Morgunblaðið - 16.01.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 27
Powell
ekki fram
2000
BANDARÍSKI herforinginn
og repúblikaninn Colin Powell
sagði í gær, að hann hefði ekki
hug á að bjóða sig fram í for-
setakosningunum árið 2000.
Kvaðst hann vera vissari um
það en Michael Jordan um þá
ákvörðun sína að hætta
körfuknattleik. Powell, sem nú
er kominn á eftirlaun en var
einn af helstu herforingjunum í
Persaflóastríðinu 1991, er
fyrsti blökkumaðurinn til að
gegna æðstu stöðu í Banda-
ríkjaher, þ.e.a.s formennsku í
herráðinu. Var lagt hart að
honum að gefa kost á sér fyrir
kosningarnar 1996 en hann
hafnaði því og nefndi þá meðal
annars, að hann vildi eiga sitt
fjölskyldu- og einkalíf í friði.
Fljúgið
1. janúar
STJÓRNVÖLD í Kína hafa
skipað svo fyrir, að flug verði
með venjulegum hætti í land-
inu 1. janúar árið 2000. Er það
gert til að reka á eftir forsvars-
mönnum flugfélaganna og fá
þá til að koma strax í veg fyrir,
að aldamótaveiran svokallaða
geri nokkurn usla í tölvukerf-
unum. Felst hættan í því, að
margar tölvur reikna tímann
aðeins út frá tveimur síðustu
tölustöfunum í ártalinu og því
kunna þær að líta á 2000 sem
1900 eða bara 00. Ef ekkert er
að gert má búast við, að tölv-
urnar „hrynji" eða reikni
skakkt. í Kína er það alveg
sérstakt vandamál hvað þar er
mikið um ólöglegan hugbúnað.
Tölvu- og tæknimenn geta því
ekki leitað til framleiðandans
og verða að ráða fram úr þessu
upp á eigin spýtur.
Flynt á
sjúkrahús
LARRY Flynt, útgefandi
Hustler-tímaritsins, sem
stendur nú í því að afhjúpa
einkalíf bandarískra þing-
manna, er kominn á sjúkrahús
með lungnabólgu. Flynt skýrði
frá því sl. mánudag, að einn
þingmanna repúblikana, Bob
Barr, hefði haldið framhjá
konu sinni en á þriðjudag átti
hann að mæta fyrir dómara og
svara til saka fyrir að hafa selt
14 ára gömlum dreng klámefni.
Því var þó frestað til 5. apríl
vegna annars sjúkleika sak-
bomingsins.
Kokkarnir
kærðir
HÖFÐAÐ hefur verið mál á
hendur tveimur helstu meist-
arakokkunum í Bretlandi og
farið er fram á, að þeir greiði
allt að 115 milljónir ísl. kr. í
skaðabætur. Sakborningarnir
eru þeir Gordon Ramsey, áður
yfirkokkur á Aubergine-veit-
ingastaðnum í Chelsea og
Marcus Wareing, fyrrv. yfir-
kokkur á L’Oranger, en veit-
ingastaðimir eru í eigu A-Z-
veitingahúsakeðjunnar. Rauk
Ramsey burt í fússi til að setja
upp sinn eiginn stað en War-
eing er sakaður um að hafa
unnið mikil spjöll í eldhúsi
L’Oranger og stolið þaðan
ýmsu eftir að hann var rekinn.
Pekktur lögmaður
vill verja Petersen
Þórshöfn. Morgunblaðið.
EINN af þekktustu lög-
mönnum Danmerkur,
Thomas Rordam, verð-
ur að öllum líkindum
veijandi Johns Peter-
sens, fyrrverandi sjáv-
arútvegsráðherra
Færeyja, þegar Eystri
landsréttur tekur áfrýj-
unarmál hans fyrir.
Petersen var dæmd-
ur í 10 mánaða fang-
elsi í lok nóvember
fyrir að nauðga 17 ára
stúlku vorið 1995, þeg-
ar hún bjó í kjallaraí-
búð í húsi hans í Þórs-
höfn. Hann var sviptur
ráðherraembættinu eftir dóminn
og hefur látið af þingmennsku.
Petersen neitar sak-
argiftunum og segir
að stúlkan hafi haft
frumkvæði að samræði
þeirra. Ráðgert er að
landsréttur taki áfrýj-
unina fyrir 1. mars og
að réttað verði í
Færeyjum. Rordarn
hefur óskað eftir því
að verja Petersen en
hann er verjandi
sænska bankaræningj-
ans Klarks Olufssons,
sem á að koma fyrir
Eystri landsrétt þenn-
an sama dag. Verði
Rordam verjandi Pet-
ersens þarf því að fresta réttar-
höldunum í nauðgunarmálinu.
John Petersen
Útsala
Allar vörur á útsölu
Allt að 60% afsláttur
SILFURBÚÐIN
Kringlunni, sími 568 9066.
Fréttir á Netinu ^mbl.is
/\LL.Ta/= 677T//W4Ö NÝTl
Stefán í 2. - 3. sæti
Prófkjörsskrifstofa Bankastræti 11,2. hæð.
Tökum þátt í prófkjörinu 30. janúar
Laugardag
ég pi
hæð. Mér þætti vænt um ef þú vildir sýna mér þá
vinsemd að heilsa upp á mig og fjöiskyldu mína í
Bankastrætinu einhverntíma milli 15:00 og 18:00
og þiggja kaffiveitingar við undirieikSzymons Kurans.
Prófkjörsskrifstofan verður opin aila daga fram að
prófkjöri. Par verður alltaf heitt á könnunni.
Síminn er 552 7125, en í hann verður svarað alian
daginn fram á kvöld.
Sjáumst á laugardaginn klukkan 15:00
í Bankastræti 11, annarri hæð.