Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 36

Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 36
36 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 MARGMIÐLUN MORGUNBLAÐIÐ Óþrjótandi mög’uleikar Vinsælasta lófatölva heims er PalmPilot og sækir stöðugt í sig veðrið. Árni Matthías- son tók tali íslenska hugbúnaðarsmiði sem hafa hannað fiskmatskerfí fyrir tölvuna og stefna á frekari verkefni. BiimiraanMi^ ? ■•gMjsJ f 0» £<* Viev, Qo Fflvaio* u* wm T* - 'Ú a AJ 0 § 2I í Back i'i.'Lfií. Stop Reíiesh Home Stwich Favoiiej Htsloty Channeh Fi&creen VINSÆLASTA lófatölva heims er PalmPilot og sækir stöðugt í sig veðrið þrátt fyrir harðnandi sam- keppni. Helst hafa einstaklingar nýtt sér tölvuna til að vista ýmsar upplýsingar og bera með sér hvert á land sem er en sífellt fleiri fyrir- tæki eru tekin upp á að nota Pal- mPilot, sem býður vissulega upp á mikla möguleika. PalmPilot er gjarnan nýtt til þess að vista símanúmeraskrá, dagbókar- færslur og viðlíka. Nýrri gerðir hennar hafa aftur á móti fjölmörg sóknarfæri sem byggjast á auknum tengimöguleikum við aðrar tölvur, í gegnum símanet eða jafnvel útvarps- net. Til að nýta þau sóknarfæri hafa fjölmörg fyrirtæki sprottið upp á síð- ustu árurri sem hannað hafa hugbún- að fyrir PalmPilot, þar á meðal ís- lenskt fyrirtæki, Norræn hönnun, NCD, sem varð til við samruna Nor- rænnar hönnunar og Hjálpar - hug- myndabanka, og lauk fyrir skemmstu við hugbún- að fyrir fiskmatsmenn SÍF. Innan NCD starfar þriggja manna hópur að því að smíða hug- búnað fyrir PalmPilot, Davíð Guð- jónsson, Hjörtur Ólafsson og Ingi Gauti Ragnai-sson, en PalmPilot deildin er hluti af átján manna starfsliði NCD. Systurfyrirtæki NCD er grafík- og eftirvinnslufyrir- tækið Rauði dregillinn, en þar vinna tíu manns. Fyrirtækin eru í eigu sömu aðila. Verkefnið fyrir Sölusamband ís- lenskra fiskframleiðenda, SÍF, bygg- ist á því að fiskmatsménn SÍF bera með sér PalmPilot-tölvu og nýta í mati á fiski í stað þess að fýlla út skýrslur á pappír. Gögnin sem þeir skrá inn í tölvuna eru síðan send á 3ka4un«<m«4ut: Einkunnir: Vígt '?oH Ot»dafloUni<. Qott StMUarfloUcur Oott Snytting. í Ugi * FlftunMjtning'. Í»«8Í* Bl»»: ÍMjl- Li U0i • Oimahioiruur. Hafri«4 Gæðaeftirlitskerfi FtamUUjntfi: Outfmundut CMdtftseon Satt: J l49i ♦ Ftágjngur Hafnaó + U*tfdna«t: Hafnað-* Biítti; Hafnadt Múi «0 búnadur: \ iaai s FtamUidslubúnadur. i MMlitMki 00 pi b: ■ lagtfftjrí Hitastig t voikun' *1« HiUítig i kaali: -4' Lotuskraningar: Ð,'úno»i0l' Natirfst. K SSBBBBESSEBBSnBBISS 04.07ÆOOO <2> . Intwnet zcne aðalskrif- stofu SÍF með aðstoð GSM-síma frá Ericsson og Nokia og þar fara þau sjálfkrafa inn í upplýsingakerfi sam- bandsins. A innraneti fyrirtækisins geta þeir sem hafa þar aðgang síðan skoðað upplýsingarnar á vefsíðu jafn- óðum og þær .berast, en eðlilega er einnig hægt að keyra úr kerfinu, sem byggist á Access gagnagrunni, upplýsingar um hváðeina, fá yf- irlit yfir birgðastöðu, gera saman- burð og fá fram gæðasögu framleið- enda svo dæmi séu tekin og auðveld- ar þannig SÍF að vera sífellt með nýjustu upplýsingar á takteinum vegna útflutnings á fiski. Starfsmenn NCD segjast hafa átt frumkvæði að kerfínu, en ljúka lofs- orði á yfirmenn SIF fyrir það hversu fljótir þeir hafi verið að átta sig á möguleikum tækninnar. „Þeir sáu strax í hendi sér að með þessu móti bærust upplýsingar mun hraðar inn i kerfið og einnig myndaðist merki- leg gæðasaga einstakra framleið- enda, en ekki hefur verið vinn- andi vegur að skrá inn í tölvu allt það sem skoðunarmenn hafa hripað á blað á ferðum sínum. Einnig er mun auðveldara og fljótlegra fyrir skoðunar- menn að vinna störf sín því í tölvunni er gagnagrunnur sem gejmiir upplýsingar um framleiðendur og öll skoðunaratriði og einfalt að velja skoðunaratriði úr valmyndum eftir því sem við á. Við lögðum líka tals- verða vinnu í að greina hvaða athuga- semdir menn gerðu vegna skoðunar og stöðluðum það, þannig að einnig er einfaldara að velja athugasemdir, en vitanlega geta menn enn gert eigin athugasemdir kjósi þeir svo. Það er aftur á móti gert á tölvuskjáinn með „pennanum“ sem fylgir tölvunni og því eru þær upplýsingar líka vistaðar í grunni SÍF.