Morgunblaðið - 16.01.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 61
FRETTIR
Frambjóðendur opna
kosningaskrifstofur
NOKKRIR frambjóðendur í próf-
kjöri Samfylkingar í Reykjavík
opna kosningaskrifstofur um helg-
ina. Prófkjörið fer fram 30. janúar.
25 einstaklingar bjóða sig fram í
prófkjörinu.
Ásta R. í Hafnarstræti
Prófkjörsmiðstöð Ástu R. Jó-
hannesdóttur, alþingismanns, verð-
ur opnuð í dag, laugardaginn 16.
janúar, í Hafnarstræti 1-3. Húsið
verður opnað kl. 16.30, en dagskrá
hefst kl. 17.
Hún hefst með ávarpi Ástu Ragn-
heiðar, Karlakór Reykjavíkur syng-
ur, Jóhannes Kristjánsson eftir-
herma^ tekur létta spretti og Þor-
geir Ástvaldsson þenur nikkuna.
André Backman tekur lagið og
Halldór Gunnarsson leikur létt lög.
Heitt verður á könnunni og aðrar
veitingar í boði. Á veggjum hanga
málverk eftir Guðrúnu Kristjáns-
dóttur, myndlistarmann.
Jóhanna í
Sóknarsalnum
Stuðningsmenn Jóhönnu Sigurð-
ardóttur opna kosningaskrifstofu í
Sóknarsalnum Skipholti 50a í dag
16. janúar kl. 15. Þar verður boðið
upp á dagskrá með söng.
Félagar úr kvennakórnum Vox
Feminae undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur flytja. Jóhanna Sig-
urðardóttir flytur ávarp. Boðið
verður upp á kaffí og meðlæti.
Kosningamiðstöðin, sem kölluð er
Jóhanna í sókn, verður opin alla
daga fram að prófkjörsdegi frá kl.
14 og fram á kvöld.
Bryndís við höfnina
Stuðningsmenn Bryndísar
Hlöðversdóttur, alþingismanns og
frambjóðanda Álþýðubandalagsins í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík, opna kosningaskrifstofu
laugardaginn 16. janúar nk. við
Austurbugt 3 við Reykjavíkurhöfn
og hefst dagskrá kl. 16.
Barnahom verður fyrir yngstu
gestina, fluttur verður léttur djass,
Hildur Guðný Halldórsdóttir syng-
ur, Skúli Halldórsson tónskáld leik-
ur á píanóið og Bryndís Hlöðvers-
dóttir flytur ávarp.
Kynnir og fundarstjóri er Helgi
Hjöi’var, borgarfulltrúi. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Árni Þór við
Lækjartorg
Árni Þór Sigurðsson opnar próf-
kjörsmiðstöð laugardaginn 16. janú-
ar kl. 15 í Hafnarstræti 20 við
Lækjartorg, 3. hæð.
Meðal dagskráratriða: Andri
Snær Magnason rithöfundur les úr
verkum sínum. Félagar úr Karlakór
Reykjavíkur syngja undir stjórn
Friðriks S. Kristinssonar. Árni Þór
Sigurðsson ávarpar gesti.
Heitt verður á könnunni og með-
læti. Allir velkomnir.
Jakob í Iðnó
Jakob Frímann Magnússon tón-
listarmaður verður með borgara-
fund á morgun, 17. janúar, í Iðnó.
Húsið verður opnað kl. 13:30.
Hornaflokkur Reykjavíkur þeytir
lúðra, Hallgn'mur Helgason flytur
ávarp og Bergþór Pálsson syngur.
Jakob mun kynna stefnumál sín.
Vilhjálmur við Kirkjutorg
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, laga-
nemi og fyrrverandi formaður Stúd-
entaráðs, opnar kosningaskrifstofu í
dag kl. 21. Skrifstofan er á Kirkju-
torgi 6 við Dómkirkjuna.
