Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 48
«8 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Hundalíf
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
I CAN'T HEARh'OÖ..I1M ON ^Tou’rejustX
MY CAR PH0NE PRIVIN6 o AB0UT NINETT \
AL0N6THE AMALFI C0A5T I PERCENT U/EIRP,) —M
IN ITALT..CAN TOU HEAR 2 & CHUCK.. I/J\y0
ME? WHO 15 THI5? ■n n> " ^ r ‘ Imul |
c œ f !
8
o M Æ ——-
Hæ, Kalli, það er langt síðan þú
hefur hringt í mig..
Ég heyri ekki til þín, ég er í bfla-
símanum á ferð meðfram Amalfi-
ströndinni á Italíu, heyrir þú í
mér? Hver er þetta?
Þú ert hér um bil níutfuprósent
undarlegur, Kalli...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Nýtt eignarform
á sumarbústöðum
Frá Jórii Agli Unndórssyni:
ÉG vil vekja athygli á athyglis-
verðri nýjung hér á Iandi varðandi
nýtt eignarform og nýtingu á sum-
arbústöðum. Fram að þessu hefur
ekki tíðkast að stofna hlutafélag uin
notkun á sumarbústöðum þar sem
hluthafarnir fá árlegan dvalarrétt í
húsunum. Hér er því á ferðinni
stórt hagsmunamál fyrir þá sem
vilja nota sumarbústaði en hafa ekki
lausa fjármuni eða áætlanir um að
eignast eða reka sumarbústaði.
Undirbúningur að stofnun hluta-
félags stendur nú yfir sem býður
dvalarréttindi í sumarbústöðum og
svokölluðum veisluhúsum og er öll-
um boðin þátttaka. Hluthafamir
eignast hluti og fá dvalan-étt.
Lengd dvalarréttarins er háður
fjölda hlutar og hlutirnir eru endur-
seljanlegir því að hlutafélagið leysii’
til sín innan árs þá hluti sem hlut-
hafamir vilja selja.
Samanborið við orlofssjóðina sem
stéttarfélögin reka þá eru kostimir
við þetta nýja fyrirkomulag:
Hluturinn í hlutafélaginu er end-
urseljanleg eign og ekkert mánað-
arlegt orlofsgjald;
Húsin hjá hlutafélaginu era mis-
munandi gerðar t.a.m. eru sum hús-
in innréttuð sem lítil veisluhús sem
kemur sér vel fyiár þá sem vilja eiga
góða stund með vinum og kunning-
um í rómantísku sveitaumhverfi.
Veisluhúsin henta einnig fyrir-
tækjum og starfsmannafélögum
fyrir fundi og minni ráðstefnur.
Húsin verða í notkun allt árið
m.a. vegna staðsetningu húsanna
nálægt þéttbýli. Húsin sem nú þeg-
ar hafa verið reist eru innan hálf-
tíma aksturs frá Reykjavík.
Dvöl í sumarbústað er orðið
lífsmáti margra á íslandi en verður
nú ekki eingöngu bundin við þá sem
hafa fjárfest í bústað eða eru inni í
orlofssjóðum. Allir íslendingar geta
nú á næstu misserum án kvaða eða
takmörkunar gerst aðilar að sumar-
bústaðafélagi og fengið rétt til að
dvelja í sumarhúsum í fallegu um-
hverfi, stutt frá höfuðborgarsvæð-
inu, með mestu hugsanlegu gæði og
fengið þá þjónustu sem þeir óska án
þess að greiða meira en sanngjamt
er og þeir ráða við.
Dvalarréttur „Timesharing" er
alþjóðlegt fyrirbæri þar sem félög
víða um heim sem bjóða slíkt fyrir-
komulag hafa samstarf sín á milli til
mikilla hagsbóta fyrir meðlimi sína.
Markmið þessa nýja hlutafélags á
Islandi er að tengjast erlendum
„timesharing" félögum þannig að
hluthafar hér á landi geta valið um
hús og lönd og notað hinn árlega
dvalarrétt sinn þar sem hentar
hverju sinni og greitt leiguverð sem
er langt undir hálfvirði. Ég hvet
eindregið fýrirtæki, félög og ein-
staklinga til að kynna sér þetta nýja
fyrirkomulag og hafa samband við
félagið í síma 588 4343 eða 897 9240.
I undirbúningsstjórn eru: Olöf
Elfa Sigvaldadóttir, stjómarfor-
maður, Þórdís N. Jónsdóttir sölu-
stjóri, Hlynur Ó. Svavarsson við-
skiptafræðingur, Jón Egill Unn-
dórsson verkfræðingur og Kristinn
Ragnarsson arkitekt.
EGILL UNNDÓRSON
verkfræðingur.
Kynferðisofbeldi er
ekki skemmtiefni
••
Opið bréf til Magnúsar Ogmundssonar, for-
stöðumanns markaðsdeildar Landssímans
Frá Amari Gíslasyni:
Á ÚTVARPSSTÖÐINNI X-inu
starfar maður að nafni Þorsteinn
Hreggviðsson. Hann nefnir út-
varpsþátt sinn Rauðu stjömuna og
gefur sig út fyrir að vera í boði Sím-
ans-Internets. I þætti hans mánu-
daginn 8. febrúar sl. var á dag-
skránni svokallaður Topp-tíu listi,
sem er daglegur dagskrárliður þar
á bæ. Viðfangsefni mánudagsins
vom topp-tíu setningar sem maður
skyldi ekki segja við fjórtán ára
frænku sína. Eftir því sem leið á
listann kom í ljós að verið var að
tala um sifjaspell. Númer eitt var
setningin, „Ég drep þig ef þú segir
mömmu þinni frá.“
Sifjaspell eru ekki mál sem hafa
skyldi í flimtingum. Það er löngu
orðið ljóst að fjöldi þolenda sifja-
spella og annarra kynferðisglæpa á
Islandi og annars staðar í heimin-
um er gríðarlegur. Það er ekkert
fyndið að til séu feður sem stunda
kynlíf með dætrum sínum. Það er
ekkert fyndið að til séu menn sem
misnota systur sínar. Það er heldur
ekkert fyndið við menn sem
nauðga fjórtan ára frænkum sínum
og hóta að drepa þær ef þær kjafta
frá. Það er ekkert fyndið vegna
þess að þetta er að gerast allt í
kringum okkur.
Ég vil ekki trúa því að Landssím-
inn vilji láta bendla sig við dag-
skrárgerðarmenn af þessum toga.
Ég vil taka fram að þetta er ekki í
fyrsta skipti sem höfundar topp-tíu
listans, þeir Þorsteinn og Jón Atli
Jónasson, gera kynferðisofbeldi að
skemmtiefni. Ég vænti svars frá
þér varðandi hvort og hvemig
Landssíminn ætlar að taka á þessu
máli. Ég held að Landssíminn ætti
auðvelt með að finna fjármunum
sínum betri farveg sem stuðlaði síð-
ur að því að sverta orðspor hans.
ARNAR GÍSLASON
Baldursgötu 10, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.