Morgunblaðið - 16.01.1999, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. JANÍJAR 1999 57
KIRKJUSTARF
MESSUR Á MORGUN
Víðistaðakirkja
Safnaðarstarf
Kirkjudagur
eldri borgara í
Víðistaðakirkju
HINN árlegi sameiginlegi kirkju-
dagur eldri borgara í Garða- og
Bessastaðasóknum, auk Víðistaða-
sóknar í Hafnarfirði, verður á morg-
un, sunnudag.
Guðsþjónusta verður í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfu'ði kl. 14. Síðan
verður kirkjugestum boðið í kaffi og
meðlæti í safnaðarheimilinu í
Kirkjuhvoli í Garðabæ. Boðið verður
upp á upplestur, söng og hljóðfæra-
leik.
Sú hefð hefur skapast að íbúar í
ákveðnum götum í Garðabæ hafa
tekið að sér að framreiða meðlæti í
kaffisamsæti sem þetta og í þetta
sinn hafa íbúar í Hlíðarbyggð
brugðist við af miklum myndarbrag.
Eru þessu ágæta fólki færðar þakk-
ir fyrir hlýjug sinn gagnvart kirkju-
stai-finu.
Rútuferðir frá Kirkjuhvoli kl.
13.30 og Hleinunum kl. 13.40 í guðs-
þjónustuna og síðan til baka í kaffi-
samsætið sem áætlað er að hefjist
kl. 15.30.
Bessastaðasókn: Erlendur sér um
akstur af Alftanesi. Hafið samband
við Auði Aðalsteins, Hvoli, í síma
565 0952.
Hans Markús Hafsteinsson,
sóknarprestur Garðaprestakalls.
Æðruleysismessa
í Dómkirkjunni
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 17. janú-
ar verður helgistund tileinkuð þeim
er leita eftir tólfsporaleiðinni að bata
í áfengissýki sinni eða sinna nánustu.
Æðruleysismessur vormisserisins
fjalla um æðri mátt og trúna í spor-
unum tólf eins og kirkjan okkai' skil-
ur það. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir
flytur hugleiðingu um fyrsta sporið,
sr. Kai'l V. Matthíasson annast bæn-
argjörð og sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson leiðir samkomuna. Einhver
mun segja sögu af reynslu sinni í
baráttunni og í lokin gefst fólki kost
á að koma fram til fyrirbænar. Létt
tónlist er eitt einkenni æðruleysis-
messanna og er hún í höndum KK
og Bræðrabandsins.
Dómkirkjan verður opnuð kl. 20 til
þess að fólk hafi tækifæri til að fá sér
kaffisopa og geti spjallað saman á
undan.
Harald Mydland
í KEFAS
HINN 16. janúar verður Harald
Mydland frá Noregi gestaprédikari í
Kefas, kristnu samfélagi, Dalvegi
24, Kópavogi.
Harald Mydland starfar sem rit-,
markaðs- og starfsmannastjóri
TVoens Bevis í Sarons Dal. Hann er
kominn til Islands til að kynna starf-
ið sem Ai-il Edvardsen byrjaði fyrir
40 áram og til að boða fagnaðarer-
indið.
Harald hefur farið í margar trú-
boðsferðir í Skandinavíu en kemur
nú í fyrsta sinn til íslands.
Samkoman hefst kl. 14.00 og allir
eru hjartanlega velkomnir.
Samkirkjuleg
bænavika hefst
á morgun
Á MORGUN, sunnudaginn 17. jan-
úar, hefst hin árlega samkirkjulega
og alþjóðlega bænavika um einingu
kristinna manna.
Bænavikan hefst með guðsþjón-
ustu í Dómkirkjunni á morgun kl.
11 og prédikar þar Vörður Trausta-
son, forstöðumaður Hvítasunnu-
safnaðarins í Reykjavík.
Síðan verða nokkrar kvöldsam-
komur, sem allar hefjast kl. 20.30.
Miðvikudagskvöldið 20. janúar
verður samkoma í Kristskirkju í
Landakoti og prédikar þar Herra
Johannes Gijöen, biskup Kaþólsku
kirkjunnar á Islandi.
Fimmtudagskvöldið 21. janúar
verður samkoma í Herkastalanum
og prédikar þar Finn Eckhoff, for-
stöðumaður Áðventsafnaðarins.
Föstudagskvöldið 22. janúar
verður samkoma í Aðventkirkjunni
og prédikar þar sr. Örn Bárður
Jónsson, fræðslufulltrúi Þjóðkirkj-
unnar.
Bænavikunni lýkur laugardags-
kvöldið 23. janúar með samkomu í
Fíladelfíukirkjunni og þar prédikar
sr. Hjalti Guðmundsson.
