Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 22

Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 22
22 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Alfred R. Berkeley, forstjóri NASDAQ-verðbréfamarkaðarins Sér ekki meinbugi á skrán- ingu íslenskra félaga erlendis Landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins Brynjólfur Helgason Brynjólfur Helgason formaður BRYNJÓLFUR Helgason, framkvæmdastjóri fyrirtækja- sviðs Landsbanka Islands hf., var kjörinn for- maður Lands- nefndar Al- þjóða verslun- arráðsins á síð- asta aðalfundi nefndarinnar og tekur hann við af Ólafi B. Thors, for- stjóra hjá Sjóvá Almennum hf. Þá var jafnframt kosið í stjórn Landsnefndarinnar og þar eiga eftirtaldii- sæti: Baldur Hjaltason, forstjóri Lýsis, Ey- steinn Helgason, framkvæmda- stjóri Plastprents, Friðrik Páls- son, forstjóri SH, Geir Magnús- son, forstjóri Olíufélagsins, Guðmundur Björnsson, for- stjóri Landssímans, Gunnai’ Öm Rristjánsson, forstjóri SÍF, Jón Ásbergsson, framkvæmda- stjóri Útflutningsráðs, Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðar- ins, Ti-yggvi Pálsson, fram- kvæmdastjóri hjá íslands- banka, og Pórarinn V. Þórarins- son, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambands Islands. Auk Brynjólfs voru Gunnar Örn og Þórarinn V. kosnir í framkvæmdastjórn landsnefnd- arinnar. Með stjórninni starfa auk þess Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunai’- ráðs íslands, og Már Másson, sem annast daglegan rekstur landsnefndarinnar. ALFRED R. Berkeley, forstjóri NASDAQ-verðbréfamarkaðarins í Bandaríkjunum, segist ekki sjá neina meinbugi á því að íslensk fyr- irtæki hljóti skráningu á bandarísk- um hlutabréfamörkuðum og uppíylli þau skilyrði sem sett eru fyrir skráningu á bandarískum hluta- bréfamarkaði. Að sögn Berkeley em það helst íslensk hugbúnaðar- og tæknifyrir- tæki og fyrirtæki í líftækniiðnaði sem eiga möguleika á að komast á bandarískan markað og njóta vel- gengni. Segir hann að íslensk lög er hamla erlendum aðilum að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækj- um komi í veg fyrir að þau geti leit- að á erlend mið í leit að fjármagni. Að öðram kosti væra þau væntan- lega vænlegur kostur fyrir erlenda fjárfesta. Möguleiki á samstarfí við Verðbréfaþing Berkeley segir að ekki hafi farið fram viðræður um samstarf NASDAQ og Verðbréfaþings ís- lands en í náinni framtíð sé raun- hæfur möguleiki á að fyrirtækin gætu átt gott samstarf sín á milli líkt og NASDAQ á meðal annars við verðbréfamarkaði í Hong Kong og Frankfurt. „Netið auðveldar allt samstarf á þessu sviði og hefur breytt gífurlega miklu í fjármála- heiminum líkt og annars staðar. Ra- fræn viðskipti spara ekki einungis fé og tíma heldur einnig auðvelda þau öll samskipti heimshorna á milji.“ Á ráðstefnunni „Frá vísindum til verðbréfa" sem haldin var í gær á vegum Rannsóknarráðs Islands í Morgunblaðið/Árni Sæberg ALFRED R. Berkeley, forstjóri NASDAQ-verðbréfamarkaðarins í Bandaríkjunum, segir íslensk hugbúnað- ar- og tæknifyrirtæki og fyrirtæki í líftækniiðnaði eiga mesta möguleika á erlendum mörkuðum. samvinnu við Verslunarráð, Verð- bréfaþing íslands, Aflvaka, Eignar- haldsfélagið Alþýðubankann, Kaup- þing, Nýsköpunarsjóð og viðskipta- og iðnaðarráðuneytið benti Berkel- ey á að fyrirtæki eins og Microsoft og Intel hefðu ekki hlotið skráningu á almennum hlutabréfamarkaði ef NASDAQ hefði ekki komið til. Það sé ekki einunis krafa um að fyrir- tæki sem óska eftir skráningu geti sýnt fram á hagnað heldur skipti framtíðarsýn fyrirtækisins miklu máli. I tilvikum Microsoft og Intel hafi framtíðin ekki síst skipt máli þegar fyrirtækin hlutu skráningu á