Um síðustu helgi opnaði Össur
Skarphéðinsson kosningaskrifstofu í
Nóatúni 17. Um síðustu helgi opnaði
Heimir Már Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins,
kosningaskrifstofu í Bankastræti 6,
2. hæð.
Á morgun sunnudag opnar Sigríð-
ur Jóhannesdóttir alþingismaður
kosningaskrifstofu við Hafnargötu 54
í Reykjanesbæ. Sigríður tekur þátt í
prófkjöri Samfylkingar á Reykjanesi.
Valþór Hlöðversson, fyrrverandi
bæjarfulltrúi í Kópavogi, sem tekur
þátt í prófkjöri Samfylkingar á
Reykjanesi, hefur opnað kosninga-
skrifstofu í Hamraborg 14a í Kópa-
vogi.
Lífeyrisdagur
Landsbank-
ans í dag
LÍFEYRISDAGUR í Landsbank-
anum er haldinn í dag, laugardag,
og af því tilefni verður opið í útibú-
um bankans á höfuðborgarsvæðinu
á milli 13-15.
Þar mun starfsfólk veita við-
skiptavinum sem og öðrum per-
sónulega ráðgjöf og þjónustu um
frjálsan 2,2% viðbótar lífeyrissparn-
að ásamt því að kynna fjölbreytta
valmöguleika í Lífeyrissparnaði hjá
Landsbankanum.
Ákveðna greininn má ekki vanta
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Pétri
Péturssyni, þuli:
„í fréttatilkynningu sem birtist í
Mbl. á fimmtudag var vitnað í ein-
kunnarorð Háskóla íslands. Þau mis-
tök urðu að niður féll einn bókstafur,
„n“. Jónas Haligrímsson var ófeiminn
við ákveðna greininn. Hann segir t.d.
á einum stað í bréfi sínu: „Reykjavík-
in vill verða með dýr.“ Einkunnarorð
Háskólans, ljóðlínur Jónasar Hall-
grímssonar, blasa við í Háskólanum
sjálfum eins og myndin ber með sér.“
LEIÐRETT
Björk og
Atli Heimir
I frétt um kór menningarborga og
Björk í blaðinu í gær kemur fram að
Atli Heimir Sveinsson útsetji tónlist
kórsins. Þetta er misskilningur, en
Atli Heimir hefur verið beðinn um að
útsetja tónlist Bjarkar, en ekki hefur
verið gengið frá að svo verði og er
beðist afsökunar á þessum mistökun-
um.
Krafa um ógildingu
Vegna fréttar um frávísunarkröfu
ríkislögmanns í máli Sigurðar Gizur-
arsonar, fyrrverandi sýslumanns á
Akranesi, gegn ríkinu óskaði
ríkislögmaður eftir leiðréttingu á
heiti málsins, sem er ekki skaðabóta-
mál eins og sagt var í fréttinni og
stóð í dagskrá Héraðsdóms Reykja-
víkur, heldur krafa um ógildingu á
ákvörðun dómsmálaráðherra frá 5.
júní 1998.
Rangur titill á höfundi
I Morgunblaðinu í gær birtist
grein eftir Gylfa Guðjónsson öku-
kennara og var hann sagður fonnað-
ur skipulags- og umferðarnefndar
Mosfellsbæjar. Hið rétta er að Gylfi
er fyrrverandi formaður áðurnefndr-
ar nefndar. Er beðizt velvirðingar á
þessu.
Setning misritaðist
I frásögn í blaðinu í gær af fyrir-
tækinu Remex misritaðist setning.
Talað var við Steingrímn Hermanns-
son í fréttinnni og átti niðurlag henn-
ar að vera sem hér segir: „Ætlunin
er að sameina undir einu merki sölu á
framleiðslu Stoð hf. og Stoðtækni
Gísla Ferdinandssonar ehf. á erlend-
um markaði, en síðarnefnda fyrir-
tækið er stór hluthafi í Remex. Þessi
fyrirtæki munu ásamt stóru fyrir-
tæki í Flórída og fleiri erlendum aðil-
um framleiða og markaðssetja undir
einu merki, fullkomin stoðtæki og
íþróttavörur sem fyrirbyggja
meiðsl,“ sagði Steingrímur.
