Morgunblaðið - 16.01.1999, Page 23
MORGUNB LAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 16. JANIJAR 1999 23
Eigendaskipti á versluninni Mat og myndum, Freyjugötu 27
Hef verið giftur búðinni í fímm ár
Farsímafyrirtækið Tal
Óskað eftir
fundi með
samgöngu-
ráðherra
FORSVARSMENN farsímafyrir-
tækisins Tals hf. hafa óskað eftir
fundi með Halldóri Blöndal sam-
gönguráðherra til þess að ræða
hlutverk Póst- og fjarskiptastofn-
unar og fyrirhugaða millilanda-
þjónustu Tals.
Amþór Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs Tals, sagði að það væri skoð-
un forsvarsmanna fyrirtækisins að
efla þyrfti Póst- og fjarskiptastofn-
un til þess að stofnunin gæti sinnt
hlutverki sínu, svo sem að koma á
virkri samkeppni á fjarskiptamark-
aði.
Tafir hafa orðið á opnun milli-
landaþjónustu Tals vegna deilna
um innheimtu gjalds fyrir milli-
landasímstöð fyrirtækisins. Póst-
og fjarskiptastofnun felldi bráða-
birgðaúrskurð um að Landssíminn
skyldi annast gjaldinnheimtu fyrir
millilandasímstöð Tals. Landssím-
inn kærði bráðabirgðaúrskurð
Póst- og fjarskiptastofnunar til úr-
skurðarnefndar fjarskipta- og
póstmála, sem dæmdi Landssíman-
um í vil.
Danfoss kaupir
Héðin - verslun
DANFOSS A/S hefur gert sam-
komulag við eigendur Héðins -
verslunar hf. um kaup á öllum
hlutabréfum í félaginu hinn 1. apríl
næstkomandi. Héðinn - verslun hf.
hefur einkaumboð fyrir Danfoss
A/S og verður framvegis rekið
óbreytt, með sama starfsliði, undir
framkvæmdastjórn Gísla Jóhanns-
sonar.
Starfsmenn Héðins - verslunar
hf. eru 16 talsins. I tengslum við
kaupin mun félagið flytjast í nýinn-
réttað húsnæði í Skútuvogi 6,
Reykjavík, þar sem starfsemin
verður til frambúðar.
GUNNAR Traustason, eigandi
verslunarinnar Matur og myndir, á
homi Freyjugötu og Njarðargötu í
Reykjavík, hættir rekstri búðar-
innar á mánudagsmorgun eftir
fímm ára rekstur. Sjálfur hefur
Gunnar staðið bakvið búðarborðið
á nær hverjum degi allan ársins
hring frá því hann tók við rekstrin-
um.
í búðinni, sem hefur verið opin
frá klukkan 8 á morgnana til 23.30
á kvöldin, 364 daga ársins, má
meðal annars fínna hvers kyns ný-
lenduvörur auk þess sem rekin er
vídeóleiga í versluninni, hægt er
kaupa lottó og ís í formi, eða bara
sitt lítið af hverju, eins og Gunnar
orðar það í samtali við Morgun-
blaðið.
Gunnar segir helstu orsök þess
að hann ákveður að selja rekstur-
inn vera erfíðan vinnutíma en hann
segist beinlínis hafa verið giftur
búðinni þennan tíma. Hann segist
þó ekki sjá eftir neinu og kveður
viðskiptavini sína í hverfinu með
söknuði.
Rómantískt að vera
kaupmaðurinn á horninu
„Ég var 21 árs þegar ég byrjaði
með búðina og vissi fátt um versl-
unarrekstur þá. Það hafði hinsveg-
fflHG
Mest seldi vörubíllinn
á íslandi í 5 ár
ar blundað í mér frá því ég var
smágutti að reka verslun og mér
fannst mjög rómantískt að vera
„kaupmaðurinn á horninu“,‘‘ sagði
Gunnar og besti staðurinn til að
láta drauminn rætast hefði verið
hverfið þar sem búðin er.
Hann segir að rekstur verslun-
arinnar hafí verið í hálfgerðu lama-
sessi þegar hann tók við og fyrstu
tvö árin hafí verið erfið. „Verslunin
hefur þó verið á uppleið allt síðan
ég tók við, og síðustu þrjú ár hefur
hún gengið mjög vel.“
Hann segir að fjölgun svokall-
aðra klukkubúða og breytingar í
verslunarháttum hafi ekki minnkað
söluna hjá sér. „Ég held að það sé
fjölbreytnin í búðinni sem hefur
bjargað mér,“ segir Gunnar.
Sefur út á mánudaginn
Gunnar segist fjarri þvi hættur í
verslunarrekstri þó líklega muni
hann verða á öðrum vettvangi
næst. Ekki er ólíklegt að tryggir
viðskiptavinir hans úr hvei'finu
muni heimsækja hann á nýjan stað
en Gunnar segist eiga eftir að
sakna fólksins í hverfínu, enda hef-
ur hann eignast marga góða kunn-
ingja á tímabilinu.
Hann segist ætla að sofa út í
fyrsta skipti í fímm ár á mánudags-
morguninn, en þá taka nýir eigend-
ur við.
„Svo ætla ég að hlaða batteríin,
heimsækja vini erlendis sem ég hef
ekki getað sl. fimm ár, og ákveða
síðan hvar ég ber niður í framhald-
inu.“
Gunnar segir að nýir eigendur
muni verða með svipaðan rekstur
áfram og nafni búðarinnar verði
haldið óbreyttu.
• VAGNHÖFÐA1
Komið og skoðið vörubílana sem slegið hafa í gegn á ísiandi.
að Vagnhöfða 1 í dag kl. 11. -16.
Sýnum í fyrsta skipti á íslandi þriggja
drifa MAN-vörubíl með loftfjöðrun.
Einnig verða til sýnis ýmsar aðrar
stærðir og gerðir af MAN-vörubílum.
RKUREYRI
Laugardaginn 23. janúar
sýnum við MAN-vörubíla
hjá Kraftbílum, Draupnisgötu 6
á Akureyri, frá kl. 11 -16.