Morgunblaðið - 16.01.1999, Page 56

Morgunblaðið - 16.01.1999, Page 56
56 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær móðir okkar, MARGRÉT DAGBJARTSDÓTTIR, Höskuldarvöllum 19, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 14. janúar sl. Fyrir hönd aðstandenda, Einar Guðlaugsson og Esther Þórðardóttir. Eiginmaður minn og faðir, JENS KJARTANSSON fyrrum bóndi, Þórdísarstöðum, Eyrarsveit, andaðist að kvöldi fimmtudagsins 14. janúar. Kristjana Jóhannesdóttir, Jens Kristján Jensson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi, SIGÞÓR BJARNASON frá Tunghaga, Völlum, sem lést föstudaginn 8. janúar sl., verður jarðsunginn frá Vallaneskirkju mánudaginn 18. janúar kl. 14.00. Þuríður Jónsdóttir, Sigurður Sigþórsson, barnabörn og barnabarnabörn + Bróðir okkar, SIGURÐUR LOFTSSON fyrrum bóndi, Hrafnhólum, Kjalarnesi, til heimilis í Hlaðhömrum, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju mánudaginn 18. janúar kl. 14.00. Björn Loftsson, Katrín Loftsdóttir. + Hugheilar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð við andlát og jarðarför bróður okkar, BJARNAJÓNSSONAR stýrimanns, Álfhólsvegi 133a, Kópavogi. Systkini hins látna. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, nær og fjær, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar fóstru minnar og frænku, SIGRÍÐAR TYRFINGSDÓTTUR, Litlu-Tungu, Holta- og Landsveit. Guð blessi ykkur öll. Aðalheiður Þorsteinsdóttir og fjöiskylda. + Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna fráfalls bróður míns og föðurbróður, ÞÓRARINS NÍELSSONAR, Oddagötu 5, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Hlíðar. Sigurður Nfelsson, Jón Friðjónsson. MARGRÉT ÞÓRÐARDÓTTIR EINAR ÁSGEIRSSON + Margrét Þórð- ardóttir fæddist á Reykjuin á Skeið- um 22. ágiíst 1907. Hún lést 6. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskapellu 15. janúar. Einar Ásgeirsson fæddist 16. ágúst 1902. Hann lést í Landspítalanum 4. apríl 1996 og fór út- för hans fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 12. apríl 1996. Á tregafullri saknaðarstund viljum við tengdadætur Margrét- ar Þórðardóttur og Einars Ás- geirssonar, minnast þessara sómahjóna með örfáum orðum. Einar Ásgeirsson lést þ. 4. apríl 1996, Margrét Þórðardóttir lést 6. janúar síðastliðinn á dvalarheimil- inu Seljahlíð, þar sem hún hefur dvalið síðustu árin og naut þar hjúkrunar sem við viljum þakka fyrir. Það eru nú liðin um 42 ár síðan við komum inn í fjölskylduna að Eskihlíð 12A. Þar var okkur tekið með slíkri hlýju og kærleika, að engin orð eru nógu sterk til þess að lýsa því ástríki sem tengdaforeldrar okkar hafa sýnt okkur í rúma 4 ára- tugi. Og ekki dró úr gleðinni í Eski- hlíðinni þegar barnabörnin komu í heimsókn og voru ófá handtökin sem Margrét lagði á sig til þess að gleðja bamabörnin á afmælisdögum þeirra og á jólum meðan kraftar entust, jafnvel eftir að sjónin var al- veg þrotin. Ætíð voru málin krufin þegar fjölskyldan kom saman og er ljúft að minnast hvað Margi-éti var létt um mál og hláturmild við öll slík tækifæri. Einar var einnig léttur í góðra vina hópi. Þegar við h'tum til baka eigum við engin orð yfir það lán að fá að kynn- ast slíkum öndvegismanneskjum sem Margrét og Einar voru. Barnabörnin, sex að tölu, þakka ástkærri ömmu og hugljúfum afa ógleymanlegar samverustundir, barnabarnabörnin sem eru orðin sextán, öll biðja þau íyrir kveðjur. Og við tengdadæturnar biðjum almættið að blessa minningu þess- ara hugljúfu hjóna. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Sigríður og Björg Ragnheiður. ERLING ADOLF ÁGÚSTSSON + Erling Adolf Ágústsson fæddist í Vest- mannaeyjum hinn 9. ágúst 1930. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hinn 8. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 15. janúar. Erling Ágústsson hafði mikla þörf fyrir að miðla öðrum og nutu margir góðs af því. Nefna má að við krakkamir og unglingarnir í hverf- inu báram hlýhug til Erlings fyrir að koma nýjustu stefnum og straumum í dægurtónlist til okkar. Erling beitti ýmsum aðferðum til þess sem ekki var vel séð af öllum. Það má segja að ferill Erlings hafi byrjað með því að hann og Guð- jón Kristófersson, vinur hans og ná- granni, byrjuðu á því að spila á gít- ar, syngja saman og jóðla á skemmtunum niðri í Höll. Þegar Haraldur Guðmundsson, prentari og tónlistarmaður, kom til Eyja hófst mikið upp- gangstímabil í tónlist- arlífi Eyjanna. Þá var stofnaður HG sextett sem var góð hljómsveit og blandaður kvartett, sem í voru, auk Erl- ings, Hallgrímur Þórð- arson, Aldís Sveins- dóttir og Jakobína Hjálmarsdóttir. Síðar fór Erling að syngja einn með hljóm- sveitum í Hölhnni og með HG sextett í Kaffi- stjömunni. Þar var Erl- ing líka þjónn og voru mikil hlaup hjá þjóninum unga þegar beðið var um gos og óskalag á sama tíma, en maðurinn var léttur á sér. Töluvert djasslíf var í Eyjum á þessum tíma þegar djassgeggjarar frá meginlandinu heimsóttu Eyjar og blandaði Erling sér í hópinn. Er- ling söng mikið með hljómsveit Guðjóns Pálssonar, þar sem fyrir voru Guðni Hermannsen, Gísli Bi-yngeirs, Siggi á Háeyri o.fl. En eftir að Erling flutti úr Eyjum söng hann um tíma með hljómsveit Ama Elfars á Röðh. Skilafrestur minningargreina, EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. + Þökkum af alhug samúð og vináttu við andlát og útför INGVARS ÞÓRÐARSONAR, Neðstaleiti 4, Reykjavik. Ingibjörg Svava Helgadóttir, Dóra Ingvarsdóttir, Ólafur Oddgeirsson, Helgi Ingvarsson, Bára Sólmundsdóttir, Bragi Hannibalsson, barnabörn og barnabarnabörn. Lítið hef ég heyrt í Erling seinni árin, en hann var þó með á „Dögum lita og tóna“ 1992 og gerði lukku. Enn fremur kom hann á þjóðhátíð fyrir mörgum árum og gerði allt vitlaust, svo rándýru skemmtikröft- unum úr Reykjavík þótti nóg um. Erling hafði greinilega engu gleymt. I desember 1959 fór Erling til Reykjavíkur til að gera plötur, en var svo óheppinn að fá hálsbólgu og tafðist um viku vegna þess, en á endanum tókst þó að hljóðrita nokk- ur lög, m.a. Oft er fjör í Eyjum, Þú ert ungur enn, Við gefumst aldrei upp. Þessi lög hafa elst vei og eru enn spiluð á útvarpsstöðvunum. Er- iing samdi textana sjálfur við erlend lög, en hann handskrifaði ljóð í glósubækur sem fóru víða, en eru nú glataðar. Það kom snemma í ljós að hann var á undan sinni samtíð og þegar hann var komungur tók hann upp á því að setja hátalara út í glugga og útvarpaði nýjustu popptónlist út yf- ir Brekastíginn til ánægju fyrir íbú- ana, geri ég ráð fyrir. Eftir að hafa kynnst útvarps- tækni hjá Guðmundi (Mugg) Helga- syni útbjó Erling sendi og hóf að út- varpa nýjustu tónlist, sem þá var spiluð á vinsælustu stöðvunum í Evrópu á 212 m, eða 1200 k/riðum, enn fremur var útvarpað á stutt- bylgju á 50 m og á FM 93. Eg tel nærri víst að þetta hafi verið fyrsta „frjálsa" útvarpsstöðin í Eyjum. Stóri bróðir leit þessa starfsemi alvarlegum augum og eftirlitsmenn íslenska lýðveldisins voru stundum á ferðinni í Eyjum, en Eyjamenn stóðu saman um að verja sína út- varpsstöð og létu vita svo að eftirlit- ið greip ævinlega í tómt. Á þessum tíma ætluðu sjálfskip- aðir menningarvitar að stjórna því hvað múgurinn hlustaði á, en þegar best lét var boðið upp á Comedian Harmonists, James Last og Art Van Dam-kvintett á Gufunni. Út- varpið hjá Erling var í gangi til 1960, en Erling flutti til Reykjavík- ur 1961-2 og flutti síðan tii Ytri- Njarðvíkur og starfaði á Keflavík- urflugvelli við ýmsar viðgerðir. Mér verður oft hugsað til þess nú þegar framboðið af menningarefni er svo yfirþyrmandi, sem nú er, þegar Erling barðist fyrir því með kjafti og klóm að fá að miðla til fólks sem þyrsti í að heyra nýja tónlist. Erling átti búnað til að hlusta á stöðvarnar sem voru vinsælastar og vil ég nefna Radio Luxemburg, Radio Caroline og London West End Wl. Eg mun ævinlega minnast Erl- ings Ágústssonar með hlýhug. Ingi- björg, böm og aðrir vandamenn, ég votta ykkur samúð mína. Bjarni Jónasson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.