NASDAQ. Aukið samstarf kauphalla Jóhann Viðar ívarsson, deildar- stjóri hjá Kaupþingi, sagði á ráð- stefnunni að í náinni framtíð mundi ýmislegt breytast í verðbréfavið- skiptum heimsins. Á Vesturlöndum og þá ekki síst í Evrópu ættu kaup- hallir eftir að taka upp nánara sam- starf og jafnvel sameinast. í sama streng tók Stefán Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Verð- bréfaþings íslands, en nánar verður greint frá því er fram kom á ráð- stefnunni í Morgunblaðinu síðar. Jóhann Viðar sagðist telja að ís- lensk fyrirtæki og þá sérstaklega fyrirtæki í vísinda- og tæknigreiran- um ættu eftir að sækja á erlenda hlutabréfamai’kaði fyn- en seinna. Því þyrftu íslensk verðbréfafyrir- tæki að vera undir það búin þekk- ingarlega að veita þeim aðstoð við að komast á erlenda markaði. Sérfræðingar á fjármálamarkaði um yfírlýsingar fjármálaráðherra um skuldagreiðslur ríkissjóðs Enn frekari vaxta- lækkanir líklegar VEXTIR héldu áfram að lækka á fjármálamarkaði í gær í kjölfar yfir- lýsinga fjármálaráðherra um upp- greiðslu skulda ríkissjóðs. Ávöxtun- arkrafa húsbréfa lækkaði um 8-10 punkta í gær en á fimmtudag nam lækkunin 6-7 punktum. Ávöxtunar- krafan lækkaði því um 15 punkta (0,15%) á tveimur dögum. Sérfræð- ingar á fjármálamarkaði telja þetta vera eðlileg viðbrögð markaðarins og telja líklegt að vextir muni lækka enn frekar á næstunni. Viðskipti með húsbréf og húsnæð- isbréf námu samtals 1.740 milljónum ki’óna á Verðbréfaþingi Islands í gær og með spariskírteini fyrir 293 millj- ónir. Markaðsávöxtun markflokka spariskírteina og húsbréfa hélt áfram að lækka og við lokun þingsins var ávöxtunarkrafa húsbréfa, flokki 98/1, 4,37%. Ávöxtunarkrafa á flokki 96/2 var 4,40% og á tíu ára spariskírteina- flokki, 95/lD, 4,25%. Þessar vaxtalækkanir koma í kjöl- far yfirlýsinga Geirs Haarde fjár- málaráðherra um lántökur og af- borganir ríkissjóðs en stefnt er að því að lækka skuldir hans um 21 milljarð á árinu. Ríkisfjármálin hafa mikil áhrif á fjármálamarkaði og hefur almennt verið búist við því að batnandi fjárhagur ríkissjóðs stuðl- aði að lækkun vaxta. Morgunblaðið spurði nokkra sérfræðinga á fjár- málamarkaði álits á yfirlýsingum fjáimálaráðherra og áhrifum þeirra á markaðinn. Vaxtalækkun liggur í loftinu Eríkur Guðnason seðlabanka- stjóri segist fagna yfirlýsingum fjár- málaráðherra enda hafi Seðlabank- inn eindregið lagt til að afkoma hins opinbera yrði bætt. „Bærilegur ár- angur hefur náðst að því leyti eins og fjárlögin bera með sér. Varðandi vaxtaþróun þá er ljóst að vextir hafa verið að lækka og það kæmi mér ekki á óvart þótt slíkar lækkanir héldu áfram. Yfirlýsingar fjármála- ráðhen-a gætu flýtt fyrir vaxtalækk- un, sem margir telja að liggi í loft- inu, og slíkt kæmi því ekki á óvart,“ segir Eiríkur. Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, segist vera mjög ánægður með þann árangur að uppgreiðsla skulda ríkissjóðs nemi um 21 milljarði á árinu. „Við eram samþykkir því að það verði að fara varlega í að lækka erlendar skuldir og að farin verði blönduð leið, þ.e.a.s. að greiða bæði innlendar og erlendar skuldir, eins og fjármála- ráðherra leggur til. Við eram jafn- framt samþykkir því að hluti af líf- eyrisskuldbindingum ríkissjóðs, sem er að aukast verulega í ár, verði gerður upp. Þetta er mjög skynsam- legt að mínu mati og það hefði jafn- vel mátt gera betur á þessu sviði. Ég tel hins vegar að það verði að skoðast nánar hvort ekki sé of var- lega farið að greiða aðeins upp 5 milljarða af erlendum skuldum. Þess í stað mætti fara eitthvað hæg- ar í uppgreiðslu á innlenda mark- aðnum. Með því að dreifa innlendum uppgreiðslum á lengri tíma hefði verið minni hætta á röskun á mark- aðnum. Þá er ég afar ánægður með það nýmæli ríkisins að hefja svoköll- uð öfug útboð í því skyni að kaupa aftur spariskírteini. Ég fagna því sérstaklega að sú leið skuli vera far- in. Það er óþægilegt fyrir markað- inn, ekki síst þá sem hafa tekið að sér viðskiptavakt, að ríkissjóður sem útgefandi kaupi eigin bréf á markaðnum með virkum hætti.