Morgunblaðið - 16.01.1999, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 16.01.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 55 míns er við hittumst fyrir norðan sem var þó alltof sjaldan. Það fínn ég nú þegar það verður ekM oftar. Okk- ur finnst alltaf sjálfsagt að við hitt- umst aftur. En guð ræður og gefur okkur aftur ljós og græðir sárin. Þau voru samrýnd systkini Krist- jáns öll fimm og stóðu saman þegar áföll gengu yfír, glöddust og syrgðu saman. Alltaf var Kristján minn glað- ur og smitandi hlátur hans innilegur þó ekki væri hann skaplaus frekar en aðrir duglegir menn. Hann tók þátt í því sem var að gerast, var virkur í ungmennafélagi, kirkjukór og karla- kór, og vai' vinmargur. Hann stund- aði vinnu í Mjólkurstöðinni á Blöndu- ósi og aðra vinnu ef bauðst, var ólat- ur ef á þurfti að halda, gaf sér tíma tii að skreppa á hestbak ef færi gafst. Sveitin okkar hefur misst góðan son sem við gleymum ekki. Pú Ijós, sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, - í gegnum bárur, brim og voðasker. Nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fdgru dyr og engla þá, sem bam ég þekkti fyr. (MJoch.) Elsku Stefanía, dætui-, móðir, fað- ir, systkini og alln* aðrir aðstandend- ur. Guð gefi ykkur styrk og blessun um ókomin ár. Halldóra Hilmarsdóttir og Ólafur Heiðar Jónsson. ,Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga,“ segir í þekktu Ijóði og nærtækast er að líta svo á að með því séum við minnt á hversu tilbúin við verðum að vera að meðtaka hina eðli- legu hringrás - að börn fæðist og aðrir eldri falli írá. Að guðirnir kalli til sín, nánast fyrirvaralaust, ungt fólk í blóma lífsins er erfiðara að skilja. Við spyrjum okkur að því af hverju sumir eru kallaðir frá hálfn- uðu jarðlífí og aðrir særðir djúpu sári missis og saknaðar. Engin skýiúng virðist á sorgarstund geta réttlætt hina djúpu gjá undir fótum okkar. Guð einn veit að sumum, eins og Kri- stjáni frænda mínum, er ætlað sér- stakt hlutverk - betri skýringu fáum við ekki - og verðum að sætta okkur við þar til kemur að endurfundum hinum megin. Ég get ekki sagt að ég hafí þekkt Kristján frænda minn náið enda höfð- um við arkað hvort sinn æviveginn og sáumst aðeins þegar annað sveigði inn á leið hins. Eini fasti liðurinn í samvistunum varð með tímanum þeg- ar við fjölskyldan komum í göngur og réttir norður í Laxárdal. Dýrmæt minning er frá því við spjölluðum saman í síðasta sinn í göngunum liðið haust. Eftir erfiða reið hafði Kristján ákveðið að láta reiðskjóta sinn kasta mæðinni og lífga upp á andann rétt áður en komið var að réttinni. Hann stóð þai- skammt frá og kallaði eftir frænku sinni að koma af baki. Bros- andi út undir eyru með hvíta hárið allt út í loftið gaf hann til kynna að hrósvert væri af skrifstofublókinni að drífa sig í göngur með sveitavargn- um. Ég fylltist stolti - betra hrós var ekki hægt að hugsa sér - og sólin varpaði geislum sínum yfii' ríkidæmi hans; ijallahringinn ög grösugan dal- botninn. í huga mínum líður spjallið áfram í ljúfum tóni eins og í kvik- mynd og einn rammann hef ég tekið sérstaklega frá til að kalla fram úr minningasafni um góðan dreng og mikinn mann um ókomna tíð. Nokkru síðar þennan sama dag brustu himnarnir og hellirigning steyptist yfir menn og skepnur. Nú eins og