Morgunblaðið - 14.01.1999, Qupperneq 39
38 FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 39
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf„ Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
FRAMKVÆMDA-
STJÓRN f VANDA
ÞINGMENN á Evrópuþinginu hafa á undanförnum
vikum haldið uppi harðri gagnrýni á einstaka full-
trúa í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Eru það
ekki síst þau Edith Cresson og Manuel Marin er sökuð
hafa verið um vítaverða meðferð fjármuna. Pótt enginn
fulltrúi í framkvæmdastjórninni sé sakaður um að hafa
hagnast persónulega með óeðlilegum hætti hafa verið
dregin fram í dagsljósið dæmi um að nánir ættingjar
eða vinir fulltrúa í framkvæmdastjórninni hafi verið
teknir fram fyrir aðra við stöðuveitingar eða úthlutun
fjármuna.
í sjálfu sér eru sögur af spillingu og fjármálaóreiðu
innan Evrópusambandsins ekki nýjar. Það hefur hins
vegar ekki gerst áður að framkvæmdastjórnin og ein-
staka fulltrúar hennar hafi sætt jafnharðri og óvæginni
gagnrýni Evrópuþingmanna og evrópskra fjölmiðla.
Vandann má að hluta rekja til uppbyggingar Evrópu-
sambandsins. Framkvæmdastjórnin, sem fer með sam-
eiginlega fjármuni ESB-ríkjanna, sér ekki um inn-
heimtu skatta heldur einstök aðildarríki. Sú tenging
sem er á milli tekna og útgjalda, stjórnmálamanna og
kjósenda í lýðræðisríkjum er því ekki til staðar innan
ESB.
Að miklu leyti er skýringuna hins vegar einnig að
finna í því verndaða umhverfi sem stjórnkerfið í Brussel
hefur búið við. Evrópuþingið hefur hvorki haft vilja né
völd til að veita framkvæmdastjórninni aðhald og fram-
kvæmdastjórnin hefur verið of fjarlæg umbjóðendum
sínum, íbúum Evrópu, til að njóta þess virka eftirlits og
aðhalds sem nauðsynlegt er.
Petta virðist hugsanlega vera að breytast. Þótt lík-
legra virðist að málamiðlun náist en að vantraust verði
samþykkt á framkvæmdastjórnina hefur Evrópuþingið
sýnt að það ætlar að hafa virkari afskipti af málum
framkvæmdastjórnarinnar í framtíðinni. Viðbrögð fram-
kvæmdastjórnarinnar við því að sett sé út á störf henn-
ar og athugasemdir gerðar við fjármálasukk og aðra
óreiðu eru hins vegar ótrúleg. Hvernig ætla ráðamenn í
Brussel og fulltrúar ríkisstjórna ESB-ríkjanna að sann-
færa Evrópubúa um nauðsyn þess að færa aukin völd til
Brussel ef framkvæmdastjórnin telur sig hafna yfir
gagnrýni og eðlilegt aðhald í störfum sínum?
ÁBYRGÐ Á VIÐGERÐUM
ASTÆÐA er til að vekja athygli á dómi í Héraðsdómi
Reykjavíkur þar sem eigandi vélhjólaverkstæðis
var dæmdur til að greiða tjón sem eigandi vélhjóls varð
fyrir sjálfur og olli öðrum og rekja mátti til ófullnægj-
andi viðgerðar. Dómurinn hlýtur að vera eigendum við-
gerðarverkstæða og öðrum þeim sem annast viðhald og
viðgerðir til umhugsunar vegna ábyrgðar á verkum.
Dómurinn er jafnframt ábending til almennings um rétt
fólks í þeim tilvikum að viðgerð fullnægi ekki eðlilegum
gæðakröfum og leiði jafnvel til tjóns þriðja aðila.
Dómur sem þessi hlýtur að verða til aukins aðhalds
allra sem veita almenningi viðgerðarþjónustu og vekja
þá til umhugsunar um að vanda vinnubrögð sín. Fólk á
heldur ekki að sætta sig við léleg vinnubrögð og sækja
hiklaust rétt sinn - að ekki sé talað um tilfelli er óvönd-
uð vinnubrögð leiða til tjóns fyrir einn eða annan.
