Morgunblaðið - 16.01.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.01.1999, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 16. JANÍJAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson HANDHAFAR fréttapýramídanna 1998. Frá vinstri: Hermann Einarsson frá Listvinafélaginu, Hlynur Stef- ánsson knattspyrnumaður, Anna Dóra Jóhannsdóttir, Jóhanna Jóhannsdóttir og Kári Hrafnkelsson frá lík- amsræktarstöðinni Hressó. Fréttapýramídarnir afhentir í Eyjum Nýtt íþróttahús í Biskupstungum Bygging hússins tók 13 mánuði Vestmannaeyjum - Fréttapýramíd- arnir fyrir árið 1998 voru afhentir í Eyjum fyrir skömmu. Vikublaðið Fréttir stendur fyrir afhendingu pýramídanna sem nú voru afhentir í áttunda sinn. Arlega eru þrír pýramídar afhentir til aðila sem, að mati Frétta, hafa skarað fram úr með framlagi sínu til atvinnu og þjónustu, menningarmála og íþróttamála. Um 70 manns voru viðstaddir at- höfnina þegar pýramídarnir voru af- hentir. Arnar Sigurmundsson, stjórnarformaður Eyjaprents- Frétta, stjórnaði athöfninni en Om- ar Garðarsson, ritstjóri Frétta, gerði grein fyrir forsendum veiting- anna. Gísli Valtýsson, framkvæmda- stjóri Frétta, afhenti fréttapýramídana en þá hannaði og smíðaði Grímur Marinó Steinsdórs- son eins og áður. Fréttapýramídann fyrir framlag til atvinnu og þjónustu að þessu sinni hlutu eigendur líkamsræktar- stöðvarinnar Hressó, systurnar Anna Dóra og Jóhanna Jóhannsdæt- ur ásamt eiginmönnum sínum. I kjölfar stofnunar Hressó fyrir fjór- um árum varð vakning meðal Eyja- manna varðandi líkamsrækt og nú stunda um 300 manns reglulega lík- amsrækt í Hressó. Listvinafélag Vestmannaeyja hlaut fréttapýramídann fyrir fram- lag til menningarmála. Undanfarin ár hefur Listvinafélagið staðið fyrir Dögum lita og tóna um hvítasunnu- helgina í Eyjum. Fréttapýramidann fyrir framlag til íþróttamála hlaut knattspyrnu- maðurinn Hlynur Stefánsson, fyrir- liði Islands- og bikarmeistara IBV. Hlynur hefur verið íþróttamaður í fremstu röð um árabil. Hermann Einarsson, frá Listvina- félaginu, þakkaði viðurkenninguna fyrir hönd félagsins og sagðist líta svo á að í viðurkenningunni fælust þakkir til genginna frumherja fé- lagsins og eins þakkir til þeirra fjöl- mörgu sem fram hefðu komið á Dög- um lita og tóna. Hann sagði að allir þeir sem þar hefðu komið fram í gegnum árin hefðu gert það endur- gjaldslaust og ekkert fengið fyrir annað en ánægjuna af að koma og spila. Hann sagði að Listvinafélagið myndi gera sem best það gæti til að Dagar lita og tóna lifðu áfram og upplýsti um leið að nú væri unnið að því að fá Nils Henning Örsted Ped- ersen, á Daga lita og tóna næsta vor. I lok dagskráiúnnar voru flutt tón- listaratriði sem söng- og tónlistar- fólk úr Hvítasunnusöfnuðinum sá um. NÝTT íþróttahús hefur verið vígt og tekið í notkun í Reykholti í Bisk- upstungum. Fjölmenni var við at- höfnina sem fram fór um síðustu helgi. Bygging íþróttahúss í Reykholti hefur verið til umræðu í sveitinni í meira en fimmtán ár, að því er fram kom í ræðu Kjartans Sveinssonar, formanns byggingarnefndar, við vígslu hússins. Hreppsnefnd kaus undirbúningsnefnd sumarið 1990, ákvað í byrjun apríl 1997 að ráðast í bygginguna og framkvæmdir hófust í lok ársins. Tók bygging hússins þrettán mánuði. íþróttahúsið er tengt sundlaug sem fyrir er í Reykholti og er bún- ingsaðstaða, böð og önnur aðstaða samnýtt. Samkvæmt upplýsingum Dennis Jóhannssonar hjá Ai'kitekt- um Hjördísi og Dennis sem hönn- uðu húsið, var frá upphafi ætlunin með samtengingunni að skapa öfl- uga íþrótta- og heilsuræktarmiðstöð sem þjónað gæti uppsveitum Arnes- sýslu og þeim ferðamönnum sem um svæðið fara. Stærð salarins er miðuð við löglegan keppnisvöll fyrir körfuknattleik. Burðargrind íþróttahússins er úr límtré og klædd yleiningum, allt frá Límtré hf. sem einnig annaðist upp- setningu hússins, áhaldageymslu og tengibyggingu. Fram kom hjá Kjartani að keyptur hefur verið ríkulegur búnaður í húsið til að það megi nýtast eins og efni standa til. Safnast hafa rúmlega tvær milljónir kr. frá einstaklingum, félagasam- tökum og fyrirtækjum. Kostnaður við framkvæmdirnar er kominn í um 63 milljónir kr. og er það nálægt upphaflegri kostnaðai'áætlun, að sögn Kjartans. Fyrir alla Tungnamenn „Lögð var sérstök áhersla á að gera aðkomu hússins norðanmegin aðlaðandi með stórum bogadregn- um vegg sem klæddur er basaltgráu áli og má líkja veggnum við andlit byggingarinnar en hann blasir við öllum vegfarendum sem til Reyk- holts