Hann sagði pantanir þegar farnar
að berast og næsta skref væri að ráða
starfslið og bretta upp ermarnar.
Röng mynd
' Þau mistök urðu við vinnslu blaðs-
ins, að mynd birtist ekki af Gunnari
Alexander Ólafssyni. fv. formanni
SUJ, í prófkjörs-
grein hans í blað-
inu í gær. Mynd-
in, sem birtist
með greininni, var
af nafna hans.
Þeir félagar eru
báðir beðnir af-
sökunar á mistök-
unum, og hér •
kemur rétt mynd
af höfundi prófkjörsgreinarinnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
PEUGEOT-sýning verður í Perlunni um helgina.
Peugeot 206 frumsýndur
í Perlunni
PEUGEOT-umboðið, Jöfur í
Kópavogi, frumsýnir um helgina
í Perlunni í Reykjavik nýju 206-
gerðina af Peugeot sem nýverið
kom til landsins. Verður opið
milli klukkan 10 og 17 í dag og á
morgun.
Peugeot 206 er fáanlegur með
tveimur vélarstærðum, 1.100 og
1.400 rúmsentimetra, og eru þær
60 og 75 hestöfl. Með minni vél-
inni kostar þrennra dyra bíllinn
1.095 þúsund krónur og með
stærri vél kostar fimm dyra út-
gáfan 1.260 þúsund. Hér er átt
við handskipta bfla en síðar verð-
ur aflmeiri 206-gerðin einnig fá-
anleg með sjálfskiptingu.
Hamingja og heilsa
á efri árum
SPARAÐU
Á KOSTNAÐ
SKATTSINS
FÉLAG eldri borgara í Reykjavík
hélt námstefnu í nóvember sl. þar
sem á tveimur dögum voru rædd
ýms mál, sem sérstaklega snerta
heilsu eldri borgara og hvað hægt
er að gera til að skapa aðstæður
fyrir betri heilsu, þegar til efri ár-
anna kemur, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Ennfremur segir: „Var þessi
námstefna vel sótt, á þriðja hundrað
manns mættu og var gerður góður
rómur að erindum 8 fyrirlesara sem
komu fram. Fram komu óskir um
að FEB héldi áfram slíku fyrir-
lestrahaldi og kynningu á því, sem
gæti orðið til að eldra fólk nyti betri
heilsu, þegar fram í sækti.
Nú er ákveðið að halda áfram og
næsta laugardag, 16. janúar, kl. 14
verður efnt til fundar í Ásgarði, fé-
lagsheimili FEB í Glæsibæ.
Fyrirlesarar nú eru: Jón Eyjólfur
Jónsson öldrunarlæknir flytur er-
indi um minnistap og heilabilun,
Guðrún K. Þórsdóttir kynnir starf
Félags aðstandenda Alzheimer-
sjúklinga og Einar Sindrason yfir-
læknir ræðir um heyrnartap og
notkun heyrnartækja.
Öllum er heimill aðgangur, sem
er ókeypis, til að kynnast þessum
algengu sjúkdómum, sem mest
koma niður á öldruðum. Reiknað er
með að þetta taki 2Vz klst. með smá
kaffihléi og fyrirspumartíma."
Greiddu 2% viðbótariðgjald af launum þínum
i Frjálsa lífeyrissjóðlnn, elsta og stærsta
séreignarlífeyrissjöð landsins
Það er einfalt að hefja sparnað I Frjálsa llfeyrissjóönum. Veldu þér leið.
1. Þú sendir svarseðil bláa bréfslnssem þú fékkst I pósti.
2. Þú hringir i slma 540 5000.
3. Þú notar Internetið WWW. fjarvangur.is.
4. Þú ferð ( Fjárvang Laugavegi 170, eða næsta útibú VÍS.
FRJALSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
Frjálsi llfeyrissjóðurinn
er I vörslu Fjárvangs hf.