NORSKAN LÁTIN RÓA
SKANDINAVÍSKAR þjóðir hafa ekki lagt jafn mikla
áherslu á verndun tungu sinnar og íslendingar.
Ensk máláhrif hafa þannig verið meiri á dönsku, sænsku
og norsku en íslendingar gætu sætt sig við. Svo virðist
sem þetta aðhaldsleysi sé að koma í bakið á Norðmönn-
um nú þar sem flaggskip norsks iðnaðar, Norsk Hydro,
hefur ákveðið að taka upp ensku sem opinbert mál sitt
og leggja norskuna til hliðar.
Þegar allt kemur til alls eru Norðmenn þó ekki sáttir
við þessa þróun. Stavanger Aftenblad bregst hart við
þessum fréttum í leiðara 7. janúar og bendir á fordæmi
Islendinga sem hafi staðið vörð um sitt gamla tungumál
í þúsund ár. Okkur er þessi frétt áminning um að halda
áfram á sömu braut.
HÚSFYLLIR var í Hagaskóla þegar foreldrafélag skólans stóð fyrir fundi um agamál.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FUNDURINN um agamál í
Hagaskóla var haldinn fyrir
atbeina foreldrafélagsins en
undanfarið skapaðist neyð-
arástand í skólanum í síðustu viku
vegna sprenginga nemenda innan
veggja skólans. Á fundinum var leit-
ast við að greina vandann og voru
fimm framsöguerindi flutt áður en
foreldrar fengu tækifæri til að tjá sig
um málið.
Einar Magnússon, skólastjóri
Hagaskóla, hóf fundinn á því að rekja
gang mála en á fyrsta kennsludegi
ársins, hinn 4. janúar, voru nemendur
varaðir við meðferð eldfæra í skólan-
um og þeim gert ljóst að brot á regl-
um skólans varðaði brottvísun.
Næstu daga gerðist það að leitað var
í töskum nemenda, fyrsta öfiuga
sprengjan var sprengd í anddyri
skólans, kennsla felld niður og gæslu
foreldra og lögreglu komið á á göng-
um skólans.
Að sögn skólastjórans ógilti
Fræðsiumiðstöð Reykjavíkur ekki
ákvörðun hans um brottreksturinn,
eins og vikið hefur verið að, heldur
gerði honum grein fyrir því að sam-
kvæmt stjórnsýslulögum gæti hann
veríð í órétti. Hann taldi að rétt og
hreint hefði verið gengið til verks
strax í upphafi. Óryggissjónarmið
hefðu ráðið ferðinni og það væri
ábyrgðarleysi af hálfu foreldra ef
þeir sýndu því ekki skilning.
Varðandi úrlausn málsins sagði
Einar að allar sprengingarnar hefðu
verið viðurkenndar nema sú sem átti
sér stað síðasta miðvikudag. Málin
voru kærð til lögreglu að ráði
Arthúrs Morthens hjá Fræðslumið-
stöð Reykjavíkur.
Einar sagði mikilvægt að þeir sem
að sprengingunum stóðu fengju
skjóta sálfræðihjálp því föðurleg
áminning dygði ekki í svo alvarlegu
máli. Hann minnti ennfremur á að
uppákoma af þessu tagi væri ekki ár-
viss viðburður í skólanum en greini-
legt að málefnið kallaði á aukna um-
ræðu í þjóðfélaginu. Horfa ætti upp
og fram á við vegna yfirgnæfandi
meirihluta nemenda sem beri Haga-
skóla gott vitni.
Meiri aga og skýrari reglur
Tryggvi Agnarsson, fulltrúi for-
eidrafélagins, flutti erindi og byrjaði
á því að lýsa undrun sinni á því að
þetta skyldi hafa gerst í Hagaskóla.
Skóla- og foreldrastarfið væri öflugt
og undantekning að ekki næðist að
leysa sameiginlega úr þeim málum
sem kæmu upp. Skólinn væri reynd-
ar fjölmennur og því misjafna sauði
þar að finna.
