Morgunblaðið - 14.01.1999, Síða 63

Morgunblaðið - 14.01.1999, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 63 BREF TIL BLAÐSINS íslensk popptónlist á ensku, gott mál! Frá Bergdísi Sigarðardóttur: TIL íslenskra poppara sem syngja á ensku og fjölmiðlamanna sem sýna þeim áhuga. Sem áhugamanni um íslenska popptónlist er það hulin ráðgáta af hverju fjölmiðlamenn eru enn þann dag í dag alltaf að spyrja íslenska popptónlistarmenn sem flytja tón- list sína á ensku - af hverju þeir syngi á ensku. Spurningin er fyrir löngu orðin óþörf og mjög hvim- leið. Þessu hefur verið svarað mörgum sinnum áður og menn hafa haft litlu nýju þar við að bæta. Viðkomandi tónlistarmenn ættu að vera íýrir löngu hættir að svara þessari spurningu, ekki síst þeir sem hafa svarað henni oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Er ekki kominn tími til að neita hrein- lega að svara þessari spurningu, kæru tónlistarmenn? I kjölfar spurningarinnar um af hverju menn syngja á ensku fylgir svo oft og iðulega enn hvimleiðari spum- ing en hún er - hvort viðkomandi tónlistarmaður/menn dreymi um frægð og frama í útlöndum. Er samasemmerki á milli þess að flytja tónlist á ensku og vilja verða frægur í útlöndum? Vilja ekki allir sem semja tónlist af einhverjum metnaði að tónlistin þeirra nái til sem flestra? Er eitthvað óeðlilegt við það að metnaðarfullir íslenskir tónlistarmenn hafi áhuga á að ná til fleiri eyrna en íslenskra, ekki síst þar sem markaðurinn hérlendis er algjör dvergur í samanburði við er- lenda markaði og mjög vonlítið að geta lifað af tónlist hér á landi. Það er ekki þar með sagt að draumur- inn um frægð og frama sé alls- ráðandi hjá viðkomandi tónlistar- mönnum þótt þeir kjósi að flytja tónlist sína á ensku. Samasem- merkið er í flestum tilfellum með þörfínni um að geta lifað af því að búa til tónlist. Til þess að lifa af tónlist þarf jú að selja hana. Tón- list er söluvara og ef það að syngja á ensku eykur möguleika íslenskra tónlistarmanna á því að selja tón- list sína þá er það gott mál. Það vill svo til að enskan er gífurlega mikið notuð í tónlist í hinum vestræna heimi og það er ekki að ástæðu- lausu þvi enskan þykir mjög ákjós- anleg til textagerðar t.d. vegna Stjörnuspá á Netinu v^mbl.is \LLTAf= elTTHVAO NÝTT ríkulegs orðaforða og þess hversu víða hún er töluð og skilin. Viðkomandi tónlistai-menn hafa jafnvel hlotið óverðskuldaða gagn- rýni fyrir að vera að vinna gegn ís- lensku máli. Staðreyndin er sú að það eru aðrar og betri leiðir til að halda okkar góða tungumáli að börnum og unglingum landsins en í gegnum popptónlist. Það er ósann- gjarnt að gera íslenska poppara að ábyrgðarmönnum fyrir íslensku máli á þennan hátt og fáránleg krafa að ætlast til þess að þeir flytji tónlist sína á íslensku til þess að mega heita sannir íslenskir tón- listarmenn. I raun er sjálfsagt og eðlilegt að einmitt tónlistarmenn frá svo fámennri þjóð eigi fullan rétt á að flytja tónlist sína á ensku ef þeir kjósa það og ömurlegt að þeir þurfi í sífellu að vera að afsaka sig fyrir það. Það væri nær að spyrja þá tónlistarmenn sem syngja eingöngu á íslensku af hverju í ósköpunum þeir geri það og hvort þeir hafi nú ekki meiri metnað en svo að ná eingöngu eyr- um hinna fámennu eyjarskeggja? Og hvað með þá popptónlistar- menn sem eru sífellt að semja ís- lenska texta við erlend lög. Þurfa þeir ekkert að afsaka ófrumleik- ann? Islensk popptónlist flutt á ensku er alveg jafn íslensk og sú sem er ílutt á íslensku. Tónlistarmennirnir eru íslenskir og eru að semja sína tónlist og það er það sem skiptir máli en ekki hvort þeir kjósa að flytja texta sína á ensku eða ís- lensku. Það er tónlistin sem lifir. Nær væri fyrir fjölmiðlamenn að spyrja meira út í lagasmíðarnar, útsetningarnar og textagerðina al- mennt, burt séð frá því hvort hún er á ensku eða íslensku. BERGDÍS SIGURÐARDÓTTIR, Eiríksgötu 11, Reykjavík. Útsalai ff í fullum gangi Allt að 70 i% afsláttur SK/æi Kringlunni, 1. hæð, sími 568 9345 Nýtt kortatímabil Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator, félag laganema Útsala Stórar stærðir Nýtt kortatímabil Rie Design (www.riedesign.dk) Eiðistorgi 13, sími 561 4465, fax 561 4495. VIÐ HOFUM LÆKKAÐ LYFJAVERÐIÐ NÍCOtÍllCllC tyggigúmmí Nicotinelle piástur 2 mg 84 stk. kr. 999,- 21 mg/klst 21 stk. kr. 4.849,- 4 mg 84 stk. kr. 1.499,- 21 mg/klst 7 stk. kr. 1.899,- Ráðgjöf og kynning, föstudaginn 15 . janúar kl. 14-18 INGÓLFS APÓTEK lægra lyfjaverð KRINGLUNNI 8-12, SÍMI 568 9970 IIA og Sport Músik og Sport ehf. - Reykjavíkurvegi 60 - Símar 555-2887 og 555-4487 Fyrir börnin Moon Boots Endurskin Teg. 193 Litir: Blár og rauður Stærðir: 30-35 Nú 1.995,- Góður gúmmísóli Póstsendum samdægurs oppskórinn v/lngólfstorg, sími 5521212 Tískutilboð 30—40% afsláttur Destroy Teg.: 2819 Litur: Svartur Stærðir: 36—41 Dockers Teg.: 30810 Litur: Gráir m/sv. Stærðir: 37—41 Dockers Teg.: 30811 Litur: Gráir m/sv. Stærðir: 37-41 PÓSTSENDUIW SAMDÆGURS D0MUS MEDICA við Snorrabraut • ReykjQvik Simi 551 8519 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLAN Krínglunni 8-12 • Reykjovik Stmi 5689212 íþróttir á Netinu /§>mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.