Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
I 120—200 fm skrifstofuhúsnæði
óskast fyrir fjársterkan kaupanda, miðsvæðis í
Reykjavík. Góðar greiðslur í boði fyrir rétta eign.
Nánari upplýsingar veittar
á skrifstofu okkar
*
Arsalir ehf., fasteignamiðlun,
Lágmúla 5 í Reykjavík.
BpEIGINAMroUJMNI®
9090 • Fax S}{}{ 9095 • SiOiiiiiilLi 2 I
Bókaverslun
Þóraríns Stefánssonar,
Húsavfk, er til sölu
Hér er um að ræða eina elstu bókaverslun landsins.
Verslunin er í eigin húsnæði að Garðarsbraut 9,
samtals 368,4 fm, auk kjallara. Staðsetning er mjög
góð - í hjarta bæjarins. í bókabúðinni er rekin fjöl-
breytt verslun, almenn bókaverslun og ritfanga-
verslun. Einnig verslun með ferðamannavörur o.fl.
Slík verslun fer vaxandi en gert er ráð fyrir 20.000
hvalaskoðunarmönnum á þessu ári. Rými hússins
gefur kost á enn fjölbreyttari verslun. Gert er ráð
fyrir að selja bæði húseignina og versiunina.
Kjörið tækifæri fyrir athafnafólk með ferskar hug-
myndir.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
EILMMIÐLININ
♦
___________________________ Starfsmem. Sverrir Kristinsson lögg (asteignasali, sölusbóri,
Porieifur St.Guömundsson.B.Sc., sölum , Guömundur Sigunónsson Iðgfr. og lögg.fastetgnasaU. skialagerö.
Stefán Hrafn Stefánsson lögfr., sölum., Magnea S. Sverrisdóttir, lögg. testeigr----- "
Stefán Árni Auöótfssqn, sölumaöur, Jóhanna Vaklimarsdóttir, a. —-- «•-
simavarsla og ritarl, Olöf Steinarsdóttir. öflun skjala og gagna, Jt
5»}{ 9090 • Fax 58» 9095 • SiTiimu'ihi 2 1
Opið í dag, sunnudag, kl. 12-15.
HÆÐIR
Bústaðavegur - hæð og ris.
5 herb. mikið endumýjuð glæsileg hæð ásamt
nýlyftu risi. Á hæðinni er rúmgott hol, eldhús m.
nýrri innr., baðh., stórt herb. og stofa. í risi er eld-
hús, baðh. og tvö herb. en möguleiki er á sér
íbúð þar. Eign sem gefur mikla möguleika. Æski-
leg skipti á íbúð í Fossvogi. V. 11,0 m. 8462
4RA-6 HERB
Asbraut - 4ra herb. Vorum að fá í
sölu 90 fm íbúð við Ásbraut í Kópavogi. íbúðin
skiptist í þrjú svefnherb., stóra stofu og rúmgott
eldhús. 8463
Vesturbær - 3ja herb. Vorum að fá
í einkasölu 69 fm 3ja herb. íbúð á 4. hæð (fjöl-
býli. íbúðin skiptist í forstofu, rúmt eldhús, stofu,
baðherb. og tvö svefnherb. Góð sameign. Eftir-
sótt staðsetning. Húsið er nýlega tekið í gegn að
utan. V. 6,5 m. 8432
Miðsvæðis - 3ja herb. vorum að
fá í einkasölu 3ja herb. 70 fm íbúð nálægt
miöbænum. Tvö rúmgóð svefnherbergi, góð
stofa, eldhús og baðherbergi. Sérgeymsla í kjall-
ara og þvottahús í sameign. V. 6,1 m. 8433
Laufrimi - rúmgóð 3ja herb.
98 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli í
Grafarvogi. 8 fm sérgeymsla fylgir á jaröhæð. V.