Hann taldi að ekki hefði verið rétt
að gera skólastjórann afturreka með
ákvörðunina um brottvísun nemenda
og taldi stöðu hans hafa verið erfiða í
viðkvæmu umhverfi.
Um foreldravandamál væri að
ræða, ekki unglinga- eða skólavanda-
mál. Skólinn væri tii stuðnings en
ábyrgð og uppeldi væru í höndum
foreldranna. Hann lagði fram þau til-
mæli að meiri aga yrði beitt og regl-
Fundur Foreldrafélags Hagaskóla
Ekki htegt
að segja for-
eldrastarf-
inu lausu
Húsfyllir var á fundi um agamál í Haga-
skóla á þriðjudagskvöldið þegar atburðir
liðinnar viku voru teknir til umræðu. Rakel
Þorbergsdóttir fylgdist með fundinum.
ur gerðar skýrari. „Við skulum
strengja þess heit að standa okkur
betur við uppeldið," sagði Ti-yggvi að
lokum.
Arthúr Morthens talaði um sér-
kennilega þróun í íslensku þjóðfélagi
þar sem aga- og virðingarleysi væri
einkennandi. Samanburður við hin
Norðurlöndin á tímanum sem for-
eldrar hafa með börnum sínum væri
íslenskum foreldrum óhagstæður,
enda að meðaltali bæði lengri vinnu-
dagur og lægi-i iaun hér á landi.
Unglingamenningin er sífellt að
verða ofbeldiskenndari að sögn
Arthúrs og vandinn dýpri en svo að
hann megi flokka sem strákapör.
Þær aðstæður sem kennarar og
skólastjórnendur þurfi að vinna við
verði því stöðugt erfiðari. Sem dæmi
um öra þróun nefndi Arthúr að fyrir
einungis þremur árum hefðu menn
talið að eiturlyfjasala bærist aldrei
inn í gi-unnskólana en hún væri nú
þegar orðin staðreynd.
Ai'thúr fjallaði um grunnskólalögin
og skólareglur sem til eru og þá
vinnu sem þegar er hafin. Niðurstöðu
nefndar menntamálaráðuneytisins
sem fjallar um aga og agabort er að
vænta á morgun og sagði Arthúr það
markmiðið að skýra enn frekar viður-
lög við brotum og það ferli sem þarf
að eiga sér stað eftir að mál af þessu
tagi koma upp. Þau séu ógnun við ör-
yggi og vinnufrið í skólanum og alltof
alvarleg til að verða liðin.
Þingmaðurinn Hjálmar Árnason
flutti erindi á fundinum og gladdist
yfir þeim fjölda foreldra sem sýndu
vilja sinn til að leysa vandann með
nærveru sinni. Hann velti upp þeirri
spurningu hvort umljöllun fjölmiðla
væri einkennandi fyrir það ástand
sem ríkti í skólum landsins eða hvort
um einangraðra fyrirbæri væri að
ræða.
Hann sló á létta strengi og viðraði
þá hugmynd að e.t.v. hefði amman í
þjóðfélaginu brugðist; hún sem hefði
á árum áður haldið utan um uppeldis-
starfið og innrætt unga fólkinu góð
lífsgildi. Nútíma-amman hefði hins
vegar allt öðrum hnöppum að
hneppa.
Svo virðist sem foreldrar varpi af
sér uppeldisábyrgðinni yfir á skólana
og verji tíma sínum í eigin áhugamál
og grundvallarþarfir. Börnin viti því
lítið til hvers af þeim er ætlast og fái
ólík skilaboð, enda mörg grá svæði í
því umhverfi sem börnin alast upp í.
Hjálmar kynnti þingsályktunartil-
lögu um skipan nefndar til að auka
aga í skólum landsins sem lögð var
fyi-ir Alþingi í haust. Minntist hann
þess að hlegið hefði verið að tillög-
unni en agavandamálið væri engu að
síður alvarlegt.
