Morgunblaðið - 16.01.1999, Page 68

Morgunblaðið - 16.01.1999, Page 68
68 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ < _______________________________________ FÓLK í FRÉTTUM Hátíðarsýning til styrktar alnæmissamtökunum á Islandi c Geirmundur Valtýsson og hljómsveit sjá um daussveifluna í kvöld. Missið ekki af frábærum dansleik með skagfirska sveiflukónginum. Arna og Stefán halda uppi stuðinu á MÍMISBAR Radisson SAS Saga Hotel Reykjavík Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur og Léttsveit félagsins leika fyrir dansi. Söngvari er Ragnheiður Hauksdóttir. 9\(œ-tur^aíinn Smiðjuvegi 14, ‘Kópavogi, sími 587 6080 í kvöld kynnir Næturgalinn Irisi Jónsdóttur söngkonu, ásamt Hilmari Sverrissyni og Önnu Vilhjálms k Borðapantanir í símum 557 9717 og 587 6080 L HARMONIKUBALL verður í kvöld, í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima. Dansinn hefst kl. 22.00. Geirmundur SVARTKLÆDDA konan var frumsýnd í Tjarnarbíói í október og er leikrit sem hef- ur gengið í tíu ár í West End í London. Arnar Jónsson var fyrst í hlutverki gamla lögfræðingsins sem leitar á náðir unga leikarans sem Vilhjálmur Hjálmarsson leik- ur. Að setja fingraför á hlutverk - Pekktir þú þetta leikrit áður en þú tókst að þér hlutverkið? „Já, ég las það reyndar fyrir mörgum árum þegar ég var leik- hússtjóri á Akureyri, og var þá að velta verkinu fyrir mér. Eg hafði samt aldrei séð sýningu fyrr en ég var svo heppinn að ná síðustu sýn- ingu þessarar uppfærslu með Am- ari. Pegar ég var beðinn um að taka við hlutverkinu hans þá var ég vel í stakk búinn til að svara því af einhverju viti. Það er nú sjaldan sem manni gefst tækifæri til að sjá sýningarnar sem maður verður í, og ég var mjög sáttur við þessa sýningu." - Hvernig fínnst þér að feta í fótspor Amars? „Það er alltaf mjög sérstakt að taka við hlutverki af öðrum, sér- staklega þar sem er búið að móta sýninguna að fullu, og maður kem- ur ekki til með að hafa mikil áhrif á hana. Hins vegar er hver og einn leikari sérstakur og engir tveir leikarar leika sama hlutverkið eins þótt þeir séu í nákvæmlega sömu sýningu. Maður setur alltaf fingraför sín á hlutverkið, og mér fannst það sérstök glíma að átta mig á hvemig ég næði að feta mig áfram í hlutverkinu. En Arnar er frábær leikari og það er gaman að vera treyst til þess að feta í fótspor hans.“ Skemmtileg glíma - Og þér fínnst hlutverkið áhugavert? „Mjög áhugavert, því sagan seg- ir í stuttu máli frá eldri lögfræð- ingi sem hefur sögu að segja sem Að leika illa, en gera það vel I kvöld verður leikritið Svartklædda konan endurfrumsýnt með Viðar Eggertsson í hlutverki lögfræðingsins. Hildur Loftsdóttir varð hissa þegar hann kallaði sig uppvakning. skemmtilegt að leika mann sem aldrei hefur leikið, og hann á að leika, til að byrja með, frekar illa. Mig gmnaði ekki hve vandasamt það er að leika illa en gera það vel. Það er skemmtileg glíma.“ - Og þið kallið þetta endurfrum- sýningu? „Já, þetta er endurfrumsýning og ég er svona hálfgerður upp- vakningur. A síðustu árum hef ég aðallega fengist við leikstjóm. Þegar ég lék seinast var það hlut- verk Drakúla i írsku leikhúsi í Du- blin. Þess vegna vil ég helst kalla mig uppvakning." Umræðan liggur í dái - Hvernig kom til að þið ákváðuð að helga sýningunu Al- næmissamtökunum á Islandi? „Það er reyndar ekki mín hug- mynd, en ég varð mjög ánægður þegar ég heyrði hana. Fyi-ir ellefu áram lék ég sjálfur í fyrstu sýning- unni sem fjallaði um alnæmi og hét Eru tígrisdýr í Kongó? Sýningam- ar urðu á annað hundrað og voru hluti af þeirri umræðu sem var í þjóðfélaginu um þennan sjúkdóm, sem