Morgunblaðið - 16.01.1999, Qupperneq 62
ir 62 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999
MORGUNB LAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
ÉG held að þú sért
ekki ekta jólasveinn...
Ef þú ert ekta
júlasveinn, hvar
eru þá hjálp-
endur þínir?
Hjálp - hjálp - hjálp
THAT5THE
PDMBE5T
THIN6 I‘VE
EVER 5EEN
rz(
WH0CARE5?
MERRV
CHRI5TMA5,
5WEETIÉ'
WOOF, WOOF,
WOOF/ a
7i
Þetta er það asnalegasta sem
ég hef nokkru sinni séð!
Hverjum er ekki sama? Gleði-
leg jél, Ijúfan! Voff, voff, voff!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Að sprengja meira
og meira, meira
í dag en í gær
Frá Val Óskarssyni:
MÖRG undangengin ár hefur það
verið þannig að foreldrar leggjast
yfirleitt í vörn fyrir litlu unglingana
sína ef skólastjórnendur fínna að
framferði þeirra í skólanum og er
þá nánast sama hvers eðlis brot
nemandans er. Nýlegir atburðir í
Hagaskóla sanna einmitt þessa
reglu. Umræddir foreldrar vitna í
stjómsýslulög og grunnskólalög og
jafnvel mæta með lögfræðinginn á
svæðið. I raun búum við í grunn-
skólunum við kerfí sem er svipað
því að sá sem væri tekinn fullur á
150 kílómetra hraða, hann hefði
fullan rétt til þess að fá ökuleyfið
sitt daginn eftir að yfírvöld hefðu
svipt hann leyfinu. ímyndið ykkur
hættuástandið sem sÚkt skapaði
öðrum ökumönnum eða virðingu
þessara ökumanna fyrir lögregl-
unni.
Undimtaður er einn þeirra sem
ekki nennti lengur að reyna að
stjóma svona vitlausu kerfí, en
þetta era þeir tveir meginpunktar
sem ég hefði viljað sjá breytast fyr-
ir löngu síðan.
1. Skólastjórnendur þurfa að hafa
skilyrðislausan rétt til að víkja nem-
anda úr skóla um ótiltekinn tíma,
enda er það oft og tíðum bráðnauð-
synlegt svo hinir krakkarnir fái
vinnufrið.
2. Hver sæmilega stór skóli þarf
að hafa leyfi til að fastráða að
minnsta kosti tvo kennara sem sinni
forföllum. í dag er kerfið þannig að
engir fastir forfallakennarar era til
og því skapast oft stórkostleg vand-
ræði þegar veikindi hrella aðra
kennara. Aílir sjá t.d. í anda hversu
gæfulegt það er að senda unga nem-
endur heim þegar enginn er til að
kenna þeim, eða þá að þeir eru á
göngum skólans og trafla aðra
kennslu.
Engar líkur eru til að róttækar
breytingar verði á stjórnsýslulögum
og grannskólalögum nema skóla-
stjórnendur standi þétt saman um
aðgerðir. Mín tillaga er mjög ein-
föld. Það væri nóg að skóla-
stjórnendur í Reykjavík segðu upp
störfum, allir sem einn, og krefðust
breytinga á því sem er óþolandi við
núverandi lög og reglur. (Auðvitað
væri best að sjá þetta gerast um allt
land.) Það væri góð tilbreyting að
menn minnist ekki einu orði á laun,
þegar þeir segja upp heldur aðeins
velferð og öryggi nemenda.
Eg er handviss um að trúnaðar-
menn skólanna mundu sjá til þess
að aðrir kennarar færa ekki að
hindra nauðsynlegar breytingar
með því að sækja um umrædd störf.
Eg hef einnig þá trú að foreldrar
þeirra barna sem alltaf era til fyrir-
myndar í skólanum mundu styðja
slíkar aðgerðir þótt ég viti vel að
aðrir foreldrar mundu ærast ef loka
þyrfti skólunum um tíma, enda
þyrftu þeir þá sjálfir að sitja uppi
með flugeldafólkið sitt og hvaða for-
eldri vill að bömin séu að sprengja
flugelda inni á heimilinu? Auðvitað
gegnir allt öðru máli ef þau era
greyin að dútla við þetta í skólanum
enda langlíklegast að kínverjarnir
og flugeldarnir hafi óvart dottið of-
aní töskuna þeirra.
VALUR ÓSKARSSON,
íyrrverandi yfirkennari og skólastjóri.
Hugleiðing Halldórs
Frá Guðmundi Bergssyni:
GAMLI sveitungi. Ég var að lesa
hugleiðingar þínar hinn 2. des. Þar
spyrð þú: „Hvar var allt þetta fólk
þegar verið var að virkja fyrir Stór-
Reykjavíkursvæðið?"
Elliðarárstöðin tók til starfa 1921
og það er mikið vatn rannið til sjáv-
ar síðan. Það var gerð stífla í ána
sem þætti ekki stór miðað við það
sem nú gerist enda tæki önnur,
samt var hávaði út af henni vegna
laxagöngu en almenningur gladdist
yfir að fá rafljós í stað olíulampans.
Það er ekki hægt að bera saman
það sem var í upphafi aldarinnar og
þess sem nú er, í lok hennar. Ekki
hvarflai- að mér að álasa forfeðram
okkar fyrr á öldum þó þeir hafi
brotið skógarkjarrið í eldinn. Þeir
höfðu engin önnur ráð og þótti Iangt
að þreyja þorrann og góuna. Ef
svona ætti sér stað í dag þá ætti það
engan rétt á sér. Tímarnir breytast
og mennirnir með. Það er ekki
þannig að menn séu á móti virkjun-
um, heldur vilja þeir ekki að unnin
séu spjöll á náttúrunni, það er það
sem um er rætt, t.d. að gróðurvinjar
og fuglaparadís hálendisins verði
ekki gerðar að lónum. Það getur
verið rétt hjá þér að svanasöngur
heyrist frá einhverju lóninu en það
er alveg víst að heiðargæsin verpir
ekki meir þar sem komið er margra
metra vatn. Það má líka leiða hug-
ann að því hvort við gætum ekki
nýtt vatnið betur með því að nota
það aftur og dæla því með kröftug-
um dælum upp í lónið aftur. Öflug
dæla dælir talsverðu magni á sólar-
hring og það gæti drýgt vatnsbú-
skapinn að mun.
Þú talar um mengun frá bflum og
ferðamönnum og þar er ég þér sam-
mála og við þurfum líka að taka
okkur sjálfum tak í sambandi við
landið okkar. Er það rétt skilið hjá
mér að þú teljir að öll okkar framtíð
á næstu öld sé álver og hefurðu
engar áhyggjur af mengun frá þeim
þegar þeim hefur verið raðað allt í
kringum landið? Samt eram við
ekki betur stödd en svo að við
skrifuðum ekki undir á ráðstefnu
sem haldin vai- um ósónlagið í
Kyoto, þannig að við eigum ekki að
taka endalaust við því sem aðrar
þjóðir, eins og t.d. Norðmenn era að
leggja niður hjá sér. Ég á enga ósk
betri til Eyrsveitunga en þá að það
verði aldrei byggt álver í Grandar-
firði.
GUÐMUNDUR BERGSSON
FRÁ KROSSNESI,
Sogavegi 178.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.