Þorsteinn Sæberg, formaður
Skólastjórafélags íslands, sagði að
grundvöllurinn að góðu skólastarfi
væri skýrar reglur. Viðurlög við brot-
um á reglum þyrfti að útskýra og
nauðsynlegt að skólastjórar hefðu
vald til að bregðast við þeim. Mikil-
vægt væri að foreldrar bæru fullt
traust til skólastjórnenda og ræddu
ekki neikvæð viðhorf sín til skólans
við börnin. Hann velti upp þeirri
spurningu hvort foreldrar ættu e.t.v.
erfitt með að tjá sig um það sem þeir
teldu að betur mætti fara í skólunum.
Slíkt væri nauðsynlegt þar sem fyi'ir-
myndarskóii væri sameiginlegt hags-
munamál allra.
Foreldrar og velunnarar Haga-
skóla stigu í pontu og tjáðu sig um
málið þegar opnað var fyrir almenna
umræðu á fundinum.
Friðrik Þór Guðmundsson, faðir
drengs sem vikið var úr skólanum
fyrir að hafa skotelda í fórum sínum,
hóf mál sitt með því að taka undir orð
ræðumannanna. Hann útskýrði af
hverju hann hefði kosið að nýta sér
andmælaréttinn og kvaðst hafa skrif-
að Fræðslumiðstöð Reykjavíkur bréf
til að fá útskýringu á þeim reglum
sem giltu um mál af þessu tagi en
ekki í því skyni að ákvörðunin yi'ði
tekin til baka.
Skil viðbrögð skólayfirvalda
Hann kvaðst skilja viðbrögð skóla-
yfirvalda í ljósi þeirra atburða sem
áttu sér stað í síðustu viku og lýsti yf-
ir þeirri skoðun sinni að Einar Magn-
ússon skólastjóri hefði átt að halda til
streitu ákvörðun sinni um að vísa
nemendunum úr skólanum í viku,
enda um alvarlega atburði að ræða.
Páll Vilhjálmsson foreldri benti á
að nauðsynlegt væri að borga kenn-
urum „alvöru laun“ og gera skólann
að þeim alvöru vinnustað sem hann
væri. Það væri ávísun á vandræði að
draga aftur ákvörðun um brottvísun
og sendi unglingunum þau skilaboð
að þeirra væri valdið. Ennfremur
hefðu það verið mistök að fara með
málið í fjölmiðla því athyglin þætti
unglingunum góð.
Skólastjórinn varðist þeim ásökun-
um að skólayfirvöld hefðu dregið fjöl-
miðla inn í rnálið og benti á að þegar
nemendur voru hvattir til að benda á
sökudólgana og þeim haldið inni í
skólastofunum hefðu þeir dregið upp
farsíma og hringt í lögregluna og til-
kynnt að þeim væri haldið í gíslingu
af skólayfírvöldum.
Það eru ekki eingöngu foreldrar
sem eiga að líta í eigin barm vegna
málsins að mati Steinunnar K. Jóns-
dóttur, móður eins nemanda, sem
kvaddi sér hljóðs á fundinum. Hún
gagmýndi skólayfirvöld fyrir lítið
samstarf við foreldra, sem væru fyrir
vikið oft illa upplýstir um gengi og
skólasókn barna sinna. Nefndi hún
dæmi um óviðunandi viðbrögð skólans
við agabrotum af ýmsu tagi og dró 1
efa að skólastjórinn ætti að hafa ótak-
markað vald til að beita börnin aga.
Jón Magnússon, íbúi í Vesturbæ í
rúm 60 ár og velunnari skólans, hrós-
aði skólastjóranum fyrir að hafa
kjark til að taka á málinu og koma af
stað þarfri umræðu um allt land. Það
væri ýmislegt sem foreldar ættu að
gera í málinu en ekki skólinn. „Sá
elskar börnin sín sem agar þau,“
sagði Jón og minnti á speki úr Orðs-
kviðum Salómons. Hann benti for-
eldrum á að þeir gætu ekki vísað mál-
inu til skólans og sagt honum að ala
upp börnin sín.
