Morgunblaðið - 16.01.1999, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ágreiningur um útfærslu
á skipuriti í borgarráði
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins
í borgarráði Reykjavíkur greiddu á
þriðjudag atkvæði gegn tillögu
borgarstjóra um útfærslu á nýju
skipuriti fyrir Ráðhús Reykjavíkur,
sem felur í sér að stjómsýslu- og
fjármálasviði borgarinnar verður
skipt í fjórar deildir.
„Sú útfærsta sem nú hefur verið
samþykkt á stjórnkerfmu er ekki til
þess failin að gera verkaskiptinguna
skýra, einfalda boðleiðir eða draga
úr því upplausnarástandi sem nú
ríkir í stjórnsýslu borgarinnar. Með
þessari samþykkt er ennfremur
verið að þenja út embættismanna-
kerfið í Ráðhúsinu enn frekar en
Vilja hlut-
lausa kæru-
nefnd í HÍ
STÚDENTAR ætla að vekja at-
hygli á framkvæmd samkeppnis-
prófa hjá fyrsta árs nemendum í
hjúkranarfræði í Háskóla Islands
innan skólans. 39 af 89 stúdentum
sem þreyttu prófín kærðu fram-
kvæmd þeirra. Einnig verður málið
notað í þeim tilgangi að þrýsta á um
að frumvarp um bætta réttarstöðu
stúdenta, sem lagt verður íyrir Al-
þingi á næstunni, verði að lögum.
Katrín Júlíusdóttir, framkvæmda-
stjóri Stúdentaráðs, segir að stúd-
entar hafí ekki gefið upp von um að
ná fram leiðréttingu hjá Háskólan-
um vegna prófaframkvæmdarinnar
og segir hún málið hugsanlega
verða lagt fyrir á háskólaráðsfundi
28. janúar nk.
„Við munum reyna að fá háskóla-
ráð til að hlutast til um þetta mál,“
segir Katrín. Aður hafði námsbraut
í hjúkrunarfræði og kennslusvið
Háskólans tekið málið til skoðunar.
Viðbrögðin voru ekki fullnægjandi,
að mati stúdenta.
Katrín segir að stúdentai’ vilji að
sett verði á laggirnar hlutlaus
kærunefnd sem hafi úrskurðarvald
yfír deild. „Það er náttúralega
ótækt að deild sé að dæma í eigin
máli og það samræmist ekki nútíma
stjórnsýsluháttum," segir Katrín.
Katrín furðar sig á því að formað-
ur námsbrautar í hjúkrunarfræði
hafí ekki heyrt af því að próf hafí
lekið út.
TEKJUR sveitarfélagsins „Borgar-
fjarðar" nema 125 milljónum kr. á
árinu, samkvæmt frumvarpi til fjár-
hagsáætlunar sem tekið var til fyrri
umræðu á hreppsnefndarfundi síð-
astliðinn fímmtudag. Kostnaður er
áætlaður 116 milljónir kr. eða um
93% af tekjum.
Að sögn Þórunnar Gestsdóttur
sveitarstjóra fer stór hluti af ráð-
stöfunartekjum sveitarfélagsins til
fræðslumála, eða um 70 milljónir kr.
Hún segir mikinn hluta af gjöldun-
um bundinn vegna samninga um
sameiginleg verkefni sveitarfélag-
anna á svæðinu.
Til framkvæmda er áætlað að
verja 33 milljónum kr. en hluti af
þeim fjárfestingum dreifist á lengri
tíma, að sögn Þórunnar. Áætlað er
að ljúka viðhaldsverkefni við Kiepp-
járnsreykjaskóla og byggja við leik-
skólann Andabæ á Hvanneyri. Þá
orðið er með ráðningu tveggja
nýrra embættismanna,“ segir í bók-
uninni.
Með því skipuriti Ráðhússins,
sem nýlega tók gildi var rekstrinum
skipt í fjögur svið; þróunar- og fjöl-
skyldusvið, undir forstöðu Jóns
Björnssonar, skrifstofu borgar-
stjórnar, undir stjórn Gunnars Ey-
dai, skrifstofu borgarlögmanns,
undir stjórn Hjörleifs Kvaran, og
stjórnsýslu- og fjölskyldusvið, sem
lýtur stjórn Helgu Jónsdóttur. Þrjú
fyrstnefndu sviðin eru ekki deildar-
skipt en fyrir síðasta borgarráðs-
fund var lögð tillaga um að skipta
stjómsýslu- og fjármálasviði í fjórar
Vetrarlegt
í vestur-
bænum
HELDUR var orðið vetrarlegt í
vesturhluta Reykjavíkur þar
sein þessi mynd var tekin í gær.
