háttað eins og nú, verð-
ur ekki hægt að bera laun kennara
saman við laun annarra háskóla-
menntaðra manna. Þegar skólar
verða farnir að starfa í tíu til ellefu
mánuði á ári, geta kennarar loks
borið tekjur sínar saman við aðra
hópa, hvort sem það eru lögfræð-
ingar eða húsasmiðir.
Leyfí til endurmenntunar þekkj-
ast í núverandi kerfí, þau geta
áfram verið til þó starfsháttum
skólanna sé breytt. Ég neita að trúa
því að þröngsýni kennara sé slík að
þeir telji sig eingöngu geta sótt sér
símenntun í júlímánuði eða þá í
heils árs skömmtum.
Vinnuálag kennara er of mikið
Ólafur segir um kennarastarfíð í
grein sinni: „Það er afar erfitt og
slítandi [og] fara margar helgar og
frídagar í yfirferð ritgerða og verk-
efna.“ Fyrir þessa vinnu er sáralítið
greitt sérstaklega, um 10.000 á
mánuði þykir gott hjá kennara með
mikinn nemendafjölda. Sú almenna
skoðun, að fyrir þetta álag sé kenn-
urum greitt með lengra orlofí en
gengur og gerist, virðist óspart not-
uð gegn þeim við samningaborðið.
Enda hafa kennarar gengist inná að
þetta sé eðlilegt ástand sem fylgi
starfinu og eru jafnvel stoltir af því
að vera þær hetjur að standast
álagið. Ef skólinn væri starfræktur
í tíu til ellefu mánuð á ári, væri ekki
hægt að bjóða kennurum uppá nú-
verandi vinnuálag - þeir brynnu út
á innan við fimm árum. Kennarar
ættu því þá kröfu að geta lokið
starfsdegi sínum á átta klukku-
stundum eins og annað launafólk.
Fullt starf kennara
er í dag 24 kennslu-
stundir á viku. Mér
þætti ekki ósangjarnt
að kennarar skiluðu 18
kennslustundum á viku
þegar þeir væru famir
að kenna ellefu mánuði.
á ári.
Gæði kennslunnar?
„Þá hafa oft í fram-
haldsskólum liðlega
tvítugir stúdentar
fengist við kennslu,"
segir Ólafur einnig.
„Ég dáist að því fólki
sem af hugsjón sinni
lætur bjóða sér það
vinnuálag og þau laun
sem bjóðast fyrir kennslu, en það
breytir ekki því að atgervisflóttinn
Þórður
Kristjánsson
úr stéttinni er skelfi-
legur. Ætlum við að
sitja auðum höndum
og horfa uppá hnignun
skólakerfisins, eða
eiga börnin okkar skil-
ið að við gerum eitt-
hvað til þess, ungir og
vel menntaðir menn,
konur og karlar, fáist
til þess að mennta
æsku þessarar þjóð-
ar?“ Ég tel að bæði
nemendur og kennarar
eigi skilið umhverfi
sem einkennist af fag-
legum metnaði, skil-
virkum vinnuaðferðum
og mannúðlegum af-
kastakröfum. Að þessu
miða tillögur mínar.
Mér skilst að kennarar séu flestir
arfareiðir vegna greinar minnar er
birtist 26. nóv. og ég verð að segja
að ég skil ekki af hverju. Ef það er
vegna þess að menn eru móðgaðir
yfír fyrirsögn greinarinnar, en
nenntu ekki að lesa innihaldið, þá
get ég ekki vorkennt þeim. Ef þeir
hins vegar lásu greinina en mis-
skildu hana, þá er þeim vorkunn,
því að í henni eru - að mínu mati -
mjög góðar tillögur um kjarabætur
til handa kennurum og leið til þess
að bera laun kennara saman við
önnur laun.
Ef kennarar hafa upp til hópa
ekki áhuga á því að geta horft fram-
an í fólk með fullri reisn og sjálfs-
virðingu þegar laun þeirra eru
rædd, þá skil ég ekki meirihlutann
af þessari stétt.
Höfunclur er kerfisfræðingur.
-'L i
Stutt
mm _ og mi
tolvu
358 Windows 95 12 18. - 20. janúar 18:00 - 21:00 12.000
359 Word 97, grunnur 12 25. - 27. janúar 18:00-21:00 12.000
360 Excel 97, grunnur 12 01. - 03. febrúar 18:00-21:00 12.000
361 PowerPoint 97, grunnur 12 08. - 10. febrúar 18:00-21:00 12.000
362 Internet, grunnur 12 15. -17. febrúar 18:00-21:00 12.000
363 Lotus Notes, grunnur 12 22. - 24. febrúar 18:00-21:00 12.000
364 Access 97, grunnur 12 01. - 03. mars 18:00-21:00 12.000
365 Word 97, millistig 12 08. - 10. mars 18:00-21:00 12.000
366 Excel 97, millistig 12 15. - 17. mars 18:00-21:00 12.000
367 PowerPoint 97, framhald 12 22. - 24. mars 18:00 - 21:00 12.000
368 Outlook 97, grunnur 12 29. - 31. mars 18:00-21:00 12.000
369 Access 97, millistig 12 05. - 07. apríl 18:00 - 21:00 12.000
370 Windows 95 12 12. - 14. apríl 09:00 - 12:00 12.000
371 Internet, grunnur 12 12. - 14. apríl 13:00 -16:00 12.000
372 Vefsíðugerð, grunnur 12 12. - 14. apríl 18:00 - 21:00 12.000
373 Word 97, grunnur 12 19. - 21. apríl 09:00 - 12:00 12.000
374 Lotus Notes, grunnur 12 19. - 21. apríl 13:00 - 16:00 12.000
375 Word 97, framhald 12 19. - 21. apríl 18:00 - 21:00 12.000
376 Excel 97, grunnur 12 26. - 28. apríl 09:00 - 12:00 12.000
377 Access 97, grunnur 12 26. - 28. apríl 13:00 - 16:00 12.000
378 Excel 97, framhald 12 26. - 28. apríl 18:00 - 21:00 12.000
379 PowerPoint 97, grunnur 12 03. - 05. mai 09:00 - 12:00 12.000
380 Vefsíðugerð, grunnur 12 03. - 05. maí 13:00 - 16:00 12.000
381 Lotus Notes, framhald 12 03. - 05. maí 18:00-21:00 12.000
382 Access 97, grunnur 12 10.-12. maí 09:00 - 12:00 12.000
383 Outlook 97, grunnur 12 10. -12. maí 13:00 - 16:00 12.000
384 Office 97, samnýting forrita 12 10. - 12. maí 18:00 - 21:00 12.000
385 Lotus Notes, grunnur 12 17. -19. maí 09:00 - 12:00 12.000
386 Windows 95 12 17. - 19. maí 13:00 - 16:00 12.000
387 Access 97, framhald 12 17. -19. mai 18:00-21:00 12.000
388 Internet, grunnur 12 24. - 26. maí 09:00 - 12:00 12.000
389 PowerPoint 97, grunnur 12 24. - 26. maí 13:00 -16:00 12.000
390 Vefsíðugerð, framhald 12 24. - 26. maí 18:00 - 21:00 12.000
Innritun
hafin
VIÐSKIPTA- OG
TÖLVUSKÓLINN
Faxafeni 10 ■ Framtíöin ■ 108 Reykjavik
Sími 588 5810 • Bréfasími 588 5822
www.vt.is