Fleiri foreldrar tóku til máls og í
máli einnar móður kom fram að þótt
foreldrastarfið væri á stundum erfitt
gætu foreldrar ekki sagt því lausu.
Það væri í þeirra verkahring að leita
sér upplýsinga og fylgjast með því
hvað afkvæmin aðhefðust. Vandinn
skrifaðist því ekki á skólann.
Titanic
langvinsælust
Bandaríska stórmyndin Titanic gnæfði
yfír aðrar í aðsókn á síðasta ári en hana
sáu alls 124.008 manns að sögn Arnaldar
Indriðasonar sem skoðaði lista yfír
aðsóknarmestu bíómyndirnar í kvikmynda-
húsunum á Islandi á síðasta ári.
TITANIC varð metsölu-
mynd heimsins árið 1998
og íslendingar áttu
drjúgan þátt í því. Eins-
konar Titanic-æði virðist hafa
gripið um sig á meðal þjóðarinnar
sem flykktist á myndina og áður
en yfir lauk höfðu selst á hana
124.008 miðar. Það er aðsóknar-
met í kvikmyndahús hér á landi
sem lengi verður í minnum haft.
Leikstjórinn James Cameron,
er eyddi 200 milljónum dollara í
gerð Titanic, virðist hafa hitt á
nákvæmlega réttu formúluna að
metsölumynd og kæfði allar
gagnrýnisraddir strax á nýja ár-
inu þegar mynd hans fór að sigla
upp metsölulistana hvarvetna um
heiminn og hreppti loks ekki
færri en 11 Oskarsstyttur. Ca-
meron bjó til sögu um einskonar
Rómeó og Júlíu um borð í skipinu
ósökkvandi með Kate Winslet og
Leonardo DiCaprio í aðalhlut-
verkum en það var fyrst og
fremst síðari hluti myndarinnar
sem fólk gleymdi sér yfir þegar
Titanic sigldi á borgarísjaka og
sökk. Cameron filmaði slysið eins
og sá mikli hasarmyndaleikstjóri
sem hann er og nýtti sér ómælt
tölvuteikningar, til þess að gefa
hugmynd um hvað raunverulega
gerðist, að ógleymdum skips-
skrokknum sem hann lét smíða
fyrir sig í Mexíkó og var næstum
eins stór og sjálft Titanic.
26 myndir
Á listanum yfir tíu aðsóknar-
mestu myndir síðasta árs er að
fínna myndir af öllu tagi, gaman-
myndir, hasarmyndir, dramatísk-
ar myndir, sumarmyndir ojg
Óskarsverðlaunamyndir. A listan-
um eru alls 26 myndir eða allar
þær sem fengu 15.000 manns í að-
sókn eða meira. Hann er tekinn
saman af Pricewatherhou-
seCoopers fyrir kvikmyndahúsin í
Reykjavík og raðast myndirnar á
hann nú í fyrsta sinn eftir tekjum
af miðasölu en ekki fjölda seldra
miða.
Næsta mynd á eftir Titanic á
iistanum er heimsendatryllir frá
hasarframleiðandanum Jerry
Bruckheimer, Ragnarök eða „Ar-
mageddon", en alls seldust á hana
47.660 miðar. Um var að ræða
dæmigerða sumarhasarbrellu-
mynd þar sem Bruce Willis fór
fyrir hópi starfsmanna á olíubor-
palli er sendir voni út í heiminn
að bora gat í aðsteðjandi loftstein
sem ógnaði mannkyni öllu. Mynd-
in naut talsvert meiri vinsælda en
hinn loftsteinatryllir sumarsins,
Áreksturinn eða „Deep Impact“,
sem er mun neðar á listanum en
alls seldust 17.400 miðar á hana.
I þriðja sæti listans er gaman-
myndin Það gerist ekki betra eða
„Ás Good As it Gets“ um lítillega
bilaðan rithöfund, uppáhalds-
gengilbeinuna hans og hommann
sem býr við hliðina á honum.