Það var líka hálfgerður hryss-
ingur í veðrinu og útlit er fyrir
norðangarra næstu daga víðast
hvar um landið.
er fyrirhugað að kaupa íbúðarhús á
Hvítárbakka og leigja Barnavemd-
arstofu sem hefur jörðina á leigu og
byggja hús við Túngötu á Hvann-
eyri til að leigja starfsfólki þar á
staðnum.
Unnið að aðal-
skipulagi
A árinu verður unnið að gerð að-
alskipulags fyrir sveitarfélagið og á
það að taka til tímabilsins
1999-2011. Auglýst hefur verið eftir
ráðgjöfum og á síðasta hrepps-
nefndarfundi voru lagðar fram um-
sóknir tíu aðila. Þórunn kveðst
ánægð með viðbrögð við auglýsingu
hreppsnefndarinnar. Fyrirhugað er
að taka málið fyrir á næsta reglu-
lega fundi hreppsnefndar.
Fyrirhugað er að afgreiða fjár-
hagsáætlunina á fundi í byrjun febr-
úar.
deildir; fjármáladeild, borgarbók-
hald, kjaraþróunardeild og rekstr-
ar- og þjónustuskrifstofu.
Tillaga borgarstjóra til borgar-
ráðs, sem vegna ágreinings í ráð-
inu mun koma til kasta borgar-
stjórnar, gerir ráð fyrir að Anna
Skúladóttir verði ráðin í starf fjár-
málastjóra og Olafur Jónsson verði
forstöðumaður rekstrar- og þjón-
ustuskrifstofu.
Tilfærslur og breytingar
á skilmálum
Á borgarráðsfundinum svaraði
borgarstjóri bókun sjálfstæðis-
manna með bókun þar sem segir að
SAMEINING við Reykjanesbæ er
mun vænlegri kostur en sameining
Garðs og Sandgerðis, að mati VSO-
ráðgjafar. Þetta kom fram á fjöl-
mennum fundi, sem haldinn var í
samkomuhúsinu í Garði sl. fimmtu-
dagskvöld. Liðlega 80 manns voru á
fundinum en þeirra á meðal voru
forystumenn Sandgerðisbæjar.
Tildrög umræðunnar eru að
hreppsnefnd Gerðahrepps lét fara
fram kosningu meðal íbúanna hvort
kanna ætti með sameiningu við ná-
gi-annabyggðarlögin. Var það sam-
þykkt með miklum meirihluta og í
framhaldi af því var VSÓ-ráðgjöf
fengin til að gera úttekt á tveimur
sameiningarkostum þ.e. annars
vegar við Sandgerðisbæ og hins
vegar við Reykjanesbæ.
I skýrsiu VSÓ, sem er um 70
blaðsíður, eru margir fróðleiksmol-
ar en lokaniðurstaða Kristins Guð-
jónssonar frá VSÓ-ráðgjöf var að
sameining við Reykjanesbæ væri
vænlegri.
Auðheyrt var á fundinum að
skoðanir bæjarbúa eru mjög skipt-
ar í þessu máli og segja má að blek-
ið hafí ekki verið þornað á skýrsl-
unni þegar margar efasemdir komu
upp um ágæti hennar. Sigurður
Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í
Sandgerði, gerði fjölmargar at-
hugasemdir við skýrsluna. Hann
sagði það sína persónulegu skoðun
að Garður og Sandgerði ættu að
sameinast og skýrsia VSÓ gæfí al-
ranga mynd af kostum og göllum
sveitarfélögin í landinu hafi á síðari
árum tekið við umfangsmiklum og
fjárfrekum verkefnum. „Mannafli í
Ráðhúsinu og samsetning hans
hlýtur að taka mið af verkefnum á
hverjum tíma. Annað væri ábyrgð-
arleysi.
Staðreyndin er t.d. sú að styrkt
fjármagns- og lánastýring hefur
leitt til lækkaðra útgjalda langt um-
fram viðbótarkostnað við manna-
hald. Rangt er að stjórnkerfísbreyt-
ingin nú leiði til útþenslu embættis-
mannakerfísins. Fyrst og fremst er
um tilfærslur og breytingai’ á ráðn-
ingarskilmálum að ræða,“ segir í
bókuninni.
við sameiningu Garðs og Sandgerð-
is eða réttara sagt hver staða Sand-
gerðis væri í dag enda væru allar
tölur skýrslunnar teknar úr reikn-
ingum bæjanna frá 1987 og margt
hefði breyzt síðan.
Finnbogi Björnsson var einn
ræðumanna. Hann dró upp erfiða
framtíðarsýn fyrir Gerðahrepp og
sagðist vera skíthræddur um fram-
tíð bæjarins. Það var hins vegar
Njáll Benediktsson, einn af elztu
íbúum bæjarins, sem stal senunni
eins og svo oft áður.