Það er samstarfsnefnd kristinna
trúfélaga, sem stendur að bænavik-
unni og era allir hjartanlega vel-
komnh' á samkomurnar.
Sameiginleg
barnaguðs-
þjónusta
SAMEIGINLEG barnaguðsþjón-
usta Engjaskóla og Grafarvogs-
kirkju verður á morgun, sunnudag,
kl. 11.
Þar sýnir Furðuleikhúsið leikritið
„Sköpunarsöguna“. Handrit er eftir
Ólöfu Sverrisdóttur og leikhópinn.
Allir velkomnir.
Prestarnir.
Biblíuleshópur
BIBLÍULESHÓPUR mun hittast
reglulega í Grafarvogskirkju nú í
vor og mun sr. Halldór Gröndal,
fyrrverandi sóknarprestur Grensás-
prestakalls leiða hópinn og fjallað
verður um Markúsarguðspjall.
Hópurinn mun fyrst hittast mánu-
daginn 18. janúar næstkomandi kl.
18.15 í kirkjunni þar sem farið verð-
ur nánar yfir tímasetningu og nán-
ara fyrirkomulag. Allir era hjartan-
lega velkomnir.
Neskirkja. Biblíulestur kl. 10.30.
Lesið úr Matteusarguðspjalli. Allir
velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs-
son. Félagsstarf aldraðra kl. 15. Dr.
Sigurður Árni Þórðarson kemur í
heimsókn og sér um dagskrá. Kaffi-
veitingar. Allir velkomnir.
KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al-
menn samkoma kl. 14. Allir hjartan-
lega velkomnir. Gestaprédikari
Harald Mydland.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngri
barna (6 ára og yngri) kl. 11. TTT-
starf í safnaðarheimilinu Vinaminni
kl. 13.
Krossinn. Unglingasamkoma kl.
20.30 að Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Guðspjall dagsins:
Brúðkaupið í Kana.
(Jóh. 2.)
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fjölbreytt dagskrá
fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Örn Falkner. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11 við upphaf samkirkjulegu bæna-
vikunnar. Vörður Traustason, for-
stöðumaður Hvítasunnusafnaðar-
ins, prédikar. Fulltrúar safnaðanna
lesa ritningarorð. Sr. Hjalti Guð-
mundsson dómkirkjuprestur þjónar
fyrir altari. Organleikari Kjartan Sig-
urjónsson, sem stjórnar söng Dóm-
kórsins.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl.
14. Prestur sr. Sigurpáll Óskarsson.
Organisti Kjartan Ólafsson. Eyjólfur
Eyjólfsson leikur á þverflautu. Jónas
Guðmundsson syngur einsöng. Fé-
lag fyrrverandi sóknarpresta.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl.
11. Munið kirkjubílinn! Messa kl. 11.
Altarisganga. Kirkjukór Grensás-
kirkju syngur. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Sr. Ólafur Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnastarf kl. 11. Organisti Douglas
A. Brotchie. Sr. Jón D. Hróbjarts-
son.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Bryndís Valbjörnsdóttir
og sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
Messa kl. 14. Organisti Jakob Hall-
grímsson. Sr. Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 í Litla sal safnaðar-
heimilis. Prestur sr. Jón Helgi Þór-
arinsson. Organisti Jón Stefánsson.
Sögustund fyrir börnin í umsjón
Lenu Rósar Matthíasdóttur. Kaffi-
sopi eftir guðsþjónustu.
LAUGARNESKIRKJA: Kl. 11
messa og sunnudagaskóli. Upphaf
fermingarstarfs á vorönn. Ferming-
arbörn og foreldrar þeirra hvött til
þátttöku. Kl. 13 kyrrðarstund í dag-
vistarsalnum Hátúni 12 með þátt-
töku fermingarstúlkna. Kl. 20.30
kvöldmessa. Létt sveifla í helgri al-
vöru. Einsöngur Gréta Matthías-
dóttir. Kontrabassi Tómas R. Ein-
arsson. Trommur Matthías Hem-
stock. Píanó Gunnar Gunnarsson.
Fiðla Kjartan Már Kjartansson.
Prestar sr. Bjarni Karlsson og sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Starf fyrir 8-9 ára á sama tíma.
Opið hús frá kl. 10:00. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Reynir Jónas-
son. Sr. Halldór Reynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Kirkja heyrnarlausra tekur
þátt í messunni. Prédikun verður
líka flutt á táknmáli. Táknmálskórinn
syngur. Prestar sr. Miyako Þórðar-
son og sr. Sigurður Grétar Helga-
son. Organisti Kristín G. Jónsdóttir.