8,3 m. 8403
Gautland - frábær staðsetn-
ing. 3ja-4ra herb. falleg um 81 fm íbúð á 3.
hæð (efstu) í nýviðgeröri blokk. Nýl. parket á gólf-
um. Stórar suðursvalir. Glæsilegt útsýni. Áhv. 4,5
m. V. 8,5 m. 8461
Brekkulækur - laus m. vinnu-
aðstöðu. Vorum að fá í einkasölu rúmgóða
u.þ.b. 94 fm 3ja-4ra herb. íbúð á 2. hæð í góðu
steinhúsi. Suðursvalir. íbúðin þarfnast standsetn-
ingar. í kjallara er rúmgott u.þ.b. 55 fm vinnupláss
sem hentað getur undir ýmiskonar starfsemi. Lykl-
ar á skrifstofu. V.8/fm. 7838
Fellsmúli 7 - sérinngangur.
Vorum að fá í einkasölu mjög rúmgóða 118 fm
4ra herb. íbúð á jarðhæð. íbúðin skiptist í þrjú
svefnherb., hol, stórt bað, geymslu, eldhús og
stofu. Bílskúrsréttur fylgir. Blokkin er nýmáluð. V.
8,3 m. 8415
Hverfisgata - nýstandsett.
77 fm 4 herb. íbúð á 3. hæó ofarlega á Hverfis-
götu. Nýtt parket, ný innrétting í eldhúsi og rúm-
góð herbergi. Lyklar á skrifstofu. V. 6,4 m. 8402
Stóragerði. 4ra herb. vel skipulögð íbúð
á 1. hæð í fjölbýli. íbúðin er nánast öll park-
etlögð. Sameign er góð. Lítið framboð er af
eignum á þessu svæöi. V. 8,1 m. 8360
3JA HERB. HiPl1
Sörlaskjól - ris með bílskúr.
Vorum að fá í einkasölu einkar vel staösetta 64,5
fm risíbúð á einum besta stað í bænum. íbúöin
skiptist m.a. í tvö svefnherb., borðstofu og stofu
o.fl. 31,2 fm bílskúr fylgir með íbúðinni. Góð
sameign. íbúöin er lítið undir súð. Þessi stoppar
stutt við. V. 8,3 m. 8452
Vallarás - rúmgóð. vommaðfáí
sölu rúmgóða 3ja herb. 83 fm íbúð á 3. hæð í
lyftublokk. íbúöin skiptist í hol, stofu, eldhús,
baðherb. og tvö góð svefnherb. Sérgeymsla og
þvottahús í sameign er í kjallara. Sameign er
mjög snyrtileg og öll ný tekin í gegn. V. 6,9 m.
8453
2JA HERB.
Vesturberg - útsýni. 2ja herb. mjög
falleg og standsett íb. á 4. hæð í nýl. standsettu
húsi. Sérþvottah. m. glugga innaf eldhúsi. Nýl.
parket. Áhv. byggsj. 3.750 þús. Stutt í alla þjón-
ustu. V. 5,7 m. 6382
Grettisgata - tvíbýli. Snyrtileg og
björt u.þ.b. 45 fm efri hæð í tvíbýlishúsi. Húsiö
stendur á baklóð. Sérinngangur. Áhv. ca 2 m.
húsbróf. Laus fljótlega. V. 4,5 m. 8449
Kópavogur. 2ja herb. 63 fm íbúð á
jarðhæð í litlu fjölbýli í austurbæ Kópavogs með
sórinngangi. Snyrtileg og falleg íbúð sem skipt-
ist í forstofu, svefnherb., baðherb., eldhús og
stofu. Sérgarður til suðurs. Mjög góö sér-
geymsla á sömu hæð. V. 6,2 m. 8385
ATVINNUHÚSNÆÐI.
Fossháls 1. Vorum að fá í sölu glæsilegt
um 820 fm verslunar- og lagerhúsnæði í eftir-
sóttu húsi á mjög góðum stað. Næg bílastæði.
