Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Bill Clinton ber enn einu sinni sigurorð af andstæðingum sínum Repúblikanar sitj a eftir með BAKSVIÐ Standi einhver uppi sem sigurvegari eftir réttarhald öldungadeildar Bandaríkjaþings í máli Clintons er það forsetinn sjálfur. Clinton hélt velli, bar sigurorð af rep- úblikönum og forsetinn hefur enn einu sinni ---------------------------------7------ sýnt að hann eflist við hverja raun. Irafárið vegna Lewinsky-málsins sýnm að þvi öflugri sem andstæðingar Clintons eru þeim mun sterkari verður hann og þeir sem leggja til atlögu við hann sitja eftir með sárt ennið. sart enmð Reuters BILL Clinton í Rósagarði Hvíta hússins eftir að hafa ávarpað frétta- menn uni sýknuúrskurðinn. Forsetinn baðst afsökunar á gerðum sín- um og sagði að „tími sátta og endurnýjunar“ væri runninn upp. HENRY Hyde, formaður dómsmálanefndar fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings og aðalsaksóknari hennar í réttarhaldinu í máli Clintons, ávarpar blaðamenn eftir að öldungadeildin sýknaði forsetann í fyrra- dag. Hinir saksóknararnir standa fyrir aftan hann. ÓTT niðurstaðan hefði þegar legið fyrir var það söguleg stund þegar þing- menn öldungadeildar Bandaríkjaþings komu saman í fyrradag, stóðu upp hver á fætur öðrum til að lýsa Bill Clinton forseta „sekan“ eða „ekki sekan“. Enginn velktist í vafa um að þessi viðburður yrði fyrirferðarmikill í sögubókunum þar sem þetta var aðeins önnur málshöfðunin til embættismissis á hendur bandarískum forseta í sögu Bandaríkjanna. Andrew Johnson, 17. forseti Bandaríkjanna, var sýknaður af ákæru til embættismissis fyrir 131 ári og þá vantaði aðeins eitt atkvæði til að hann yrði sakfelldur og sviptur embættinu. Niðurstaðan í máli Clint- ons var hins vegai- sú að ákæran á hendur honum fékk ekki einu sinni hreinan meirihluta, hvað þá tvo þriðju atkvæðanna, sem þurfti til að sakfella hann. Ys og þys út af engu? Þessi niðurstaða er mikið áfall fyr- ir repúblikana, einkum þá sem sóttu málið fyrir hönd fulltrúadeildarinn- ar. Margir líta svo á að allt málið hafi verið ys og þys út af engu en óljóst er hvaða afleiðingar Lewinsky-mál- ið, sem hefur tröllriðið fjölmiðlum og þjóðlífi Bandaríkjanna í þrettán mánuði, mun hafa á stjórnmál lands- ins á næstu árum. „Ég tel ekki að öll raunasaga málshöfðunarinnar geti haft miklar afleiðingar til lengri tíma litið fyrir aðra en Clinton forseta," sagði Howard Baker, fyrrverandi öldunga- deildarþingmaður repúblikana. „Og jafnvel afleiðingarnar fyrir hann eru umdeilanlegar." Bandaríski sagnfræðingurinn Arthur Schlesinger, sem hefur varið Clinton með oddi og egg, er á önd- verðum meiði við Baker og telur að réttarhaldið muni draga dilk á eftir sér. „Málshöfðunin á hendur Andrew Johnson misheppnaðist en forseta- embættið veiktist og var í sárum í mörg ár. Ég hygg að málshöfðunin á hendur Clinton hafi sömu áhrif.“ Enginn sigurvegari? Clinton hélt embættinu en þeir, sem þekkja hann, segja hann í sárum og þetta eigi eftir að plaga hann næstu árin og jafn- vel alla ævina. „Hann er forseti sem hefur verið auðmýktur frammi fyrir alþjóð, fjölskylda hans hefur gengið í gegnum ólýsanlega sorg, hann er fyrsti þjóðkjömi forset> inn í sögu Bandaríkjanna sem hefur verið ákærður til embættismissis og löggjafarmarkmið hans hafa orðið að engu,“ sagði Dee Dee Myers, íyrrver- andi fjölmiðlafulltrúi Clintons. „Það er erfitt að segja að forsetinn hafi far- ið með sigur af hólmi í þessu máli... hann hélt velli.