þá dimmir yfir í lífi okkar og erfiðast eiga Stefanía og dæturnar þrjár. Við hin stöndum hjálparvana hjá vitandi vits um að aldrei verði hægt að fylla upp í skarðið hans Kri- stjáns. Okkar eina von er að geta með veikum mætti stutt mæðgumar til að öðlast þrek til að halda áfram og lifa við missinn. Stefanía, Dagný, Jenný og Árný, megi hlý nærvera hans fylgja ykkur og gera - með tíð og tíma - heilar og sterkar á ný. Anna Guiuihildur Ólafsdóttir og ijölskyldan Brávallagötu 16. Kristján bóndi Frímannsson á Breiðavaði er látinn, langt fyrir ald- ur fram. Ég sakna hans. Lát Krist- jáns er ansi mörgum harmsefni. Ungur maður í blóma lífsins fór halloka í baráttunni við riddarann á þeim bleika. Við Kiddi vorum sam- býlismenn í litlu samfélagi í um 25 ára skeið. Kiddi var ekki hár í loft- inu þegar það sambýli hófst, en hann óx úr grasi og sannaði sig sem fullgildur einstaklingur í samfélag- inu, reyndar svo vandlega að á sum- um sviðum skaraði hann fram úr, og gerir enn eftir dauða sinn. Hann var frjálsíþróttamaður í fylkingar- brjósti og ungu fólki hvatning til átaka og sjálfseflingar. Um árabil var hann máttarstólpinn í sýsluliði USAH, og sparaði sig þar hvergi. - Þar sem hann lagði að hönd munaði um það. Vegna aldursmunar var nokkurt bil á milli okkai* um skeið, eða þar til við fórum að syngja saman í karla- kórnum okkar. Ég veit að söngurinn og félagsskapurinn í kring um hann var Kidda hugleikinn, og líklega er hann sá okkar kórfélaga sem best hefur mætt á æfingar gegn um tíð- ina. Kórinn kveður góðan félaga í kirkjunni í dag með fáeinum lögum sem honum voru kær. Þá var hestamennskan áhugamál Kidda. Hann átti á húnvetnska vísu fáein hross og falleg, og hrossakyn- bætur voru honum metnaðarmál, og sæmilega ríðandi naut hann sín best. Kristján var íhaldssamur maður í bestu merkingu þess orðs, breyting- ar breytinganna vegna voru honum lítt að skapi. Nokkrum sinnum þurfti ég að leita til Kidda um aðstoð, og þai* var til manns að moka, handtökin hans sviku ekki. Ég veit að stundum þegar hann var beðinn um greiða lét hann sína hagsmuni sitja á hakanum. Öllu hjálpsamari maður var vandfundinn, enda stóðu að honum þeir stofnar sem heldur vildu leggja hönd að starfi en hafa í vasanum. Á glöðum stundum var Kiddi hrók- ur alls fagnaðar, orðheppinn og skemmtilegur, og þannig geymist hann í minningunni. Sérstaða Kristjáns var sú að hann þorði að vera hann sjálfur, hafa skoð- anir sem stundum fóru á skjön við hópinn. Slíkum mönnum fer því mið- ur fækkandi. Glæsilegur ungur maður er geng- inn; þeir sem þekktu hann sakna hans mjög. Deddý og dætrunum þremur, svo og foreldrum Kidda og systkinum sendum við einlægar samúðarkveðj- ur. Minning um drengskaparmann lif- ir. Ágúst Sigurðsson og fjölskyldan Geitaskarði. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Hávamál.) Ég kynntist Kiistjáni, eða Kidda, eins og hann var oftast kallaður haustið 1975. Þá fluttist ég í Langa- dalinn með foreldrum mínum og systkinum. Ég fór í skóla á Fremsta- gili þann veturinn og ég man hvað ég kveið fyrir. Þekkti ekkert af krökk- unum, kom úr Reykjavík og var nokkuð viss um þetta yi*ði erfitt. Það var ekki svo, krakkarnir voru skemmtilegir og fljótt mynduðust tengsl sem haldast enn. Kiddi var þarna, árinu yngri en ég, stór og þrekinn