Morgunblaðið - 14.02.1999, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vatneyri BA er nú uiidan Austurlandi í sinni annarri veiðiferð án kvóta
Landaði kvótalaus í
gáma á Eskifirði í vikunni
VATNEYRI BA, kvótalaus 350
tonna togbátur frá Patreksfirði,
landaði í vikunni um 20 tonnum af
fiski í gáma á Eskifirði, án þess að
eiga fyrir því kvóta. Báturínn er
enn á veiðum kvótalaus og segir
Svavar Guðnason, útgerðarmaður,
að um sé að ræða pólitíska aðgerð
til að mótmæla kvótakerfinu. Til-
gangurinn sé að láta draga sig og
kvótakerfið fyrir dóm. Hann legg-
ur 10% af aflaverðmæti inn á
bankabók og 20% að auki ofan á
verð fisks, sem fluttur er óunninn
úr landi, og segist vilja greiða þjóð-
inni veiðileyfagjald en ekki kvóta-
eigendum. Þetta hafi hann tilkynnt
stjómvöldum.
„Þetta verður prófmál og þá er
að sjá hvort þetta kvótakerfi
hrynur til granna,“ sagði Svavar.
„Það er réttlætismál að ríkið fái
þessa peninga en ekki einhverjir
menn sem eiga í raun ekki kvót-
ann. Það er bara rugl að menn
geti tekið einhvern kvóta og selt
fyrir milljónir."
Segir að ekki þurfi
að vigta gámafisk
Um það hvemig aflinn, sem fór í
land á Eskifirði, hefði komist fram
hjá hafnarvigt, sagði Svavar að
ekki þyrfti að fara með gámafisk á
vigtina, heldur mætti landa beint í
gáma. Hann vildi ekkert segja um
það hvenær eða hvar Vatneyrin
kæmi úr næstu veiðiferð.
Svavar sagði að verð á kílói á
leigukvóta væri nú um 104 krónur
en á markaði fást um 120 krónur
fyrir kílóið, mismunurinn dygði
varla fyrir olíu, hvað þá öðru.
Auk Vatneyrar gerir Svavar út
bátinn Háhyming BA, sem er ný-
kominn úr veiðiferð fyrir leigu-
kvóta. Hann sagði að verið væri að
gera Háhyming kláran í næstu
veiðiferð, kvótalausan. „Það er
sjálfgert að gera eitthvað svona,“
sagði hann, „það er annað hvort
þetta eða að leggjast niður og
drepast."
Hann sagði að áhöfnin um borð
hefði ekkert haft um þessa ákvörð-
un sína að segja.
Morgunblaðið náði tali af Birni
Kristjánssyni, skipstjóra á Vatn-
eyrinni, sem sagðist vera að veið-
um á Hvalbakshalla, austur af
landinu. Um borð eru 8 menn,
víðs vegar af landinu, en enginn
frá Patreksfirði. Hann sagðist
hafa landað 50 körum í rúman
einn og hálfan gám á Eskifirði
þegar upp kom bilun eftir hálfan
annan sólarhring á sjó. Gámafisk,
sem landað væri fyrir viðurkennd
sölufyrirtæki erlendis, mætti
vigta erlendis.
„Vinn bara hjá manninum“
Aðspurður hvers vegna hann
hefði farið kvótalaus með skipið á
sjó sagði Björn: „Ég bara vinn hjá
manninum, ég hefði misst vinnuna
ef ég hefði ekki gert þetta. Ég hef
verið á sjó í 33 ár og kann ekki
annað.“
Hann sagðist vita að það væra
líkur á að hann yrði dæmdur til
sektar fyrir þetta eins og útgerðin
en sagði að útgerðarmaðurinn ætl-
aði að taka á sig alla ábyrgð af af-
leiðingunum.
Bjöm sagði að verð á leigukvóta
væri orðið slíkt að það væri von-
laust að gera út á það en þetta hefði
verið í lagi meðan verðið var um 70
krónur fyrir kílóið, sem væri svipað
og fiskvinnslustöðvar borguðu til
eigin báta. Nýlega hefðu Vatneyr-
inni verið boðnar 30 krónur fyrir
kíló af spriklandi þorski ef lagt yrði
upp hjá tilteknu frystihúsi.
Stjómstöð Landhelgisgæslunnar
var spurð hvort vænta mætti þess
að varðskip yrði sent eftir Vatneyr-
inni og vora svörin þau að slík mál
færa sína leið í kerfinu.
Bollurnar bragðast vel
BOLLUDAGURINN er á morgun
og má reikna með að landsmenn
sporðrenni mörg hundruð þús-
und bollum þennan dag. Fjóla
Aronsdóttir og Guðrún Guðjóns-
dóttir hjá Reyni bakara í Kópa-
vogi halda hér á bakka með
girnilegum bollum.
Hugmyndir menntamálaráðherra
Til umræðu í miðstjórn
MIÐSTJÖRN Sjálfstæðisflokksins
fjallaði á föstudag um hugmyndir
Björns Bjarnasonar, menntamála-
ráðherra, um breytingar á skipulagi
flokksins, sem m.a. lúta að því að
leggja niður embætti varaformanns.