“ Brýnt var fyrir aðstoðarmönnum Clintons að fagna ekki sýknuúr- skurði öldungadeildarinnar og hlakka ekki yfii- ófóram repúblikana. Embættismenn hans lýstu Hvíta húsið „hlakklaust svæði“ þegar þing- menn öldungadeildarinnar greiddu atkvæði um hvort forsetinn hefði framið meinsæri og lagt stein í götu réttvísinnar til að leyna sambandi sínu við Monicu Lewinsky, fyrrver- andi starfsstúlku í Hvíta húsinu. „Ég hygg að menn geti dregið þá ályktun að enginn hafi farið með sigur af hólmi,“ sagði einn embættismanna forsetans. Eflist við hveija raun Margir líta þó svo á að það hafi verið mikill sigur fyrir Clinton að halda velli á svo afgerandi hátt í Ijósi fjölmiðlafársins og alha þeirra þrenginga sem hann hefur mátt ganga í gegnum frá því Lewinsky- málið komst í hámæli fyrir rúmu ári. Hann hafi enn einu sinni sannað snilli sína sem stjómmálamanns og sýnt að hann eflist við hverja raun. Því öflugri sem andstæðingar hans séu þeim mun sterkari verði hann sjálfur þegar upp er staðið. Þótt margir gefi forsetanum lága einkunn þegar þeir eru spurðir um heiðarleika hans og siðferði benda nýlegar skoðanakannanir til þess að Bandaríkjamenn séu ánægðari með störf Clintons en nokkurs annars forseta í sögu Bandaríkjanna. Því má segja að hann standi með pálmann í höndunum eftir rimmuna við repúblikana, sem sitja eftir með sárt ennið. Clinton hélt embættinu en tveir af leiðtogum repúblikana urðu að víkja; Newt Gingrich sagði af sér embætti forseta fulltrúadeild- arinnar vegna kosningaósigurs repúblikana sem einkum er rakinn til framgöngu þeirra í máli Clintons og kjörinn eftirmaður hans, Bob Liv- ingston, ákvað að draga sig í hlé eftir að í Ijós kom að hann hafði sjálfur haldið framhjá konu sinni. Dómur sögunnar sagður verða harður Aðeins áköfustu stuðningsmenn Clintons halda því þó fram að forsetinn hafi ekki beðið álitshnekki vegna Lewinsky-máls- ins. Jafnvel þeir þing- menn demókrata, sem gagnrýndu framgöngu repúblikana harðast, leyndu því ekki að málið hefur valdið þeim miklum vonbrigð- um og þeir lýstu framferði forset- ans með lýsingarorðum eins og „skammarlegt", „svívirðilegt" og „smánarlegt". „Sagan mun fella harðan dóm vegna gerða hans og dómgreindar- brests,“ sagði demókratinn og öld- ungadeildarþingmaðurinn Christ- opher Dodd, sem greiddi atkvæði gegn sakfellingu forsetans og taldi að sakargiftirnar réttlættu ekki embættissviptingu. Clinton fær nú 23 mánuði til að koma stefnu sinni í framkvæmd og fryggja að hans verði ekki aðeins minnst sem forsetans er var auð- mýktur með ákæru til embættis- missis vegna kynferðislegs sam- bands síns við starfstúlku sína. Richard Nixon, sem sagði af sér vegna Wat- ergate-málsins fyrir 25 árum, fékk að lokum upp- reisn æru að verulegu leyti og ætla má að Clinton, er hélt þó embættinu, eigi sér einnig viðreisnar von. Ýmislegt bendir til þess að Clinton takist að styrkja stöðu sína áður en hann lætur af embætti. Líklegt þykir að nýr forseti fulltrúadeildarinnar, repúblikaninn Dennis Hastert, verði vinsamlegri í garð forsetans en for- veri hans. Clinton hefur náð tals- verðum árangri í utanríkismálum þrátt fyrir þrengingar sínar heima fyrir og staða hans á alþjóðavett- vangi gæti styrkst frekar. Hylli hans meðal almennings og ekki síst góð- ærið í bandaríska efnahagslífinu benda einnig til þess að hans verði minnst sem farsæls forseta þrátt fyi'ir hneykslismálið. Þótt rimma forsetans og meiri- hluta þingsins