Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 2

Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 2
2 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Baldurs- brá viðruð á Jökuldal Náttúruvernd ríkisins leggst gegn stækkun námasvæðis í Mývatni Ný vinnslutækni má ekki raska lífríki Mývatns SLÆMT veður var víða um land í gær og nótt og spáð er vonskuveðri áfram í dag. Á Klausturseli á Jökuldal var hávaðarok og skafrenningur. Þar eru íjögur hreindýr í girðingu, Grímur, Kólga, Bald- ursbrá og Sóley. Á veturna ganga hreindýrin að mestu úti. Ef illa viðrar eru þau sett inn í hús og þá þarf að viðra þau daglega. Sigmar á Klausturseli fór með Baldurs- brá út í vetrarveðrið í gær og naut við það aðstoðar hundanna á bænum. - Að sögn Olafíú Sigmarsdótt- ur á Klausturseli fer tarfurinn Grímur að fella hornin fljót- lega, en fengitímanum er nú lokið. Kýrnar fella hins vegar ekki horn fyrr en á vorin um svipað leyti og þær bera. Á sumrin er talsvert um að ferðamenn heimsæki Kalustur- sel til að skoða dýrin. NÁTTÚRUVERND ríkisins hefur sent Hönnun hf., sem vinnur að gerð umhverfismats vegna stækk- unar námasvæðis í Mývatni, bréf þar sem lagst er eindregið gegn stækkun námasvæðisins. Að mati Náttúruvemdar ríkisins er ekki hægt að samþykkja nýja vinnsluað- ferð við töku kísilgúrs nema að sannað sé ótvírætt með rannsókn- um að aðferðin raski ekki undir- stöðu lífríkis Mývatns. Stjórn Kísiliðjunnar við Mývatn fól Hönnun hf. að vinna mat á um- hverfisáhrifum fyrirhugaðrar kísil- gúrtöku úr Mývatni. Um er að ræða stækkun á vinnslusvæðinu í Ytriflóa og ný vinnslusvæði í Syðriflóa. I bréfi Náttúraverndar til Hönn- unar er minnt á ákvæði laga um verndun Laxár og Mývatns, en þar segir: „A landsvæði því, er um getur í 2. gr., er hvers konar mannvirkja- gerð og jarðrask óheimilt, nema leyfi Náttúruverndar ríkisins komi til.“ Ennfremur er minnt á fréttatil- kynningu iðnaðaraáðuneytisins frá árinu 1993 þar sem fram kemur það mat ráðuneytisins að námavinnsla í Syðriflóa jafngildi ákvörðun um að hefja námavinnslu í nýju stöðuvatni. Sanna þarf ágæti nýrrar tækni Undanfarið hefur Kísiliðjan gert tilraunir með nýja tækni við töku kísilgúrs úr botni vatnsins. Hún byggist á því að dæla kísilgúrnum úr námum á botni vatnsins án þess að raska sjálfu botnlaginu. Tilraun- um með þessa aðferð er ekki lokið og því er ekki fullljóst hvort hún skilar þeim árangri sem að er stefnt. „Mývatn er líklega það vatn á landinu sem hefur verið rannsakað m.t.t. lífríkis meira en nokkurt annað vatn hér á landi. Þær rannsóknarniðurstöður sem liggja fyrir um hvers vegna Mývatn er svo lífauðugt, sem raun ber vitni, benda eindregið til þess að það byggist á hárfínu jafnvægi milli dýptar vatns- ins, efnainnihalds þess og annaraa eðlisrænna þátta svo sem hitastigs. Náttúruvernd ríkisins telur allt benda til þess að sú áhætta sem tekin væri með þeirri nýju tækni sem þefur verið kynnt stjórn RAMÝ [Rannsóknarstöðinni við Mývatn] sé ekki ásættanleg þar sem stórai’ líkur séu á að lífríki vatnsins raskist verulega," segir í bréfi Náttúruverndar til Hönnunar hf. „Náttúruvernd mun ekki sam- þykkja nýja vinnslutækni nema að fyrir liggi rannsóknir sem sanni ótvírætt að annaðhvort framan- gi’eind aðferð (undanskurður) eða einhver ný vinnslutækni við vinnslu kísilgúrs hafi ekki í för með sér hættu á röskun á undirstöðum lífríkis Mývatns," segir í bréfinu. Náttúruvernd hafnar því jafnframt að náttúrulegar sveiflur