Góðar innkeyrsludyr. Góð lofthæð. Húsið er vel
þekkt og hefur mikið auglýsingagildi. Hagstæð
lán geta fylgt. V. 65 m. 5526
Suðurlandsbraut - vönduð
skrifsthæð. Vorum að fá í sölu u.þ.b. 316
fm skrifstofuhæð ásamt 78 fm geymsluplássi.
Hæðin er á 4. hæð í vönduðu lyftuhúsi og skipt-
ist m.a. í 10 skrifstofuherbergi, vinnusal, móttöku
o.fl. Á hæðinni eru eldhús, snyrtingar o.fl. sam-
nýtt með Félagi jámiðnaðarmanna. Ástand og út-
lit hæðarinnar er mjög gott. Útsýni er mjög gott.
Lóðin er malbikuö og með bílastæðum og góðri
að komu. V. 26,0 m. 5520
Hverfisgata - skrifstofa.
Vorum að fá í einkasölu mjög gott 45,0 fm
skrifstofu- eða verslunarhúsnæði við Hverf-
isgötu. Eignin stendur á áberandi stað við
götuhom og hefur mikið auglýsingagildi.
Þetta er elgn sem gæti hentað undir margs-
konar rekstur. 5516
í DAG
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir
VIÐ undirrituð viljum
koma á framfæri þakklæti
okkar fyrir mjög góða
þjónustu hjá starfsfólki og
fararstjórum á Kanaríeyj-
um.
Við hjónin fórum til
Kanaríeyja 5. janúar og
vorum í 14 daga á góðu
hóteli Las Camelías á
ensku ströndinni og var
þessi ferð mjög góð og
skipulag og þjónusta til
fyrirmyndar. Ekki getum
við þó sagt að við höfum
verið heppin með veður.
En fararstjórar okkar
sáu svo um að fólk gæti
haft nóg fyrir stafni. Við
vorum svo óheppin að kon-
an þurfi að fara á sjúkra-
hús í tvo daga, þá kom sér
vel að Urval-Utsýn hefur
íslenskan hjúkrunarfræð-
ing á staðnum, sem Guð-
rún heitir, og reyndist hún
okkur sérstaklega vel.
Guðrún á allt okkar þakk-
læti skilið því hún var til-
búin að aðstoða okkur á
alla lund í erfiðleikum okk-
ar. Hún heimsótti konu
mína þessa daga sem hún
var þar og eins talaði hún
við læknana á sjúkrahús-
inu og fylgdist vel með.
Eftir að kona mín kom til
baka upp á hótel hringdi
hún og kom til að vita
hvernig henni liði. Fyrir
þetta viljum við þakka, og
hafðu kærar þakkir fyrir
Guðrún.
Ennfremur viljum við
senda Þórhalli fararstjóra
sérstakar þakkir fyrir
hans miklu greiðasemi.
Með kærri kveðju,
Sveinn Valtýsson,
Kristín S. Jónasdóttir,
Hafnarfirði.
Sammála um óréttláta
skattheimtu
Eg las um óréttláta skatt-
heimtu í Velvakanda sl.
miðvikudag. Konan fer
með rétt mál og skorar á
eldri borgara að kjósa þá
sem leiðrétta þetta mis-
rétti. Vil ég taka undir
þetta en vil að við kjósum
þá sem beita sér fyrir því
núna FYRIR kosningar að
breyta þessu, láta verkin
tala fyrir kosningar. Við
höfum slæma reynslu af
kosningaloforðum en
kunnum vel að meta það
sem gert er fyrir kosning-
ar.
Halldór.
Hver á að fóðra
gæsirnar?
ÆTLAR borgin að halda
áfram að svelta gæsirnar á
Tjörninni? Þegar frost er í
jörðu flykkjast gæsirnar á
túnin í hverfunum í kring
að leita sér ætis og fólk
hefur jafnvel verið að gefa
þeim brauð því þær eru
svo svangar. Það er búið
að venja þessa fugla á mat-
argjöf og leita þeir þvf
þangað sem þeir fá að éta.