hafi skaðað helstu valdastofnanir Banda- ríkjanna og rýrt traust almennings á stjórnmála- mönnunum í Washington bendir margt til þess að skaðinn sé ekki varanleg- ur. Raunin gæti því orðið sú að Lewinsky-málið hafi sáralítil áhrif á framvindu stjórnmálanna í Banda- ríkjunum á næstu árum, þrátt fyrir alla mifijarðana sem eytt vai' í rann- sókn málsins og allt írafárið á þing- inu og í fjölmiðlunum. Svíþjóð Lög'um um vændi vand- framfylgt Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. FYRSTA tilraun sænskra yfir- valda til að fella dóm eftir nýj- um lögum um vændi fór út um þúfur í vikunni. Samkvæmt lög- um er saknæmt að kaupa kyn- ferðislega þjónustu og getur refsing numið sektum eða allt að sex mánaða fangelsi. Málmeyjai'búi, sem tekinn var með vændiskonu í janúar, var sýknaður, þar sem ákærandi gat ekki hrakið orð hins ákærða um að hann hefði aðeins ætlað að tala við konuna. Réttarhöldin hafa víða vakið athygli, því lög- gjöfin er einstök í sinni röð og mörg lönd huga að breytingum á þessu sviði til að stemma stigu við vændi, sem oft er fylgifiskur annarrar glæpastarfsemi. Málmeyjarbúinn kom í hverfi vændiskvenna í Málmey, tók vændiskonu upp í bíl sinn og þeysti á brott. Þegar hann stoppaði við hraðbanka, tók út fé og greiddi henni 500 sænskar krónur, um 5 þúsund íslenskar, lét lögreglan til skarar skríða og handtók hann. Hann játaði strax á sig að hafa ætlað að kaupa sér þjónustu konunnar, en þegar fyrir réttinn kom dró hann játninguna til baka, sagð- ist hafa verið einmana og ein- ungis ætlað að fai'a með hana heim til að spjalla. Þessum framburði tókst saksóknara ekki að hnekkja, en hins vegar vai' maðurinn dæmdur í mánað- arfangelsi fyrir ölvun við akst- ur. Lögreglan segist nú reynsl- unni ríkari og muni framvegis haga sér öðruvísi við að fram- fylgja lögunum. Hvort nú þui-fi beinlínis að grípa fólk við kyn- mök með peninga á borðinu á eftir að koma 1 ljós. Víða fylgst með lögunum Lög, sem gera það saknæmt að kaupa kynferðislega þjón- ustu, gengu í gildi um áramótin. Þau hafa verið lengi í undirbún- ingi og miklar umræður farið fram í Svíþjóð um hvort þetta væri rétta leiðin til að stemma stigu við vændi. Stuðningsmenn laganna halda því fram að það sé spor í rétta átt að það séu kaupendumir, ekki vændiskon- urnar, sem gerist brotlegir. Lögin muni hræða menn frá því að nálgast vændiskonur. Gagn- rýnendur laganna halda því fram að þetta reki aðeins vændi neðanjarðar og þar með verði vændiskonur enn ver settar en áður. Þetta eru fyrstu lögin sinnar tegundar og víða um lönd er fylgst með framvindunni í kjöl- far þeirra. Mjög víða er verið að reyna að bregðast við vændi, sem í vaxandi mæli er að verða hluti af skipulegri glæpastarf- semi. Aukningin á meðal annars rætur í útbreiðslu rússneskra glæpasamtaka utan Rússlands og þeim fylgir önnur óværa. Á ráðstefnu Norðurlandaráðs í Stokkhólmi nýlega um málefni barna var meðal annars bent á að þar sem rússneskar vændis- konur væru að störfum, til dæmis í Finnlandi, væri rúss- neska mafían líka og með henni kæmi eiturlyfjasala. Þar sem konur frá Asíu eru við vændi í Evrópu er oft um að ræða starf- semi, sem tengist smygli á fólki og jaðrar við þrælasölu, því konumar hafa oft verið lokkað- ar til Evrópu á fólskum for- sendum. Vændi er því oft fylgi- fiskur annarrar glæpastarf- semi. Óvissa um af- leiðingar málsins Clinton gæti styrkt stöðu sína frekar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.