Fyrir fundinum lá bréf frá Bimi um
málið.
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
vildi í samtali við blaðamann í gær
ekki upplýsa á hvern veg afgreiðsla
miðstjómarinnar hefði verið og vís-
aði í því efni á Davíð Oddsson, for-
mann miðstjórnarinnar.
Kjartan sagði hins vegar að til-
lögur Björns væru margþættar þótt
eitt atriði, tillagan um að leggja nið-
ur varaformannsembættið, hefði
verið tekið út úr í opinberam um-
ræðum. „Þetta verður væntanlega
til meðferðar í skipulagsnefnd land-
fundarins. Miðstjómin afgreiðir
ekki breytingar á skipulagsreglun-
um,“ sagði hann. Ekki náðist í
Davíð Oddsson í gær.
Morgunblaðið/Kristinn
jHeimiÍislánj
Besta leiðin heim.
-ÓDÝRARI
„ÖRU6GARI
..STYTTRJ EN
ÞIG6RUNAR
JiEfUREKKlVHöÐ
FARIN ÁBUR
%eo* ao /» *s* OwjJu-,
stncM.vnmtem
OO lirjpfciJtð I tm lL-j
HEIMILISLÁN LANDSBANKANS - VEODEILOARLÁN
H1 lAn m (A«r* k tl»IO Qg. XOTOOU HdSBAOl
o vuxtmiAaÁ’v - «iaiw!
• VUStSWAlAx - WU> trs»W3GWaj
• VHMHBWSÁH - »«e SaMUWJ»ÚFT«¥6&JP«£U
MÁNAÐARLE6 GR80SUIBYR0} AF VEDOcILDARlÁN! - MEÐ '
SðfWUNARUFTRYGSlMGU. I SAUANSmSN V® HÚS8RÉFALWJ-
KJRSÍhCðR Jiaaccftós A VLOOfSQWtó! - U» SCfAt;8A«irmGCtK3-J
OQ»i.
i! jmsc,® sCíviw# ** vae»
MEÐ blaðinu í dag fylgja auglýs-
ingablöð frá Heimsferðum, „Sumar-
bæklingur Heimsferða með ferðum
til Benidorm, Barcelona og
London."
MEÐ blaðinu í dag fylgir auglýs-
ingablað frá Landsbanka íslands
„Besta leiðin heim“. Blaðinu er
dreift í Reykjavík, Seltjarnamesi,
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og
í Mosfellsbæ.
A
► l-64
Viðskiptin færast
á suðvesturhornið
►Apótekum á höfuðborgarsvæð-
inu fjölgar og sjúklingar njóta
góðs af lægra verði. A lands-
byggðinni eiga apótek í vök að
verjast./10
Eru Norðurlanda-
þjóðirnar líkar?
► Tölfræði þarf ekki að vera þurr
og leiðinleg./12
Veggjakrot fylgifiskur
borgarmenningar
► Mörgum þykir veggjakrot ekki
til prýði og til að uppræta það er
vænlegast að nálgast vandann af
festu og þolinmæði./24
Með gestrisni
í blóðinu
► f Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Pétur Snæ-
björnsson í Hótel Reynihlíð./30
B___________________
► l-20
„Snjókarl“ á fjalli
► Sigurður Jónsson á Egilsstöð-
um er einn þeirra sem sjá um að
ökumenn komist leiðar sinnar yfir
fjallvegi að vetrarlagi./l&10-12
Aftur til upprunans
►Stöðugt færist í aukana að fólk
kaupi gömul hús vegna þess að
það sér mikla möguleika í breyt-
ingum á því./6
Skapanornirnar
gefast aidrei upp
►Á millistríðsárunum varð Ely
Culbertson forríkur á þvi að semja
sagnkerfi í brids./14
c
\Jferdalog
► l-4
Sætaframboð miðað
við aukna ferðagleði
► Ferðaskrifstofur kynna sumar-
bæklinga sína í dag./2
Markmiðið er 100%
ánægja gesta
► Hótel Saga og Hótel ísland
komin í keðju Radisson SAS Hot-
els Worldwide/4
D BÍLAR
► l-4
VW smíðar ofurbíla
►Volkswagen undirbýr nú harða
samkeppni við BMW og
Mercedes-Benz./2
Reynsluakstur
► Hljóðlátur og aflmikill BMW
langbakur./4
Eatvinna/
RAD/SMÁ
► l-20
Aukin verkefni
Gólflagna erlendis
►Aðilar á Nýfundnalandi áhuga-
samir./l
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir V2/Wbak
Leiðari 32
Helgispjall 32
Reykjavíkurbréf 32
Skoðun 34
Minningar 36
Myndasögur 48
Bréf til blaðsins 48
í dag 50
Brids 50
Stjörnuspá 50
Skák 50
Fólk í fréttum 54
Útv/sjónv. 52,62
Dagbók/veður 63
Mannl.str. 18b
Dægurtónl. 19b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6