hefur svo mikið dregið úr. Það eru ennþá alltof margir að smitast af þessum sjúkdómi, og undanfarið hafa mjög ungir gagnkynhneigðir einstaklingar verið að smitast, sem bendir til þess að fræðslan sé ekki sem skyldi. Það er því full ástæða tO að halda umræðunni á lofti og mér finnst mjög gott að forsvars- menn þessa leikhúss ætli að nota tækifærið og helga þessa sýningu baráttunni. Fólk getur komið, lagt málefninu lið og fengið hárin til að rísa á höfðinu og hroll niður bakið af þessari list sem er verið að framkvæma á sviðinu." Morgunblaðið/Þorkell VILHJÁLMUR Hjálmarsson og Viðar Eggertsson í hlutverkum leikarans unga og lögfræðingsins. hvílir þungt á honum úr fortíðinni. Hann kemur í leikhús að hitta ung- an leikara sem hann vill að hjálpi sér að segja þessa sögu. Leikarinn er mjög metnaðarfullur og á end- anum fær hann þann eldri til þess að setja söguna á svið. Þar með er maðurinn kominn í hin ýmsu hlut- verk manna sem urðu á vegi hans þegar þessir voveiflegu atburðir gerðust. Þetta er lögfræðingur sem hefur auðvitað aldrei stigið á svið, og mér fannst voða Sann- trúaður og sjarmerandi Postulinn (The Apostle)___________ I) r a m a Framleiðandi: Rob Carliner. Leik- stjóri og handritshöfundur: Robert Duvall. Kvikmyndataka: Barry Mar- kowitz. Tónlist: Peter Afterman. Að- alhlutverk: Robert Duvall, Farrah Fawcett, Miranda Richardson og Billy Bob Thornton. (139 mín.) Bandarísk. Skífan, janúar 1998. ÖIl- um leyfð. ÞAÐ er alltaf ánægjulegt þegar kvikmyndaperlur á borð við Post- ulann rekur á fjörar innan um froðu í stórflóði ACADr.MY AVVARD NOMfNEll kvikmynda. Postulinn fjallar um heittrúaðan prédikara sem miðlar trúar- sannfæringu sinni meðal neðri-miðstétt- arfólks í Suður- ríkjum Banda- ríkjanna. Persónuleiki hans ein- kennist af eldmóði, sem laðar fólk að honum, og breyskleika sem verður honum að falli. Handbragð Robert Duvall í þessari kvikmynd, sem hann leik- stýrir, semur handritið að og leik- ur aðalhlutverkið í, einkennist af vandvirkni og einstakri innsýn í viðfangsefnið. Teflt er fram flók- inni og áþreifanlegri aðalpersónu og fjallað um trú og trúarsamfélög af athygli og virðingu. Þannig næst fram samfélagsmynd sem er hreinskilin og raunsæ og nær sterkum tökum á áhorfandanum. Með einstakri túlkun sinni á eld- prestinum breyska gefur Robert Duvall myndinni kraft og fyllingu en aðrir leikarar fylgja honum dyggilega eftir. Heiða Jóhannsdóttir Töfrar sem nægja ekki Pólskt brúðkaup (Polish Wedding)______________ Gaiiiiin / drama ★vt Frainleiðsla: Tom Rosenberg, Julia Chasman og Geoff Stier. Handrit og leikstjórn: Theresa Connelly. Kvik- myndataka: Guy Dufaux. Tónlist: Lu- is Bacalov. Aðalhlutverk: Lena Olin, Gabriel Byrne og Claire Danes. 98 min. Bandarísk. Háskólabió, desein- ber 1998. Ölluin leyfð. ÞESSI bandaríska bíómynd gengur, í sem allra stystu máli, út á það hve undarlegir Evrópubúar séu, jafnvel þótt þeir hafi búið lengi í Ameríku. Mikið er treyst á sérstæða en ,töfrandi“ per- sónusköpun, sem því miður er ekki alveg nógu töfrandi til að halda mynd- inni á floti. Blóðhiti og lauslæti eru helstu persónueinkennin sem gert er út á. Evrópskir karlar eru blóðheitir, evrópskar konur lauslátar. En þetta er allt í besta lagi því þetta fólk er svo óvenju- lega töfrandi. Þannig virðist myndin hlaðin fordómum, bæði þjóðernislegum og kynferðisleg- um, sem er orðið virkilega sjald- séð á þessum tímum ,pólitískrar réttu“. Sagan er hinsvegar nokk- uð skemmtileg á köflum, þótt hún verði helst til einhæf og langdreg- in. Leikurinn er að jafnaði góður. Guðmundur Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.