Morgunblaðið - 16.01.1999, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 67
FÓLK í FRÉTTUM
Hoffman kærir
tískutímarit
► LEIKARINN Dustin Hoffman,
sem hlaut Óskarsverðlaunin á sín-
um tíma fyrir hlutverk sitt í kvik-
myndinni „Tootsie“ lagði fram
kæru á þriðjudaginn á hendur
tímariti fyrir að birta af honum
tölvugerða mynd í þeim tilgangi að
selja kjóla. Blaðið hafði birt tísku-
grein þar sem mynd af Hoffman í
rjómalitum silkikjól hönnuðum af
Richard Tyler
og Ralph
Lauren var not-
uð með grein-
inni og var verð-
ið á kjólnum lát-
ið fylgja með.
Iloffman, sem
er 61 árs, sagði
við dómaraim
Dickran Tevrizi-
an að hann vildi
ekki að únynd
sín væri notuð til
að selja kjóla, eða til þess að selja
hvaða vöru sem er ef út í það væri
farið. Alkunna er að óleyfilegt er
að nota ímyndir frægs fólks til að
selja vörur.
„Ef ég væri beðinn um að vera
fyrirsæta í þeim tilgangi að selja
fatnað tæki ég milljónir dollara
fyrir greiðann," sagði Hoffman.
„Hins vegar hef ég enga trú á að
ímynd mín myndi virka vel í fata-
auglýsingum, hvort sem um kven-
eða karlfatnað væri að ræða,“
bætti hann við.
Leikarinn, sem tvisvar hefur
hlotið Óskarsverðlaun, fer fram á
óskilgreindar bætur frá tímaritinu
og útgáfufyrirtæki þess, Capital
Cities ABC, sem er dótturfyrirtæki
Walt Disney fyrirtækisins.
Lögfræðingar tímaritsins sögðu
að myndin af Hoffman hefði birst
með fréttagrein og væri þ.a.l. ekki
auglýsing og kváðust vera vernd-
aðir af málfrelsislögum bandarísku
stjómarskrárinnar. I yfirheyrslun-
um á þriðjudag sagði Iögfræðingur
blaðsins að myndbirtingin af
Hoffman væri eðlileg, því leyfilegt
væri fyrir tímarit að birta myndir
sem hægt væri að segja að tengd-
ust almennri bandarískri menn-
ingu.
Hoffman, sem mætti til réttarins
í gamaldags brúnum jakkafötum,
var því ekki sammála. Hann bar
greinina í tímaritinu saman við
auglýsingar sem notfæra sér látnar
kvikmyndastjömur sér til fram-
dráttar. „Ég hef tekið eftir að látn-
ar stjörnur hafa verið misnotaðar f
auglýsingaskyni á skammarlegan
hátt.“ Hann nefndi því til stuðnings
auglýsingu þar sem hinn látni Fred
Astaire er sýndur dansa við
ryksugu í einni auglýsingunni.
„Einnig hefur ímynd Humphrey
Bogart og John Wayne verið notuð
í sama tilgangi." Hann ásakaði
tímaritið fyrir að koma fram við
sig eins og liann hefði ekkert vald
og væri svo gott sem dauður.
Tímaritsgreinin sem olli upp-
námi leikarans skartar myndum af
fleiri stjörnum sem flestar eru
látnar. Einnig var mynd af
leikkonunni Karen Lynn Gorney,
sem lék á móti John Travolta í
„Saturday Night Fever“ og er hún
einnig að höfða mál gegn tímarit-
inu, því á tölvugerðri myndinni af
henni er höfði hennar skeytt á lík-
ama fyrirsætu sem er í gegnsærri
blússu.
ÚR „Tootsie".
Prófkjör
Samfylkingarinnar í Reykjavík
MIMillláiWU
ö
pnar
kosningaskrifstofu
kl. 21 íkvöld
aö Kirkjutorgi 6
(viö Dómkirkjuna)
Wm
v\
>
tr
<
Tölvur og tækni á Netinu
^mbl.is
-ALLTAF eiTTHVAO NÝTT
The General
írland
Aðalblutvcrh: Brendan Gleeson,
Adrian Dunbar, Jon Voigt
I.eihstjóri: Jobn Boorman
LaVitaébella
italia
Aðnlblutvcrh: Roberto Benigni,
Nicoletta Brascbi. Leihstjóri: Rubcrto
Beuígni
Le Diner rie cons
Frakkland
Aðalblutverh: Catberinc Frot, Francis
Huster. Leihstjóri: Francis Veber
Karakter
Holland
Aðttlblntverk: l'erljtt Vtttt Hnet, Jtni
Dcclcir, Ilett)’ Scbtiiiriiinii
Leikstjóri: Mike Vln Diem
Bandaríkin
Aðtilhlntverk: Shtiron Stone, Gillititi
Anrlersoti, Geim Rowlands
Leikstjóri: Peter Cbe/soin
Nýjasta framlag franska leikstjórans
Veber er sprenghlægileg gamanmynd,
sem fjallar um hóp af vinum og furðu-
legan leik sem þeir stunda á hverju
miðvikudagskvöldi. Margar af myndum
Veber liafa verið endurgerðar í Aineríku
m.a. My fatlier The Hero, Three Fugitives
og Tiie Birdcage.
Sannsöguleg niynd um hinn alræmda
Martin Caiiill, frægasta ræningja írlands
á 8. áratugnum. Leikstjóri myndarinnar er
Jolui Boorman (Hope & Glory, Deliver-
ance) og var liann valinn besti leikstjór-
inn á Cannes kvikmyndahátiðinni i fyrra.
Einlæg og falleg mynd þar sem stór-
stjarnan Sharon Stone sýnir á sér nýja
lilið og fer með leiksigur. Stone var til-
nefnd til Golden Globe verðlauna fyrir
framlag sitt við niyndina, sem fjallar um
tvo drengi sem lagðir eru i einelti af
skólafélögum síiium.
La Vita é bella er ein ahugaverðasta
mynd sem framleidd var á siðasta ári.
Hún hlaut dómaraverðlaunin á Cannes,
evropsku kvikmyndaverðlaunin,
áhorfendaverðlaun á hátiðum i Los
Angeles, Toronto, Montreal, og
Vancouver. Meistarastykki Benigni er
einnig talin líkleg til alls á Óskarsverð
launahátíðinni i inars næstkomandi.
Karakter hlaut Óskarsverðlaunin
í fyrra sem besta mynd á crlendu
tungumáli. Þessi einstaka mynd
hefur farið sigurför um heini allan
og sópað að sér verðlaunum og
lofi hvar sem liún er sýncl.
Eftirfarandi stórmyndir er einnig sýndar á kvikmyndahátíð hjá okkur:
Idioterne - Funny Games - Riding the Rails - Brandon Teena Story - Out of the
Present - Gabbeh - Moment of Innocence - Salaam Cinema - The Thousand
Wonders of the Universe - Erotic Show - DaDa & Surealismi.
Frumsvnd í kvikmvndahúsum S. mars.
miðstöð kvikmyndahátíðar Reykjavíkur