Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 47
Profkjor
Útdráttur greina um prófkjör vegna alþingiskosninga vorið 1999.
Greinarnar eru birtar í heild á Netinu www.mbl.is
Styðjum
Vilhjálm
Iris Ama
Jóhaiinsdóttir
Iris Arna Jóhannsdóttir, háskólanemi,
skrifar:
Alltaf er þörf á
ungu og kraft-
miklu fólki til
starfa í stjómmál-
unum. Nú þegar
nokkur manna-
skipti eni í sjón-
máli í liði Samfylk-
ingarinnar er lag
að koma ungum
manni á Alþingi íslendinga. Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson hefur gefið
kost á sér í prófkjöri Samfylkingar-
innar og þar er kominn verðugur
fulltrúi unga fólksins. Duglegur
hugsjónamaður sem hefur mikla
reynslu til að bera eftir störf sín í
forystu stúdenta hér í Háskólanum.
Vilhjálmur er mikill baráttumaður
fyrir jafnrétti kynjanna og fara
skoðanir okkar mjög svo saman í
þeim málaflokki og nú sem
endranær þarf rödd jafnréttisins að
heyrast í sölum Alþingis.
Vilhjálmur hefur verið samnem-
andi minn í lagadeild Háskóla ís-
lands um nokkun'a missera skeið og
þekki ég hann að góðu einu og veit
að þarna fer maður orða sinna.
Maður sem er fylginn sér og vinnur
af dugnaði og heilindum að hags-
munamálum stúdenta og barna-
fólks, sem og öllum öðrum málum
sem hann lætur sig vai-ða og tekur
sér fyrir hendur. Eg skora á alla að
taka þátt í prófkjöri Samfylkingar-
innar og kjósa Vilhjálm H. Vil-
hjálmsson. Ki-aftmikinn fulltrúa
nýrrar kynslóðar sem talar röddu
okkar allra.
►Meira á Netinu
BIODROGA
jurtasnyrtivörur
c^iella
Bankastræti 3, sími 551 3635.
Innheimtukerfi
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfislhroun
Veljum
Jóhönnu
til forystu
Páll Halldórsson eðlisfræðingur skrif-
ar:
I áratugi hefur
Jóhanna Sigurðar-
dóttir unnið að
hagsmunum al-
þýðufólks og gegn
forréttindum og
spillingu. Þannig
hefur hún áunnið
Pán sér almenna tiltrú
Halldórsson Og VÍrðíngU. Það
væri því bæði glæsilegt og trúverð-
ugt ef félagshyggjumenn kysu Jó-
hönnu til að leiða fyrsta sameigin-
lega lista sinn í Reykjavík.
Jóhanna er utan flokka en býður
sig fram í hólfi Alþýðuflokksins. Það
hefði verið í andstöðu við allt sem
hún stendur fyrh' að þiggja
gjafasæti á listanum meðan aðrir
verða að berjast fyrir sætum sínum.
Hún átti því ekki aðra kosti en að
þiggja boð Alþýðuflokksins eða
hætta í pólitík. Sem betur fer valdi
hún fyrri kostinn.
Prófkjörsreglumar eru þröngar
og takmarka valmöguleikana. Þrátt
fyrir það hvet ég allt félagshyggju-
fólk til að fjölmenna í prófkjörið og
kjósa Jóhönnu Sigurðardóttur í
fyrsta sæti.
► Meira á Netinu
Ofnasmiðja Reykjavíkur
SlP1 Vagnhöfðal 1 112 Reykjavík
Hágæða heitavatnsofnar frá Danmörku.
BBRUGMAN
HANDKLÆÐAOFNAR
Steypusögun.kjarnaborun,
múrbrot, smágröfur. Lgfc)
Leitið tilboða.
---------------- THOR
S:577-5177 Fax:577-5178
HTTP://WWW.SIMNET.IS7rHOR
habíba
BJARG
v/Suðurgötu 100, R.vík.
S. 893-7710/893-7080
„Vegið að ungu
fðlki og öldruðum“
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi ályktun
Stjórnar sameinaðs stéttarfélags
um skattahækkanir og hækkanir
þjónustugjalda:
„Undanfarnar vikur hafa sveit-
arfélögin í iandinu ákveðið stór-
felldar hækkanir á þjónustu og
sköttum.
Með þessum aðgerðum er í
mörgum tilvikum svipt burt öll-
um launahækkunum um áramót-
in sem samið var um í kjarasamn-
ingum á vormánuðum 1997.
