Morgunblaðið - 16.01.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 63
BREF TIL BLAÐSINS
Undirstaða uppeldis
Frá Guðbirni Jónssyni:
ÞAÐ SEM helst vekur manni óhug
þessa dagana eru fréttir af endur-
teknum sprengingum unglinga í
Hagaskólanum. Mál þetta álít ég svo
grafalvarlegt að ekki verði lengur
horft til hliðar við þau vandamál sem
skapast þegar foreldrar sinna ekki
frumskyldum sínum vegna uppeldis
bai-na sinna. Við getum deilt um
hvort börn eigi að fara að sofa kl. 20,
22 eða 24, hvort þau eigi að borða áð-
ur en þau fara í skólann og ýmsa
fleiri þætti í daglegri framkvæmd
uppeldis. Það á hins vegar ekki að
verða að deiluefni hvort foreldrum
beri skylda til að kenna og þjálfa
börn sín í að bera virðingu fyrir um-
hverfí sínu og samferðafólki. Slíkt er
undirstaða siðferðis í landinu.
Kveikjan að þessum skrifum voru
fréttir af að skólastjóri Hagaskóla
hefði orðið að vísa 6 unglingum úr
skólanum vegna þess að þeir voru
með sprengiefni á sér inni í skólan-
um. Engum getur blandast hugur
um að þessi ákvörðun hans var eðli-
leg, enda fyrst og fremst ætluð til að
vekja athygli þessara einstaklinga á
alvarleika atferlis þeiira. Það sem
vakti athygli mína, voni fréttir af að
foreldrar þessara unglinga hefðu, af
særðu stolti, brotið þessa aðgerð
skólastjórans á bak aftur, vegna mis-
taka hans í tilkynningarskyldu til
foreldranna. Var þar vísað til
stjórnsýslulaga.
Það er athyglisvert að velta þessu
aðeins fyiir sér. Þarna nota foreldr-
arnir lagalegan rétt sinn til að fá
upplýsingar á réttum tíma, til þess
að brjóta niður stranga leiðbeiningu
til barna þeirra, sem greinilega
höfðu farið langt út fyrii- eðlilega
umgengnishætti og skapað verulegt
hættuástand með framferði sínu.
Pramferði sem líklega hefur einnig
brotið í bága við lög, þar sem þeir
voru með sprengiefni í fórum sínum
innanhúss og í hópi fólks sem í skól-
anum var. Eðlileg viðbrögð foreldris,
sem hefði haft farsæld unglingsins í
huga, hefði verið að leggjast á sveif
með skólastjóranum við að vekja at-
hygli unglingsins á hve alvarlegt það
væri að fara glæfralega með svona
hættuleg efni. Það væri engin afsök-
un til fyrii’ því að vera með sprengi-
efni á sér inni í skólum eða á öðrum
fjölförnum stöðum. Nei, þessir
blessaðir foreldrar voru sér ekki svo
vel meðvitandi um skyldur sínar
gagnvart velferð unglingsins að þeir
áttuðu sig á mikilvægi samstöðunnar
með skólastjóranum. Þeir álitu mik-
ilvægara að standa vörð um eigin
rétt til að fá upplýsingar um
ákvörðun skólastjórans á réttum
tíma. Þeh- nýttu sér því ákvæði í lög-
um, um upplýsingarskyldu, til að
brjóta á bak aftur ákvörðun skóla-
stjórans um refsingu gagnvart þess-
um unglingum sem ógnað höfðu um-
hverfí sínu á lífshættulegan máta.