“ Þeir félagar segja að í sjálfu sér sé ekki ýkja mikið mál að forrita PALMPILOT tölva með fisk- matskerfíð upp sett, en slíkar vélar munu matsmenn SIF bera með sér hvert á land sem er og senda upplýsingar inn eftir þörfum um GSM- síma. íyi’ir PalmPilot, en þeir hafi þó rekið sig á sitthvað óvenjulegt, meðal ann- ars að samskiptahugbúnaður 3Com var í fyrstu full hægvirk- '&■ ur. „Þannig tókst okkur að stytta gagnasending artímann til muna, úr sjö mínútum niður í hálfa aðra. Einnig gekk illa að nota inn- rautt tengi símans til þráðlausra sendinga, en á PalmPilot er einmitt innrautt tengi einnig. Fyrir vikið nota menn sérstakt mótald sem hannað er fyrir Pal- mPilot og tengja GSM símanum með snúru. Við bíðum síðan eftir því að fá nýja útgáfu af samskiptahugbúnaðin- um, en starfsmenn 3Com eru að endur- bæta hann. Þar á bæ komu menn af fjöllum þegar við sögðum þeim frá vandræðum okkai' með innrauða tengið, enda vii'ðist enginn hafa reynt að nýta tölvuna á þennan hátt íyrr.“ NCD-menn segjast hafa fundið fyrir áhuga og velvild innan 3Com, fyrirtækisins sem framleiðir Pal- mPilot, á verkefni þehTa fyrir SÍF, enda sé fyrirtækið að hvetja menn um heim allan til að auka notkunar- möguleika lófatölvunnar og þá sér- staklega fyrir fyrirtæki. Þeir segja og að mikið sé að gerast á því sviði og þeir hafa reyndar kynnst grósk- unni af eigin raun á árlegri þróunai'- ráðstefnu vestur í Kaliforníu. Þar voru þúsundir forritara, hönnuða og sölumanna saman komnar til að sýna verk sín og sjá annarra. Að mati NCD-manna býr Pal- mPilot yfir ótal möguleikum eins og verkefni þeirra fyrir SIF sanni. Nefna sem dæmi að hægt sé að fá ýmsar sérgerðir tölvunnar, til að mynda með strikamerkjalesara, og einnig horfi menn mjög til þess hvaða kostum næsta gerð PalmPilot verði búin, en ný útgáfa hennar verður kynnt á þessu ári. Sú verður víst þeim kostum búin meðal annars að vera sífellt í sambandi við Netið um sérstakt útvarpsnet, en hún er með innbyggðum móttakara. Mögu- leikar núverandi gerða eru aftur á móti langt í frá fullnýttir að mati þeirra félaga og með samtengingu við GSM síma geti menn lesið efni af vefnum, sótt og sent tölvupóst, upp- fært gögn í grunni og þar fram eftir götunum. Fjöl- magir sækja til að mynda ^ inn á tölvuna sérstakar út- gáfur dagblaða og lesa síðan við hentugleika, eða bera með sér leiðbeiningar- eða handbæk- ur, hægt er að safna í tölvuna skráningarupplýsingum og senda með GSM síma eða lesa inn á tölvu þegar komið er á skrifstofuna og svo má telja. Möguleikarnir eru nánast óþrjótandi að mati þeirra NCD- 5- manna og þeir þess albúnir að nýta sér þá. PalmPilot og Psion PalmPilot og Psion tölvurnar hafa mikla markaðsyfirburði á sínu sviði og PalmPilot reyndar nánast allsráðandi þegar lófa- tölvur eru annars vegar. Ólíkt al- mennum einkatölvum eru þær báðar með eigin stýrikerf og RISC örgjörva; í heimi smá- tölvanna hafa risar eins og Intel og Microsoft lítið að segja. ClSC-örgjörvar Intel henta illa fyrir litlar tölvur, þeir eru of flóknir og hitna of mikið og eyða þar að auki allt of mikilli orku miðað við afköst. Álíka er upp á teningnum þegar litið er til stýri- kerfsins; Windows stýrikerfi Microsoft er þvílíkt