strákur. Hann sýndi strax þá mikinn viljastyrk, ákveðni og hafði sínar eigin skoðanir á hlutunum, en umfram allt sást það að hann var vin- ur vina sinna og raungóður. Hann hefði vafalítið getað náð mjög langt í íþróttum, en hugur hans stóð ekki þangað, hugurinn var hjá hestunum og þó mest hjá Deddý eftir að hann kynntist henni. Þessa daga eftir að ég frétti af andláti míns gamla skólabróður og félaga, hefur hugurinn reikað til baka. Öll árin okkar saman í skóla, allar þær göngur og réttir sem við fórum í og svo ótalmargt annað. Það er ömurlegt til þess að hugsa að ég skuli aldrei eiga eftir að ríða sam- hliða honum aftur frá Kirkjuskarði niður í Tungu, að við eigum aldrei eftir að hlæja saman að einhven-i endurminningunni úr skóla, aldrei eftir að syngja saman og aldrei eftir að sjást aftur. Ég, eins og svo marg- ir aðrir, á góðar minningar um dreng sem fallinn er frá allt of snemma. Ég bið almættið að vaka yfir og vernda Deddý og dætur þeirra, foreldra hans,. systkini, vandamenn og vini. Hildur Þöll. Sú sorgarfregn bai'st okkur vinnu- félögunum í mjólkursamlaginu að Kristján vinnufélagi okkar væri lát- inn. Slíkar fregnir koma alltaf í opna skjöldu þrátt fyrir vitneskju um veik- indi því vonin um bata og betri heilsu er öllu öðru yfirsterkari. Kristján var aðeins 31 árs og hefur stai’fað í mjólkursamlaginu nánast samfellt frá 18 ára aldri. Kristján var góður vinnufélagi, ósérhlífinn, dug- legur og tók því vel að breyta til og hlaupa á milli deilda eins og fylgir gjarnan minni vinnustöðum. Hann vai- jafnvígur í flestum deildum sam- lagsins, en hans aðalstarf var í þurr- mjólkurgerð og við kyndingu, einnig var hann öryggistrúnaðarmaður og lyftarastjóri. Kristján var náttúrubam og unni sinni sveit og sínum afrétti og auðvelt var að skilja vellíðan hans í sveitinni þegar maður eftir fimm mínútna akstur stóð á hlaðinu á Breiðavaði og fann kyn*ð og angan náttúninnar, í stað þrengsla og hávaða þéttbýlisins í næsta nágrenni. Kristján var fastur fyrir og var ekki tilbúinn að versla með skoðanir sínar. Söngmaður var hann góður og ekki duldist það okkur vinnufélögun- um að karlakórinn og söngurinn var honum mikils virði. Það er erfitt að skilja tilgang lífs- ins á slíkum stundum en trúin á guð og trúin á framtíðina er það sem hægt er að reyna að hugga sig við á stundum sem þessum. Elsku Deddý, Dagný, Jenný, Ár- ný, foreldrar og systkini. Við vinnufé- lagarnir hugsum til ykkar og fjöl- skyldunnar á erfiðri stundu en minn- um á að minningin um góðan mann, pabba, son og bróður verður ekki frá ykkur tekin og hana skulum við varð- veita. Vinnufélagarnir úr mjólkursamlaginu. Nú ríkir kyrrð í djúpum dal, þótt duni foss í gljúfrasal. I hreiðrum fuglar hvfla rótt, þeir hafa boðið góða nótt Nú saman leggja blómin blöð, er breiddu faðm mót sólu glöð. I brekkum fjaUa hvíla rótt þau hafa boðið góða nótt. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut, er aftansHnið hverfiir hljótt það hefur boðið góða nótt. Fallinn er frá, langt um aldur fram, vinur okkar og félagi Kristján Frímannsson. Liðlega tvítugur gekk Kristján til liðs við Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og varð fljót- lega einn af máttarstólpum kórsins. Sönggleði hans og áhugi ásamt góðri söngrödd og einstöku næmi á lög og texta gerðu hann að lykil- manni sem við félagar hans treyst- um á. Það er erfitt að sætta sig við þá tilhugsun að jafn lífsglöðum og hraustum ungum manni skuli vera kippt burt í blóma lífsins, en minn- ingarnar lifa og verða okkur sem eftir stöndum styrkur og hvatning. Við munum þig Kristján, á æfing- um og tónleikum þar sem þú lagðir þig alltaf allan fram með jákvæðum huga og metnaði. Við munum þig kátastan allra á góðum stundum þegar þú óþreytandi og ólgandi af lífsgleði dreifst upp fjöldasöng. Og dýrmætt er í minningunni þegar við sungum saman hinsta sinni heima hjá þér á Breiðavaði. Þú barst merki veikinda þinna, en sönggleðin var sú sama. Kristján á Breiðavaði var vinsæll og vinamargur því að hann var traustur liðsmaður í leik og starfi. Hann átti líka það sem mest er um vert, góða fjölskyldu sem stóð með honum í veikindum hans og veitti honum styi'k til að takast á við veik- indin af kjarki og æðruleysi. Eiginkonu, dætrum, foreldrum og öðrum í fjölskyldu Kristjáns vottum við kórfélagar okkar innilegustu samúð. Félagar í Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda faðir og afi, ÁSGRÍMUR BJÖRNSSON, Hvanneyrarbraut 55, Siglufirði, lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar fimmtudaginn 14. janúar. Útförin augiýst síðar. Guðbjörg Friðriksdóttir, Sigurður Ásgrímsson, Ingibjörg Ó. Þorvaldsdóttir, Friðrik M. Jónsson, Birna Hauksdóttir, Björn Z. Ásgrímsson, Sóley Ólafsdóttir, Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir, Jónas Jónasson, Stefán Ásgrímsson, Hrefna Hjálmarsdóttir og barnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURBJÖRN ÁRNASON frá Vestmannaeyjum, Skipholti 21, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 31. desember sl. Útförin fór fram frá Fossvogskapellu mánu- daginn 11. janúar. Kristín Birna Sigurbjörnsdóttir, Snæbjörn Sigurbjörnsson, Hafþór Sigurbjörnsson, Sigurður R. Sigurbjörnsson, Ingibjörg Elín Bl. Sigurbjörnsd., Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir, Páll I. Blöndal Sigurbjörnsson, Finnbogi Sigurbjörnsson, Sigurbjörn Sigurbjörnsson, Svanur Sigurbjörnsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, ÓLÖF MATTHÍASDÓTTIR, Kópavogsbraut 1b, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, fimmtu- daginn 14. janúar sl. Útför hennar verður auglýst síðar. Stefán Svavars, Þorsteinn J. Stefánsson, Margrét Kristjánsdóttir, Svavar Stefánsson, Auður B. Kristinsdóttir og fjölskyldur. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, JÓHANN FRÍMANN PÉTURSSON frá Lækjarbakka, Skagaströnd, lést miðvikudaginn 13. janúar. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd tengdabarna, afabarna og langafabarna. Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Pétur Steinar Jóhannsson, Gissur Rafn Jóhannsson, Gylfi Njáll Jóhannsson. t Hjartkær eiginmaður minn, BIRGIR GUÐMUNDSSON, Hjaltabakka 8, lést á Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn miðvikudaginn 13. janúar sl. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Helena Svavarsdóttir. t Ástkær móðir okkar, PÁLÍNA ÞORSTEINSDÓTTIR frá Hlíð í Álftafirði, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtu- daginn 14. janúar. Minningarathöfn og jarðarför auglýst siðar. Börn hinnar látnu. fN*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.