Með þessu sendu þau börnum sínum
Bruninn á
Kálfatjörn
Frá Sesselju Guðmundsdóttur:
LAUGARDAGINN 12. des. síðast-
liðinn birtist grein í blaðinu eftir
Priðrik H. Ólafsson sem bar yfir-
skriftina Um ærumorð og önnur
morð. I greininni lýsir Friðrik brun-
anum á kirkjustaðnum Kálfatjörn í
Vatnsleysustrandarhreppi og fjallar
nokkuð um deilur þær sem staðið
hafa um Kálfatjarnartúnin undanfar-
in ár. Síðustu vikur hef ég verið að
vonast eftir andmælum og/eða skýr-
ingum frá Golfklúbbi Vatnsleysu-
strandarhrepps vegna ásakana
Priðriks um „lymskubrögð og bak-
tjaldamakk" en ekkert hefur birst
enn. Ég skora hér með á forsvars-
menn golfklúbbsins að gera grein
fyrir sinni hlið á þessu leiðindamáli.
Herdísi Erlendsdóttur og og öðru
Kálfatjarnarfólki votta ég mína
dýpstu samúð og segi að lokum: Ég
hreinlega trúi því ekki að nokkur
hreppsbúi hafi viljað troða heiðurs-
systkinunum á Kálfatjörn um tær!
SESSELJA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Urðarholti 5, Mosfellsbæ.
þau skilaboð, að þau yrðu varin í
óheiðarleika og lögbrotum með öll-
um færum leiðum. Meira að segja
væri nóg að mistök í tilkynningar-
skyldu ættu sér stað. Þetta eru skila-
boðin sem börn þessara foreldra
hafa nú sent frá sér. Spurningin er
hvort eða hvernig þessir foreldrar
ætla að kenna börnum sínum að bera
virðingu fyrir umhverfi sínu og sam-
ferðafólki.
Ég álít nauðsynlegt að foreldrar
íhugi vel viðhorf sín til uppeldismála,
einkanlega þá þætti er lúta að fram-
angreindum þáttum virðingar. Shkt
er undh-staða siðferðis. Hverfi virðing
okkar íyrir umhverfinu og sam-
ferðafólkinu, er siðferðið jafnframt
farið. Þá er stutt í villimennskuna.
Mig langar hér í lokin að segja
stutta sögu úr uppeldi mínu. Þegar
ég var barn, var ég nokkuð stríðinn.
Eg vai- hins vegar frekar huglaus og
beitti þessari stríðni ekki nema þeg-
ar ég taldi mig eiga greiða flóttaleið
heim. Af reynslu vissi ég að ég átti
alltaf visst skjól í eldhúsinu hjá
mömmu. Eitt sinn var ég að stríða
strákum með því að skjóta í þá smá-
steinum af teygjubyssu. Þeir ætluðu
að ná mér til að lumbra á mér en ég
slapp inn í hús heima og flúði inn í
eldhús til mömmu. Fósturfaðir minn,
sem var heima, heyrði hávaðann í
strákunum og fór út í dyr að tala við
þá. Þeir sögðu honum hvað ég hafði
gert og báðu hann að skamma mig.
Hann bað þá bíða, kom inn í eldhús
og spurði mig hvort það væri rétt
sem strákarnir væru að segja. Ég
þorði ekki að skrökva að honum því
ég vissi að hann sæi á mér ef ég
reyndi það. Ég kinkaði því bara kolli.
Tók hann þá í öxlina á mér, fór með
mig út í dyr og setti mig út fyrir til
strákanna. Sagði hann þeim að af-
greiða málið sjálfir. Þegar þeir höfðu
lúskrað á mér um stund, seildist
hann í það sem eftir var af mér, um
leið og hann sagði við strákana að
þetta væri nóg í þetta skiptið og
þakkaði þeim fyrir. Við mig talaði
hann alvarlega þegai' ég hafði jafnað
mig nokkuð eftir hamaganginn. Það
samtal man ég enn og hefur það alla
tíð verið mér til góðs. Iðulega þakka
ég honum í huganum fyrir þessa
hirtingu og alvarlegu leiðbeiningarn-
ar. Með þessu ávann hann sér líka
virðingu strákanna, sem litu á hann
sem mjög heiðarlegan mann. Það var
hann líka; mjög heiðalegur og
traustur og alltaf tilbúinn að berjast
gegn óréttlæti og óheiðarleika. Slíkt
viðhorf er dýrmætara en mikil fjár-
hagsleg auðævi.