Vil ég hvetja þá hjá
Reykjavíkurborg til að
taka það aftur upp að fóðra
fuglana á Tjörninni -
einnig vil ég hvetja fólk til
að færa fuglunum á Tjöm-
inni eitthvað í gogginn.
Heidi.
Mál leigjenda
í Þjóðarsál
SÍÐASTLIÐINN fimmtu-
dag sat fyrir svörum í
Þjóðarsál Sigurður Helgi
Guðjónsson frá Húseig-
endafélaginu. Umræðuefni
þáttarins var m.a. gjöld í
hússjóði. Þar kom fram að
fólk sem leigir á að borga
hússjóðinn nema um annað
sé samið. Vil ég skora á
umsjónarmenn Þjóðarsál-
arinnar að fá formann
Leigjendasamtakanna,
Jón Kjartansson, til að
sitja þar fyrir svömm.
Finnst mér það meira við
hæfi að hann svari fyrir-
spumum um leigjendur en
Sigurður.
Leigjandi.
Tapað/fundið
Lýst eftir svörtum
gleraugum
LÝST er eftir svörtum
gleraugum í plastumgjörð
sem týndust í leigubílaröð-
inni 9. janúar sl. Gleraug-
un em gömul og ein sinnar
tegundar hér og því auð-
þekkjanleg. Þau em lág-
formuð og kassalaga, breið
og alláberandi. Þau þekkj-
ast m.a. af silfruðum
stjörnulaga festingum við
spangir. Heiðarlegur aðili
sem hefur þau undir hönd-
um eða sá sem getur veitt
upplýsingar um hvar þau
er að finna vinsamlegast
hringi í síma 5813966,
897 0766 eða komi þeim til
óskilamuna hjá lögreglu.
Fundarlaun í boði.
Svört taska týndist
SVÖRT rifs-taska, með
leikararullu og slæðu í,
týndist sl. fimmtudag.
Gæti verið á leiðinni frá
Möguleikhúsinu og inn á
Kleppsveg. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
553 2777.
Dýrahald
Silfurgrá læða
týndist í nóvember
SILFURGRÁ læða týnd-
ist ftá Háteigsvegi í nóv-
ember. Hún er ómerkt og
ólarlaus. Þeir sem hafa
orðið hennar varir hafi
samband í síma 562 7435.
Kettlingar
fást gefíns
FALLEGIR nfu vikna
gamlir, bröndóttir og vel
upp aldir kettlingar, högni
og læða, fást gefins á góð
heimili. Upplýsingar í síma
567 5420.
ÉG hef oft hugsað
um að drekkja sorg-
um minum, en hvorki
konan mín né tengda-
mamma eru til í að
koma með mér niður
að sjó.
ÉG hélt að
þú værir
hættur að
reykja.
Víkveiji skrifar...
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
er ótrúlegur maður. Segja má að
hann hafi verið fjarverandi vegna
veikinda meira og minna síðustu
mánuði. Annað slagið lætur hann þó
sjá sig í Kreml og tekur jafnan til
hendinni - þó minnst af þeim verk-
um snúi að því að stjórna landinu, að
því er virðist. Hér í blaðinu var fyrir
skömmu frétt um að hann hefði
óvænt mætt til vinnu; fyrirsögnin
var sem hér segir: Jeltsín til vinnu í
rúma klukkustund. Rak helming
starfsliðsins. Gott dagsverk það!
XXX
KUNNINGI Víkverja, sem verið
hefur til sjós, nefndi það á dög-
unum að mjólk - og reyndar ýmsar
aðrar mjólkurvörur - frá Mjólkur-
samlagi KEA á Akureyri, væri mun
vinsælli meðal sjómanna sem hann
þekkti til en vörur annars staðar frá.
Ein ástæðan væri sú að mjólkin frá
KEA entist miklu lengur en önnur.
Lítið mál væri að drekka hana við
heimkomu, þó útiveran væri mánuð-
ur, og mjólkin hefði aðeins verið
geymd í kæli en sömu sögu væri
sannarlega ekki að segja af allri
mjólk. Hvernig skyldi standa á þess-
um mun?