í lífríki vatnsins geti verið afsökun af neinu tagi til að taka áhættu á vinnslu kísilgúrs í Syðriflóa. Eyjólfur Rafnsson, verkfræðing- ur hjá Hönnun, sagði að Kísiliðjan hefði tekið ákvörðun um að láta gera umhverfismat vegna hugsan- legi-ar stækkunar námasvæðisins og ekkert benti til annars en að sú ákvörðun stæði og látið yrði reyna á matið. Bréf Náttúruverndar ríkisins breytti engu þar um. Morgunblaðið/RAX Dæmt í máli tengdu kókaínsmygli íslenskrar stúlku Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Slasaðist illa er bfll fór útaf MAÐUR slasaðist illa er bfll fór útaf hringveginum í Langadal,. skammt frá Húnaveri, um klukkan 21 í gærkvöld. Tveir aðrir sem í bflnum voru slösuðust minna. Blindhríð var og slæmt skyggni er slysið varð. Sjúkrabílar fluttu fólkið á Sjúkrahúsið á Blönduósi og var ekki búið að kanna meiðsli þess til hlítar í gærkvöld. NIGERÍUMAÐURINN Chike Charles Ibeneme var í gær dæmdur í níu ára fangelsi við Eystri Lands- rétt í Kaupmannahöfn íyrir að hafa sent Valdísi Ósk Hauksdóttur tvisvar sinnum til Suður-Ameríku snemma árs 1996 að sækja kókaín, samtals 4 kfló. Valdís Ósk var í fyraa dæmd í átta ára fangelsi fyrir smygl, auk þess að hafa átt þátt í að vinkona hennar fór til Suður-Ameríku í smyglferð. Vinkonunni snerist þó hugur og kom hún heim tómhent. Hvatamað- urinn fékk níu ára dóm Thomas Rordam, verjandi Ibeneme, benti á mál um jafnmikið af fíkniefnum, þar sem hinir seku hefðu hlotið sjö ára fangelsi. Poul Gadegárd saksóknari benti á að refsing gæti numið átta árum eða meiru, þar sem Ibeneme væri hvatamaður að því að Valdís Ósk hefði farið sínar ferðir. Þær aðstæð- ur að Ibeneme hefði á kaldrifjaðan hátt sent unga stúlku í svona ferð og unnið að smyglinu á faglegan hátt áttu þátt í að hann hlaut níu ára fangelsi. í samtali við Morgunblaðið sagðist Gadegárd vera ánægður með niðurstöðuna. Valdís Ósk, sem afplánar dóm sinn á íslandi kom til Danmerkur í vikunni til að bera vitni í máli Ibeneme. Brotnaði á báðum fótum MAÐUR brotnaði á báðum fótum þegar hann varð á milli tveggja bfla á fimmta tímanum í gærdag. Slysið varð á Vesturlandsvegi skammt frá Blikastöðum. Þurfti að loka Vesturlandsvegi um tíma vegna slyssins. Slysið varð með þeim hætti að maður var að selflytja vörur úr kyrrstæðum bíl sínum úti við veg- arkantinn yfir í annan bfl sem hafði verið stöðvaður þar fyrir aftan. Bar þá að þriðja bílinn sem hafnaði á bílnum sem verið var að ferma sem aftur kastaðist á fremsta bílinn þar sem maðurinn stóð. Kafaldsbylur var þegar slysið varð. Maðurinn varð á milli bílanna með fyrrgreindum afleiðingum. ------------------- Happdrætti HÍ Sex fengu millj- ónavinninga SEX miðaeigendur í Happdrætti Háskólans fengu eina milljón eða meira í vinning í fyrsta útdrætti ársins hjá HHI í gærkvöldi. Hæsti vinningurinn, tvær milljónir króna, féll á miða nr. 43034. Seldir höfðu verið fjórir einfaldir miðar með þessu númeri og koma því tvær milljónir króna í hlut hvers vinn- ingshafa. Samkvæmt upplýsingum sem fengust á skrifstofu HHI fara vinn- ingamir á Blönduós, í Hveragerði og tveir til Selfoss, en þar féll tveggja milljóna króna vinningur í hlut nýbakaðra tvíburaforeldra. í útdrættinum í gær komu einnig tveir einnar milljónar króna vinn- ingar á tvö númer sem seld voru í Reykjavík. Brynjar æfir með enska liðinu Southampton / B1 Damon Johnson skoraði 61 stig fyrir Keflavík/B4 ÁLAUGARDÖGUM m sfemn Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.