Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 31

Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 31 NEYTENDUR 2,2% séreignarsparnaður sem bauðst frá síðustu áramótum Hentar ekki stór- um hópi fólks Dæmi 1 og 2 eru raunveruleg dæmi sem fengin eru frá Halldóri Birni Baldurssyni. Búið er að breyta nöfnum einstaklinganna. Dæmi 1. Hjón: Eru bæði 50 ára gömul. Bjöm er með 135.000 kr. í laun á mánuði og Anna er með 99.000 kr. í laun. Greiða ekki 2% í lífeyrissparnað Björn Anna Lífeyrissjóðurinn 67.795 47.707 Almannatryggingar 25.806 25.806 Samtals krónur: 93.602 73.514 2% lögð fyrir í lífeyrissparnað til 67 ára aldurs Gert er ráð fyrir 7% ávöxtun og að sparnaður sé tekinn út á 7 árum. Lífeyrissjóðurinn 67.795 47.707 2% lífeyrissparnaður 16.995 12.463 Almannatryggingar 19.178 19.178 Samtals krónur: 103.968 79.348 Þrátt fyrir að úr 2% lífeyrisspamaðinum séu greiddar 29.458 kr. til þeirra hjóna, þá skerðast bætur almannatrygginga um 13.256 kr. Þau hafa því ekki nema 19.091 kr. meira fyrir skatta eða 11.772 kr. eftir staðgreiðslu skatta. Dæmi 2. Einstaklingur: Hannes er 48 ára gamall og hefur 100.000 kr. á mánuði í laun. Hann hefur greitt í lífeyrissjóð alla sína starfsævi. Greiðir ekki 2% í lífeyrissparnað Lífeyrissjóðurinn 65.239 Almannatryggingar______________24.010 Samtals krónur: 89.249 2% lögð fyrir í lífeyrissparnað til 67 ára aldurs Gert er ráð fyrir 7% ávöxtun og að spamaður sé tekinn út á 7 árum. Lífeyrissjóðurinn 65.239 2% lífeyrissparnaður 15.258 Almannatryggingar_______________17.144 Samtals krónur: 97.641 Þrátt fyrir að úr 2% lífeyrisspamaðinum séu greiddar 15.258 kr. til Hannesar, þá skerðast bætur almannatrygginga um 6.866 kr. Hann hefur því ekki nema 8.392 kr. meira fyrir skatta eða 5.149 kr. eftir staðgreiðslu skatta. FRÁ síðustu áramótum gafst laun- þegum kostur á að greiða 2% við- bótariðgjald af launum í séreignar- spamað og þurfa atvinnurekendur að greiða 0,2% til viðbótar. Halldór Björn Baldursson framkvæmda- stjóri hjá Fjárfestingu og ráðgjöf segir að í umræðu um þessi mál hafi oft gleymst að benda á að slíkur sparnaður hentar ekki öllum. „Það má álykta útfrá þeim sem við höfum verið að veita ráðgjöf um þessi mál að undanfórnu að um 20-25% ættu frekar að velta fyrir sér öðrum sparnaðarleiðum." Hann segir að fólk eigi að flýta sér hægt í þessum efnum og leita sér ráðgjafar. „Það er hægt að skipta þeim niður í nokkra hópa sem virðast koma betur út með því að leita annarra spamaðarleiða. „Fyrst og fremst em það þeir sem hafa lítil réttindi í sínum lífeyris- sjóði þegar fram í sækir, einstak- lingar með minna en sem samsvar- ar 80.000 krónum á mánuði og hjón þá 160.000 krónur. Þetta eru til dæmis þeir sem eru tekjulágir eða hafa vanrækt að greiða í lífeyrissjóð í mörg ár sem falla í þennan hóp. Þar eru einnig margir sem eru á aldrinum milli fimmtugs og sextugs. Sá aldurshópur hefur þurft að sætta sig við skerðingar á lífeyrisréttind- um sínum. „ Þegar Halldór Björn er spurður hvaða sparnaðarleiðir fólk hafi þá um að velja segir hann að þær séu ýmsar og velti á aðstæðum viðkom- andi. „Fólk ætti eindregið að leita sér ráðgjafar í þessum efnum og þess má geta að við veitum fólki þessa ráðgjöf því að kostnaðarlausu. Ein sparnaðarleiðin byggist til dæmis á því að viðkomandi spari til eftir- launaáranna gegnum fjárfestinga- tengdar tryggingar sem einnig eru skattalega hagkvæmar. „Þennan sparnaðarmöguleika bjóða Al- þjóðalíftryggingafélagið, LIFIS, Sun Life, Friends Provident, Sameinaða líftryggingafélagið og Allianz. Samstarfsverkefni NS og verkalýðsfélaga Fylgjast með verðlagi og gera verðkannanir FORSVARSMENN Neytenda- samtakanna og verkalýðsfélag- anna á höfuðborgai’svæðinu hafa að undirfómu átt í viðræðum um samstarf og verður samkomulagið undirritað á næstu dögum. Það fel- ur meðal annars í sér að sérstakur starfsmaður verður ráðinn til að hafa umsjón með gerð víðtækra verðkannana og fylgjast með verð- þróun og verðlagi. Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna segir að Neytendasamtökin hafi á umliðn- „Lífræna jóla- kakan“ í UPPSKRIFT að jólaköku úr lífrænt ræktuðu hráefni sem birtist á neytendasíðu síðast- liðinn fimmtudag kom fram að þeyta ætti egg og reyrsykur saman í upphafi. Hið rétta er hinsvegar að þeyta á saman reyrsykur og smjör og síðan bæta í eggjunum. Þá er mjólk bætt í og skafið með köntum, þurrefnum bætt í og ávöxtum. um árum átt mjög gott samstarf við verkalýðshreyfinguna að sam- eiginlegum hagsmunamálum. „Við höfum bæði starfað með heildar- samtökum launafólks og átt þar gott samstarf við ASÍ og BSRB. Einnig höfum við starfað með verkalýðsfélögum á ákveðnum svæðum. Til dæmis höfum við um árabil átt samstarf við verkalýðs- félögin á Eyjafjarðarsvæðinu og einnig í fleiri landshlutum. Við vilj- um ræða við fleiri verkalýðsfélög og gjarnan ná öflugra samstarfi við verkalýðsfélög í ýmsum öðrum landshlutum og erum þessa dag- ana í viðræðum við BSRB um sam- starf.“ Jóhannes segir að í samkomu- laginu felist að sérstakur starfs- maður verði ráðinn til að hafa um- sjón með víðtækum verðkönnun- um og verður leitað til fjölmiðla með kynningar á þeim. „Þá verður fylgst með verðþróun og verðlagi og athygli einnig beint að greinum þar sem fákeppni ríkir.“ Jóhannes bendir á að verðkannanimar verði ekki einungis gerðar innan land- steinanna því þegar ástæða þyki til muni verð á vörum verða borið saman við það sem tíðkist í ná- grannalöndum okkar. Samkomulag Neytendasamtak- anna og verkalýðsfélaganna á höf- uðborgarsvæðinu mun gilda til eins árs og verða endurskoðað að þeim tíma liðnum. „Ég er viss um að á þeim tíma tekst okkur að sýna fram á brýna nauðsyn slíks sam- starfs og að um framhald á því verði að ræða.“ Líföndun Að anda er að lifa Guðrún Arnalds verður með helgarnámskeið í líföndun 30. og 31.janúar Langar þig til að fá aukna starfsorku og llfsgleði og sjá líf þitt í skýrara Ijósi? Langar þig til að opna fyrir nýja möguleika og finna gleðina í líðandi stundu? Ef við lærum að anda léttar verður líf okkar ósjálfrátt léttara. Nýtur pú andartaksins? Guðrún Amalds, símar 551 8439 og 896 2396. _____________Bókanir og allar nánari upplýsingar._ söf falfs •.pOftfd I GOSSiP Madcap rnoonlighting: Only inNcw York Ciiy would a hotshot young lawyer (lie currently rep- rcscnts Moomba and Thc Giobc) fiml limc lo culdvatc a sccond carccr ns a spinning guru. Scott Goldiinith, below, isjust such a guy. Empioycd by thc law firm Bnttlc Fowlcr by day and Crunch and Equinox by night (actually, hc has morning ctusscs, loo), this Manhaltan nativc ncwspin- ning-only g>'ni in East Hampton, wcrcconsistcnt- lysoklout.