XXX
SUMIR fjölmiðlar hafa gjarnan
talað um að Bill Clinton og fræg-
asta aðstoðarstúlka síðari tíma,
Monica Lewinsky, hafi átt í ástar-
sambandi. Líklega er óhætt að full-
yrða að kynferðissamband þeirra sé
eitthvert hið frægasta á síðari tím-
um, en Víkverji minnist þess ekki að
með óyggjandi hætti hafi komið
fram að þau hafi átt í ástarsambandi.
Kynferðissamband er eitt en ástar-
samband allt annað, og þarf ekki
alltaf að fara saman. Kynlíf og ást
fara ekki alltaf saman, hvort sem
mönnum líkar betur eða verr.
XXX
VÍKVERJI síðasta sunnudags
fékk heldur kaldar kveðjur frá
íþróttadeild Morgunblaðsins eftir
helgina. Spurt var að því hvort hann
læsi ekki íþróttasíðurnar, vegna
þeirra hugleiðinga í dálkinum að
fróðlegt væri að heyra hvort Skaga-
menn hefðu hagnast eitthvað á því
að Arnar Gunnlaugsson var seldur
frá Bolton til Leicester í Englandi.
Á íþróttasíðu blaðsins á fóstudeg-
inum kom nefnilega fram að Akur-
nesingar fengju ekki neitt vegna
þessara félagaskipta. Víkverji biður
íþróttafréttamennina auðvitað afsök-
unar á klaufaskapnum, og lofar að
lesa íþróttafréttimar með meiri at-
hygli í framtíðinni.
XXX
ASTÆÐA er til að vekja athygli
áhugafólks um klassíska tónlist
á þáttum Ingveldar Ólafsdóttur um
enska sellósnillinginn Jacqueline du
Pré, sem eru á dagskrá á Rás 1 á
laugardögum. Fyrsti þáttur var
sendur út fyrir rúmri viku, annar
þáttur var á dagskrá í gær en alls
verða þeir sex.
Grein var um du Pré hér í blaðinu
fyrir hálfum mánuði og ekki fór á
milli mála að þarna hefur mikill snill-
ingur verið á ferðinni, þó ýmislegt
hafi bjátað á; bæði andlega og svo
líkamlega, auðvitað, en hún varð að
leggja sellóið á hilluna aðeins 28 ára
að aldri vegna MS-sjúkdómsins, sem
dró hana til dauða 42 ára.
Ingveldur fór til Englands og átti
þar viðtöl við hjónin Hilary (du Pré)
Finzi, systur Jacqueline, og Kiffer
Finzi, sem fléttað er inn í frásagnir
af henni og tónlist leikin þess á milli.
Hilary og bróðir hennar, Piers, skrif-
uðu einmitt afskaplega áhrifaríka
bók um systur sína sem kom út fyrir
tveimur árum og kvikmynd hefur nú
verið gerð, byggð á henni. Myndin
var frumsýnd í Lundúnum í janúar.
Víkverji veit að Regnboginn á sýn-
ingarrétt á myndinni hérlendis og
hvetur ráðamenn þar á bæ eindregið
til að hefja sýningar á henni sem
allra fyrst.
XXX
YÍKVERJI stökk hæð sína í loft
upp af fógnuði þegar hann las
bækling frá Heimsferðum sem fylgdi
Morgunblaðinu síðasta sunnudag.
Raunar má segja að fagnaðarlætin
hafi ekki verið af miklu tilefni; og þó,
á forsíðunni stóð nefnilega: Bókaðu
fyrir 10. mars og tryggðu þér lægsta
verðið á íslandi. Víkverji er nefni-
lega unnandi íslenskrar tungu, og
fullyrðir að langt sé síðan hann sá
eintöluorðið verð notað rétt í slíkri
auglýsingu. Yfirleitt eru bestu verð-
in boðin...