koma. Veggurinn tengir íþróttahúsið við hæð laugarbygg- ingarinnar og þannig mynda húsin eina heild. Lýsing utanhúss er hönnuð með það í huga að bygging- in njóti sín í skammdeginu ekki síð- ur en í dagsbirtunni," segir í hug- leiðingum arkitektanna vegna hönn- unar hússins. Kjartan Sveinsson lagði á það áherslu í ræðu sinni við vígluathöfn- ina að þótt íþróttahúsið væri fyrst og fremst skólamannvirki, væri það byggt af öllum Tungnamönnum fyr- ir alla Tungnamenn og hvatti fólk til að nýta aðstöðuna vel. NÝTT íþróttahús hefur verið tekið í notkun í Reykholti í Biskupstungum. Starfssvæði Hér- aðsskóga á N- Héraði stækkað Vaðbrekku, Jökuldal - Héraðs- skógar munu á þessu ári stækka starfssvæði sitt á Norður-Héraði. Við afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár var ákveðin sérstök fjárveiting til þessa að upphæð 5 millj. kr. Helgi Gíslason, framkvæmda- stjóri Héraðsskóga, segir að nú á næstu dögum verði fundur í stjórn Héraðsskóga þar sem farið verður yfir málið og grunnur lagður að því með hvaða hætti verður unnið að þessum málum á Norður-Hér- aði. Helgi segir að það séu mörg dagsverk í 5 milljónum og telur að það nýtist að mestu beint í gróður- setninguna vegna þess að þetta hækki stjórnunarkostnað Héraðs- skóga hverfandi lítið. Ef þeir bændur á Norður-Hér- aði sem þegar hafa afgirt land til plötunar njóta forgangs til aðidlar að Héraðsskógum nýtist fjárveit- ingin nánast öll til gróðursetning- ar. Þegar eru margir bændur á Norður-Héraði með tilbúið afgirt land til plöntunar, en á síðasta sumri var friðað allt svæðið neðan þjóðvegar frá Hjarðargrund á Jökuldal út að Biskupsshól við Ketilsstaði í Hlíð sem er um 50 km löng spilda. Helgi segir að einnig verði íbú- um Norður-Héraðs boðið upp á fræðslu, bæði í formi námskeiða og einstaklingsfræðslu. Þessi gróðursetning mun nýtast bænd- um vel og eftir 10-20 ár mun hægt að beita sauðfé í skógarbotninn en þá verður hann orðinn það vaxinn og fyrstu grisjunum lokið. Gróður í skógarbotni er þrisvar sinnum meiri en á bersvæði að sögn Helga og alls verða gróðursettar um 3.000 plöntur í hektara til að byrja með, sem síðan er grisjað úr. Starfssvæði Héraðsskóga náði áður yfir allt upphéraðið út að Rangá og í Eiðaþinghá, en stækk- ar nú eins og áður segir að Norð- ur-Héraði. Alls eru fjárveitingar til Héraðsskóga á þessu ári 67 milljónir króna. Að sögn Jónasar Þórs Jóhanns- sonar, sveitarstjóra Norður-Hér- aðs, er þessi stækkun Héraðs- skóga mjög skemmtilegur og merkur áfangi sem gerir ennþá lífvænlegra í sveitarfélaginu en verið hefur. „Hér aukast tekjur fólks og íbúar fá betra land til nytja í búskap sínum. Reynslan af starfí Héraðsskóga hingað til sýn- ir að á starfssvæði þeirra fjölgar íbúum og jarðir hækka í verði, þetta mun einnig koma íbúum á þessu svæði til góða í framtíðinni,“ segir Jónas. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Húsflutn- ingar í jan- úarmánuði Fagradal - Það var sérkennileg sjón sem blasti við fréttaritara Morgunblaðsins nú fyrrihluta jan- úarmánaðar þegar hann sá litla dráttarvél draga stórt hús. Pálmi Andrésson, bóndi í Kerlingadal í Mýrdal, var þar á ferð með gaml- an vegavinnuskúr sem flytja átti heim að Kerlingadal. Hann flutti skúrinn á gömlum rúlluvagni sem var dreginn af Ford 2000 dráttar- vél. Skúrnum var lyft upp og vagninum bakkað undir. Flutn- ingurinn gekk vel enda ekki langt að fara. Pálmi ætlar að athuga hvort hann geti ekki gert skúrinn upp og nýtt hann eitthvað. Nýr ferða- málafulltrúi í Húnaþingi Hvammstanga - Þorvarður Guð- mundsson var nýverið ráðinn í stöðu ferðamálafulltrúa í Húnaþingi. Þor- varður er starfandi kennai'i á Laug- arbakka og sinnir stai'fi ferðamála- fulltrúa í hlutastarfi til vorsins. Hann mun starfa undir stjórn Hagfélags- ins hf. sem er atvinnuþróunarfélag í héraðinu. Ferðamálafélag er starf- andi í héraðinu og er samstarfsvett- vangur ýmissa aðila sem hafa hag og áhuga á þjónustu við ferðamenn. Þorvarður hefur unnið nokkuð að ferðamálum í héraðinu, m.a. gegnt starfi í Upplýsingamiðstöðinni í Staðarskála á liðnu sumri. Sam- hliða störfum að ferðamálum mun Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson ÞORVARÐUR og Gudrun H. Kloes, formaður Ferðamála- félags V-Hún. Þorvarður sinna störfum atvinnuráð- gjafa í nánum tengslum við INVEST á Blönduósi og Byggðastofnun á Sauðárki'óki. Þorvarður er kvæntur Ingunni Pedersen kennara og eiga þau þrjá syni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.