Gamanmyndahöfundurinn James
L. Brooks gerði myndina og gaf
Jack Nicholson nokkurn veginn
lausan tauminn í hlutverki rithöf-
undarins, sem skýrir kannski að
einhverju leyti af hverju myndin
varð svona vinsæl. Nicliolson
hreppti Óskarinn og það gerði
Helen Hunt einnig fyrir besta leik
í kvenhlutverki.
María og Godzilla
Einn óvæntasti smellur ársins
er í fjórða sæti íslenska aðsóknar-
listans, gamanmyndin Það er eitt-
hvað við Maríu eða „There’s
Something About Mary“. Myndin
skopaðist að minnihlutahópum
hverskonar af sérstakri bíræfni
og sagði talsvert sársaukafulla
ástarsögu og hitti einhvern veg-
inn í mark öllum að óvörum.
I næstu tveimur sætum eru
dæmigerðar sumarmyndir.
44.017 miðar seldust á fjórðu
„Letlial Weapon" myndina með
Mel Gibson og Danny Glover í að-
alhlutverkum. Myndir þessar
njóta alltaf mikilla vinsælda og
svo virðist sem framleiðendunum
hafi tekist enn einu sinni að nýta
sér formúluna. Hamfaramyndin
„Godzilla" er í sjötta sæti listans
en alls seldust 30.324 miðar á
hana. Hún olli framleiðendum
sínum nokkrum vonbrigðum því
þeir gerðu ráð fyrir að hún yrði
aðsóknarmesta mynd sumarsins
um víða veröld og henni liafði
verið spáð góðu gengi. Það gekk
ekki eftir nema að hluta. Á Is-
landi reiddi henni vel af eins og
sjá má.
Það voru flestallir sammála um
að Björgun óbreytts Ryans,
stríðsmynd Stevens Spielbergs úr
síðari heimsstyrjöldinni með Tom
Hanks í aðallilutverki, væri stór-
fengleg bíómynd. Hún er í sjö-
unda sæti aðsóknarlistans og naut
talsverðra vinsælda þrátt fyrir
heldur ömurlegt söguefnið og
grimmdarlegar lýsingar á stríði.
Spielberg lagði höfuðáherslu á
raunsæi í lýsingu sinni á stríðs-
rekstri í fremstu víglínu og sýndi
að hann er einn af fremstu kvik-
myndahöfundum starfandi í dag.
Gamanleikarinn Jim Carrey er
vanur að verma efstu sæti ís-
lenska aðsóknarlistans og hann
gerði það einnig á síðasta ári þótt
ekki væri myndin hans ein af
þessum venjulegu ropa- og
prumpubrandaramyndum leikar-
ans. Truman-þátturinn eftir Peter
Weir, sem vermir áttunda sæti
listans, var glæsileg háðsádeila á
amerísku sjónvarpsveröldina og
velti upp mörgum áleitnum
spurningum um stöðu sjónvarps-
ins í lífi fólks og Carrey sýndi
með glimrandi fínum leik í sínu
fyrsta alvarlega hlutverki að í
honum býr ansi góður leikari.
I níunda sæti listans var annar
gamanleikari í dæmigerðri gam-
anmynd, Eddie Murphy í Dag-
fínni dýralækni. Stjarna Murphys
liefur mjög verið að rísa aftur eft-
ir að hann fór að leika í ljöl-
skyldugamanmyndum og áhorf-
endum virtist geðjast vel að hon-
um í hlutverki Dagfinns. í tíunda
sætinu er svo gamanhasarmyndin
Sex dagar, sjö nætur, sem sýnir
fyrst og fremst hvað Harrison
Ford er vinsæll leikari ekki hvað
síst hér á íslandi en hann fór með
hlutverk ævintýramanns í þessari
brokkgengu gamanmynd.
Ein íslensk mynd
Myndimar sem em næstar því
að komast á topp tíu listann eru
unglingahrollvekjan og framhalds-
myndin Öskur 2, James Bond
myndin „Tomorrow Never Dies“,
en Bond-myndir hafa ávallt verið
mjög vinsælar á meðal landans
(sýningar á henni hófust í lok árs
1997), fjölskyldumyndin Stikkfrí
eftir Ara Kristinsson og ævintýra-
myndin Gríma Zorrós með Antonio
Banderas í hlutverki hins grímu-
klædda og sverðfima Zorrós.