Barnastarf á sama tíma.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðs-
þjónusta kl. 14 í safnaðarheimilinu.
Kaffisopi eftir guðsþjónustu.
Organisti er Sigrún Þórsteinsdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir. Þorra-
fagnaður í Safnaðarsal Fríkirkjunnar
verður næstkomandi föstudag 22.
janúar og hefst kl. 19. Nánari upp-
lýsingar í símum 553 2872,
581 2933. Hjörtur Magni Jóhanns-
son.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Organleikari Pavel
Smid. Barnaguðsþjónusta kl. 13.
Foreldrar og aðrir vandamenn
boðnir velkomnir með börnunum.
Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
11. Barnakórinn syngur. Organisti
Daníel Jónasson. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Bjarni Þ. Jónatansson.
Sunnudagaskólinn á sama tíma í
umsjá Steinunnar Leifsdóttur og
Berglindar H. Árnadóttur.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Organisti
Lenka Mátévoá. Bamaguðsþjón-
usta á sama tíma. Umsjón Hanna
Þórey Guðmundsdóttir og Ragnar
Schram. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Sameigin-
leg barnaguðsþjónusta fyrir börn úr
Engjaskóla og Grafarvogskirkju
verður í Grafarvogskirkju kl. 11.
Furðuleikhúsið sýnir leikritið „Sköp-
unarsagan". Handrit eftir Ólöfu
Sverrisdóttur og leikhópinn. Umsjón
Hjörtur, Rúna, Signý og Ágúst. Sr.
Vigfús Þór Árnason, sr. Sigurður
Arnarson og sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir. Guðsþjónusta í Grafarvogs-
kirkju kl. 14. Ræðumaður Sr. Órn
Bárður Jónsson, fræðslustjóri Þjóð-
kirkjunnar. Sr. Vigfús Þór Árnason
þjónar fyrir altari. Einsöngur Björn
Björnsson. Organisti Hörður Braga-
son. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Kaffi og smákökur eftir messu.
Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Magnús Guðjónsson þjónar. Félag-
ar úr kór Hjallakirkju leiða safnaðar-
söng. Barnaguðsþjónusta kl. 13. Við
minnum á bæna- og kyrrðarstund á
þriðjudag kl. 18. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf kl.
11 í safnaðarheimilinu Borgum.
Guðsþjónusta kl. 11. Altarisganga.
Kór Kópavogskirkju syngur. Organ-
isti Kári Þormar. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
KVENNAKIRKJA: Heldur guðs-
þjónustu í Grensáskirkju sunnudag
kl. 20.30. Yfirskrift messunnar er
gleðin en gleðin verður kjörorð árs-
ins í Kvennakirkjunni. Sr. Auður Eir
Vilhjálmsdóttir prédikar en um ára-
mótin tók hún við starfi sérþjón-
ustuprests í Reykjavík og á að sinna
trúarstarfi kvenna sérstaklega.
Laufey Sigurðardóttir og Páll Eyj-
ólfsson leika saman á fiðlu og gítar.
Kór Kvennakirkjunnar leiðir almenn-
an söng undir stjórn og píanóleik
Aðalheiðar Þorsteindóttur. Kaffi á
eftir í safnaðarheimilinu.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Mikill söngur. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson
prédikar. Organisti Gróa Hreinsdótt-
ir. Sóknarprestur.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN:
Morgunsamkoma sunnudag að
Bíldshöfða 10, 2. hæð, kl. 11.
Fræðsla fyrir börn og fullorðna. Al-
menn samkoma kl. 20. Mikil lofgjörð
og fyrirbænir. Gestur samkomunnar
verður Grahame Knox frá Englandi.
Allir hjartanlega velkomnir.
KROSSINN: Almenn samkoma í
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel-
komnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Laugardag
kl. 13 laugardagsskóli. Sunnudag kl.
11. Samkirkjuleg samkoma í Dóm-
kirkjunni. Kl. 19.30 bæn. Kl. 20
hjálpræðissamkoma. Kafteinn Miri-
am Óskarsdóttir talar.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Sam-
koma á morgun kl. 17. Fréttir verða
fluttar af gangi mála í kristniboðs-
starfinu í Eþíópíu og Kenýa. Ræðu-
maður sr. Kjartan Jónsson, kristni-
boði og framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra kristniboðsfélaga.
Boðið upp á samveru fyrir börn á
meðan á ræðunni stendur. Að lok-
inni samkomu verður seld máltíð á
vægu verði. Kl. 20 lofgjörðar- og
fyrirbænastund. Umsjón Guðlaugur
Gunnarsson, Bjarni Gunnarsson,
Þorvaldur Halldórsson og fleiri. Allir
velkomnir á samkomurnar.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messur sunnudaga kl. 10.30, 14.