Með þessum aðgerðum er veg-
ið að ungu fólki og öldruðum með
sérstökum hækkunum sem bein-
ast gegn þessum hópum. Þetta er
sérstaklega smekklaust á ári
aldraðra. Við mótmælum því sér-
staklega að launahækkanir ASÍ-
félaganna séu skýring á aðgerð-
um sveitarfélaganna.
Sveitarfélögin hafa hins vegar
samið við ýmsa sérhópa um um-
framhækkanir sem vitað var að
ekki var innstæða fyrir. Við höf-
um ítrekað varað við þessari
stefnu opinberra aðila, sem leiðir
til aukins ójafnaðar í launamál-
um.
Forsvarsmenn sveitarfélag-
anna hafa með þessum siðlausu
hækkunum sýnt að þeir virða
ekki markmið gerðra kjarasamn-
inga. Hluti af áformaðri hækkun
ráðstöfunartekna átti að koma í
gegnum skattalækkanir.
Þessar ákvarðanir opinberra
aðila gefa ekki tóninn fyrir nýjan
langtímasamning í kjaramálum
fyrir almennt launafólk."
Fyrsta full-
orðinsmót
Hellis
TAFLFELAGIÐ Hellir hefur nú
með nýju ári ákveðið að hleypa af
stokkunum nýjum þætti í starf-
semi félagins. Boðið verður upp á
skákmót fyrir skákmenn 25 ára
og eldri. Þessi skákmót verða
einu sinni í mánuði til að byrja
með. Ef vel gengur má gera ráð
fyrir að þau komi til með að vera
oftar.
Fyrsta fullorðinsmót Hellis
verður haldið mánudaginn 18.
janúar kl. 20. Teflt verður í Hell-
isheimilinu, Þönglabakka 1,
Mjódd. Tefldar verða 7 skákir
eftii' Monrad-kerfi. Tefldar verða
10 mínútna skákir. Engin þátt-
tökugjöld verða, a.m.k. ekki til að
byija með.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu Hellis: http://www.
simnet.is/hellir.
Xj
FRISTUNDANAM I MIÐBÆJARSKOLA OG MJODD
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA. Dag- og kvöldnámskeið (11 vikur)
íslenska fyrir útlendinga 1.-5. flokkur. Talflokkur 1 og 2. Ritun ( stafs. og málfr.)
íslenska - talflokkar fyrir útlendinga
ERLEND TUNGUMÁL
byrjenda- og framhaldsnámskeið (8-11 vikur)
Gríska Arabíska
ítalska Japanska
Portúgalska
Danska
Norska
Sænska
Enska
Franska
Hollenska
Lettneska
Þýska Spænska Rússneska
Serbó-Króatíska
TALFLOKKAR (8-10vikur)
Áhersla lögð á tjáningu daglegs máls, lesnar skáldsögur, smásögur, blaðagreinar o.fl.
Enska 1 og 2. ítalska. Rússneska. Spænska.
VERKLEGAR GREINAR - MYNDLIST (7-11 vikur)
Fatasaumur
Prjón
Myndprjón
Postulín
Bókband
Glerlist
Skrautskrift
Húsgagnaviðgerðir
Matreiðsla fyrir
karlmenn
Tréútskurður
Teikning 1 og 2
Olíumálun
Vatnslitamálun
NAMSKEIÐ FYRIR BÖRN (10 vikur)
Tungumál: Danska, norska, sænska,
ítalska, víetnamska, þýska.
Leiklist-Leiksmiðja fyrir börn, 9-12 ára
YMIS NAMSKEIÐ (10 vikur)
Listasaga. Þorsteinn Eggertsson.
Samskipti og sjálfsefli. Jórunn Sörensen.
Frímerkjasöfnun. Sigurður H. Þorsteinsson.
Trúarbrögð heims. Dagur Þorleifsson.
Framhaldslíf - trú og sagnir. Dagur Þ.
Tarotspil. Carl Marsak.
Heimspeki. Ármann Halldórsson
STÆRÐFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ SKÓLAFÓLK (3 vikur)
Nemendur mæta með eigið námsefni og fá aðstoð eftir þörfum. Hámark 5 í hóp
INNRITUN STENDUR YFIR í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1.
Upplýsingar í síma 551 2992. Netfang: nfr@ rvk. is http://www.rvk.is/nfr
Námskeiðsgjald miðast við kennslustundafjölda og er frá kr. 6.000 - 11.000
Námskeiðsgjald greiðist áður en kennsla hefst.
Svo lengi lærir sem lifír
iYMIN
Opið í
dag 11-18
Fosshálsi 1 - Sími 577-5858