skrímsl orðið að verulegur hluti reiknigetu tölvunnar fer í það eitt að þjóna því. Microsoft hefur meðal annars brugðist við samkeppninni með því að senda frá sér sérstaka fituskerta útgáfu af Windows, Windows CE, sem er ætlað fyrir RlSC-örgjörva. Fyrstu útgáfu þess var reyndar ekki vel tekið, þótti meingölluð og upp full með böggum, en sú útgáfa sem nú er notuð, 2.0, öllu betri. Margir framleiðendur hafa einmitt veðj- að á Windows CE í vélar og telja að það eigi eftir að auðvelda flutning forrita úr Windows um- hverf yfir í smátölvurnar. Lófa- og vasatölvur hafa þann ókost helstan að vera lyklaborðs- lausar eða með lyklaborð sem ekki er nema fyrir mjög hand- netta. PalmPilot er með skjá sem skrifa má á með sérstakri skrift sem fljótlegt er að læra og einnig er hægt að smella á „lyklaborð" á skjánum. í vasatölvuheiminum er Psion með mesta markaðs- hlutdeild, en lyklaborðið á þeim tölvum er ekki nema rétt til að slá inn nauðsynlegustu upplýs- ingar og stutt skilaboð. Á því sviði sjá keppinautar PalmPilot og Psion sér leik á borði, því þeir hafa margir kynnt kjöltutölvur sem eru með nánast fullvaxið lyklaborð og prýðis litaskjá og ke.yra Windows CE. Rafhlöður í slíkum tölvum endasr frá fimm og upp í tíu klukkustundir sem gerir þær að fýsilegum kosti fyr- ir þá sem eru mikið á ferðinni og þurfa sífellt að vera að skrifa. Flestir aðrir kunna eflaust betur að meta að geta stungið tölvunni í vasann og þurfa ekki að hafa áhyggjur af rafhlöðunum vikum saman. Þegar við bætist að hægt er að fá fyrir PalmPilot fyrirtaks lyklaborð, sem tekur ekki meira pláss en tölvan þegar búið er að brjóta það saman, er erftt að sjá hvaða tölva á eftir að velta henni úr sessi. Fótbolti í fyrstu persónu LiberoGrande LiberoGrande, leikur fyrir PlayStation frá Namco. TIL ÞESSA hafa flestir leikir sem fjalla um fótbolta verið afar keimlíkir, annaðhvort er verið að sparka bolta og reyna að skora allan tímann þar sem notandinn stjómar þeim liðs- manni er hefur boltann þá stundina eða hann stjórnar heilu liði með þvi að taka mikilvægar ákvarðanir um kaup á leikmönnum, annast fjármál liðsins og taka stórar ákvarðanir um hag þess. Nýlega kom út leikur sem grein- arhöfundur spáir að muni breyta talsvert sniði fótboltaleikja. Leikur- inn nefnist LiberoGrande og er einn af fáum fótboltaleikjum þar sem sá sem leikur velur sér einn liðsmann og „er“ hann allan leikinn. Þetta veldur því að leggja þatf áherslur á annað og fleira en þurft hefur í leikjum til þessa. Til dæmis má aldrei sleppa manninum úr augsýn ásamt því að nú öðlast allar leikjaá- ætlanir nýja merkingu, nú getur skipt öllu máli að viðkomandi standi sig í hverri áætlun og fylgir því meiri ábyrgð en sýnd hefur verið tíl þessa. Hægt er að velja um töluvert mörg sjónarhom en skemmtilegt er að spila leikinn frá fyrstu persónu sjón- arhorninu því það gerir hann afar raunverulegan, nokkuð sem til þessa hefur nokkuð skort í íþróttaleikjum. Valið stendur á milli aragrúa leik- manna sem allir hafa nákvæmlega sömu persónueinkenni í leiknum og í raunveruleikanum. Allar hreyfingar leikmanna eru af- ar liprar og flottar sem, eins og fót- boltaleikjaunnend- ur vita, skiptir miklu máli ef horft er á í návígi. Grafík leiksins er af- ar vel unnin og ásamt góðri greind allra leik- mannanna á vellinum gef- ur hún leiknum nákvæm- lega þá ímynd er framleið- endur ætluðu honum; aukinn raunveruleika og aukna ábyrgð. Ef fótboltaaðdáandi leynist í ein- hverjum er lesa þessa grein ætti leikur þessi að vera kjörinn bæði til þess að ná aukinni æfingu í leikkerf- um og fleiru, sem og til að skemmta sér vel í afar góðum leik. Ingvi M. Árnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.