*‘Spin- ningismyoiitlct," saysGoIdsmitlt. "On Ihc bike, I’m oncpart decjay, onc partcoach. Ilovctoscc pcoplcgct lwokcd.” OtU Crnnch at S9thSlrccl (2I2/75S- 3434), and Equinox Fít- ncss Club at 63rd Strect (212/75tM900) for Gdd- smith's schcdulcs. For- cign servicc: Eadt year, morc than 125,000 pco- ple travel to Iceland’s BIuc Lagoon- mincral-rich geo- thcrmal pool, smack-dab in thcmiddic ofa hvafidd-tocx- pcricnce ils skin-soothing SilicaMud.ABOvE- reputed to curc skin ail- mcnts likc psoriasis— can bc ordcred by call- ing 011-354-426-8800. Skin-caro ncws: Micro- dcrmabrasion wiUi alu- minumoxidc crysuls, dc- vclopcd to rcsttrfacc faces, Ædn’t takc long lo migratc to thc body. In thc Chicago arca, Stcvcn Bloch, M.D., istisingthc jW proccdurc (hc rrfcrs to it I.V as thc Parisian Pcd) lo fjjk trcat thc dclicatcskin ÆF of thc chcst. and í‘ot|Ík strctchmarksonarca- Jikc thc abdomcnaiKitM hips. “It reftncs and bgl'’ cns skin, whilc mítp'^w mizing sun damagc ,m. % agc spots,” says Blcc "Strctch marks arc Æ, ficultlocliminate, •# Húðvörur Bláa lónsins fengu óvænta kynningu í Vogue Pantanir streyma frá Bandar íkj unum í SÍÐASTA desemberhefti tísku- tímaritsins Vogue er stór mynd af kísiláburði Bláa lónsins og þar greint frá því að rúmlega 125.000 manns heimsæki Bláa lónið á ári hverju sér til heilsubótar. Bent er á að nú sé hægt að fá kísilinn í formi áburðar en hann henti sérstaklega fólki með psoriasis. Að lokum er bent á símanúmer fyrirtækisins hér á landi. „Við höfðum ekki hugmynd um að Vogue tímaritið væri með þessa umfjöllun fyrr en pantanir fóru að streyma til okkar símleiðis frá Bandaríkjunum," segir Ása Brynj- ólfsdóttir lyfjafræðingur hjá Bláa Lóninu - Heilsuvörum ehf. „Þá höfðu einnig samband við okkur forsvarsmenn þýska tísku- ritsins Bunte sem fóru fram á að fá sýnishorn og kynningarefni þar sem þeir í kjölfar greinarinnar í Vogue hygðust fjalla um húðvör- umar í Bunte. 11 vörutegundir Ása segir að vörur frá Bláa Lón- inu - Heilsuvörum ehf. hafi verið á markaðnum frá árinu 1995 en þá kom rakakremið þeirra á markað. Þróunarvinna hófst árið 1993 og hún hefur verið stöðug síðan. „Við höfum verið að bæta við og breyta og vorutegundirnar okkar eru nú orðnar ellefu talsins. Við framleiðum húðvörur sem ætlaðar eru þurri húð. Uppistaðan í þeim era sölt úr lóninu, kísill og blágrænn þörangur sem vex í lón- inu. Þá notum við ísotónískt vatn í húvörulínuna okkar en það hefur sama saltstyrk og frumurnar í húðinni sem gerir að verkum að Sölustjóri á íslandi Norskt fyrirtæki, sem hefur átt vinsældum að fagna í heimasölu, leitar að sölustjóra/söluleyfishafa (franchise) á íslandi. Vörurnar okkar eru snyrti- og húðvörur, sem innihalda náttúruleg efni og jurtaolíur. Við getum boðið þér gæðavörur og örugga afhendingu, sölu- og upplýsingakerfi af bestu gerð, góðan stuðning og frelsi til að byggja upp sölukerfi í landinu og tryggja þér ágóða. Við gerum ráð fyrir að þú hafir reynslu af MLM eða heimasölu og að þú sjáir um að móta gott sölukerfi. Við óskum eftir skriflegri umsókn í bréfi eða á faxi á ensku eða dönsku/norsku/sænsku. Við hlökkum til að taka við umsókn þinni, helst fyrir iok janúar. • m fM i g— Shine A/S, PB 23, 1322 Hovik, Norge I \ |_ Sími 0047 6710 2190 I | \J |_ Fax 0047 6710 2199 hún á auðveldara með upptöku á virkum efnum.“ Ása segir að þróun húðvaranna sé unnin í samráði við húðlækna svo og franska sérfræðinga í snyrtivöraiðnaði. Aðspurð hvernig húðvörur selj- ist segir hún söluna hafa vaxið mjög mikið frá ári til árs og þess má geta að gestafjöldinn í Bláa lóninu hefur einnig aukist mikið en í fýrra heimsóttu það rúmlega 170.000 gestir. „Fram til þessa höfum við einungis selt vörarnar á heimamarkaði og samkvæmt pönt- unum sem hafa borist erlendis frá á Netinu, með pósti eða símleiðis. „Við hyggjumst hinsvegar reyna fyrir okkm- á erlendum markaði á þessu ári og vörarnar fást nú þeg- ar í Danmörku. Við finnum fyrir miklum meðbyr og ætlum að sjá hvemig gengur að selja þessa vöra á hinum Norðurlöndunum og einnig í Frakklandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.