“ Halldór telur að vaxtalækkanirn- ar undanfarna daga séu eðlileg við- brögð markaðarins við yfirlýsingum fjármálaráðherra. „Það er líklegt að langtímavextir muni lækka meira. Þróunin erlendis bendir til lækkun- ar langtímavaxta í helstu viðskipta- löndum okkar. Varðandi uppgreiðsl- urnar í heild verður að gæta mjög að því að viðhalda stöðugleika,“ segir Halldór. Markaðurinn vanmat uppgreiðslurnar Almar Guðmundsson, verðbréfa- miðlari hjá Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins, segir að yfirlýsingar fjármálaráðherra hafi í sjálfu sér ekki komið á óvart á fjármálamark- aði enda gert ráð fyrir mikilli upp- greiðslu skulda í fjárlögum. „Spurn- ingin var sú hvernig skiptingin yrði á milli innlendra og erlendra skulda og við gerðum ráð fyrir að mun meiri áhersla yrði lögð á upp- greiðslu erlendra lána. Eigi að síður gerðum við ráð fyrir 13 milljarða króna uppgreiðslu innan lands og að það hefði vaxtalækkun í för með sér. Raunin er sú að 16 milljarðar verða greiddir upp innan lands, sem er meira en margir reiknuðu með, og við teljum þetta enn frekar auka lík- urnar á frekari vaxtalækkunum. Við sjáum að þessar yfirlýsingar hafa þegar haft töluverð áhrif til lækkun- ar á markaðnum og það sýnir að markaðurinn hefur vanmetið upp- greiðslurnar. Reikna má með að vextir sveiflist nokkuð næstu daga á meðan menn átta sig á þessu en þegar til lengii tíma er litið teljum við að rými sé fyrir frekari vaxta- lækkanir," segir Álmar. Tómas Ottó Hansson, forstöðu- maður rannsókna hjá fyrirtækja- sviði Islandsbanka, segir það góðar fréttir að ríkissjóður muni verja 21 milljarði til lækkunar skulda á þessu ári. „Áhersla verður nú lögð á uppgreiðslu innlendra skulda en í fyrra var megináherslan lögð á er- lendar skuldir. Þetta er mjög eðli- leg stefna þar sem miklar endur- greiðslur erlendis hafa sett þrýst- ing til lækkunar á gengi krónunnar en mikið útstreymi gjaldeyris var á síðasta ári vegna uppgreiðsu ríkis- sjóðs, fjárfestinga lífeyrissjóða er- lendis og viðskiptahalla. Á móti komu miklar lántökur vegna fram- kvæmda og fjármögnunar fyrir- tækja í erlendum myntum og það dugði til að halda krónunni tiltölu- lega stöðugri. Útlitið í ár gaf ekki til kynna að þessi þróun yrði með sama hætti og því hefðu miklar endurgreiðslur erlendis verið óvar- legar. Því má telja stefnu stjórn- valda jákvæða fyrir krónuna. Þó teljum við ekki mikið svigrúm til hækkunar á gengi hennar vegna hins mikla viðskiptahalla, lítils gjaldeyrisforða og fjárfestinga í verðbréfum erlendis." Hagstæð stefna stjórnvalda Tómas segir stefnu stjórnvalda vera mjög hagstæða skuldabréfa- markaði og því megi telja að lækkun langtímavaxta ríkisverðbréfa gerist hraðar en vænst var. „Það er ljóst að framboð skuldabréfa með ríkisá- byrgð mun dragast veralega saman á næstu árum. Til viðbótar við minna framboð spariskírteina og ríkisverðbréfa má telja víst að um- ræður um afnám ríkisábyrgðar á húsnæðislánum muni aukast á næst- unni, sem einnig styður við lækkun vaxta á ríkisskuldabréfum. Því telj- um við að vextir ríkisskuldabréfa lækki umtalsvert á næstu misser- um,“ segir Tómas. lUuiffiSmmLiJi HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA = HÉÐINN = SM IÐJA Stórási 6 »210 Garöabæ sími 565 2921 • fax 565 2927 #

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.