Þá má sjá á listanum að talsett-
ar teiknimyndir njóta talsverðra
vinsælda hér á landi. Alls era
þrjár slíkar á lista yfír mestsóttu
myndir síðasta árs, „Mulan“ frá
Disney-fyrirtækinu, „Anastasia"
frá 20th Century Fox og loks
Litla hafmeyjan, sem var endur-
sýnd í Sambíóunum og seldust á
hana liðlega 18.000 miðar.
VINSÆLUSTU
MYNDIRNAR Á ÍSLANDI
HEITIMYNDAR
DREIFING
1. Titanic Skífan 20th Century Fox 124.008
o Ragnarök c' (Armageddon) Samfilm Buena Vista 47.660 ■■■■■■■■■
p Það gerist ekki betra °' (As Good As it Gets) Stjörnubió Columbia TriStar 47.795
a Það er eitthvað við Maríu* (There's Something About Mary) Skífan 20th Century Fox 45.830
5. Lethal Weapon 4 Samfilm Warner Bros. 44.017 ■■■■■|^■■i
6. Godzilla Stjörnubíó Columbia TriStar 30.324 ■■■■■■
7 Björgun óbreytts Ryans 1 • (Saving Phvate Ryan) Háskólabíó U.I.P. 29.424 ■■■■■■
o Trumanþátturinn* (The Truman Show) Myndform U.I.P. 29.730
q Daafinnur dýralæknir* (Dr.Doolittle) Skífan 20th Century Fox 28.224 ■■■■■■
h n Sex dagar, sjö nætur (Six Days, Seven Nights) Samfilm Buena Vista 23.842 ■■■■
H Öskur 2 1 1' (Scream 2) Skífan Miramax 23.331 ■■■■■
12. Tomorrow Never Dies** Samfilm U.I.P. 20.857 ■■■■
13. Stikkfrí Háskólabíó Isl. kvikm.samst. 16.815 ■■■
-m GrímaZorrós (The Mask of Zorro) Stjörnubíó Columbia TriStar 21 -454 {^■■H
15. George of the Jungle Samfilm Buena Vista 22.329 ■■■■
16. Flubber Samfilm Buena Vista 20.480 ■■■■
-17 Áreksturinn 11 ■ (Deep Impact) Háskólabíó DreamWorks 17.411 ■■■
18. Good Will Hunting Skífan Miramax 17.983 ■■■
1 q Inn og út (InantfOut) Samfilm Spelling 18.912 ■■■■
20. Mulan* Samfilm Buena Vista 21.327 ■■■■
21. U.S. Marshals Samfilm Warner Bros. 16.765 §■■■
99 Ég veit hvað þið gerðuð síðasta sumar cc- (I Know What You Did Last Summer) Stjörnubíó Columbia TriStar 18.376 ■■■■
23. Anastasia Skífan 20th Century Fox 21.090 ■■■■
94 Brúðkaupssöngvarinn <-H' (The Weddmg Singer) Myndform New Line Cinema 1 c c/tc ' EnnÞá' sýn,n9u 10.04D ■■■■■ •• Byrjaði jólin 1997
pc Fullkomið morð (A Perfect Murder) Samfilm Warner Bros. 15.009 ■■■
90 Litla hafmeyjan (The Little Mermaid) Samfilm Buena Vista 18.055 ■■■■
HEIMSENDAMYNDIN Ragna-
rök var í öðra sæti.
Ath. Lislinn er unninn af PricewatherhouseCoopefS fyrir kvikmyndahúsin í Reykjavik. Hann sýnir fjolda seldra miða á mynd en myndunum er raðai niður á listann eltir tekjum at miðasðlu.
JACK Nicholson setti gaman-
myndina Það gerist ekki betra, í
þriðja sætið. Xt