GUÐBJÖRN JÓNSSON,
Hjarðarhaga 26, Reykjavík.
fvennandí bækur fxá
LÍFIÐ Í JAFNVÆGI
eftir Oprah Winfrey og Bob Greene
Bókin er nauðsynleg þeim, sem vilja stuðla að bættri líðan, betra
útliti og heilbrigðara lífemi.
Oprah lýsir í bókinni þeim erfiðleikum, sem tengjast því að ná
kjörþyngd og viðhalda henni. Bob Greene lýsir á nákvæman hátt
þeim atriðum, sem þarf til að ná settu marki, svo sem gildi
hreyfingar, efnaskiptum likamans og heilbrigðu liferni.
mmm LJÓÐ í LYKKJUM - flíkur til aö prjóna
eftir Solveig Hisdal
Bókin er einstakt listaverk. Skemmtileg blanda af gullfallegum
nútíma prjónaflíkum (uppskriftum) frá Noregi og Ijóðum. Þetta er
bók fyrir þá, sem hafa áhuga á prjónaskap og sköpun.
BREYTINGASKEIÐIÐ
eftir Ruth Appleby
Fjallað er um breytingaskeiðið á raunhæfan hátt, rakin eru ítarlega
þau vandamál, sem geta komið upp og viðeigandi lausnir kynntar,
bæði hvað varðar mataræði, fæðubótarefni, smáskammtalyf og
hormóna. Höfundurinn er smáskammtalæknir, sem hefur sérhæft
sig í breytingaskeiðinu. Þetta er fyrsta bókin í bókaflokknum HEIL-
BRIGT VIÐHORF.
FORLAG
Armúla 29,
sími/fax 568 7054
gsm 898 7054
Þegar Kolaportið er með útsölu heitir það Súpersala "rock bottom
Súpérsala í Kolaportinu
Það hefur alltaf verið mikið líf og fjör á Súpersölunum í Kolaportinu.
Glasgow með ódýrustu boli landsins
Glasgow básinn er með ódýrustu boli landsins.
Mikið úrval í öllum stærðum á aðeins kr. 100 krónur
stykkið. Einnig mikið úrval af fallegum skartgripum
á afar hagstæðu verði. Lítið við og gerið góð kaup
hjá Glasgow við Efstubúð.
Yerðlagið í Kolaportinu er að öllu jöfnu langt
fyrir neðan hefðbundin útsöluverð. Þegar Kola-
portið er með útsölu, er það kallað Súpersala og
þá eru verðin komin í grjót "rock bottom
price".
Súpersalan mun standa yfír næstu þrjár
helgar og seljendur bæta inn nýrri vöru um
hverja helgi. Sérstök tilboð verða í gangi þær
helgar sem Súpersalan stendur yfír
Vöruúrvalið er ótrúlegt s.s. bækur, málverk,
geisladiskar, fatnaður, skór, skartgripir, leikföng,
gjafavara, matvæli, snyrtivörur, antikhúsgögn,
kompudót, frímerki, safnaravara eða nánast allt
milli himins og jarðar.
EIIi skransóldánn auglýsir:
Elli auglýsir „Verðhækkun aldarinnar." 100 krónu
hlutir kosta nú 200., Komið og prúttið verðið niður
fyrir kr. 100 aftur. Úrvalið er ótrúlegt og ekki vitað
hvað til er. Viðskiptavinir verða bara að koma,
gramsa og leita. Þið finnið hann Ella í stóra
skranbásnum neðst í Dropabraut.
Bibbi - Tilboð í fullum gangi.