Messa kl. 18 á ensku. Laugardaga
og virka daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30. Messa
virka daga og laugardaga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði:
Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa
laugardaga og virka daga kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Skólavegi 38. Messa sunnudag kl.
14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7:
Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
RIFTÚN, Ölfusi. Messa sunnudag
kl. 17.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM-
ILIÐ: Samkoma kl. 14.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Prestur sr. Sigurður
Rúnar Ragnarsson. Minnt er á
barnastarfið sem er hafið að nýju á
sunnudagsmorgnum í safnaðar-
heimilinu kl. 11. Bíll frá Mosfellsleið
fer venjubundinn hring.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskólar í kirkjunni, Set-
bergsskóla og Hvaleyrarskóla.
Messa kl. 11. Prestur sr. Þórhildur
Ólafs. Tónlistarguðsþjónustur hefj-
ast að nýju næsta sunnudag.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Bessastaða-,
Garða- og Víðistaðasóknir bjóða til
guðsþjónustu í Víðistaðakirkju kl.
14. Eldri borgarar sérstaklega
boðnir velkomnir. Gaflarakórinn
syngur. Stjórnandi Guðrún Ás-
björnsdóttir. Organisti Úlrik Ólason.
Samkoma í Kirkjulundi að guðs-
þjónustu lokinni. Ferð verður frá
Víðistaðakirkju að lokinni guðsþjón-
ustu og til baka að samkomu lok-
inni. Sigurður Helgi Guðmundsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Umsjón Sigríður
Kristín og Örn. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Þóra V. Guðmundsdóttir.
Fundur með fermingarbörnum og
foreldrum að lokinni guðsþjónustu.
VÍDALÍNSKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Skólakór Garðabæj-
ar syngur við athöfnina. Sunnu-
dagaskólinn fellur inn í athöfnina.
sr. Tómas Guðmundsson þjónar.
Organisti Jóhann Baldvinsson.
Sóknarprestur.
BESSASTAÐAKIRKJA: Munið hinn
árlega sameiginlega kirkjudag
Garða- og Bessastaðasókna, auk
Víðistaðasóknar í Hafnarfirði. Sjá
fréttatilkynningu um kirkjustarf.
Sóknarprestur.
KÁLFAT J ARNARSÓKN: Kirkju-
skólinn í dag, laugardag, kl. 11 í
Stóru-Vogaskóla. Sóknarprestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barna-
starfið hefst aftur eftir áramót kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Hjörtur Hjartarson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Baldur
Rafn Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11 árd. Munið skólabílinn
og verið öll með á vormisseri.
Messa (altarisganga) kl. 14. Prestur
sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Kór
Keflavíkurkirkju syngur. Orgelleikari
Einar Örn Einarsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Hádegis-
bænir þriðjudag til föstudags kl.
12.10. Gunnar Björnsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl.
14. Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudaga-
skólinn byrjar aftur. Ný bók. Nýjar
• myndir. Allir krakkar komi. Prestur-
inn.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. HNLFÍ: Guðsþjón-
usta kl. 11. Kotstrandarkirkja:
Guðsþjónusta kl. 14. Jón Ragnars-
son.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Messa kl. 14 í umsjá sr.
Láru G. Oddsdóttur. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyj-
um: Kl. 11 barnaguðsþjónusta. Þau
börn sem eiga plastpoka sunnu-
dagaskólans frá því í haust taki þá
með en fá nú nýjar bækur og nýja
miða að líma inn. Foreldrar eru
hvattir til að fylgja börnunum til
kirkju. Kl. 14 guðsþjónusta. Það er
mjög gott að sækja messu þó að
jólin séu afstaðin! Sunnudaginn 24.
janúar verður aðalsafnaðarfundur
Ofanleltissóknar eftir messu á sama
tíma. Kl. 16 verður guðsþjónustu
dagsins útvarpað í Útvarpi Vest-
mannaeyja.
AKRANESKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 14. Vænst er þátt-
töku fermingarbarna og foreldra
þeirra. Sóknarprestur.
Fríkirkjan
í Reykjavík
Guösþjónusta u. 14.00
í Safnaðarheimilinu.
Kaffisopi eftir guðsþjónustu.
Organisti er Sigrún Þórsteinsdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Þorrafagnaður í safnaðarsal
Fríkirkjunnar verður næstkomandi
föstudag, 22. janúar, og hefst
kl. 19.00. Nánari upplýsingar í
símum 533 2872 og 581 2933.
Hjörtur Magni Jóhannsson,
fríkirkjuprestur.