Njáll sat í hreppsnefnd á árum
áður og þekkir sögu Gerðahrepps
vel. Hann lét nágrannana hafa það
óþvegið, bæði í gaman- og alvöru-
tón. I örstuttu máli hóf hann upp-
rifjunina 1887 en þá voru öll um-
rædd byggðarlög í sama hreppn-
um, Rosmhvalneshreppi. Þá tóku
Sandgerðingar sig til og klufu sig
út úr hreppnum og stofnuðu nýjan
hrepp. Þar með taldi Njáll að þess-
um fírum væri ekki treystandi.
Keflvíkingar fengu líka sínar ákúr-
ur frá Njáli en þeir klufu hreppinn
aftur 1908 að hans sögn og stálu
svo landi frá Gerðahreppi fyrir
nokkrum áratugum með aðstoð
þingmanna.
Fleiri tóku þátt í umræðunni og
sýndist sitt hverjum. Boltinn er nú
hjá hreppsnefndinni sem ræður og
ákveður næstu skref. Það er hins
vegar ljóst að málið er ekki síður
tilfínningalegs eðlis en fjárhags-
legs.
Framkvæmda-
stjóri kristni-
tökuhátíðar
Reykjavíkur-
prófastsdæma
•BJARNI Kr. Grímsson, við-
skiptafræðingur, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri
nefndar
Reykjavíkur-
prófastsdæma
Reykjavíkur-
borgar, Kópa-
vogsbæjar og
Seltjamarnes-
bæjar, vegna
kristnitökuhá-
Bjarni Kr. tíðar á árunum
Grímsson 19g9 Qg 2000.
Bjarni er fæddur í Ölafsfirði
1955. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri
1975 og viðskiptafræðingur frá
Háskóla Islands 1981. Bjarni
starfaði hjá Fiskveiðisjóði Is-
lands með námi og eftir það
fram til ársins 1982. Hann
varð kaupfélagsstjóri Kaupfé-
lags Dýrfirðinga, Hraðfrysti-
húss Dýrfirðinga og útgerðar-
félagsins Fáfnis hf. á Þingeyri
1983. Bjarni var ráðinn bæjar-
stjóri í Ólafsfirði 1988 fram til
1993 er hann réðst sem fiski-
málastjóri Fiskifélags Islands,
jafnframt því sem hann var
ritstjóri Ægis, Sjómannaalm-
anaksins og Utvegs. Hann hef-
ur gegnt ýmsum trúnaðar-
störfum í tengslum við störf
sín í gegnum tíðina og setið í
ýmsum stjórnum og nefndum.
Bjarni þefur verið virkur í
margskonar félagsstörfum,
m.a. setið í sóknarnefnd Graf-
arvogssóknar frá árinu 1994
og verið sóknarnefndarfor-
maður frá 1995. Hann situr í
Héraðsnefnd Reykjavíkurpró-
fastsdæmis eystra og er vara-
fonnaður stjórnar Kirkju-
garða Reykjavíkurprófasts-
dæma. Hann var kjörinn á
Kirkjuþing 1998 og er nú for-
maður Prestssetrasjóðs.
Bjarni er kvæntur Brynju
V. Eggertsdóttur og eiga þau
þrjá syni.
Fíkniefnamálið
í Eyjum
Kona laus úr
g'æsluvarðhaldi
ÖNNUR konan, bflstjórinn í fíkni-
efnamálinu í Vestmannaeyjum, var
iátin laus úr gæsluvarðhaldi í fyrra-
dag.
Ekkert kom fram við rannsókn
málsins um að hún væri viðriðin
innflutning á fíkniefnum sem fund-
ust við komu Breka VE til Vest-
mannaeyja 9. janúar síðastliðinn, að
sögn lögreglu.
Ónnur kona og maður sitja enn í
gæsluvarðhaldi vegna málsins.
---------------
Austurland
Prófkjöri frest-
að um viku
FYRIRHUGUÐU prófkjöri sjálf-
stæðismanna í Austurlandskjör-
dæmi, sem halda átti í dag, hefur
verið frestað um viku vegna veðurs.
Akveðið hefur verið að halda próf-
kjörið laugardaginn 23. janúar.
Spáð er afar slæmu veðri á Aust-
urlandi og segir Jónas A.Þ. Jóns-
son, formaður kjörnefndar, að það
geri prófkjörið óframkvæmanlegt.
Fólk komist ekki til að kjósa og erf-
iðleikar verði á að koma kjörgögn-
um á milli staða.
Áfram verður unnt að kjósa utan
kjörfundar, fram að prófkjörsdegi.
Mörgunblaðið/Ásdís
Skiptar skoðanir
um sameining’ar-
mál í Garðinum
Garði. Morgunblaðið.
Fjárhagsáætlun „Borgarfjarðar‘‘
Um 70 milljónir
til fræðslumála
Byggt við Andabæ