Gibson Explorer hágæða rafmagnsgítar á einungis
50.000. krónur, aðeins þessa helgi. Þessi einstaki
gripur er til sölu hjá Bibba á horni Baragötu við
útganginn. Einnig er þar að finna fjölbreytt úrval af
góðri notaðri vöru á frábæru verði.
Ólöf með rýmingarútsölu á gjafavöru
Um þessa helgi er stórútsala í stóra gjafavöru-
básnum við Aukastræti. Allar vörur eru á
stórlækkuðu verði. Mikið úrval af styttum, vösum,
kristal og fleiru til gjafa. Athugið að þessi útsala er
aðeins þessa einu helgi.
Kári með nýjar forlagsbækur á lágu verði
Hann Kári hefur stundað viðskipti í áratugi og
síðustu árin í Kolaportinu. Hann er kominn með
vefnaðarvöruna aftur og einnig mikið úrval af nýjum
forlagsbókum á hreint ótrúlega lágu verði. Þetta má
enginn láta fram hjá sér fara.
Antikmarkaðurinn Aukastræti auglýsir
„Súpersala á húsgögnum.“
Hún Magnea er með mikið úrval af gullfallegum
húsgögnum á sannkölluðu gjafvirði. Þið gerið góð
kaup hjá Magneu í Kolaportinu, en hún er einnig
með antikmarkað í Aukastræti.
Bókaveisla á Gleðistíg
Bókaveislan á Gleðistíg heldur áfram frá síðustu
helgi. Reykjahiíðarætt, Tröllatunguætt, Thorarensen-ætt,
Saga mannkyns, Fugiar í náttúru Islands, Aldirnar, saga
Reykjavíkur og margt fleira. Einnig mikið úrval af
bókum á kr. 100 og 300 krónur.
Sirivan með spennandi Asíuvöru á lágu verði
Sirivan er með stórt söluplass við kaffiteríuna Kaffi
Port og selur Asíuvöru í miklu í úrvali. Gullfallegir munir
sem vekja undrun og dulúð. Komið, sjáið og upplifið
austurlönd eins og þau gerast best hér á landi.
20-30% afsiáttnr á kven- og bamafatnaði
Kristín er með troðfullan sölubás af kven- og
barnafatnaði. Básinn hennar Kristínar er staðsettur
fyrir framan matvælamarkaðinn við Kaffi Port. Á
Matvælamarkaður sem á
engan sinn líka
Það er ævintýri aðheimsækja Matvælamarkaðinn og þar er að finna
ótrúlega fjölbreytt úrvai matvæla sem sum eiga engan sinn líka hér á
landi eða annarstaðar. Verðin eru einnig oftast ótrúlega hagstæð og varan
í miklum gæðum. Lítið við og gerið góð kaup í gæðamatvælum.
Súpersölunni býður hún ótrulega góðan afslátt
á allri sinni vöru eða 20-30%.
Valkortsbásinnmeðskrifborðogtölvuborð
Hann Ásgeir í Valkortsbásnum er með
skrifborð, tölvuborð, innskotsborð, konungleg
skarthúsgögn, antikvöru, lampa, fallega eftir-
prentun af Mónu Lísu, vasa og margt fleira.
Hann er líka með hágæðaskóburstun allar
helgar.
Grænubásamir-boIir,AusturIandavaraog
knattspymubúningar
Grænu básarnir eru stærsta sölueiningin í
Kolaportinu og þar er boðið upp á alla ensku
knattspyrnubúningana, boli og austurlandavöru
í ótrúlegu úrvali. Verðin hafa aldrei verið betri
og upplagt að líta við og gera góð kaup.
Á Matvælamarkaði
Kolaportsins eru
framleiðendurnir
yfírleitt sjálfír að
selja sína vöru án
milliliða og geta því
boðið hagstætt verð.
Mikið af vörunni er
sérframleidd og
hvergi fáanleg nema
á matvælamarkaði
Kolaportsins.